Morgunblaðið - 19.10.1999, Qupperneq 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 1999
MENNTUN
MORGUNBLAÐIÐ
Starfsfólk
óskast
✓
Egþori ekki að stinga uþp á því hér í
julustu alvöru að íslensk fyrirtæki leysi
dagvistarvandann á Islandi með því að
bjóða starfsfólki ókeypis barnagæslu. En
hvað með ókeypis helgarferð til Parísar
svona við og við?
Mittíallrivelsæld-
inni glíma banda-
rískir atvinnu-
rekendurvið
nýjan vanda,
þann að halda starfsfólkinu. A tím-
um þegar atvinnuleysi er í sögu-
legu lágmarki víða um landið og
annars staðar með því lægra síð-
ustu áratugi er eðlilegur fylgifis-
kur sá að starfsmenn freistist til
þess að líta á grasið hinum megin
girðingarinnar. Hræðslan við at-
vinnuleysi er ekki fyrir hendi til
þess að halda þeim niðumjörvuð-
um og afleiðingin er sú að íjöl-
mörg fyrirtæki kvarta sáran und-
an auknum kostnaði og fyrirhöfn
i/muADr ^ leita að
V IÐHUKr og þjáifa upp
nýtt starfsfólk í
Katrrín«,,n,, staðþessfem
Friðriksen hverfur til ann-
arrafyrirtælga.
Félagsfræðingar halda því
reyndar fram að hagsældin sé
eldd eina ástæða mikillar hreyf-
ingar á bandarískum vinnumar-
kaði. Þangað sé nú komin ný
kynslóð fólks sem telji fullkomlega
eðlilegt að færa sig ört á milli
starfa, það þyki hreinlega ekki
lengur endflega jákvætt að vera
lengi um kyrrt á sama stað.
Astæðu þessara sinnaskiPta megi
svo leita í þeirri staðreynd að fólk
stendur nú frammi fyrir fjöl-
breyttari tækifærum en nokkru
sinni, og það sem meira er; upp-
lýsingar um þessi tækifæri eru öll-
um aðgengilegai’. Fólk þekki því
betur en áður fómarkostnaðinn
við það að vera um kyrrt á sama
stað.
Það virðist samdóma álit helstu
vinnumarkaðsspekinga vestan
hafs að helsti einstaki vandinn
sem bandarísk fyrirtæki standi al-
mennt frammi fyrir sé að finna
góða starfsmenn og halda þeim.
Bandarískur vinnumarkaður er
reyndar langt frá því sá eini sem
glímir við þetta vandamál um
þessar mundir. En eins og svo oft
em Bandaríkjamenn fljótir til með
tilraunir til þess að bregðast við.
Þannig em það ekki lengur aðeins
helstu yfirstjómendur fyrirtækja
sem njóta fríðinda á borð við lúx-
usferðir til helstu borga Evrópu,
ókeypis leikhús- og tónleikamiða,
einkalíkamsþjálfara, golfkennslu,
ókeypis miða á íþróttaviðburði og
svona mætti lengi telja. I sífellt
auknari mæli er hér um að ræða
fríðindi til almenns starfsfólks,
fríðindi sem atvinnurekendur
vona að auki almenna ánægju og
vellíðan starfsfólksins nægilega til
þess að hindra það í að leita hóf-
anna annars staðar.
Hagstofa þeirra Banda-
líkjamanna hefúr áætlað að með-
altímalengd fólk í ákveðnu starfi
sé um fjögur ár. Fólk á aldrinum
18-24 dvelur að meðaltali aðeins í
átján mánuði í hverju starfi en fólk
yfir fimmtugu stoppai- í um níu ár.
Það kostar sitt að missa sérhæfð-
an og reyndan starfsmann, að
meðaltali um 50.000 dollara að
mati hagstofúnnar. Það svarar til
3,5 milljóna íslenskra króna.
Það er því ekki að undra að
reynt sé að spoma við þessari þró-
un. Með því að gera starfsfólk
ánægðara og ýta undir þá tilfinn-
ingu þess að það sé metið að verð-
leikum vonast eigendur sem sagt
til þess að auka ábyrgðar- og
skyldutilfinningu þess gagnvart
viðkomandi fyrirtæki. Meðal ann-
arra lausna en framangreindra
má nefnda reglubundnar skemmt-
anir fyrir alla fjölskylduna sem
miða að því að starfsfólk kynnist
hvert annars fjölskyldum, ókeypis
bamagæslu í húsnæði fyrirtækis-
ins og mötuneyti þar sem bæði má
fá ókeypis mat í hádeginu og
kippa með matarbakka heim fyrir
kvöldið (ókeypis). Þá ráða fyrir-
tæki gjaman sendla til þess að
sinna ýmsum persónulegum er-
indagjörðum starfsmanna; fara í
bankann, í hreinsun, kaupa af-
mælisgjafir handa maka og böm-
um...
I raun virðist hugmyndaflugi
atvinnurekenda lítil takmörk sett
þegar kemur að því að brydda upp
á nýjum fríðindum til handa
starfsfólkinu. Þó má greinilega
koma þar auga á ákveðið þema
sem miðar að því að gera vinnu-
staðina fjölskylduvæna. Með
reglulegu millibili er boðið upp á
alls konar skemmtilegar (og
ókeypis) uppákomur sem starfs-
fólki er boðið að taka þátt í með
fjölskyldum sínum og margar nýj-
unganna miða að því að búa svo
um hnútana að starfið taki sem
minnstan toll af fjölskyldulífi fólks.
Sums staðar er starfsfólki meira
að segja boðið upp á ókeypis tíma í
fjölskylduráðgjöf ef persónulegir
erfiðleikar steðja að heima fyrir.
Þetta hljómar eiginlega allt
saman grunsamlega vel og fyrstu
viðbrögð eru reyndar þau að velta
því alvarlega fyrir sér hvort at-
vinnurekendur séu almennt
gengnir af göflunum. Hvort vel-
megunin sé slík að þeir eigi erfitt
með að koma gróðanum í lóg. En
auðvitað er það ekkert annað en
almennt og ágætt viðskiptavit sem
liggur hér að baki hjá þeim sem
stjóma rekstri fyrirtækja. Það
gefur augaleið að ýmislegt má
gera sem kostar minna en þær 3,5
milljónir sem það kostar fyrirtæíd
að missa vel menntaðan og sér-
hæfðan starfsmann yfir til kepp-
inautanna. Hin hliðin á jöfnunni er
svo auðvitað sú að fyrirtæki sem
era í bullandi samkeppi krefjast
alls þess af starfsfólki sínu sem
það getur boðið. Það er klárt að
fyrirtækin eru ekki að deila út
gjöfum eins og jólasveinninn,
heldur einfaldlega að auka líkura-
ar á velgengni með því að styrkja
mildlvægasta hlekkinn í keðjunni.
íslenskur vinnumarkaður hefur
m.a. verið ólíkur þeim bandaríska
að því leyti að meðaltími fólks í
hverju starfi er lengri hér á landi.
Islensk fyrirtæki hafa hins vegar
ekki farið varhluta af harðnandi
samkeppnisumhverfi undanfarið
þar sem meðal annars er keppt
um hæft starfsfólk, oft í störfum
sem krefjast sérfræðiþekkingar.
Ég þori ekki að stinga upp á því
hér í fúlustu alvöra að íslensk fyr-
irtæki leysi dagvistarvandann á
íslandi með því að bjóða starfs-
fólki ókeypis bamagæslu. En hvað
með ókeypis helgarferð til Parísar
svonaviðogvið?
Menntaskólinn á Egilsstöðum tuttugu ára
Ljósmynd/Sunna Ólafsdóttir
Stefnt að nýrri
listabraut
MENNTASKÓLINN á Egilsstöð-
um er 20 ára á þessu ári. Skólinn var
settur í fyrsta sinn þann 14. október
1979 og var þá í ófullgerðu húsnæði.
Nemendur á heimavist deildu þá
fjórir með sér tveggja manna her-
bergjum og hluti nemenda bjó á
heimavist í Hótel Valaskjálf fram til
ársins 1983 þegar ný álma heima-
vistar var tekin í notkun. Heimavist
ME getur nú hýst tæplega 120 nem-
endur. Nemendur á fyrstu haustönn
1979 vora 99 talsins en nú 20 áram
síðar eru skráðir 246 nemendur í
dagskóla, þar af 111 í heimavist, 47
utanskóla og um 50 í öldungadeild.
Bókasafn hefur verið við skólann frá
1991. Frá því að íþróttahús á Egils-
stöðum var tekið í notkun 1984 hef-
ur íþróttalíf ME verið í blóma meðal
nemenda sem hafa æft og keppt að-
allega í boltaíþróttum, en um 83
nemenda stunda íþróttir í einhverj-
um mæli. Fyrsti áfangi kennsluhúss
var tekin í notkun 1989 og rýmkað-
ist þá mjög um nemendur og starfs-
fólk. Árið 1991 flutti mötuneyti skól-
ans á sinn stað og var tekinn í
notkun borðsalur fyrir 130 manns.
Nú, 20 árum eftir að skólinn var
fyrst settur, er ennþá notast við
bráðabirgðaaðstöðu að hluta til við
kennslu og era stjómunar- og bóka-
safnsaðstaða enn ófullnægjandi. Að-
kallandi er að hefja framkvæmdir
við annan áfanga kennsluhúss til
þess að skólinn geti haldið áfram að
vaxa og dafna. Arið 1996 fékkst
heimild til þess að bjóða fram tónl-
istarbraut við skólann. Undanfarin
ár hefur verið unnið að hugmyndum
um handverks- og hönnunamám og
stefnt er að því að skólinn verði með
listabraut sem felur í sér tónlistar-
og hönnunarkjörsvið til að byrja
með.
Stöðugleiki í starfsmannahaldi
Það era 27 starfandi kennarar við
skólann, auk þriggja stundakennara
og hafa 22 þeirra full starfsréttindi.
FATEX, félag fata- og textílkenn-
ara í framhaldsskólum, var stofnað
árið 1995. Aðalmarkmið félaga þess
er að efla og viðhalda þekkingu Is-
lendinga á þráðlistum. Félagið hef-
ur m.a. staðið fyrir endurmenntun-
ai-námskeiðum á sviði hannyrða- og
fatahönnunargreina. Einnig hefur
félagið tekið þátt í undirbúnings-
vinnu nýrrar aðalnámskrár, en
fata- og textílgreinar eru m.a. í boði
sem kjörsvið á listnámsbraut í nýju
námskránni.
Nýlega hafa tveir félagsmenn
FATEX gefið út kennslubækur.
Helga Jóhannesdóttir (helgajo
centram) kennari í fatahönnun gaf
út bókina Textílfræði; hráefni-
þráður-voð í maí sl., en í henni er
Skólanum hefur haldist vel á kenn-
uram og ríkir almennt stöðugleiki á
starfsfólki skólans. Nokkrir af fyrr-
verandi nemendum skólans hafa
komið til starfa að loknu háskólan-
ámi og eru nú sjö fyrrverandi nem-
endur orðnir kennarar við skólann.
Fyrsti skólameistari ME var Vil-
hjálmur Einarsson en hann lét af
störfum árið 1994 eftir að hafa verið
skólameistari frá stofnun. Við tók
Ólafur Ambjömsson, frá 1994-1995
og núverandi skólameistari er Helgi
Omar Bragason en hann gegndi
störfum skólameistara frá 1990-
1993 í námsleyfi Vilhjálms Einars-
sonar.
Flestir mennta
sig til stúdentsprófs
Menntaskólinn á Egilsstöðum
hefur starfað eftir áfangakerfi sem
gerir nemendum auðvelt fyrir að
flytja sig á milli skóla, sem þykir
kostur þegar um er að ræða litla
skóla með takmarkað námsfram-
boð. Skólinn hefur gefið út sameig-
inlegan námsvísi með öðram fram-
haldsskólum á landsbyggðinni og
markvisst samstarf hefur ríkt milli
framhaldsskólanna á Austurlandi
og gerðu skólamir samning við
menntamálaráðuneytið um þetta
samstarf með vel skilgreindum
markmiðum og viðfangsefnum.
Áhersla hefur verið lögð á bóknáms-
brautir til stúdentsprófs, s.s. eðlis-
fræði-, félagsfræði-, hagfræði-,
íþrótta-, mála-, og náttúrafræði-
brautir. Tveggja ára brautir hafa
verið uppeldis-, íþrótta-, og við-
skiptabrautir ásamt sérbrautum
skólans, skógræktar-, og ferðaþjón-
ustubraut. Lítil eftirspurn hefur
verið eftir námi á tveggja ára braut-
um. Árið 1983 var tekið í notkun op-
ið kerfi sem kallast í dag stoðkerfi.
Það var hugsað til þess að auka
sveigjanleika á hefðbundna
kennsluhætti og bjóða í stað hefð-
bundinna kennslustunda, opna tíma
rakinn ferill vefjarefna þeirra sem
við notum t.d. í föt. Bókin er
annarsvegar í formi heftis fyrir
kennara og hinsvegar fyrir nem-
endur. Kennaraheftinu er ætlað að
nýtast vel sem uppflettirit fyrir þá
sem vinna með föt og fataefni.
Ásdís Jóelsdóttir textílkennari
þýddi og gaf út nú í haust, á vegum
Iðnú, bókina Snið og sniðteikningar
eftir Inger Öberg og Hervor Ersm-
an. Bókin er hugsuð sem fagbók,
þangað sem kennarar og nemendur
í fata- og textílhönnun geta sótt
hugmyndir. Hún er einnig ætluð
öðrum þeim sem sauma og vilja
sjálfir læra að búa til sín eigin snið.
Bókin Snið og sniðteikningar fæst í
bókabúðum.
þar sem nemendur geta komið og
fengið aðstoð við verkefnavinnu og
frekari útskýringar á námsefninu ef
þurfa þykir. Fjórðungur kennslu-
stunda er nú lagður undir þessa
stoðtíma.
Skólinn hefur stutt nemendur í
samstarf við jafnaldra erlendis, oft
með gagnkvæmum heimsóknum
nemenda milli landa. Famai’ hafa
verið ferðir m.a. til Færeyja, Þýska-
lands, Skotlands og Finnlands og í
fyrra var skólinn þátttakandi í við-
amiklu nemendaskiptaverkefni við
skóla á Ítalíu. Nú er skólinn þátttak-
andi í verkefni ásamt skólum á Siki-
ley og í Tékklandi sem felst í sam-
skiptum nemenda á Netinu. Þessi
erlendu verkefni hafa verið styrkt af
sjóðum Evrópusambandsins. Fé-
lagslíf nemenda er öflugt við ME.
Nemendafélag hefur starfað frá
stofnun skólans. Félagið hefur stað-
ið fyrir dansleikjahaldi, stutt við
bakið á klúbbastarfsemi ýmiskonar,
árshátíðum, söngvarakeppni, þorra-
blótum og fleira. Nemendur hafa
farið í heimsóknir í aðra framhalds-
skóla á Austurlandi til þess að
keppa í íþróttum og eru „Ólympíu-
leikar Austurlands" árviss íþrótta-
viðburðm- milli nemenda þessara
skóla. Nemendur hafa náð góðum
árangri undanfarin ár í spuminga-
keppni framhaldsskólanna, „Gettu
betur“, og Leikfélag ME hefur
starfað lengi og sett upp fjölmargar
sýningar. Nú er verið að æfa söng-
leikinn Rocky Horror Show undir
leikstjórn Guðjóns Sigvaldasonar.
Tímamótum fagnað
Á hátíðardagskrá Menntaskólans
sem haldin var í Valaskjálf flutti
Bjöm Bjarnason menntamálaráð-
herra ávarp. Einnig fluttu ávörp,
fyrrverandi nemandi, Guðlaugm-
Sæbjömsson og fyrrverandi starfs-
maður, Þorsteinn Gunnarsson rekt-
or Háskólans á Akureyri. Nemend-
ur fluttu tónlistaratriði og Leikfélag
ME sýndi atriði úr Rocky Horror
Show sem framsýnt verður eftir
nokkra daga. Afmæliskaffi var í
mötuneyti skólans og skólahúsnæð-
ið var opið til skoðunar. I tilefni af-
mælisins var opnuð málverkasýning
í Safnahúsinu á Egilsstöðum á verk-
um eftir Kjai’val. Ennfremur vora
myndfr eftir Kjarval sýndar í sal
mötuneytisins en þær voru allar
fengnar að láni úr einkaeigu íbúa
Austurlands. Tímaritið Glettingur
sem gefið er út um málefni Austur-
lands, var helgað afmæli ME, þar
sem saga skólans er rakin með ýms-
um hætti bæði í máli og myndum.
Hátíðardagskránni lauk með af-
mælisgleði með borðhaldi í Vala-
skjálf, fyrir núverandi og fyrrver-
andi nemendur og starfsfólk
skólans þar sem nemendur sáu um
skemmtidagskrá. Gleðinni lauk svo
með dansleik Milijónamæringanna
ásamt Bjama Ara.
Fata- og textílkennsla