Morgunblaðið - 08.01.2000, Side 16
16 LAUGARD AGUR 8. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
171.519 íbúar á höf-
uðborffarsvæðinu
ÍBÚAR sveitarfélaganna á
höfuðborgarsvæðinu voru
samtals 171.519 hinn 1. des-
ember sl. íbúar á landinu öllu
voru 278.702.
íbúar Reykjavíkur voru 1.
desember 109.795 og hafði
fjölgað um 1.433 frá árinu
1998. 53.853 karlar bjuggu þá
í borginni en 55.942 konur.
Síðastliðinn áratug hefur
Reykvíkingum fjölgað um
13.068 manns.
Nágranna-
sveitarfélögin
Næstfjölmennasta sveitar-
félag höfuðborgarsvæðisins
er Kópavogur, Þar bjuggu 1.
desember sl. 22.568 manns,
11.149 karlar og 11.419 kon-
ur. í Garðabæ voru íbúar
7.927, 3.988 karlar og 3.939
konur. I Hafnarfirði voru
íbúar 19.136, 9.498 karlar og
9.638 konur, í Bessastaða-
hreppi voru íbúar 1.434, 737
karlar en 697 konur. í Mos-
fellsbæ voru 5.999 íbúar,
2.984 karlar og 3.015 konur.
Á Seltjarnarnesi voru íbúar
4.660, 2.318 karlar en 2.342
konur.
Fjölmennustu
göturnar
Fjölmennasta gata Reykja-
víkur er nú eins og undanfar-
in ár Hraunbær. Þar voru
íbúar 2.351 hinn 1. desember.
Aðrar götur í borginni með
fleiri en 600 íbúa eru: Klepps-
vegur (1.591), Vesturberg
(1.292), Háaleitisbraut
(1.268), Langholtsvegur (996),
Fannafold (940), Hringbraut
(832), Álíheimar (807), Loga-
fold (769), Hvassaleiti (765),
Bólstaðarhlíð (764), Frosta-
fold (754), Flúðasel (677),
Engjasel (675), Flétturimi
(625), Laufrimi (612), Safa-
mýri (608) og Hátún (601).
íbúar á höfuðborgarsvæðinu
(l.des. 1999)
628
Kjalames
(116 Reykjavfk)
5.000—Fjöldiibúa
67 ára og eldri
21 -66ára
0-20 ára
33,3* —Hlutfall aldurshóps
33í«
V.
V
4.660
105 Reykjavík
19.136
14.248 ----
16.274
Seltjamarnes
107 Reykjavík
11,7«
22,9.
104 Reykjavík
9.266 ;
12.264
25,5»
41,8,
1.807
101 Reykjavík
103 Reykjavík
108 Reykjavík
12.656 9.375
m
Reykjavík
oJ
•V
8,11
Mosfellsbær
/
hreppur
Fámennustu
göturnar
49 götur í borginni hafa 10
íbúa eða færri. Áberandi eru
þar götur í miðborginni, í iðn-
aðar- og verslunarhverfum
og í götum í jaðri skipulagðra
svæða.
10 íbúar eru við Skildinga-
tanga og Armúla, 9 búa við
Bolholt, Arnargötu, Reykja-
veg, Klifveg, Vaglasel og við
Hofsbraut á Kjalarnesi.
Átta búa við Bröttugötu,
Kirkjutorg og Skógarsel.
íbúar eru sjö við Höfðatún,
Engjaveg og Fossvogsveg.
Sex búa í Hafnarstræti, við
Skeljatanga, Bústaðablett,
Vatnsmýrarveg og Holtaveg.
Fischersund hefur fimm
íbúa eins og Kirkjugarðsstíg-
ur, Skógarhlíð, Skothúsvegur
og Stjörnugróf. Við Ljósuvík
eru 4 íbúar, eins og við
Hrannarstíg, Vegamótastíg
og Mýrargötu. Við Borgar-
tún, Stekkjarbakka, Furu-
grund og Víkurgrund á Kjal-
arnesi eru þrír íbúar.
Tveir búa við Eldshöfða,
Hitaveituveg, Lyngháls,
Hólmasel, Vatnasel og Jafna-
sel. Einn býr við Ánanaust,
Súðarvog, Faxafen, Lágmúla,
Breiðholtsveg, Árbæjarblett,
Stangarhyl, Smálandabraut
og Suðurlandsbraut við
Rauðavatn. Þá eru tveir íbúar
skráðir í Viðey.
Ofangreint kemur fram í
upplýsingum frá Hagstofu Is-
lands.
Félags-
aðstoð
hækkuð
um 3,6%
Laun æðstu stjói'nenda
taki mið af launavísitölu
opinberra starfsmanna
Hafnarfjördur
TILLAGA um nýja viðmiðun
launa bæjarstjóra- og fram-
kvæmdastjórasviða var sam-
þykkt á bæjarráðsfundi í
Hafnarfirði í vikunni. I tiilög-
unni felst að breytingar á
grunnlaunum æðstu stjóm-
enda taki mið af launavísitölu
opinberra starfsmanna í stað
þess að hún taki mið af þing-
fararkaupi.
Magnús Gunnarsson, bæj-
arstjóri í Hafnarfirði, segir
þessa tillögu koma fram vegna
þess að þegar þingfararkaup
hafi hækkað um 34% í maí á
síðasta ári hafi æðstu embætt-
ismenn bæjarins afsalað sér
þeirri hækkun og þá hafi kom-
ið fram í greinargerð að laun
þeiixa skyldu haldast óbreytt
þar til annað yrði ákveðið.
I greinargerðinni var einnig
tekið fram að á umliðnum ár-
um hefði ekki verið samsvörun
á milli hækkunar á launum op-
inberra starfsmanna og hækk-
unar á þingfararkaupi og því
þætti eðlilegt að miða breyt-
ingar á launum æðstu stjóm-
enda Hafnarfjarðarbæjar við
almennar breytingar á launum
opinberra starfsmanna. Sú
vísitala hefúr hækkað um
1,65%, írá því í maí á síðasta
ári og það er því sú hækkun
sem æðstu embættismenn
Hafnarfjarðar fá nú.
„Fyrst og fremst er verið að
forðast þessi miklu stökk og
reyna að samræma hlutina
miðað við það sem gerist á al-
mennum vinnumarkaði meðal
opinberra starfsmanna," segir
Magnús.
Landgræðslusjóður selur lóð sína og hús við Skógarhlíð
Reykjavík
VIÐMIÐUNARUPPHÆÐ-
IR vegna félagsþjónustu,
sem Reykjavíkurborg veitir,
hækkuðu um 3,6% um ára-
mót. Viðmiðunarupphæð að-
stoðar til einstaklinga hækk-
ar úr kr. 58.044 í kr. 60.136
og fyrir hjón úr kr. 104.480 í
kr. 108.231.
Að sögn Láru Björnsdótt-
ur, félagsmálastjóra Reykja-
víkurborgar, svarar hækk-
unin nú til hækkunar vísitölu
neysluverðs frá maí-desem-
ber 1999. Viðmiðunarupp-
hæðin hækkaði síðast 1. maí
um 6,2% og var sú hækkun í
takt við vísitöluhækkunina
frá 1995 en upphæðin hafði
ekki breyst frá því ári.
Árið 1998 nam félagsað-
stoð borgarinnar 558 millj-
ónum króna en Lára segir að
aðstoðin hafi numið tæpum
530 milljónum á nýliðnu ári.
Spá ársins 2000 gerir ráð
fyrir um 530 m.kr., að teknu
tilliti til hækkunarinnar nú.
Lára segir að lækkun þess-
ara útgjalda haldist í hendur
við bætt atvinnuástand í
borginni.
Reykjavík
STEFNT er að því að koma
upp nýrri lágreistri íbúða-
byggð við Skógarhlíð 38 í
Reykjavík, á lóð sem Land-
græðslusjóður seldi nýverið.
Fyrirtækið JVS keypti lóðina,
ásamt húsi Landgræðslusjóðs
og stendur til að fjarlægja hús-
ið og hefja þar uppbyggingu.
Breyta þarf deiliskipulagi
áður en framkvæmdir geta
hafist, en núna er svæðið skil-
greint sem stofnanasvæði og
hefur verið lagt fram erindi til
Stefnt
að íbúða-
byggð
borgarskipulags um deili-
skipulagsbreytingu þar sem
það verði skilgreint sem íbúða-
svæði.
Að sögn Jóns Vals Smára-
sonar, annars eiganda JVS,
sóttust margir eftir því að
kaupa lóðina og var kaupverð
á endanum mun hærra en það
verð sem sett var í upphafi, en
hvorki hann né forsvarsmenn
Landgræðslusjóðs vilja gefa
upp hvert verðið var.
Jón Valur segir svæðið hafa
marga kosti og að það sé tilval-
ið fyrir íbúðabyggð. „Þetta er
með fallegri byggingasvæðum
í Reykjavík og ef eitthvað
vantar í Reykjavík þá er það
íbúðabyggð. Þetta svæði er
þama niðri við sjóinn, göngu-
stígur rétt hjá sem nær frá
Seltjamarnesi upp í Heiðmörk
auk þess sem er rólegt þarna,
skjólsælt og mikil veðurblíða."
Morgunblaðið/Ásdís
Skipt um baðhús
í N authólsvík
Nauthólsvík
TIL stendur að rífa gamla
baðhúsið í Nauthólsvík og
byggja þar nýja bað- og
snyrtiaðstöðu. Utboð við
framkvæmdir fer fram á
næstu dögum og er gert ráð
fyrir að framkvæmdum verði
lokið í vor.
Með vorinu verður einnig
byrjað að dæla heitu vatni út
í Nauthólsvíkina og verður
fengið til þess yfirfallsvatn
frá Hitaveitu Reykjavíkur.
Stefnt er að því að halda
hitastigi sjávar við 20°C þeg-
ar aðstæður leyfa.
Jóliann Pálsson garðyrkju-
stjóri hefur umsjón með upp-
byggingu svæðisins og segist
bjartsýnn á framkvæmdirn-
ar. „Ég er viss um að þetta
verður mikið sótt, því í fyrra
var engin aðstaða en á góð-
viðrisdögum kom samt fólk
þangað svo þúsundum
skipti.“
Stjórn SVR
braut rétt
áheyrnarfulltrúa
Reykjavík
BORGARLÖGMAÐUR
telur að meirihluti stjórnar
Strætisvagna Reykjavíkur
hafi brotið rétt á áheyrnar-
fulltrúa starfsmanna á
stjórnarfundum þegar hon-
um var meinað að leggja
fram bókun vegna umræðu
um öryggismál strætis-
vagnaflotans og viðbrögð
stjórnenda fyrirtækisins
við opinberum ummælum
öryggistrúnaðarmanna
starfsmanna um öryggis-
málin.
Á stjórnarfundi þann 6.
desember síðastliðinn lagði
Lilja Ólafsdóttir, forstjóri
SVR, fram svör við fimm
spurningum fulltrúa sjálf-
stæðismanna í stjórninni.
Annars vegar snerust þær
um viðhaldsmál strætis-
vagna. Öryggistrúnaðar-
mennirnir tveir höfðu hald-
ið fram í blaðaviðtali, sem
tekið var vegna bréfs, sem
öryggistrúnaðarmennirnir
höfðu sent stjóm SVR,
Vinnueftirliti ríkisins og
lögreglustjóra, að viðhalds-
mál væru óviðunandi að því
leyti að þrír vagnar hefðu
verið settir út í akstur með
ýmist biluð stýri eða bilað-
ar bremsur.
Hins vegar svaraði for-
stjórinn spurningum um
hvort rétt væri að vegna
blaðaviðtalsins hafi örygg-
istrúnaðarmönnum verið
hótað brottrekstri eða á-
minningu ef þeir drægju
ekki til baka ummæli sín og
um réttarstöðu öryggis-
trúnaðarmanna.
í svörunum kemur fram
að meðalaldur strætis-
vagna sé 10,5-11 ár og að
forstjóri telji viðhaldsmál í
lagi en í umfangsmikilli
starfsemi geti orðið mistök,
sem séu fátíð.
Engin dæmi séu um slys
vegna bilunar í öryggis-
búnaði. í þeim dæmum sem
nefnd hafi verið hafi verið
um að ræða eðlilegt slit á
stýri en mistök hvað varðar
þann bíl sem var með bil-
aða hemla. Spurningu um
hvort brottrekstri hafi ver-
ið hótað er svarað á þann
veg að ekki hafi verið tekin
akvörðun um viðbrögð við
málsmeðferð öryggistrún-
aðíirmanna.
Neitað um að Ieggja
fram bókun
I fundargerð fundarins
kemur fram að að loknum
umræðum um þessar
spurningar og svör for-
stjóra hafi Marías Sveins-
son, áheyrnarfulltrúi starfs-
manna, óskað eftir að leggja
fram bókun. Þar mótmælti
hann harðlega þeim vinnu-
brögðum forstjóra að hóta
öryggistrúnaðarmönnum
brottrekstri íyrir það eitt að
sinna störfum sínum. Það sé
alvarlegt ef aíleiðingar hót-
unarinnai- verði til þess að
öryggistrúnaðarmenn þori
ekki að sinna störfum sínum
af kostgæfni og alúð eins og
áður.
Helgi Pétursson, formað-
ur stjórnarinnar, úrskurð-
aði að bókunin ætti ekki er-
indi á fundinn og meirihluti
stjómar var sammála þeim
úi-skurði. Minnihlutinn
mótmælti þeirri afgreiðslu
með bókun.
Marías kærði neitun
meirihlutans til borgarlög-
manns. Hann hefur nú kom-
ist að þeirri niðurstöðu að
brotinn hafi verið réttur á
áheymarfulltrúanum, með
því að neita honum um rétt
til að bóka.
I áliti Hjörleifs Kvaran
borgarlögmanns segir að
bókun Maríasar hafi fjallað
um mál sem var á dagskrá
fundarins. Samkvæmt sam-
þykkt um stjóm SVR eigi
starfsmenn rétt á að kjósa
áheyrnarfulltrúa til setu á
stjómarfundum með mál-
frelsi og tillögurétt.
„I þessu felst einnig rétt-
ur fulltrúans til bókunar.
Almennt hefur verið litið
svo á að fulltrúar starfs-
manna í stjórnum borgar-
stofnana og -fyrirtækja hafi
sama rétt til tillöguflutnings
og bókunar og stjómar-
menn. Bókun sú sem Marí-
as lagði fram varðaði mál
sem var til umfjöllunar á
fundinum og átti hann tví-
mælalaust rétt á að bókun
hans yrði færð í fundar-
gerð,“ segir borgarlögmað-
ur.