Morgunblaðið - 19.10.1999, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 1999 45
UMRÆÐAN
í KRÖFTUGUM
stjórnmálahreyfíng-
um á að vera blómleg
starfsemi allan ársins
hring - ekki einungis
þær vikurnar sem
sækja þarf stuðning til
kjósenda í kringum
kosningar. Stöðug, lif-
andi stjómmálaum-
ræða er eitt af markm-
iðum Vinstrihreyf-
ingarinnar - græns
framboðs. Þess vegna
hefur farið fram kröft-
ug starfsemi um ýmsa
málaflokka í sumar;
þess vegna var efnt til
heimsóknar á Eyja-
bakkasvæðið í haust og þess vegna
hefur þingflokkurinn efnt til ferða
og fundahalda víða um land. Þá má
nefna að þessa dagana eru kjör-
dæmafélög hreyfingarinnar að
halda aðalfundi sína, undirbúa mál
fyrir landsfund Vinstrihreyfingar-
innar og kjósa fulltrúa sína á fund-
inn sem verður haldinn á Akureyri
dagana 22.-24. október. Með öllu
þessu starfi hefur fylgismönnum
hreyfingarinnar og öðrum m.a. gef-
ist kostur á að kynnast nýkjörnum
þingmönnum okkar, fundarmenn
hafa kynnt viðhorf sín
og hugmyndir og
skipst á skoðunum um
ýmis málefni. Allt mun
þetta reynast dýr-
mætt veganesti í
stjórnmálabaráttunni
sem framundan er.
Sterk stjórna-
randstaða
En þótt Vinstri-
hreyfingin - grænt
framboð hafi haldið úti
lifandi starfi í sumar
og haust má almennt
segja að starfsemi
stjórnmálaflokkanna
sé að nokkru leyti ár-
stíðabundin og að stjórnmálaárið,
hið pólitíska ár, hefjist í október-
byrjun þegar Alþingi kemur sam-
an.
Þingflokkur Vinstrihreyfingar-
innar - græns framboðs hefur nú
þegar sýnt að þar fer kröftugur og
samhentur hópur sem mun fylgja
einarðlega fram þeim stefnumálum
sem hreyfingin hefur gert að sínum
og halda uppi harðri stjórnarand-
stöðu. En ekki er hitt síður mikil-
vægt að jafnframt er boðið upp á
stefnu sem er raunverulegur val-
Stjórnmál
Þingflokkurinn hefur nú
þegar sýnt, segir
Svanhildur Kaaber, að
þar fer kröftugur og
samhentur hópur.
kostur við ríkjandi stjórnarstefnu.
Þannig hefur þingflokkurinn, svo
dæmi séu tekin, lagt fram frumv-
arp um byggðamál og tillögur í
þeim málaflokki þar sem fram
koma raunhæfar lausnir í stað ólj-
ósra markmiðssetninga. Lagðar
hafa verið fram fjölmargar tillögur
og fyrirspurnir sem lúta að um-
hverfismálum. Lagt hefur verið
fram frumvarp um dreifða eignar-
aðild að bönkum og fjánnálastofn-
unum, og tillögur um mörg sam-
félagsmál sem eru ofarlega á baugi
þessa dagana, s.s. málefni innflytj-
enda á Islandi. Þessar tillögur
Vinstrihreyfingarinnar - græns
framboðs hafa ekki orðið til á einni
nóttu. Þær eru afrakstur mikillar
vinnu þar sem fjöldi manns hefur
komið að málum. Það er að mínum
dómi einmitt styrkur hreyfingar-
innar hvemig tekist hefur að virkja
svo margra einstaklinga til sam-
starfs. Þetta er ein helsta ástæða
þess að innviðir Vinstrihreyfingar-
innar - græns framboðs eru að
styrkjast og í ljós kemur að út á við
hefur hreyfingin greinilega vaxandi
tiltrú.
Trú á framtíðina
I lýðræðinu er fólginn mikill
kraftur - það hef ég enn einu sinni
sannfærst um í starfi mínu innan
Vinstrihreyfingarinnar - græns
framboðs. Umræðan sem þar hefur
farið fram um atvinnumál og aðra
kosti í þeim efnum en þá stóriðju-
stefnu sem stjómvöld boða endur-
nýjaði með okkur mörgum trúna á
framtíðina og þá miklu möguleika
sem við höfum, ef við sýnum hug-
kvæmni og hyggindi. Sömu sögu er
að segja af öðram málaflokkum, s.s.
þeim sem lúta að skipulagi samfé-
lagsins, skiptingu verðmætanna,
jafnrétti kynjanna, kjöram launa-
fólks og framtíð Islendinga í samfé-
lagi þjóðanna.
Er ég þá komin að kjarna máls-
ins. Stjórnmálaflokkur er lítils
megnugur ef hann ekki byggir á
virkri þátttöku margra einstakl-
inga. Mörg verkefni bíða úrlausnar.
Efnaleg misskipting fer vaxandi.
Þótt vel ári hjá mörgum er það því
miður staðreynd að hjá öðram ríkir
nánast neyðarástand. Allt bendir til
þess að áfram verði haldið á braut
einkavæðingar og að mikilvæg
samfélagsþjónusta verði takmörk-
uð að sama skapi eða lögð niður. Yf-*"
irráð yfir fiskimiðunum safnast á
fárra manna hendur og örfáir ein-
staklingar sitja einir að auðæfum
sem haldið hafa úti byggð og at-
vinnu í fjölmörgum sjávarplássum.
Ekki er annað að sjá en að ríkis-
stjómin ætli að fara sínu fram og
sökkva Eyjabökkum í þágu er-
lendrar stóriðju og án lögformlegs
umhverfismats.
Þörf á kröftugum viðbrögðum
Allt þetta og margt annað kallar
á kröftug viðbrögð og raunhæfar
hugmyndir um betri lausnir,'
Vinstrihreyfingin - grænt framboð
hefur ekki haft það að markmiði að
þjóna stundarhagsmunum og duttl-
ungar augnabliksins verða aldrei
okkar leiðarljós. En fyrir þá sem
vilja stuðla að jöfnuði og jafnrétti í
samfélaginu, náttúra- og umhverf-
isvemd, vistvænni atvinnustefnu
og sjálfstæðri utanríkisstefnu Is-
lendinga er Vinstrihreyfingin -
grænt framboð góður kostur.
Þar fá allir sem vilja leggja þess-
um málefnum lið tækifæri til
áhrifa.
Höfundur er varaformaður og fram-
kvæmdastjóri Vinstrihreyfingarinn-
ar - græns framboðs.
Tækifæri til áhrifa
Svanhildur
Kaaber
Um það hvernig
ná má langt
Stjórnsýsla
Það er sóun á tíma og
peningum að fara út í
langskólanám, að mati
SÍÐASTA dag sept-
embermánaðar var
lýðum gert ljóst að
ekki yrði að svo
stöddu ráðið í stöðu
forstjóra Flugstöðvar
Leifs Eiríkssonar.
Mér undirrituðum
ætti svo sem að standa
á sama, enda ekki á
meðal umsækjenda,
né heldur í kunnings-
skap við nokkum úr
þeim hópi. Þó hafði ég
beðið með nokkurri
eftirvæntingu eftir
vali utanríkisráð-
hema, enda hafði hann
tekið sér nærri hálfs
árs umhugsunarfrest til að komast
að niðurstöðu. Ekki var það þó
vegna þess að umsækjendur væra
svo margir að verkefnið reyndist
erfitt, heldur var vandamálið ann-
ars eðlis. Sá maður sem ráðherra
vildi helst fá í starfíð var sá eini
meðal umsækjenda sem ekki hafði
til þess tilskilda menntun. Hann
hafði að vísu áður verið skipaður í
stöðuna til bráðabirgða, en hafði
ekki unnist tími til að útvega sér
háskólapróf, enda erfitt að lesa til
þess utan vinnutíma með svo stutt-
um fyrirvara. Vandamál ráðhem-
ans var sem sagt af erfiðum toga og
lausn þess ekki augljós. Átti hann
að ráða annan hvom þeirra tveggja
umsækjenda sem hæfir voru og
með því að ganga fram hjá gama-
lgrónum samstarfsfélaga, yfirlýst-
um framsóknarmanni til margra
ára? Eða átti hann að
gefa öllum öðrum
langt nef og ráða hann
samt, þrátt fyrir skort
á menntun? En utan-
ríkisráðhema fékk
loks hugljómun og
fann ástæðu til að
draga enn frekar að
fella sinn dóm. Það
rökstuddi hann með
því að skilgreina þyrfti
betur verksvið flug-
stöðvarinnar og vænt-
anlega þar með talið
forstjórans tilvonandi.
Þannig fengi títt-
nefndur umsækjandi
næði til að sitja
áhyggjulaus eitt ár í viðbót og
gegna þar hlutverki sem ekki er
fyllilega á hreinu hvað gengur út á.
Á meðan getum við velt því fyrir
okkur hvaða úmæðagóða leið verð-
ur fyrir valinu hjá utanríkisráð-
hemanum til að tryggja sínum
Sigurðar Sigurðssonar,
ef markmiðið er að kom-
ast í góða stöðu á vegum
ríkisins.
manni stöðuna til frambúðar. Verð-
ur starfssviðið skilgreint þannig að
ekki sé krafist háskólaprófs? Verð-
ur hugsanlega hægt að líta framhjá
menntunarskorti með hliðsjón af
fenginni reynslu framsóknarmann-
sins í starfinu? Eigi veit ég það, en
hitt veit ég að það er tímaeyðsla
fyrir hina hæfari umsækjendur að
gera sér einhverjar vonir um
djobbið.
Hvað getur þetta kennt okkur?
Jú, að það sé sóun á tíma og pening-
um að fara út í langskólanám ef
markmiðið er að komast í góða
stöðu á vegum ríkisins. Þar eru
margir spennandi póstar og ágætis
laun í boði. Einfaldari leið virðist
Full buð af
bútasaumsefnum
VIRKA
Mörkin 3 - Sími 568 7477.
Opið
Minud.-föstud. kl. 10-18
Laugard. kl. 10—16
, til 20/12
Sigurður
Sigurðsson
vera að taka virkan þátt í starfi rót-
gróins stjómmálaflokks eins og t.d.
Framsóknaiflokksins og skiptir
menntun og fyrri afrek þá litlu
máli. Flokkurinn sér um sína. Gall-
inn er bara sá að víða í þjóðfélaginu
era menn við völd sem ekkert hafa
þar að gera, hvorki vegna hæfileika
sinna né áhuga. Það er móðgun við
menntafólk að æ ofan í æ sé gengið
fram hjá því og fram fyrir það sett
fólk sem lítið hefur til branns að
bera. Það er eitthvað mikið að í
þjóðfélagi þar sem fólk kýs af fús-
um og frjálsum viija stjómmála-
flokka sem setja hagsmuni sína of-
ar hagsmunum þjóðarinnar. Ef til
vill lætur fólk glepjast af auglýsing-
um sem fylla síður blaðanna dag
eftir dag. En hverjir borga eigin-
lega fyrir þessar auglýsingar? Það
er leyndarmál, enda myndi það
væntanlega gera mönnum auðveld-
ara að sjá í gegn um eiginhags-
munapot ráðandi manna.
Hvernig getur fólk sætt sig við
það að gengið sé gegn vilja þjóðar-
innar í svo mikilvægum málum eins
og eyðilegging landsins er? Hvern-
ig er hægt að sætta sig við um-
hverfisráðhema sem berst á móti
umhverfismati? Og hvernig í
ósköpunum er hægt að vera iðnað-
arráðherra án þess að gera sér
grein fyrir því að við erum að sigla
inn í 21. öldina? Lýsir því fjálglega
yfir að íslendingar stefni að því að
verða brautryðjandi í nýtingu vetn-
is sem orkugjafa. Gleymir hann því
ekki að það þarf mikia raforku til að
framleiða vetni? Hvaðan í ósköpun-
um á að sækja þá raforku ef ál-
bræðslan rís á Reyðarfirði? Orku-m
þörfin þar á bæ verður gífurleg>
Væri ekki skynsamlegra að nýta
hugvit og menntun fólksins í land-
inu til að auka við nútímalegar at-
vinnugreinar?
Það þarf ekki mikinn speking til
að geta sér til um rót vandans. Svo
framarlega sem sífellt er verið að
pota lítt hæfum framagosum og
jafnvel dæmdum skattsvikamönn-
um inn í ábyrgðar- og stjómunar-
stöður er ekki líklegt að framtíð
okkar sé björt hér á klakanum.
Mynduð þið ráða mann sem stolið
hefur af ykkur fé til að fara með
umsjón fjármuna ykkar? Ég bara
spyr.
Höfundur er
kvikmyndagerðarmaður.
Qin hminrn
Sérverslun með
silkitré & silkiblóm
Lauqaveui 61. 1
Laugavegi 63. Vita&tíg&megín &ími 551 2040
Loftpúðar_______
ABS hemlar
Vél / hestöfl
4 diskahemlar
Stærð LxB
0-100 km/klst
Álfelqur________
Verð I Bretlandi
Verð á íslandi
Alfa Romeo 146
4
Já
1.6 16v/120 hö
Já
4.26x1.71
10.0 sek.
Já
1.736.000
1.570.000
BMW 316 Compact
4
________Já_______
1.6 8v /102 hö
________Já_______
4.21 x 1.69
10.7 sek.
________Nei______
1.743.000
1.948.000
Audi A 3
1.6 8v /101 hö
4.15x1.73
11.2 sek.
1.782.000
1.840.000
Ford Focus GHIA
1.6 16v/100 hö
4.15 x 1.69
10.6 sek.
1.695.000
1.731.000
ALFA ROMEO 146
Sportbíll og fjölskyldubíll I einum pakka en samt ódýr.
“ óvenjugaman að aka þessum bil, ...virkilega sportlegur i meðförum,
...sérlega fáguð og smekkleg innrétting" (S.H. DV 14.81999)
8ára ábyrgð á
gegnumtæringu.
Galvanhúðaöur
M