Morgunblaðið - 19.10.1999, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 1999 33
LISTIR
Sívakandi
æðri sköpun
Starfsár Kammersveitar Reykjavíkur er hafið þó að fyrstu tónleikarnir í Reykjavík verði ekki fyrr en í
desember. Sveitin er nú á tónleikaferðalagi í Kína og í næsta mánuði fer hún til Þýskalands.
Kammersveit Reykja-
víkur á ferð í Kína
TOJVHST
Bústadakirkja
KAMMERTÓNLEIKAR
Islenska tríóið og Einar Jóhannes-
son fluttu verk eftir Mozart,
Brahms og Beethoven. Sunnudag-
inn 17. október, 1999.
ÍSLENSKA tríóið, sem Nína
Margrét Grímsdóttir, Sigurbjörn
Bernharðsson og Sigurður Bjarki
Gunnarsson skipa, er nýjasti kam-
merhópurinn og er Sigurður um
það bil að ljúka námi í Bandaríkjun-
um en Sigurbjörn og Nína Margrét
hafa þegar skilað nokkru verki að
námi loknu. Aðrir tónleikar Kam-
mermúsikklúbbsins á þessu starfs-
ári hófust með tríói í Es-dúr, K.498,
eftir Mozart, fyrir klarinett, lág-
fiðlu og píanó. Tríóið er gefið út af
Artaria 1788, sem op. 14 og þar
sagt vera fyrir píanó, með undirleik
fiðlu og lágfiðlu. Talið er líklegt að
verkið sé samið fyrir Jacquin fjöl-
skylduna en heimasætan var góður
píanisti og vilja menn trúa því, að
Stadler hafi leikið á klarinett en
Mozart á lágfiðlu, er verkið var
fyrst flutt heima hjá Jacquin fjöl-
skyldunni. Þetta er elskulegt verk
og var það að mörgu leyhti vel flutt
og þó ekki væri sem þýðlegast
strokið um strengi hjá Sigurbirni,
var leikur Einars fallega mótaður,
svo að einkennilegar andstæður í
tónmótun komu upp. Píanóið var
einnig nokkuð hljómmikið og sumt
tónflúrið ekki nægilega létt og leik-
andi.
Annað verk tónleikanna var klar-
inetttríó í a-moll, op. 114, fyrir klar-
inett, selló og píanó. Þetta dapur-
lega verk er, eins og mörg síðustu
verk meistarans, mettað af návist
dauðans, jafnvel í þriðja kafla
verksins, þar sem bregður fyrir lýr-
ískum tónhendingum er líkaböng
nærri. I þessu verki má heyra leik
meistarans með stef, þar sem auka-
Islensk
skipulags-
og húsa-
gerðarsaga
á 20. öld
ÞROUN byggingarlistar og
skipulags á 20. öld, er yfir-
skrift námskeiðs sem hefst 25.
október í Listaháskóla Is-
lands. Tilgangur námskeiðs-
ins er að varpa ljósi á helstu
þætti í íslenskri skipulags- og
húsagerðarsögu á 20. öld.
Gerð verður grein fyrir þeim
hugmyndum og kenningum
sem mest áhrif hafa haft á
mótun byggðar hér á landi
með tilvísun í verk helstu arki-
tekta.
Fjórir
fyrirlestrar
I fjórum fyrirlestrum verð-
ur m.a fjallað um heimastjóm-
arárin og upphaf steinsteypu-
notkunar, verk fyrstu arki-
tektanna, skipulagshugmynd-
ir 3. áratugarins, kreppuárin
og upphaf módernisma, þróun
þeirrar stefnu eftir stríð og
breytt viðhorf í húsagerð eftir
1970. Kennari er Pétur H. Ár-
mannsson arkitekt deildar-
stjóri byggingarlistardeildar,
Kjarvalsstöðum. Kennsla fer
fram í húsnæði Listaháskóla
Islands. Námskeiðið er sam-
vinnuverkefni Listasafns
Reykjavíkur og LHÍ.
stefið er spegilmynd (viðsnúning-
ur) aðalstefsins og unnið með það í
canon. Kontrapunktísk tilþrif í
lokakaflanum túlka margir sem eft-
irsjá, yfir því sem er liðið. Þetta
verk var að mörgu leyti vel flutt en
vantaði dauðagruninn, sem er
hljóðlát, dimmmjúk mynd að baki
hverjum þeim er á styttra eftir en
gengið er. Það er varla von að ungir
listamenn skilji eða finni til návist-
ar dimmunnar, eigandi ævintýrin
framundan. Einar lék verkið mjög
vel, svo að víða glampaði á. Sellist-
inn, Sigurður Bjarki, er efnilegur,
með fallegan tón en hélt sig of til
hlés, jafnvel þar sem hin þungbúna
hugsun er lögð í hendur sellistans,
eins og t.d. í upphafi verksins.
Píanóleikinn, sem var ágætlega út-
færður, vantaði þó hina dökku
hljóman, er oft einkennir ritháttinn
hjá Brahms.
Lokaverk tónleikanna var Erki-
hertogatrióið, eftir Beethoven og
þar var flutningurinn of haminn.
Það vantaði háskann í þetta meist-
araverk og tónmál þess var á köfl-
um slitrótt í flutningi, einkum þar
sem Beethoven leikur sér með og
flytur á milli hljóðfæra, smágerð
tónmynstur, sem verða æsi spenn-
andi í miklum hraða. Skersóið var
einum of hægt og það vantaði
hryngleðina í það. Reynslan er mik-
ilvæg í svona stórbrotnu verki og
mátti heyra marga fallega og vel
mótaða tónhendingu leikna á fiðl-
una en sem fyrr var sellóið ekki
nægilega ákveðið og píanóleikurinn
ekki sá drifkraftur, sem hæfir
þessu erfiða verki. Þrátt fyrir þetta
var margt vel gert, er segir til um
að hér er á ferðinni stórefnilegt
tónlistarfólk, þó það eigi enn
nokkra leið ógengna upp Parnass-
um og í þeirri vegferð eftir að
dýpka reynslu sína, marka hana
sársauka og trega, skynja mikilleik
hins óskilgreinanlega.og að listin er
meira en gamansamur leikur, held-
ur sívakandi æðri sköpum.
Jón Ásgeirsson
TONLIST
S u I ii i' i n n
KÓRTÓNLEIKAR
Karlakór Akureyrar og Geysir
sungu íslensk og erlend lög undir
stjórn Roars Kvam. Einsöngvari:
Þorgeir Andrésson. Píanóleikari:
Richard Simm. Laugardaginn
16. október.
KARLAKÓR Akureyrar og
Karlakórinn Geysir sameinuðust ár-
ið 1990 og hafa starfað sem einn kór
síðan. Nú um slðustu helgi heim-
sóttu norðanmenn þá sem sitja að
jörðum í landnámi Ingólfs og héldu
ekki aðeins eina tónleika, heldur
tvenna sama daginn. Það hefur allt-
af verið ferð á norðanmönnum, svo
sem þá er þeir lögðu fyrrum í ferðir
suður, og muna megum við örlaga-
ríka ferð Jóns Arasonar, nú þegar
1000 ára kristni er minnst. Fyrir ut-
an að vera fyrirferðarmiklir hafa
norðanmenn þótt raddmenn góðh’
og margir bestu söngmenn þjóðar-
innar eru þaðan komnir.
Kai'lakór Akureyrar-Geysir hóf
tónleikana með Sönghvöt eftir Áskel
Jónsson, tónskáld og söngstjóra.
Þetta er ágætt lag, sem kórinn söng
mjög vel. Annað lag eftir Áskel,
Brimlending, dramatískt lag við
kvæði eftir Davíð Stefánsson, var
ágætlega flutt. Þorgeir Andrésson
söng nokkur einsöngslög og einnig
með kómum og honum til aðstoðar
KAMMERSVEIT Reykjavíkur
hélt af stað í viku tónleikaferð til
Kína á sunnudag og mun leika á
þrennum tónleikum þar í landi. Rut
Ingólfsdóttir fiðluleikari og list-
rænn stjórnandi Kammersveitar-
innar segir Kínaförina lokapunkt-
inn á hátíðahöldunum í tilefni af 25
ára afmæli sveitarinnar.
I leiðangi-inum eru fimmtán
hljóðfæraleikarar og munu þeir
halda þrenna tónleika, tvenna í
Peking og eina í Nanjing. „Við leik-
um Brandenborgarkonsert eftir
Bach, Eine kleine Nachtmusik eftir
Mozart, Rímnadansa eftir Jón
Leifs, útsetningar Atla Heimis
Sveinssonar á tveimur þekktum
kínverskum lögum, trompetkon-
sert fyrir tvo trompeta eftir Vivaldi
og septett eftir Saint-Saéns, sem er
mikið virtúósastykki fyrir píanó,“
segir Rut. Aðspurð um aðdraganda
ferðarinnar segir Rut að það hafi
var Richard Simm, sem er frábær
píanóleikari. Lögin sem Þorgeir
söng einn voru Sprettur eftir Svein-
bjöm Sveinbjömsson og Dein ist
mein ganzes Herz eftir Lehái', sem
bæði vora glæsilegajlutt. Með kóm-
um söng Þorgeir í fjarlægð eftir
Karl O. Runólfsson, Sjá dagar koma
eftir Sigurð Þórðarson, í umritun
söngstjórans, Vín, borg minna
drauma eftir Sieczymskí, í umritun
Páls P. Pálssonar, og De quella pira,
úr II trovatore eftir Verdi. Kraft-
mikill söngur Þorgeirs féll vel að lif-
andi og þróttmiklum söng norðan-
manna, sérstaklega í De quella pira
og Sjá dagar koma, ásamt aukaíag-
inu Hamraborginni eftir Sigvalda
Kaldalóns, sem var glæsilega sungið
af Þorgeiri.
Séi-verke/ni kórsins fyrir hlé, fyr-
ir utan lög Áskels, vora: Áfram, eftir
Áma Thorsteinsson, sem var hressi-
lega sungið. Þar á eftir söng kórinn
perluna Sefur sól hjá ægi eftir Sig-
fús Einarsson. Ekki var nægileg ró
yfir flutningi lagsins en þessi næt-
urstemmning gerir kröfur til þess
að söngvarar ráði yfir þéttum og
veikum tóni. Það var helst til mikið
loft á tóninum til að hann næði að
hljóma. Sigling inn Eyjafjörð eftir
Jóhann Ó. Haraldsson var næst og
var það eina lagið þar sem tónstaðan
var ívið of lág, sem hægt er að kenna
þreytu eftir langan söngdag í sunn-
ansvalanum. Síðasta lagið fyrir hlé
var söngverkið Föramannaflokkar
þeysa eftir Karl O. Runólfsson, sem
var nokkuð vel flutt.
komið til tals þegar hún var sjálf á
ferð í Kína í fyrra að Kammersveit
Reykjavíkur myndi fara þangað og
spila. Hún segist hafa notið ómet-
anlegrar aðstoðar sendiráðs ís-
lands í Peking við að koma öllu í
kring.
Söguleg upptaka frá 1977
Út er kominn hinn fyrsti af fimm
geisladiskum sem ARSIS-útgáfan í
Hollandi hyggst gefa út í tilefni af
25 ára afmæli Kammersveitar
Reykjavíkur. „Þessi fyrsti diskur
er það sem við köllum söguleg út-
gáfa en á honum er upptaka frá ein-
um tónleikum Kammersveitarinn-
ar í febrúar 1977, þar sem við
fluttum í fyrsta skipti á Islandi hið
þekkta verk Kvartett um endalok
tímans eftir Olivier Messiaén. Þeir
tónleikar eru ógleymanlegir því
fólki sem var þar og á liðnum árum
hafa mjög margir spurt mig hvort
Eftir hlé skiptust á atriði úr óper-
um og óperettum. Fyrst Inngöng-
umars úr Sígaunabaróninum og
Gleðisöngur, hraður polki, bæði lög-
in eftir eftir Johann Strauss yngi-i,
er vora mjög hressilega sungin. Þá
komu tvö atriði úr óperam eftir
Verdi, Va, pensiero úr þriðja þætti
Nabucco og söngur matadoranna úr
öðram þætti La traviata, og vora
þessi söngatriði mjög vel mótuð af
söngstjóranum, sem auðheyrilega
lagði sig eftir að vera í góðu jafn-
vægi við undirleikinn. Richard
Simm sá um þann þátt tónleikanna
og var leikur hans einstaklega fág-
aður, enda er Simm konsertpíanisti,
svo sem vel mátti heyra í sérlega fal-
lega mótuðum tónlínum, er
áreynslulaust streymdu fram með
söngnum, bæði í lögunum þar sem
ekki væri möguleiki að gefa þá út,“
segir Rut. Næsti diskur er svo
væntanlegur í nóvember. Á honum
era kammerverk eftir Mozart sem
sveitin hefur leikið víða á síðustu
áram. Rut gerir ráð fyrir að hann
verði látinn heita Kvöldstund með
Mozart. Þá segir hún líta út fyrir að
diskur með upptökum Kammer-
sveitarinnar á verkum Jóns Leifs
frá síðastliðnu vori komi út fyrir
jólin á vegum Islenskrar tónverka-
miðstöðvar.
KammersVeitin verður rétt kom-
in heim frá Kína þegar níu hljóð-
færaleikarar hennar leggja aftur
land undir fót, nú til Þýskalands,
þar sem þeir leika á tónleikum í
Bonn 7. nóvember. Þeir tónleikar
era haldnir í samvinnu við sendiráð
Islands í Þýskalandi. „Þar spilum
við verk eftir Jón Leifs, Hjálmar H.
Ragnarsson, Beethoven og
Mozart," segir Rut.
Þorgeir söng einn og með kómum
og þá ekki síður í Inngöngumarsin-
um og polkanum eftir J. Strauss,
sem blátt áfram umtumaðist í fal-
legan píanóleik. I Va, pensiero, þar
sem viðkvæmt skrautstef í undir-
leiknum blátt áfram blómstraði, að
ekki sé talað um hrynskarpan leik í
söng matadoranna og De quella
pira, var leikur Richards Simm
hreint frábær. I heild vora þetta
ánægjulegir tónleikar og Roar
Kvam stýrir þama söngglöðum hópi
og hefur mótað söng hans af smekk-
vísi, jafnvel í því viðfangsefni sem
getur verið hættulegt í umritunum,
eins og t.d. hinu fallega einsöngslagi
I fjarlægð, sem hljómar best í fram-
gerð sinni.
Jón Ásgeirsson
MORE
NÝ LÍNA f YFIRSTÆRÐUM 44-60
Verðdæmi:
Jakkar frá kr. 4.900
Pils frá kr. 2.900
Buxur frá kr. 2.900
Bolir frá kr. 1.500
Anna og útlitið verður með fatastils- og
litgreiningamámskeið. UppL í síma 892 8778.
Nýbýlavegi 12
Kópavogi
Sími 554 4433
Söng-glaðir norðanmenn