Morgunblaðið - 19.10.1999, Síða 70
0 ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FOLKI FRETTUM
ERLENDAR
Skúli Helgason
fjallar um nýjustu plötu Paul
McCartney - Run Devil Run.
McCartney
finnur taktinn!
PAUL McCartney hefur verið eins
og Katla eftir að Bítlarnir hættu,
mestanpart makindalegur en með
óralöngu millibili tekur hann af
skarið og gýs þannig að eftir er
tekið. Paul hefur verið iðinn við
kolann síðan Bítlarnir hættu árið
1970 en árangurinn hefur ekki allt-
af verið honum til sóma. Mér telst
til að þetta sé tuttugasta og þriðja
plata hans, að Wings-plötunum
meðtöldum en safnplötum sleppt-
um. Af þessum eru 5-6 góðar, þar
af þrjár á síðustu 20 árum. I þeim
hópi er síðasta plata hans: Flaming
- *Pie frá 1997 þar sem Paul kom til
dyranna eins og hann var klæddur,
hættur að reyna að elta tískusveifl-
ur, laus að mestu við tilgerðina og
kominn áleiðis í sitt gamla form,
með skotheldar poppmelódíur í
farteskinu. Sólóferill Pauls er
varðaður mörgum neyðarlegum
verkum sem aldrei hefðu komist í
gegnum gæðaeftirlitið hjá Bítlun-
um en á Flaming Pie var engin slík
hörmung.
Run Devil Run kemur tveimur
f>g hálfu ári seinna og er fyrsta
plata McCartneys eftir andlát eig-
inkonu hans, Lindu. Platan er á yf-
irborðinu afturhvarf til fortíðar,
lögin eru flest frá 6. áratugnum
þegar Bítlarnir voru að stíga sín
fyrstu skref í Liverpool og Ham-
borg. Paul sækir í smiðju gömlu
meistaranna: Chuck Berry, Little
Richard, Carl Perkins, Gene
Vincent og auðvitað Elvis Presley.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Paul
leitar í þennan garð æskuminn-
inganna. Árið 1988 gaf hann út
rússnesku plötuna: Choba B
CCCP með gömlum slögurum og
Unplugged-platan frá 1991 hafði
að geyma nokkur lög frá svipuðum
tíma. Þá er forvitnilegt að bera
þessa plötu saman við Rock N Roll
plötuna sem John Lennon gaf út
1975. Run Devil Run sker sig úr
þessum plötum öllum því lagavalið
er frumlegra, flest lögin eru lítt
þekkt og hljóma fersk fyrir vikið.
Frægast er Presley-lagið AU
shook up en flest hinna eru lítt
þekkt og varla nokkur sem geta
talist húsgangar á alþýðuheimil-
um. Mörg þeirra má rekja beint
aftur til Bítlanna, b-hliðar lög eða
albúmlög sem Bítlamir spiluðu í
klúbbum, sum þeirra spiluð hér
eftir minni því plötur með upp-
runalegu útgáfunum fundust
hvergi! Þrjú Iaganna eru svo frum-
samin, allt hráir kraftmiklir rokk-
arar sem falla ágætlega að heildar-
myndinni. I nýju viðtali útskýrir
Paul þetta lagaval:
Paul safnaði um sig fyrsta flokks
spilurum fyrir þessa plötu. Fyrst-
L E T T A
DANSSVEIFLU
ÁTVEIM
DÖGUMI
stu
námskeið
um helgina
557 7700
hringdu núni
Áhugahópur
um almenna
dansþátttöku
á fslandi
Netfang: KomidOgDansid@tolvuskoli.is
Heimasíða: www.tolvuskoli.is/KomidOgDansid/
GoodLife
W 0 M A N
Nýi dömuUmurinn
^rtorgaref^ _ _
Ts/or
kökumeikið komið aftur!
an ber að telja gítarleikara Pink
Floyd: David Gilmour. Hann lék
áður með McCartney í ballöðunni
No More Lonely Nights fýrir
fimmtán árum síðan. Gilmour til
fulltingis er gítarleikarinn Mick
Green sem lék í hljómsveitinni The
Pirates upp úr 1960. Ian Paice úr
Deep Purple lemur húðirnar og
Pete Wingfield spilar á píanó.
Þetta er í stuttu máli kröftugasta
band sem Paul hefur spilað með
síðan hann var í Bítlunum. Leik-
gleðin er ruddaleg og Paul er í sínu
besta formi - syngur rokklögin
eins og átján ára foli og tekst að
gæða þessi eldgömlu lög nýju lífi
og gefa þeim ferska áru. Það er
meiri ákafi og vilji í MeCartney á
þessari plötu en maður hefur heyrt
í alltof langan tíma. Flest lögin á
Run Devil Run eru kröftug rokk-
lög þar sem Paul öskrar úr sér
lungun eins og í Long Tall Sally
forðum. Best í þeim hópi eru She
Said Yeah eftir Larry Williams
sem samdi Slow Down sem Bítl-
arnir tóku 1964 og Party sem Elvis
söng í kvikmyndinni Loving you.
Paul fer afar vel með tregablandið
lag kántrísöngvarans Ricky Nel-
son: Lonesome Man. Túlkun hans
á lagi Chuck Berry: Brown eyed
Handsome Man er einn af
hápunktum plötunnar en lagið er
sett í cajun-stíl með harmonikk-
ukryddi sem fer afar vel. Mest
kemur Paul á óvart í laginu No ot-
her baby, lítt þekktu lagi ensku
skifflesveitarinnar The Vipers en
afgreiðsla hans á því minnir á
meistara Johnny Cash og hefði
ekki verið út úr korti í Pulp
Fiction. Hofner-bassinn frá Bítla-
tímanum setur sterkan svip á lagið
sem er eitthvert hið forvitnilegasta
frá Paul í mörg ár. Hér svífur
sjaldséð mystík yfir vötnum sem
oftar en ekki hafa verið gruggug af
vemmilegri vellu.
Hver einasta McCartney-plata,
svo lengi sem ég man eftir, hefur
geymt eitt eða fleiri dæmi um
svimandi væmni eða bjánaskap en
þessi plata er blessunarlega laus
við það. McCartney hefur greini-
lega haft mjög gaman af því að
vinna þessa plötu, hann sýnir til-
þrif sem minna á gullaldarárin og
lætur alveg vera að míga utan í
tískustrauma sem eru honum
framandi. Engu síður er hljómur-
inn frísklegur og krafturinn í
hljómsveitinni smitandi. Run Devil
Run er prýðileg plata, í hópi bestu
sólóverka McCartneys og í fyrsta
sinn í tæp 25 ár sendir maðurinn
frá sér tvær góðar plötur í röð.
Paul tapaði lunganum af sinni
sjálfsgagnrýni þegar hann hætti í
Bítlunum en nú er sem hann hafi
loksins náð taktinum og sé farinn
að virkja hæfileikana á þann hátt
sem sæmir öðrum af tveimur
mestu lagasmíðum poppsins. Það
er vel við hæfi að þessi frægasti
núlifandi poppari sögunnar endi
öld Bítlanna með slíkum stæl og
verður spennandi að sjá hvað karl
gerir eftir þetta vel heppnaða
stefnumót við fortíðina. Fjögurra
stjörnu plata - ekki spurning. Gott
hjá þér, gamli!
Leiðréttingar
Lennons og
jakkaföt Elvis
Uppboð á munum popparanna
JOHN Lennon sagði það vera
samið undir ofskynjunaráhrifum
LSD, gagnrýnendur kölluðu það
meistaraverk og aðdáendur klór-
uðu sér í höfðinu yfir því. Textinn
eða Ijóðið „I am the Walrus" var
þó aldrei svo dularfiillt að mati
sumra.
Ein blaðsiða af handskrifuðum
texta úr hinu undarlega verki
Lennons var boðin upp hjá
Christie’s uppboðshúsinu í Lon-
don nýverið og fyrirfram var
vonast til að hún færi á um 70
þúsimd pund. Það gekk eftir og
gott betur því nafngreindur
kaupandi greiddi tæp 80 þús-
und pund fyrir blaðið eða tæp-
ar 10 milljónir króna. Línurnar
tuttugu sem á blaðinu standa
eru allar útkrotaðar í leiðrétt-
ingum og eru ólíkar lokaútgáf-
unni sem að mati margra
gagnrýnenda hefði átt að vera
vinsælasta lag Bítlanna en það
kom út árið 1967. Með furðu-
legum setningum eins og „ég
sit á kornfiögu og bíð eftir því
að bfllinn komi“ fannst gagn-
rýnendum þeir geta séð hvern-
ig Lennon hugsaði.
SÉRMERKTAR
HÚFUR OG HANDKLÆÐI
MYNDSAUMUR
Hellisgala 17, 220 Hafnarfjörður
Sími 565 0122
www.if.is/ myndsaumur
Ekki er allt sem sýnist
Reynt var að fínna margar
ástæður fyrir texta lagsins en
nú telja flestir að Lennon hafí
verið undir áhrifum frá ljóði
Lewis Carroll, The Walrus and
the Carpenter, James Joyce og
teiknimyndahetjum. Texti lags-
ins ýtti undir sögusagnir um að
félagi Lennons, Paul McCartney,
hefði Iátist í slysi eða í það
minnsta var það á þá leið sem
sumir kusu að túlka setningamar
„heimskur, blóðugur þriðjudag-
ur“ og „beðið eftir að bfllinn
komi“ sem komu fyrir í textan-
um. Lennon talaði alltaf um það
að hann hefði samið lagið í sýru-
vímu og að sírenuhljóð lög-
reglubfla hefðu gefið sér inn-
blástur. Seinna gerði hann grín
að fárinu sem varð og sagði í lag-
inu Glass Onion: „Hér er vísbend-
ing lyrir ykkur. Walrus (rostung-
urinn) var Paul.“
Oasis áhugasamir
Poppsérfræðingur upp-
John Lennon setti allt á annan
endann með laginu I am the
Walrus á sínum tíma.
boðshússins, Sarah Hodgson, er
að vonum ánægð með uppboðið.
„Utlendingar sýna uppboðum á
Bítlavarningi alltaf mikinn
áhuga, sérstaklega Japanir, því
þeir eru mjög miklir Bitlaaðdá-
endur.“
En aðeins nær uppboðsstað-
num voru bræðurnir Liam og
Noel Gallagher úr hljómsveitinni
Oasis sagðir rífast um hver
myndi fá í hendurnar hand-
skrifuðu blaðsíðu átrúnaðargoðs-
ins.
Texti Lennons var eflaust há-
punktur uppboðsins en á því
kenndi ýmissa grasa. Þar voru
meðal annars boðin upp tvenn
jakkaföt af rokkkónginum sjálf-
um, Elvis Presley, og fyrir þá
djörfu var hægt að bjóða í undir-
fötin sem Jean-Paul Gaultier
hannaði á Madonnu fyrir tón-
leikaferð hennar árið 1990.