Morgunblaðið - 19.10.1999, Qupperneq 65
MORGUNBLAÐIÐ
I DAG
ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 1999 65
BRIDS
llmsjón Uuðmundiir
l'áll Arnarson
VIÐ látum sagnir liggja á
milli hluta, enda ekki til
eftirbreytni, því samning-
urinn er sex spaðar í suð-
ur. Það er hörð slemma, en
ekki vonlaus ef legan er
góð:
Vcstur
*
¥
♦
*
Norður
♦ K642
¥ Á42
♦ ÁG3
+ Á74
Austur
+
¥
♦
+
Suður
+ ÁD75
¥ K8753
♦ 7
+ D52
Vestur spilar út tígultíu.
Hvernig á að spila?
Augljóslega fær vörnin
alltaf slag á hjarta. En ef
hálitirnir brotna báðir 3-2
má kannski ná sex slögum
á tromp og fjórum á
hjarta, sem dugir í tólf
slagi með láglitaásunum.
Verkefni sagnhafa er
margþætt: Hann þarf að
trompa tvo tígla heima,
aftrompa mótherjana, frí-
spila hjartað og sjá svo um
að hægt sé að nýta það. Og
þessa hluti þarf að gera í
réttri röð.
Til að byrja með er tíg-
ull trompaður í öðrum
slag. Síðan kemur lykil-
spilamennskan: lítið hjarta
frá báðum höndum:
Norður
A K642 ¥ Á42 ♦ ÁG3 + Á74
Vcstur Austur
+ G9 + 1083
¥ D106 ¥ G9
♦ D1098 ♦ K6542
+ K863 + G109
Suður + ÁD75 ¥ K8753 ♦ 7 + D52
Líklega lendir austur
inni og spilar laufgosa.
Suður reynir drottning-
una, en drepur svo kóng
vesturs með ás og trompar
síðari tígulinn. Tekur síðan
ÁD í spaða, fer inn í borð á
hjartaás til að taka síðasta
tromp varnarinnar með
spaðakóngi og spilar loks
hjarta heim á kónginn.
Ast er...
>(í
lí(
<(
að leyfa henni að veljn
trúlofunarhringinn.
TM Rog. U.S. P»l 0«. — «11 ríghl* resorved
(c) 1999 Los Angetes Timej Syndnata
Árnað heílla
^/\ÁRA afmæli. í dag
I V/þriðjudaginn 19.
október verður sjötug
Sveinbjörg Guðmunds-
dóttir, Heiðarbrún 45,
Hveragerði. Henni verður
haldið hóf á afmælisdaginn
að Sólheimum, Grímsnesi,
frá kl. 18-22. Allir vel-
komnir.
rrrkÁRA afmæli. Á
I v/morgun, miðviku-
daginn 20. október, verður
sjötugur Vífill Búason,
bóndi á Ferstiklu á Hval-
fjarðarströnd. Hann og
kona hans, Guðbjörg Dúfa
Stefánsdóttir, taka á móti
gestum í félagsheimilinu
Hlöðum frá klukkan 19.30
laugardaginn 23. október.
Ljósm: Jóh. Valg.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 4. september í
Hofskirkju af sr. Sigurði
Kr. Sigurðssyni Stefanía
Ljótunn Þórðardóttir og
Heiðar Björgvin Erlings-
son. Heimili þeirra er að
Silfurbraut 7c.
Ljósm: Jóh. Valg.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 14. ágúst við Hlíða-
tún 29 af sr. Sigurði Kr.
Sigurðssyni Anna Lilja
Ottósdóttir og Björn Jón
Ævarsson. Heimili þeirra
er í Hlíðatúni 29.
Með morgunkaffinu
nftkreróCvna þó hann k}t(i~teitcé>uá.honum(
LJOÐABROT
ÞÚ KOMST í HLAÐIÐ
Þú komst í hlaðið á hvítum hesti.
Þú komst með vor í augum þér.
Eg söng og fagnaði góðum gesti
og gaf þér hjartað í brjósti mér.
Eg heyri álengdar hófadyninn.
Eg horfi langt á eftir þér.
Og bjart er alltaf um bezta vininn,
og blítt er nafn hans á vörum mér.
Þó h'ði dagar og líði nætur,
má lengi rekja gömul spor.
Þó kuldinn næði um daladætur,
þær dreymir allar um sól og vor.
Davíð Stefánsson.
STJÖRNIJSPA
cftir Frances Hrakc
VOG
Afinœlisbam dagsins:
Þú veist hvað það er sem þú
vilt og kannt að sækja það
af festu, án þess að fá aðra
uþþ á móti þér.
Hrútur *
(21. mars -19. apríl)
Það er svo margt sem þú
þarft að gaumgæfa í eigin
fari að þér hættir til þess að
lenda upp á kant við aðra.
Sýndu þeim tillitssemi.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þó mikið liggi við, er gott að
hvfla hugann og láta hann
reika; þó ekki of langt! Það
hjálpar að nálgast viðfangs-
efnin úr nýrri átt.
Tvíburar
(21. maí - 20. júm')
Sá tími sem listimar taka er
dýrmætur. Honum er vel
varið, því þú átt eftir að njóta
afraksturs hans í einkalífinu
og ekki síður í starfi.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Láttu ekki óhemjuskapinn
ná tökum á þér, þótt hlutim-
ir gangi ekki upp einn, tveir
og þrír! Það er allt dýrmæt-
ara sem þarf að hafa fyrir.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst) JW
Reyndu að sitja á strák þín-
um, þvi annars áttu á hættu
að eyðileggja gamalt vinasam-
band. Ræddu málin af kaldri
skynsemi en heitu hjarta.
Meyía
(23. ágúst - 22. september) (DfL
Reyndu ekki að hafa stjóm á
öllum sköpuðum hlutum í
kring um þig. Þeir sem
teygja sig of langt í þeim efn-
um, hljóta verstu byltuna.
Vog m
(23. sept. - 22. október)
Leitaðu nýrra leiða til þess
að auðga líf þitt og bæta. En
vertu á varðbergi, því margt
sem sagt er að leysi vanda-
málin býr bara til önnur.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Þér veitist erfitt að einbeita
þér að því sem fyrir liggur.
Hugleiddu á einbeitingu og
þú verður hissa, hversu auð-
veldur eftirleikurinn reynist.
Bogmaður m ^
(22. nóv. - 21. desember) (ttO
Með þeirri samskiptatækni
sem til er eiga boð milli vina
ekki að dragast úr hömlu eða
detta upp fyrir. Mundu að
það er tvístefna á vinavegin-
Steingeit
(22. des. -19. janúar) +■?
Af einhverjum ástæðum
verður þér lítið úr verki
þessa dagana. Ekki láta reka
á reiðanum, heldur taktu þig
saman í andlitinu og láttu
verkin tala.
Vatnsberi
(20. janúar -18. febrúar)
Allt virðist ganga þér í hag-
inn og sjálfsagt að þú njóta
þess. En hafðu andvara á
þér, því fyrr en varir geturðu
þurft að hafa fyrir hlutunum.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Það getur gefið góða raun að
festa hugrenningar sínar nið-
ur á blað; ekki fyrir aðra,
heldur til þess að finna sjálf-
um sér hugsvölun.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spér a( þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
FRETTIR
Fræðslu-
fundur í
Hofsstaða-
skóla
FORELDRAFÉLAG Hofsstaða-
skóla heldur fræðslufund miðviku-
daginn 20. október kl. 20 í sal skól-
ans.
Fyrirlesari er Þórkatla Aðal-
steinsdóttir sálfræðingur sem
fjalla mun um Aga og samskipti
foreldra og bama. I okkar samfé-
lagi er oft litið á aga sem eitthvað
neikvætt en Þórkatla fjallar meðal
annars um það hvernig við getum
beitt aga á jákvæðan hátt. Eftir
fyrirlestur og kaffíhlé mun Þór-
katla svara fyrirspurnum fundar-
gesta.
Allir eru velkomnir en foreldrar
og forráðamenn barna í Garðabæ
eru sérstaklega hvattir til að
mæta, segir í fréttatilkynningu.
Islendinga-
félög erlendis
OPINN fundur verður haldinn á
vegum Vináttufélags Islands og
Kanada miðvikudaginn 20. október
kl. 20 í Lögbergi, Háskóla íslands,
stofu 102.
Jón Ásgeirsson, fyrrverandi
fréttamaður, ritstjóri Lögbergs-
Heimskringlu og formaður Þjóð-
ræknisfélags Islendinga, mun"
greina frá starfsemi Islendingafé-
laga í Ameríku sem og í Evrópu.
Aðalfundur
FSG
AÐALFUNDUR Foreldra- og
styrktarfélags Greiningarstöðvar-
innar verður haldinn miðvikudag-
inn 27. október kl. 20.30 í húsnæði
Greiningarstöðvarinnar, Digranes-
vegi 5, 4. hæð, Kópavogi.
Að loknum venjulegum aðal-
fundarstörfum munu starfsmenn
Systkinasmiðjunnar kynna nám-
skeið á vegum hennar, sem haldin
eru fyrir systkini fatlaðra barna.
Félagsmenn eru hvattir til að
mæta.
Afhenti
trúnaðarbréf
SIGRÍÐUR Á. Snævarr, sendi-
herra, afhenti 14. október sl.
Jacpues Diouf, aðalframkvæmda-
stjóra FAO í Róm, trúnaðarbréf
sitt sem fastafulltrúi íslands hjá
FAO með aðsetur í París.
WPLI-Com I Þt/PH-COLOR
FÖNDURLÖKK I Crystal
Wfí-m'ú
ftvbk| w:
#
v. i - >• •»» •
ARVIK
ÁRMÚLA 1 • SÍMI 568 7222 • FAX 568 7295
SvERRIR Einarsson
Hef flutt tannlæknastofu mína á Lindargöl Inngangur Nýtt síman tannlæknir
tu 50. frá Frakkastíg. úmer 552 6990.
Sjúkravörur ehf.
verslunin Remedía
í bláu húsi við Fákafen
Sími 553 6511
Kynning í dag
frá kl. 13-18
10% afsláttur
á hinum vinsælu CARE bómullar-
brjóstahöldum með eða án vasa og
einnig Sigvaris stuðnings-sokkunum
fyrir dömur og herra