Morgunblaðið - 08.01.2000, Blaðsíða 30
30 LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
MENNTUN
Kennslutækni Með því að seg,ja á almennum vettvangi frá þeim aðferðum sem beitt er í Morningside skólanum,
vonar Guðríður Adda Ragnarsdóttir atferlisfræðingur og kennari að athygli þeirra sem áhrif og áhuga hafa á úr-
bótum í skólamálum, beinist að þeirri kennslu- og stjórntækni sem reynsla og rannsóknir sýna að geti ráðið úr-
slitum um framfarir skólabarna í námi og háttum.
Fljúgandi
færir
nemendur I
# Skólinn er rannsóknastofa í
kennslu- og stjórntækni
# Þar er ekki notað neitt
refsipunktakerfi á nemendur
Nái barnið þitt ekki settum
markmiðum í náminu,
færðu skólagjöldin end-
urgreidd“
Ofangreind trygging er veitt for-
eldrum nemenda í Morningside Ac-
ademy í Seattle í Bandaríkjunum,
sem er einkarekinn
grunnskóli, viður-
kenndur af Washing-
ton fylki. Nemendur
Momingside ná ein-
stökum árangri í námi.
Sem dæmi má nefna að
á tíu ára tímabili fór
nemendum skólans
fram í lestri að jafnaði
um tvö og hálft námsár
á hverju skólaári,
framfarir í reikningi
voru að jafnaði um þrjú
námsái’ á hverju skóla-
ári og framfarir í máln-
otkun að jafnaði ná-
lægt fjórum námsárum
á hverj u skólaári, allt
miðað við meðaltöl
nemenda á stöðluðum þekkingar-
prófum. Árangur nemenda Morn-
ingside vekur ekki síst athygli í Ijósi
þess að flest barnanna hafa formlega
greiningu um námsörðugleika vegna
misþroska af einhverju tagi, s.s. of-
virkni, athyglibrests eða lestrar-
hömlunar. Félagslegur og fjárhags-
legur bakgrunnur bamanna er
breytilegur, sum þeirra hafa annað
móðurmál en ensku, og einhver
þeirra höfðu greinst með „klínískt
þunglyndi“, voru jafnvel hætt að
sækja skóla eða voru langt á eftir
jafnöldrunum í námi, án nokkurrar
tilgreindrar ástæðu. Óhjákvæmilega
vekur það mann til umhugsunar að
tryggingarákvæðið er veitt foreldr-
um þessara barna fari þeim ekki
fram á hverju ári a.m.k. tvöfalt hrað-
ar en vænst er af börnum í almenn-
um grunnskólum.
Dæmi um árangur
Foreldrar barna sem sækja Morn-
ingside skólann fylgjast daglega ná-
ið með frammistöðu bamanna og
leyna ekki gleði sinni yfir framfömm
þeirra, eins og sjá má á eftirfarandi
ummælum:
„Dóttir okkar byrjaði í Morningsi-
de skólanum í hittiðfyrra. Hún var
þá tveimur ámm á eftir í lestri og
reikningi. Síðan hefur hún bætt sig
um fjögur ár í þessum greinum. I
dag á hún góða vini, er öragg í fasi og
tilbúin að fara í framhaldsskóla til að
takast þar á við ný og ögrandi við-
fangsefni.“
„Dóttir mín naut verannar í Morn-
ingside skólanum. Ég heyri ekki
lengur gamla uppgjafartóninn í
henni um hvað hún sé heimsk og geti
ekkert. í Morningside öðlaðist hún
jákvæða sjálfsímynd og á nú notaleg
og gjöful samskipti við annað fólk,
börn og fullorðna."
Auk frásagna af þessu tagi og
tölulegra upplýsinga um framfarir
nemenda Morningside, er einnig
áhugavert að sjá hver árangur nem-
enda annarra skóla er þar sem
Morningside aðferðin
er notuð. Hér era tvö
dæmi um það:
„Nemendum John
Muir grunnskólans
hefur farið svo fram í
lestri, að á aðeins
tveimur árum hefur
skólinn færst alla leið
úr 69. upp í 32. sæti á
samræmdum prófum
af þeim 81 grannskóla
sem era í Seattle.“
„I dreifbýli bresku
Kólumbíu í Kanada er
lítill grannskóli, Fort
Fraser. Að hausti réðu
aðeins 39% nemenda
sem flestir eru frum-
byggjar, við námsefni
sem ætlað var aldri þeirra í almennri
ritun, þ.e. í skrift, stafsetningu,
málnotkun og tjáningu. Strax um
vorið, eftir að þeim hafði verið kennt
um veturinn af kennuram Morn-
ingside, réðu 80% nemendanna við
námsefni sem þeir áttu að kunna
miðað við aldur, í þessari grein.“
Rannsóknarstofa
í kennslutækni
Morningside Academy er eins
konar rannsóknastofa þar sem stöð-
ugt er verið að prófa góða kennslu-
og stjórntækni. Það er að segja, ár-
angursríkar aðferðir í kennslu sem
hægt er að kenna öðram, endurtaka,
prófa annars staðar og fá sambæri-
legar niðurstöður. Þegar tölulegar
upplýsingar, sem sýna gagnsemi til-
tekinnar kennslutækni birtast í vís-
indatímaritum er aðferðin prófuð í
kennslu við Morningside. Fáist hlið-
stæðar niðurstöður þar og fram
komu í upphaflegu rannsókninni er
aðferðin notuð áfram. Reynist að-
ferðin vel er hún einnig kennd í öðr-
um skólum sem kaupa kennaraþjálf-
un af kennuram Morningside
skólans. Með öðram orðum sagt, þá
er í Morningside að finna safn úrvals
aðferða sem þar era í stöðugri end-
urskoðun og þróun, þannig að hverj-
um nemanda er tryggð besta
kennsla sem völ er á hverju sinni.
Hvernig er þetta gert?
Áiáð 1967 fjármagnaði Banda-
ríkjastjóm rannsókn á því hvaða
kennsluaðferðir væra árangursrík-
astar til að kenna börnum sem dreg-
ist höfðu aftur úr í námi og töldust
vera í áhættuhópum. Niðurstöður
sýndu að af þeim tuttugu og tveimur
aðferðum sem prófaðar vora, lentu
Guðríður Adda
Ragnarsdóttir
,1 Morningside öðlaðist hún jákvæða sjálfsfmynd og á nú notaleg og gjöful samskipti við annað fólk, börn og
fullorðna,“ sagði foreldri barns í skólanum.
þær efst sem kenndar eru við „bein
fyrirmæli“ (Direct Instraction) og
atferlis- greiningu og stjórnun. Eng-
in aðferð við innlögn þekkingarat-
riða hefur enn fundist fremri „bein-
um fyrirmælum“. Fé var samt ekki
veitt í kjölfar rannsóknarinnar til að
skoða þessar aðferðir nánar og þróa
þær áfram.
Árið 1980 stofnaði dr. Kent R.
Johnson, þá háskólaprófessor í at-
ferlis(sál)fræði, grannskólann
Morningside Academy. Sýn hans er
sú að allir nemendur geti náð ár-
angri í námi ef námsefnið og
kennsluaðferðirnar era þétt sniðin
að þörfum þeirra hvers um sig.
Þannig verður mögulegt að kenna
námsefni vetrarins á mun skemmri
tíma en almennt er áætlað og gert.
Þessi sýn hans er raungerð í skólan-
um með því að leggja sérstaka
áherslu á hönnun og framsetningu
(Instractional Design) þess kennslu-
efnins sem notað er, og með því að
beita eftirfarandi aðferðum í
kennslu og stjórnun sem saman
mynda svokallað Morningside líkan.
Þær era „bein íyrirmæli", atferlis-
greining, færniþjálfun, félagastuðn-
ingur og þrautalausnir í heyranda
hljóði.
Bein fyrirmæli, innlögn
og gagnvirkni
í Morningside era „bein fyrir-
mæli“ notuð til að leggja inn ný at-
riði í námsefninu fyrir byrjendur á
öllum aldri í hvaða grein sem er til að
tryggja að þeir læri öll undirstöðu-
atriði rétt og utan að, s.s. að tengja
hljóð við bókstafi, heyrnrænt og
sjónrænt. Námsefnið er samið eftir
sérstökum reglum og forskrifað
þannig að kennarinn fylgir kennslu-
handriti eftir í framsetningu efnisins
og stýrir kennsluferlinu mjög þétt
og markvisst samkvæmt því. í hand-
ritinu stendur hvað kennarinn á að
segja og hverju nemendurnir eiga að
svara. Nemendurnir era sívirkir og
svara þegar kennarinn gefur þeim
merki, fyrst allir í einum kór og síð-
an einn og einn. Segja má að kenna-
rinn og nemendurnir varpi þekking-
aratriðunum stöðugt á milli sín eins
og bolta, með taktvísri kveðandi og
stígandi hraða þar til hver einstakur
nemandi getur svarað reiprennandi
og greint rétt svar frá röngu. Heyri
kennarinn villur í svörum nemend-
anna eru þær umsvifalaustleiðréttar
á sama hátt. Með þessari gagnvirkni
fær hver og einn nemandi mörg
tækifæri í hverri einustu kennslu-
stund til að segja og þjálfa það sem
verið er að kenna, t.d. framburð á
hljóði og næmni fyrir mismunandi
hljóðblæ þegar greina þarf hljóð frá
öðram líkum hljóðum, eins og g frá
k.
Þegar nýtt efni er lagt inn hjá
nemendum með „beinum fyrirmæl-
um“ talar kennarinn tiltölulega lítið,
en nemendurnir svara honum með
þessari föstu hrynjandi fyrst um 10
til 20 sinnum á mínútu og síðan um
20 til 30 sinnum á mínútu. Nemend-
urnir eiga þá að hafa viðkomandi
þekkingaratriði á valdi sínu og það
er óþekkt að þeir muni ekki á mánu-
degi það sem kennt var á föstudegi.
Kennarinn kynnir síðan
önnur atriði námsefnis-
ins á sama hátt. Sam-
kvæmt þessu er um það
bil 30 % af kennslu-
stundinni varið til
„beinna fyrirmæla“ - þessara munn-
legu, gagnvirku æfinga. Hver mín-
úta er gjörnýtt og hver einasti nem-
andi helst að verki. Hraður gangur
kennslunnar þýðir að góðum náms-
mönnum fer ekki að leiðast þófið og
hinir sveimhuga, eirðarlausu og
hvatvísu hafa þétt aðhald, era sívirk-
ir í náminu og fá ekki tóm til annars.
Atferlisgreining og stjórnun
Þegar börn koma í Momingside er
byijað á því að venja þau við nýja fé-
laga og framandi aðstæður og kenna
þeim að semja sig að siðum skólans
áður en hafist er handa við sjálft
námsefnið. Góður tími er einnig tek-
inn til að þjálfa þau í ýmsum grund-
vallaratriðum sem nauðsynlegt er
fyrir þau að kunna vel til að skóla-
gangan verði þeim að gagni, svo sem
að horfa á töfluna, hafa rétt grip á
blýantinum, rétta upp hönd þegar
þau biðja um orðið og halda reiðu á
því sem þau hafa á borðinu hjá sér og
í töskunni.
Auk hins forskrifaða námsefnis
„beinna fyrirmæla" sem markar
kennsluferlinu ákveðinn ramma, er
hvatning og agastjórnun í hverjum
bekk og í skólanum í heild sam-
kvæmt þekktum reglum atferlisvís-
indanna. Þegar unnið er eftir þeim
eru sett nákvæm markmið um það
sem gera skal í hverri kennslustund.
Til að fylgjast með því hvernig geng-
ur er sú hegðun nemendanna sem
máli skiptir greind niður í sértækar,
merkjanlegar og teljahlegar eining-
ar sem við getum kallað athafnir. At-
hafnirnar era taldar aftur og aftur til
að sjá hversu oft þær eiga sér stað
og til að fylgjast með breytingum
sem á þeim verða. Síðan er umbun
gefin við (feeded back) þeim athöfn-
um nemandans sem kennarinn vill
sjá meira af, ásamt öllum athöfnum
sem miða í æskilega átt. Sem dæmi
um umbun, eða svokallaða jákvæða
styrkingu, má nefna að þegar verið
er að kenna barni nýja leikni í námi
eða framkomu er miðað við að hegð-
un barnsins sé styrkt að minnsta
kosti fjóram sinnum á mínútu! Nem-
endurnir hafa sérstök blöð hjá sér
sem þeir skrá á jafnóðum og kenna-
rinn hrósar þeim og segir að nú skuli
þau gefa sér prik. I lok hverrar
kennslustundar telur barnið prikin
sem það fékk fyrir það
sem verið var að kenna
því í skólafærni, s.s.
ástundun, skipulagi og
félagastuðningi, svo not-
að sé almennt orðalag.
Agakerfið er m.ö.o. tengt beint vil
þær athafnir nemendanna sem
kennararnir vilja sjá sem mest af í
skólanum, og þar þekkist refsipun-
ktakerfi ekki.
Kennararnir í Morningside geta
ekki sent börn sem illa láta að stjórn
til skólastjórans, hann er ekki við til
að sinna slíku. Skólastjórinn í Morn-
ingside er bundinn við að stýra
starfsfólki sínu til verka við rekstur
skólans og við að vera því faglegur
leiðtogi í alhliða menntun og uppeldi
nemendanna. Hann er reyndar
stundum sóttur inn í kennslustund
þegar sérstaklega vel gengur og
óvæntar framfarir hafa orðið á
frammistöðu nemendanna.
Færniþjálfun og færnivísar
Megináhersla kennslunnar í
Morningside felst í því að þjálfa
nemendurna í einstökum frumeind-
um námsefnisins ef svo má að orði
komast, þar til færni þeirra er hik-
laus og reiprennandi. Það getur ver-
ið að skrifa tölustafinn 0 eða 1 eða að
lesa upphátt langa lista af misháum
talnagildum eins hratt og þau geta á
einni mínútu. Á þennan hátt er þekk-
ingunni sem nemendurnir öðlast
með „beinum fyrirmælum“ fylgt eft-
ir með nánari þjálfun sem oftast felst
í mörgum stuttum hraðaæfingum.
Nemendurnir verja um 70% af
hverri kennslustund til að æfa sig í
því sem verið er að kenna þeim þar
til þeir geta leyst verkefnið hratþ
snurðulaust og án umhugsunar. I
námsefninu sem hannað er af starfs-
fólki Morningside og er gefið þar út,
eru margar stuttar færniæfingar, og
Árangur að-
ferðarinnar er
margfaldur