Morgunblaðið - 19.10.1999, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER1999 35
LISTIR
Sumarhús að hausti
Karlakór með sveiflu
LEIKLIST
Þjúðleikhúsið
SJÁLFSTÆTT FÓLK
Höfundur skáldsögu: Halldór Kilj-
an Laxness. Höfundar leikgerðar:
Kjartan Ragnarsson og Sigríður
Margrét Guðmundsdóttir. Höfund-
ur tónlistar: Atli Heimir Sveinsson.
Leikstjóri: Kjartan Ragnarsson.
Sviðshreyfingar: Lára Stefánsdótt-
ir. Leikmynd: Axel Hallkell. Bún-
ingar: Þórunn Elisabet Sveinsdótt-
ir. Leikarar er tekið hafa við
hlutverkum frá frumsýningu: Edda
Heiðrún Backman og Elva Ósk Ól-
afsdóttir. Nýr hljóðfæraleikari:
Kristján Eldjárn. Laugardagur 16.
október.
VEGNA þess að nýir leikarar
hafa tekið við hlutverkum í hinni
tvískiptu sýningu Þjóðleikhússins á
Sjálfstæðu fólki og vegna þess að
Kristján Eldjám gítarleikari hefur
tekið við af Tatu Kantomaa harm-
onikkuleikara þykir ástæða til að
fjalla um framlag þeirra.
Það er mjög áhugavert að fá að
sjá uppfærsluna á Sjálfstæðu fólki
enn á ný, rúmu hálfu ári eftir að
hún var frumsýnd. Sum atriðanna
hafa verið lítillega snurfusuð, en
aldrei svo að einhvers sé sérstak-
lega saknað. Að sjálfsögðu gengur
öll framvinda sýningarinnar betur
fyrir sig og þetta hvort tveggja or-
sakar að sýningartíminn er styttri.
Ingvar E. Sigurðsson hefur tvíeflst
í hlutverki Bjarts í fyrri hlutanum
og sýnir ótrúlega góðan leik, það
beinlínis stirnir af honum á sviðinu.
Margrét Vilhjálmsdóttir stendur
honum ekki að baki og á samúð
áhorfenda alla sem hin giftusnauða
Rósa. Hvað þeim hefur vaxið ás-
megin í hlutverkum hjónanna gerir
þennan hluta enn frekar að harm-
leik tveggja einstaklinga sem
vegna lyndiseinkunnar sinnar
hljóta að bíða ósigur.
Edda Heiðrún Backman hefur
tekið við hlutverki Rauðsmýrar-
maddömunnar í fyrri hlutanum.
Leikgervi hennar er sérstaklega
vel til fundið, án efa byggt á göml-
um ljósmyndum af loðbrýndum,
hárprúðum formæðrum okkar. En
einhvern veginn er eins og Edda
Heiðrún finni sig ekki í hlutverk-
inu. Rauðsmýrarmaddömu hennar
skortir skörungsskapinn og
ákveðnina; í stað þess verður hún
hjáróma og frek. Edda Heiðrún
leikur einnig Brynju ráðskonu í
seinni hlutanum. Þó að Edda Heið-
rún leggi e.t.v. of mikla áherslu á
hið skoplega í samskiptum hennar
og Bjarts nær hún að sýna van-
máttarkennd hennar og óöryggi
gagnvart honum.
Elva Ósk Ólafsdóttir leikur
Gunnvöru í upphafsatriði fyrri
hlutans af sannfærandi tryllingi
hins hugsjúka og svo Finnu, seinni
konu Bjarts, í báðum hlutunum.
Það mætti kannski segja að Elva
Ósk sé of falleg í hlutverk þessarar
útslitnu konu; sérstaklega í saman-
burði við hinn eldri Bjart Arnars
Jónssonar. Finna verður enn ein
fíngerða og viðkvæma sálin sem
hann treður undir fótum sér. Elva
Ósk á þama virkilega góða spretti
og samleikur hennar og Bergs Þórs
Ingólfssonar ljær sýningunni ævin-
Morgunblaðið/Karl
Tæplega 100 raddir munu hljóma í Stykkishólmskirkju
á kristnihátíð.
Sameiginlegar
kóræfingar fyrir
kristnihátíð
Grundarfirði. Morgunblaðið.
NÚ standa yfír sameiginlegar kór-
æfingar hjá kirkjukórunum í
Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu
fyrir kristnihátið er verður sunnu-
daginn 31. október í Stykkis-
hólmskirkju. Um er að ræða tæp-
Iega hundrað manna kór sem
munu syngja kirkjuleg verk ým-
issa höfunda, innlendra sem er-
lendra. Stjómendur kóranna og
undirleikarar em Sigrún Jóns-
dóttir, Stykkishólmi, Friðrik
Vignir Stefánsson, Gmndarfírði,
Jóhann Þór Baldursson, Ólafsvík,
Kay Wiggs, Hellissandi, og Susana
Budai, Borgamesi.
týralegan ljóma.
Greinilegt er að raddir Eddu
Heiðrúnar og Elvu Óskar nýtast
vel í kórsöngnum, kvenraddimar
eru óneitanlega ómþýðari. Svolítil
þreyta er komin í átakamestu hópa-
triðin og hreindýrsatriðið er langt í
frá eins glæsilegt og það var.
Gítarleikur Kristjáns Eldjáms
gefur frábærri tónlist Atla Heimis
Sveinssonar fínlegra yfirbragð.
Sérstaklega á það við í gullfallegum
leik hans á laginu sem Rósa, Asta
Sóllilja og Björt raula gjaman fyrir
munni sér. Arnar Jónsson sýnir oft
sterk tilþrif sem hinn eldri Bjartur
en Steinunn Ólína er enn sem fyrr
meginstoð seinni hlutans sem Asta
Sóllilja - í hlutverki sem hlýtur að
vera nær óyfirstíganlega erfítt að
leika.
Það verður að ítreka að nú er
hver að verða síðastur að fá að
njóta þessarar leikgerðar sögu
Halldórs Laxness. Þrátt fyrir að
sýningin sé langt í frá hnökralaus
þá er hún mjög athyglisverð,
hljómlistin frábær, leiktjöldin
áhrifamikil og falleg og leikurinn
oft hrífandi.
Sveinn Haraldsson
TOJVLIST
Hljúmdiskar
í JÖKLANNASKJÓLI
Karlakórinn Jökull. Stjómandi: Jó-
hann Morávek. Undirleikari: Guð-
laug Hestnes. Undirleikarar í
hljómsveit: Haukur Helgi Þorvalds-
son (orgel og harmonika), Gunn-
laugur Sigurðsson (gítar), Bragi
Karlsson (trommur), Jóhann Mora-
vek (klarinett og bassi). Upp-
tökustaðir: Hafnarkirlqa og Mána-
garður. Hljóðupptaka: Studio
Stemma. Upptökumaður: Sigurður
Rúnar Jónsson. Utgefandi: Karla-
kórinn Jökull. Dreifing: Skífan.
KARLAKÓRINN Jökull er úr
Austur-Skaftafellssýslu, en með-
limir væntanlega flestir frá Höfn í
Hornafirði. Kórinn hóf starfsemi
sína í ársbyrjun 1973, og var Sigjón
Bjamason frá Brekkubæ fyrsti
stjómandi hans, en núverandi
stjórnandi kórsins (frá 1992) er Jó-
hann Morávek. Kórinn hefur haldið
tónleika víða um landið, einnig á
Norðurlöndum og sl. sumar á íta-
líu. Einnig hefur hann sungið með
Sinfóníunni, svo eitthvað sé nefnt.
Þessi fyrsti hljómdiskur kórsins
er að flestu leyti mjög ánægjuleg-
ur, og veldur þar mestu alþýðlegt
og skemmtilegt lagaval eftir frem-
ur hefðbundna og svolítið leiðinlega
byrjun, þar sem átthaga- og ætt-
jarðarástin, söknuðurinn og máttur
söngsins ráða ríkjum. Sem er svo
sem gott og blessað og mjög ís-
lenskt, en sum lögin em bara dálít-
ið klén. En frá og með Homfirsku
meyjunni (8) fer sveiflan að glæðast
og landið að rísa jafnt og þétt, eftir
því sem líður á diskinn. Og þegar
komið var að síðustu fjóra lögunum
eftir Magnús Eiríksson, þrjú við
„blúsaða“ texta sama höfundar -
það fjórða og síðasta við texta
Steins Steinarr (Hudson Bay), var
maður kominn í virkilega gott skap!
Kórinn er góður, sömuleiðis ein-
söngvarar og undirleikarinn, Guð-
laug Hestnes. Einnig era aðrir
hljóðfæraleikarar ágætir og eiga
sinn þátt í lífga upp á hljómdiskinn
með góðri sveiflu í skemmtilegum
útsetningum.
Hljóðritun er góð, aftur á móti
hef ég efasemdir um hljómburð
kirkjunnar.
Oddur Björnsson
Ótrúlegur kraftur, eöallínur, formfegurð og
glæsilegar innréttingar, allt gerir þetta Civic
■
■ - 1 V: :
að lúxusbíl sem veitír ökumanni og farþegum
Ijúfa ánægjustund í hvert einasta sinn sem
upp í hann er sest. Komdu og skoðaöu á
vefnum www.honda.is eða líttu inn og fáðu
að prófa.
3d Civic 1.4 Si
90 hestöfl, 16 ventla, samlœsingar, rafdrífnar rúöur og speglar.
Lengd: 4,19 m. Hjólhaf: 2,62 m.
( 3d Chric 1.4 Sl
' on ifí I
90 hestöfí, 16 ventla, ABS, tvelr loftpúðar, samlæsingar, rafdrífnar
rúöur og spegtar. Lengd: 4,19 m. Hjúlhaf: 2,62 m.
( 3d Civic 1.5 LSi ■ VTEC
* 1 Arr Ltnrvt-Xfí tfí t/nntln A
115 hestöfl, 16 ventla, ABS, tvelr loftpúöar, fjarstýrðar samlæsingar, raf-
drifnar rúður og speglar, hiti i speglum. Lengd: 4,19 m. Hjólhaf: 2,62 m.
( 3d Civic 1.6 VTi - VTEC
1 *r-n 1___.-í, on . A
160 hestöfl, 16 ventla, ABS, tveir loftpúöar, 15" álfelgur, rafdrífin sóllúga,
leðurstýrí, sportinnrótting, fjarstýröar samlæsingar, rafdrifnar rúöur og
speglar. hitl i speglum, 6 hátalarar, samlitaöur. Longd: 4,19 m. Hjólhaf:
2,62 m.
Vatnagörðum 24 ■ Simi 520 1100 ■ www.honda.is
:
Akranes: BHversl., slml 431 1985. Akvreyrl: HöUurhl., simi 4613000. EglltstiSln Bila- og búvélasalan ht., simi 47120,1.
KeflavOc Bílasalan Bllavlk, sími 421 7800. Vestmannaeyjan B8averkstæðið Bragginn. siml 481 ,535.