Morgunblaðið - 03.12.1999, Blaðsíða 55
F
MORGUNBLAÐIÐ
ALDARMINNING
FÖSTUDAGUR 3. DESEMBER 1999 55.
KIRKJUSTARF
Helgi Helgason VE 343 hlaðinn sfld á Siglufirði 1947. Helgi Helgason er stærsta tréskip sem smíðað hefur verið
hér á landi, 188 smálestir.
Helgi Benediktsson við fyrstu vörubifreið sína í
Vestmannaeyjum árið 1924.
lega undir innflutningsverslun
landsmanna, og leggur innlendum
iðnaði til margvísleg hráefni til inn-
anlands vinnslu. Fari svo fram eins
og gert hefir á undanförnum áratug-
um, og virðist fara vaxandi að fiski-
stofni sé eytt vegna rányrkju og
veiðstöðvum spillt og uppeldisstöðv-
ar nytjafíska ekki verndaðar og
varðar fyrir offiski og annarri eyði-
leggingu, verður þess sýnilega
skammt að bíða að fiskveiðar við Isl-
and hætti að verða þjóðinni arðgæf-
ar og veiti ekki nauðsynlegar at-
vinnutekjur.
Af framangreindum ástæðum höf-
um við undirritaðir orðið sammála
um að efna til félagsskapar til þess
að styðja að því að íslensk landhelgi
verði færð út þannig að allt land-
grunnið íslenska verði innan land-
helgislínu og eingöngu athafnasvæði
íýrir Islendinga eftir því sem henta
þykir á hverjum stað og tíma. Að
bætt verðiog aukið eftirlit með land-
helgisveiðum. Að aðaluppeldisstöðv-
ar nytjafíska hér við land verði frið-
aðar íýrii' notkun þeirra veiðitækja
og aðferða sem stofninum stendur
hætta af og að friðlýst verði veiði-
svæði í nánd við strendur landsins,
eins og fordæmi er um með neta-
svæðið við Vestmannaeyjar.
Arangri af þessari félagsstofnun
hyggjast félagsmenn að ná með því
að vekja athygli valdsmanna og al-
mennra borgara á því hver vá er fyr-
ir dyrum verði ekki að gert og út frá
þeirri staðreynd að fjarlæg lega
landsins frá öðrum löndum gefur
engum öðrum en íslendingum sjálf-
um eðlilegan rétt til að nytja íslands
veiðisvæði."
Undir þetta rituðu þeir Helgi
Benediktsson, formaður, Asmundur
Guðjónsson, og Sveinn Guðmun-
dsson.
Helgi studdi eflingu íþróttamála í
Eyjum og gaf hann m.a. fé til íþrótta-
vallarins inni í Botni, fyrir stríð, þeg-
ar verið var að vinna við að gera
hann keppnishæfan. Helgi var mikill
og dyggur stuðningsmaður íþrótta-
félagsins Týs og var gerður heiðurs-
félagi þess. Árið 1967 var hann gerð-
ur að heiðursfélaga í skátafélaginu
Faxa í Vestmannaeyjum. Þennan
heiður mat hann mikils.
Þessi upptalning sýnir svo ekki
verður um villst að Helgi Benedikts-
son var enginn meðalmaður.
Fjölskyldan
Hinn 26. maí 1928 gekk Helgi
Benediktsson að eiga Guðrúnu, f. 30.
júní 1908, Stefánsdóttur skipstjóra
Björnssonar frá Skuld í Vestmanna-
eyjum og konu hans Margrétar
Jónsdóttur. Guðrán er mikilhæf og
hin mesta merkiskona, kunni Helgi
vel að meta mannkosti hennar. Þau
hófu búskap í húsinu Einbúa, Bakka-
stíg 5, þaðan fluttu þau að Gríms-
stöðum, Skólavegi 27, en árið 1944
lét hann reisa myndarlegt íbúðarhús
á Heiðarvegi 20 og fluttu þau þangað
þar sem þau bjuggu síðan. Á Heiðar-
vegi 20 var oft fjölmennt í heimili, 15-
20 manns þegar mest var, en þar
voru m.a. vertíðarmenn í þjónustu
Helga. Þau Helgi og Guðrún eignuð-
ust átta börn en þungur harmur var
kveðinn að þeim hjónum er þau
misstu tvo syni í blóma lífsins. Böm
þeirra eru: Stefán, f. 16.5.1929, öku-
kennari í Vestmannaeyjum og fyrr-
um bifreiðaeftirlitsmaður þar,
kvæntur Sigríði Bjarnadóttur úr
Vestmannaeyjum. Sigtryggur, f.
5.10.1930, fv. forstjóri Brimborgar í
Reykjavík, kvæntur Halldóra Guð-
mundsdóttur frá Vestmannaeyjum.
Guðmundur, f. 12.5. 1932, d. 15.5.
1953. Páll, f. 14.6.1933, ferðafrömuð-
ur í Vestmannaeyjum, var kvæntur
Bryndísi Karlsdóttur (látin) frá
Hafnarfirði. Helgi, f. 31.10. 1938, d.
28.8.1960. Guðrán, f. 16.2.1943, hús-
frú í Reykjavík, gift Finni Karlssyni
úr Reykjavík. Arnþór, f. 5.4. 1952,
fjölmiðlamaður, kvæntur Elínu
Árnadóttur új- Reykjavík. Gísli, f.
5.4. 1952, deildarstjóri, kvæntur
Herdísi Hallvai’ðsdóttur úr Reykja-
vík.
Lokaorð
Helgi Benediktsson lést á heimili
sínu, Heiðarvegi 20, að kvöldi hins 8.
apríl 1971. Saga Vestmannaeyja
væri fátækari ef Helga Benedikts-
sonar hefði ekki notið við og væri það
verðugt verkefni sagnfræðings að
rita sögu hans. I stjórnmálum lét
hann mikið að sér kveða, sérstaklega
í bæjannálefnum, svo lengi verður í
minnum haft. Afskipti hans af
stjómmálum er sérstakur kafli í lífi
hans og ekki sá viðburðaminnsti. Af
nógu er að taka þó að það efni hafi
ekki verið aðgengilegt þeim sem
þetta skráir. Á bams- og unglingsár-
um var skrásetjari tíður gestur á
heimili Helga Benediktssonar og
Guðránar Stefánsdóttur, en sonur
þeirra, Helgi, sem lést langt um ald-
ur fram, var traustur og tryggur vin-
ur. Minningin um gestrisni þeirra
hjóna og umburðarlyndi Guðrúnar
við ærslafulla peyja hefur fylgt æ
síðan, eða í rúma hálfa öld. Guðrán
dvelur nú á Hjúkranarheimilinu Eir
í Reykjavík, í hámi elli, sem hún ber
af þeim virðuleika er hefur ætíð
einkennt hana.
Heimildir:
Aldahvörf í Eyjum, Þorsteinn
Jónsson frá Laufási 1950.
Blik, ársrit Vestmannaeyja 1969.
Dagbók Helga Benediktssonar,
1918-1919.
Fjöratíu ár í Eyjum, Helgi Ben-
ónýsson.
Islensk skip, Jón Björnsson 1990.
íslendingaþættir Tímans, 8. tbl. 4.
árg. 1971.
Islenskir samtíðarmenn, 1964.
Viðtöl við ýmsa Eyjamenn.
Sævar Þ. Jóhannesson.
Safnaðarstarf
Götuguðsþj ónusta
á Garðatorgi
Á morgun, laugardaginn 4. desem-
ber, kl. 17 verður götuguðsþjónusta
á aðventu á Garðatorgi. Kór Vída-
línskirkju leiðir almennan söng.
Stöðvum ,jólavélina“ sem svo er
nefnd um stund og hugleiðum hið
raunveralega tilefni jólanna sem er
Jesús Kristur og fæðing hans. Org-
anisti Jóhann Baldvinsson. Prest-
arnh’.
Langholtskirkja. Opið hús fyrir
alla aldurshópa kl. 11-13. Létt hreyf-
ing, slökun og kristin íhugun. Kyri’ð-
ar- og bænastund í kirkjunni kl. 12.
Orgelleikur, sálmasöngur. Fyrir-
bænaefnum má koma til sóknar-
presta og djákna. Kærleiksmáltíð,
súpa, salat og brauð, eftir helgi-
stundina.
Laugarneskirkja. Morgunbænir
k. 6.45. Mömmumorgunn kl. 10-12.
Kaffispjall fyrir mæður, góð upplif-
un fyrir böm.
Neskirkja. Félagsstarf aldraðra
laugardag kl. 13. Samvera í safnað-
ai’heimili og jólahlaðborð á Hótel
Loftleiðum. Þátttaka tilkynnist í
síma 511-1560. Allir velkomnir. Sr.
Frank M. Halldórsson.
Hafnarfjaiðarkirkja. Opið hús í
Strandbergi laugardagsmorgna. Trú
og mannlíf, biblíulestur og kyrrðar-
stund.
Ffladelfía. Galakvöld unglinganna
kl. 19. Skemmtiatriði og leikir. Allir
hjartanlega velkomnir. Munið spar-
iklæðnað
KFUM og KFUK v/Holtaveg. Að-
ventusamvera fyrir eldri félagsmenn
verður í dag, föstudag, í aðalstöðvun-
um við Holtaveg kl. 14. (U.þ.b. 60 ára
og eldri). Þórdís K. Ágústsdóttir,
formaður KFUK, flytur ávarp og
bæn. Þórarinn Björnsson, guðfræð-
ingur, rifjar upp brot úr sögunni,
Sigurbjörn Þorkelsson, framT
kvæmdastjóri KFUM og KFUK, les
framsamda jólasögu úr bók sinni,
Kærleikurinn mestur. Laufey Geir-
laugsdóttir syngur einsöng og sr. Ól-
afur Jóhannsson, formaður KFUM í
Reykjavík, hefur hugvekju. Veiting-
ar í lokin. Allir vinir KFUM og
KFUK sem einhvern tíma hafa kom-
ið nálægt eða fylgst með starfi félag-
anna er hér með boðið að sækja sam-
verana.
Hofskirkja á Skaga. Kirkjuskóli
kl. 14.
Víkurprestakall í Mýrdal. Kirkju-
skólinn í Mýrdal er með samverar á
laugardagsmorgnum kl. 11.15 í Vík-
urskóla.
Hvalsnessókn. Safnaðarheimilið
Sandgerði: Æskulýðsstarf hjá Út-
nesi kl. 20.30.
Sjöunda dags aðventistar á fsl-
andi:
Aðventkirkjan, Ingólfsstræti: Bi-
blíufræðsla kl. 10.15. Guðsþjónusta
kl. 11.15. Ræðumaður Björg\dn
Snorrason.
Safnaðarheimili aðventista,
Blikabraut 2, Keflavík: Guðsþjón-
usta kl. 10.15. Biblíufræðsla eftir
guðsþjónustu. Ræðumaður Einar
Valgeir Arason.
Safnaðarheimili aðventista,
Gagnheiði 40, Selfossi: Biblíuf-
ræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11.
Ræðumaður Finn F. Eckhoff.
Aðventkirkjan, Brekastíg 17,
Vestmannaeyjum: Biblíufræðsla kl.
11.
Loftsalurinn, Hólshrauni 3, Hafn-
arfirði: Guðsþjónusta kl. 11. Biblíuf-
ræðsla að guðsþjónustu lokinni.
Ræðumaður Elías Theodórsson.
Samfélag aðventista, Sunnuhlíð
12, Akureyri: Samkoma kl. 10.30.
Ræðumaður Eric Guðmundsson.
Jólasöngvar
í Kvos
í dag, föstudaginn 3. desember,
verða tónleikar haldnir í Fríkir-
kjunni í Reykjavík kl. 20. Franv'
koma: Drengjakór Laugarneskirkju,
Léttsveit Kvennakórs Reykjavíkur,
Árnesingakórinn, Orgelleikur, al-
mennur söngur. Enginn aðgangs-
eyrir en framlögum safnað til styrkt-
ar Hjálparstarfi kirkjunnai’.
íoí^e
KRISTIN TRÚ-
í ÞÚSUND ÁP
ÁRIÐ 2000
Á morgun, laugardaginn 4. des.,
verða tónleikar í Dómkirkjunni kl.
17. Fram koma: Kór kórskóla Lang-
holtskirkju, Karlakórinn Fóstbræð-
ur, Litli kórinn, kór eldri borgara úr
Neskirkju, Skagfirska söngsveitin,
orgelleikur, almennur söngur. Eng-
inn aðgangseyrir en framlögum
safnað til styi’ktar Hjálparstarfi
kirkjunnar.