Morgunblaðið - 08.01.2000, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913
6. TBL. 88. ÁRG.
LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Friðarfundurmn í Sheperdstown
Viðræðuáætlun
loks samþykkt
Sheperdstown, Jerúsalem. AP, Reuters.
EHIJD Barak, forsætisráðherra
ísraels, og Farouk al-Shara, utan-
ríkisráðherra Sýrlands, áttu í gær
sínar fyrstu beinu viðræður síðan á
þriðjudag og tók Bill Clinton Banda-
ríkjaforseti þátt í fundinum. Var
þetta í fjórða sinn í vikunni sem hann
fór með þyrlu frá Washington á
fundarstaðinn í Vestur-Virginíu til
að reyna að miðla málum.
Friðarviðræðurnar hafa gengið
treglega en vonir jukust um árangur
í gær er Clinton lagði fram viðræðu-
áætlun sem heimildarmenn sögðu að
báðir deiluaðilar hefðu fallist á. Var
búist við að viðræður sendinefnd-
anna hæfust á ný eftir nokkuiTa
daga þóf í kvöld.
Ný könnun á vegum dagblaðsins
Yedioth Ahronoth í ísrael gefur til
kynna að stuðningur við að afhenda
Sýrlendingum á ný Gólanhæðirnar
til að greiða fyrir friðarsamningum
fari minnkandi. í desember vildu
45% aðspurðra stíga þetta skref en
nú 41% og þykir ljóst að Barak geti
átt erfitt með að fá samninga um af-
hendinguna samþykkta. Einnig var
spurt um stuðning við að mestur
hluti herliðsins á hæðunum, sem eru
mikilvægar fyrir varnir landsins,
yrði fluttur á brott og sögðu 49% já
en 57% í liðnum mánuði.
Barak hefur heitið því að leggja
samninginn í þjóðaratkvæði sem
ekki er hefð fyrir í ísrael. Hann hef-
ur einnig sagt að það muni fara eftir
innihaldi friðarsamninganna og því
hve reiðubúnir Sýrlendingar verði
að koma á eðlilegum stjórnmála-
samskiptum hvort allt ísraelska liðið
verði flutt á brott.
Blaðið telur að margir ísraelar
skilji „augljósan ósveigjanleika Sýr-
lendinga" sem merki um rótgróna
andúð gagnvart Israelum sem ekki
muni hverfa þótt samið verði um
firið.
Reuters
Rússneskur hermaður á leið til Tsjetsjníu stingnr höfðinu upp um opið á brynvagni sínum í gær.
Tsjetsjenar í Grosní sýna engan bilbug og gera útrás
Aitken
laus með
skilyrðum
JONATHAN Aitken, sem á sínum
tíma gegndi ráðherraembætti í
stjórn Ihaldsflokksins í Bretlandi,
var látinn laus úr fangelsi í gær.
Hafði hann þá afplánað sjö mán-
uði af 18 mánaða dómi sem hann
hlaut í fyrra fyrir meinsæri. Ait-
ken verður þó ávallt að vera með
á sér sérstaka rafeindaflögu svo
að yfirvöld geti fylgst með ferð-
um hans með hjálp miðunar-
tækja. Aitken, sem er 57 ára, er
sagður hafa lagað sig vel að
fangelsislífinu. Hann hefur m.a.
gefið út ljóð og lært rímað Lund-
únaslangur af samföngum sínum
en ætlar nú að hefja háskólanám
í guðfræði.
Níu ára í
handjárn
Miami. Thc Daily Tdegraph.
LÖGREGLUMAÐUR stöðvaði
nýlega níu ára dreng, Jeffrey
Morgan, í Fort Lauderdale í
Flórída vegna þess að hann hjól-
aði án þess að nota hjálm. Hann
neyddi drenginn til að leggjast á
jörðina, gramsaði í bakpokanum
hans og handjámaði hann síðan.
Morgan er svartur en lög-
reglumaðurinn, Ken Baehman,
er hvítur.
Yfirmaður Bachmans segir
að hann hafi gert rétt og ekki sé
ástæða til að rannsaka málið
frekar. Morgan hafi reynt að
flýja og Bachman ekki átt ann-
ars úrkosta en handjáma hann.
„Þá fór hann líka að velta því
fyrir sér hvort hjólið væri stol-
ið,“ sagði yfirmaðurinn.
Skipt um yfírmenn
í herliði Rússa
gær að „frestað yrði öllum hernaðar-
aðgerðum" vegna hættu á að
óbreyttir borgarai' í Grosní yrðu
skotmörk. Síðar sagði hann að barist
yrði áfram af fullri hörku „þar sem
engir óbreyttir borgarar“ væra.
Fulltrái varnarmálaráðuneytisins í
Moskvu sagðist ekki vita með vissu
hvað Troshev hefði átt við.
Hinn hershöfðinginn, Vladímír
Shamanov, sagði að afar slæmt veð-
ur hefði valdið Rússum erfiðleikum.
Einnig staðfesti hann að hermenn
Tsjetsjena í Grosní hefðu nýlega gert
útrás og ráðist á þorpið Alkhan-Júrt
sem Rússar náðu 1. desember.
Þrátt fyrir þoku og snjókomu var
haldið áfram loftárásum á lið Tsjetsj-
ena í gær. Einnig var gerð hörð hríð
með stórskotaliði á bæinn Vedeno
sem uppreisnarmenn ráða yfir.
Yfirlýsingar Rússa er sóknin gegn
Grosní hófst á jóladag vora misvís-
andi en sumir talsmenn þeirra sögðu
að borgin myndi falla innan fárra
daga. Ljóst þykir að Vladímír Pútín,
starfandi forseti, og menn hans, leggi
áherslu á að hægt verði að lýsa yfir
sigri á Tsjetsjenum áður en gengið
verður til forsetakosninga 26. mars.
Pavel Felgenhauer, þekktur her-
málasérfræðingur og fréttaskýrandi
í Rússlandi, hefur sagt að valdhaf-
arnir muni nýta yfirburðastöðu sína í
fjölmiðlum landsins til að láta sem
sigur hafi unnist án tillits til þess
hver raunveraleg staða mála í
Tsjetsjníu verði þegar kjördagur
nálgast. Bent hefur verið á að víg-
staða uppreisnarmanna muni verða
traust þegar átökin breytist í hrein-
ræktaðan skærahernað, þeir séu
með vel faldar bækistöðvar í fjöllun-
um.
Rússneskir liðsforingjar í
Tsjetsjníu, sem ekki vilja láta nafns
síns getið, segja í viðtölum við frétta-
MORGUNBLAÐH) 8. JANUAR 2000
690900 090000
Tölvuglæpir óg'na þjóðaröryggi
Bandaríkj astj órn
boðar aðgerðir
Washington. AP.
BILL Clinton Bandaríkjaforseti
sagðist í gær ætla að biðja þingið
um að veita 91 milljón dollara, um
6,5 milljarða króna, til aðgerða
gegn tölvuglæpum. Yrði fjárveit-
ingin fyrsta skrefið í um 140 millj-
arða króna áætlun um að tryggja
tölvuöryggi ýmissa gi'undvallar-
þátta í efnahags- og atvinnulífi
þjóðarinnar eins og orkufyrirtækja
og flugumferðarstjórnar.
Ráðgjafar forsetans segja að
hryðjuverk á Netinu séu ein af
helstu ógnum við öryggi þjóðarinn-
ar á 21. öld.
Clinton sagði jafnframt að brýnt
væri að með aðgerðunum yrði ekki
gengið á rétt einstaklinga og fyrir-
tækja í nafni varðveislu frelsisins.
Talsmenn samtaka um lýðréttindi
lýstu sumir áhyggjum sínum um
að einstaklingsréttindi yrðu huns-
uð til að stöðva tölvuþrjóta.
BBC-útvarpsstöðin hafði eftir
öryggismálaráðgjafa Clintons,
Sandy Berger, að málið væri ekki
einfalt. Vissulega bæri ríkisvaldinu
að forðast að ráðast inn í einkalíf
fólks en jafnframt yrði það að
vernda vel persónuleg gögn um
einstaklinga, t.d. skattaskýrslur,
fyrir hnýsni óviðkomandi aðila.
HAPPDRÆTTI
HÁSKOLA ÍSLANDS
vænlegast til vinnings
AP
Aitken á leið út úr Elmley-fang-
elsi í gær.
Grosní, Moskvu. AP, AFP, The Daily Telegraph.
YFIRSTJÓRN rássneska hersins
skipaði í gær nýja menn í stöður
tveggja æðstu hershöfðingja herliðs-
ins í Tsjetsjníu. Var sagt að eingöngu
væri um að ræða hefðbundin yfir-
mannaskipti. I tilkynningu sem lesin
var upp í rássneska sjónvarpinu
sagði að orsökin væri ekki „nein mis-
tök af hálfu yfirmannanna sem
hverfa nú til fyrri starfa sinna“. Þrátt
fyrir þetta fullyrtu fréttaskýrendur
að breytingin benti til þess að ráða-
menn í Moskvu væra orðnir ráðvilltir
vegna þess hve illa gengi að taka
Grosní, héraðshöfuðborg Tsjetsjníu.
Annai' hershöfðingjanna, Gennadí
Troshev, sagði í sjónvarpsviðtölum í
menn að langan tíma muni taka að
vinna bug á tsjetsjneska liðinu í slíku
stríði. Borís Gromov, sem var síðasti
yfirmaður innrásarliðs Rússa í Afg-
anistan-stríðinu á níunda áratugn-
um, hefur einnig fullyrt að bjartsýni
stjórnvalda í Moskvu um skjótan sig-
ur sé byggð á sandi.