Morgunblaðið - 08.01.2000, Síða 18
18 LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Flugleiðahótel sækir um lóð og vill byggja á Akureyri
Hugmyndir um að
50-100 herbergja
KARI Kárason, framkvæmdastjóri
Flugleiðahótela, segir félagið hafa
áhuga á því að reisa 50-100 her-
bergja hótel á Ákureyri en áætlaður
kostnaður við slíka íramkvæmd er
350-700 milljónir króna. Flugleiða-
hótel sóttu um lóð í miðbæ Akureyr-
ar og var umsóknin til umræðu í bæj-
arráði í vikunni og var bæjarstjóra
falið að vinna áfram að málinu.
Flugleiðahótel, sem er dótturfélag
Flugleiða, er stærsta hótelfyrirtæki
landsins, með 22 hótel í rekstri yfir
sumartímann og þar af 7 heilsárshót-
el. Kári sagði framundan að ræða við
bæjaryfirvöld en ekki væri raunhæft
að ætla að félagið hæfi rekstur hótels
á Akureyri fyrr en í fyrsta lagi vorið
2001. „Við erum ekki með rekstur
heilsárs hótels á Akureyri en þetta
er mjög spennandi markaður sem
við höfum áhuga á að koma inn á. Við
höfum lýst yfir vilja til þess að ræða
hlutina í samhengi við hugmyndir
um byggingu menningar- og eða
tónlistarhúss en erum ekki að sækja
um neina sérstaka lóð,“ sagði Kári.
Rætt hefur verið um að byggja
svokallað menningarhús á uppfyll-
ingunni sunnan Strandgötu og aust-
an Glerárgötu og þar er frekast
möguleiki á að byggja stórt í mið-
bænum. Kári sagði ráðgert að
reisa
hótel
byggja hótel í svipuðum gæðaflokki
og Hótel Esja og Hótel Loftleiðir.
„Við myndum koma inn á markaðinn
af miklu afli, sem stærsta hótelfyrir-
tæki landsins og auk þess með stórt
markaðsbatterí. Við ætlum ekki
bara að höggva í þann markað sem
fyrir er á Akureyri, heldur stefna að
því að stækka hann enn frekar en
það er Ijóst að samkeppnin verður
erfið fyrst í stað,“ sagði Kári.
Sýning í
Galleríi +
MYNDLISTARSÝNING Hólmfríð-
ar Harðardóttur í Galleríi +,
Brekkugötu 35 á Akureyri, verður
opin laugardaga og sunnudaga frá kl.
14-17 og aðra daga eftir samkomu-
lagi. Fjölmenntvar við sýningaropn-
unina 29. desember. Petta er fyrsta
einkasýning listakonunnar á íslandi,
en hún er Akureyringur búsett og
starfandi í New York. Hólmfríður
hóf listnám við Myndlista- og hand-
íðaskóla íslands, lauk BFA-prófi frá
Háskólanum í Iowa og MFA frá
Maryland Institute College of Art í
Baltimore. Hún hefur haldið einka-
sýningar í Bandaríkjunum_ og tekið
þátt í samsýningum þar. A sýning-
unni í Galleríi + eru listaverk unnin
með blandaðri tækni, m.a. skúlptúr-
ar, lágmyndir og ljósmyndir.
Morgunblaðið/Krisyán
Stúfur með ungan dreng í fanginu, sem fékk m.a. að máta jólasveinahúfu hans.
Morgunblaðið/Kristján
Siggi sæti fékk óvænta heimsókn upp á svið og hann sést hér ræða við tröll sem gerði tilraun
til að stela senunni.
Jólin kvödd á þrettándagleði
AKUREYRINGAR kvöddu jólin með hefð-
bundnum hætti á árlegri þrettándagleði
íþróttafélagsins Þórs í fyrrakvöld, í fal-
legu en nokkuð köldu veðri. Um 1.000
manns mættu á félagssvæði Þórs við Ham-
ar, þar sem ýmislegt var gert til skemmt-
unar og þá aðallega fyrir yngsta fólkið.
Jólasveinarnir héldu til fjalla eftir að hafa
heilsað upp á gesti og tekið lagið með
börnunum. Álfakóngur og álfadrottning
fóru fyrir hópi ýmissa furðuvera, Kór
Glerárkirkju söng og einnig Lára Ey-
mundsdóttir. Kveikt var í brennu og flug-
eldum skotið á Ioft. Mesta athygli hjá
yngsta fólkinu vakti þó heimsókn þeirra
Sigga sæta og hanans úr Latabæ, sem
sungu og léku fyrir börnin og með þeim.
Heimsókn þessara gesta að sunnan vakti
mikla athygli enda þekkja flest íslensk
börn íbúa Latabæjar mjög vel.
Námstefna um áhrif veik
inda foreldra á börn
Héraðsdómur
Norðurlands
eystra
Fjölgun
gjald-
þrotamála
NOKKRU fleiri gjaldþróta-
mál bárust til Héraðsdóms
Norðurlands eystra á nýliðnu
ári en árið á undan. Alls bár-
ust dómnum 74 gjaldþrotamál
til umfjöllunar á síðasta ári
en þau voru 56 árið þar á
undan. Af þeim 74 beiðnum
sem bárust voru felldir 30
gjaldþrotaúrskurðir, en þeir
voru 28 árið þar á undan.
Fleiri mál
Mun fleiri mál bárust Hér-
aðsdómi Norðurlands eystra
á nýliðnu ári en árið á undan,
þau voru 804 árið 1998 en
fjölgaði í 1.045 á síðasta ári.
Einkamál voru í meirihluta
þeirra mála sem dómnum
bárust, alls 523 á nýliðnu ári
á móti 384 árið þar á undan.
Þá voru opinber mál samtals
382 á liðnu ári, en þau voru
204 árið á undan. Sektarboðs-
málum fjölgaði umtalsvert
milli áranna 1998 og 1999, eða
úr 27 í 116. Nefna má að að-
fararbeiðnum fækkað mjög
milli ára, eða úr 96 í 10.
NÁMSTEFNA á vegum Krabba-
meinsfélags Akureyrar og nágrenn-
is um þau áhrif sem börn verða fyrir
þegar foreldrar þeirra veikjast al-
varlega verður haldin í samkomusal
Menntaskólans á Akureyri, Hólum í
dag laugardaginn 8. janúar, og hefst
hún kl. 10 árdegis. Yfirskrift nám-
stefnunnar er: „Mamma, pabbi,
hvað er að?“.
Námstefnan er einkum ætluð
leik- og grunnskólakennurum og
starfsfólki þessara skóla og einnig
foreldrum. Um 150 þátttakendur
hafa þegar skráð sig á námstefnuna,
SKRIFAÐ hefur verið undir samn-
ing milli Atvinnuþróunarfélags
Eyjafjarðar og Ferðamálafélags
Eyjafjarðar um útgáfu ráðstefnu-
handbókar fyrir Eyjafjörð, en um er
að ræða endurgerð handbókar sem
kynnir valkosti til funda, ráðstefnu-
og hvataferða á Eyjafjarðarsvæðinu.
Átælað er að ráðstefnuhandbókin
komi út um miðjan næsta mánuð og
verður henni fylgt eftir með skipu-
lagðri markaðssókn hjá skilgreind-
um markhópum en m.a. verður gert
sérstakt átak í kynningu þessa þátt-
en tilgangur hennar er að fjalla um
þær aðstæður sem skapast við al-
varleg veikindi, andlát og önnur erf-
ið áföll sem þeir sem umgangast
börn þurfa oft að standa frammi fyr-
ir, en nauðsynlegt er að sinna þess-
um aðstæðum af kunnáttu og þekk-
ingu.
Að lokinni setningu flytur Kristj-
án Kristjánsson prófessor í heim-
speki við Háskólann á Akureyri fyr-
irlestur um tilfinningar bama,
Rúnar Andrason sálfræðingur á
FSA fjallar um unga aðstandendur
og Guðrún Alda Harðardóttir, lekt-
ar ferðaþjónustunnar á Ejjafjarðar-
svæðinu á Netinu. Bókin verður gef-
in út á íslensku og ensku og dreift
bæði hér á landi og í útlöndum, m.a.
um umboðsskrifstofur Flugleiða.
Kostnaði við útgáfu bókarinnar
verður mætt með auglýsingum,
styrkjum og framlagi frá Atvinnu-
þróunarfélagi Eyjafjarðar. Gerður
hefur verið samningur við Sjónar-
mið-almannatengsl um að vinna að
auglýsingasöfnun og efnisöflun fyrir
bókina auk þess að annast eftirfylgni
og hafa umsjón með dreifmgu.
or við kennaradeild Háskólans á Ak-
ureyri, flytur erindi sem nefnist:
„Sjá-skilja-styðja“.
Þrjú erindi verða einnig flutt að
loknu matarhléi, Margrét Héðins-
dóttir skólahjúkrunarfræðingur og
Hafsteinn Karlsson skólastjóri Sel-
ásskóla flytja erindi sem nefnist
„Skóli sem veit og skilur gerir gæfu-
muninn“, Elísabet Hjörleifsdóttir
hjúkrunarfræðingur fjallar um ungl-
inga og krabbamein og hugmyndir
barna um dauðann og loks ræðir
Jónína L. Þorsteinsdóttir sóknar-
prestur á Akureyri um börn og sorg.
Tómas Guðmundsson hjá Sjónar-
miði sagði ráðstefnur vænlegan kost
í uppbyggingu ferðaþjónustu, en
ráðstefnur væru oftast haldnar utan
hefðbundins háannatíma ferðaþjón-
ustunnar hér á landi auk þess sem
ráðstefnugestir hefðu gjarnan rýmri
fjárráð en gengur og gerist meðal al-
mennra ferðamanna.
Tómas benti á að á vegum hins op-
inbera væri mikið um ráðstefnu- og
fundahald og væri eftir nokkru að
slægjast yrði hægt að ná broti af því
norður yfir heiðar.
Sjávarútvegs-
deild Háskolans
á Akureyri
Tíu ára
afmæli
TÍU ár eru um þessar mundir liðin
frá því sjávarútvegsdeild Háskól-
ans á Akureyri var stofnuð og í til-
efni af því verður opið hús hjá
deildinni í Oddfellowhúsinu við
Sjafnarstíg í dag, laugardaginn 8.
janúar, frá kl. 14 til 16.
Þar munu sjávarútvegsfræðing-
ar, útskrifaðir frá Háskólanum á
Akureyri, í stuttum erindum
kynna störf sín og skoðanir á nám-
inu sem og ræða um þróun sjávar-
útvegs. Allir þeir sem áhuga hafa
á að kynna sér starfsemi deildar-
innar eru velkomnir.
Sérstök afmælisveisla verður
svo haldin í íþróttahöllinni á Akur-
eyri um kvöldið en þar verða flutt
stutt ávörp. Veislustjóri verður
Pétur Bjarnason, framkvæmda-
stjóri Fiskifélags Islands, en hátíð-
arræðu flytur Kristinn H. Gunn-
arsson alþingismaður.
Kirkjustarf
- sjá bls. 64
Ráðstefnuhandbók fyrir
Eyjafjörð gefín út