Morgunblaðið - 08.01.2000, Síða 22

Morgunblaðið - 08.01.2000, Síða 22
22 LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 2000 URVERINU MORGUNBLADIÐ Misjöfn viðbrögð þingmanna við dómi Héraðsdóms Vestfjarða í máli Vatneyrar BA Deilt um hvort bíða skuli Hæstaréttar Dómur Héraðsdóms Vestfjarða, þar sem komizt er að þeirri niðurstöðu að það sé ekki brot gegn lögum um stjórn fískveiða að stunda veiðar án þess að hafa til þess aflaheimildir, er umdeildur. Hjörtur Gíslason og Steinþör Guðbjarts- son leituðu álits alþingismannanna Jóhanns Arsælssonar, Samfylkingunni, Kristins H. Gunnarssonar, Framsóknarflokki, og Steingríms J. Sigfússonar, Vinstrihreyfíngunni - grænu framboði, á dómnum og sýnist sitt hverjum. Að- ur hefur Morgunblaðið birt álit Frjálslynda flokksins og Arna M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra, á dómnum. Steingrímur J. Sigfússon Gæti haft víðtækar afleiðingar „VERÐI þessi dómur staðfestur af Hæstarétti er eins gott að horfast í augu við að það gæti haft mjög víð- tækar afleiðingar. Að vísu geta við- brögðin þá orðið með ýmsum hætti og það fer auðvitað eftir því hvernig dómsorð yrði að hálfu Hæstaréttar. Hvort hann beinlínis dæmir sjálfan grundvöll kvótakerfisins af, eða hvort hann skilyrðir með einhverj- um hætti framkvæmdina," segh- Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, í samtali við Morgunblað- ið. „Þegar fyrri dómur féll um úreld- inguna varaði ég og fletri við því að viðbrögðin væru of lítil. Menn tækju það ekki nógu alvarlega sem gerzt hefði. Ég man að ég rifjaði það upp að í raun og veni væru bæði úreld- ingarreglurnar og viðmiðun afla- marksins sprottin af sömu rót. Það er að segja af þeim skipum og þeim afla, sem þau drógu að landi á við- miðunarárunum. Það vill nefnilega svo til að rúmmálið, sem átti í hlut, átti sér líka uppruna í sama flota á nokkurn veginn sömu viðmiðunar- árum. Ég taldi þar af leiðandi alltaf að menn yrðu að horfast í augu við það, að í næstu umferð gæti þetta beinzt að aflamarkinu og þá væntan- lega á svipuðum grunni og úrelding- arreglurnar voru meðhöndlaðar. Það hefði kannski verið réttlætan- legt á sínum tíma að setja þessar reglur, en það stæðist ekki að halda þessu lokuðu um aldur og ævi með þessum hætti. I framhaldinu gætu menn svo ályktað sem svo að með því að gera ákveðnar breytingar á kerfinu, sem opnaði nýjum aðilum leið inn, stæð- ist það. Ég bjó mig alltaf undir það að slík gæti útkoman orðið, þegar þessi hluti málsins gengi fyrir dóm- stóla. Það var auðvitað augljóst að svo færi í framhaldi af fyrri dómi um veiðileyfi og úreldingarreglur. Réttindin verði byggðatengd Burtséð frá þessum málaferlum hef ég verið þeirrar skoðunar lengi, að það eigi að gera róttækar breyt- ingar á þessu kerfi hvort sem er. í mínum huga er einboðið að nota þetta tilefni til þess og þá vildi ég sjá að þessi réttindi yrðu byggðatengd að verulegu leyti á nýjan leik. Það er ráðstöfun, sem ég efast ekki um að hægt sé að útfæra þannig að hún standist. Spurningin er þá kannski um það hvernig mönnnum verður þá að öðru leyti gert kleift að keppa eða komast inn í greinina, þannig að hægt sé að segja að allir standi sæmilega jafnfætis. Nú er bara að bíða og sjá og æski- legt er að fá niðurstöðu í þetta mál sem allra fyrst. Ég treysti því að reynt verði að hraða meðferð þessa máls í Hæstarétti, þannig að niður- staða fáist sem fyrst þó ég sé ekki að mælast til þess að kastað verði til höndunum við þetta vandasama verk. Það liggur ljóst fyrir að mál- inu verði áfrýjað og þá er það eðli- legt, út frá þeim verkaskiptum að dómstólarnir dæmi og Alþingi setji lögin, en trufli ekki verk hvors ann- ars, að þá verði niðurstöðu dómsins beðið. Auðvitað gildir sá dómur gagnvart lögunum eins og þau eru og Alþingi getur að sjálfsögðu þegar hafizt handa við að undirbúa sig. Það til dæmis fullkomlega eðlilegt að sjávarútvegsnefnd byrji að fjalla um málið. Þýðir ekki að hafa allt á hornum sér Mér fundust viðbrögð forsætis- ráðherra í þessu máli ekki mjög yf- irveguð, það sem ég heyrði til hans í sjónvarpi í gær. Ég held að það þýði ekki að bregðast svo við að hafa allt á hornum sér og ætla að skjóta sendiboðann. Við verðum að taka þessa hluti mjög alvarlega eins og þeir liggja fyrir. Það ætti heldur ekki að koma mönnum óskaplega á óvart þótt svona hlutir gerðust í ljósi þeirrar miklu gagnrýni og óánægju sem hefur verið með ýmis- legt sem þessu kvótakerfi tengist. Ég tel að menn hafi safnað glóð- um elds að höfði sér, til dæmis með því að taka aldrei á gróðasöfnun ein- stakra aðila, sem hafa á umliðnum árum hirt með sér milljarða út úr greininni. Ég hef lengi barizt fyrir því á því yrði tekið meðan réttindin eru framseljanleg,“ segir Stein- grímur J. Sigfússon. Jóhann Ársælsson Ekki rétt að bíða eftir Hæstarétti „ÉG ER mjög undrandi á heims- endaspám forsætisráðherra og framkvæmdastjóra LIÚ vegna þessa máls. Ég tel að menn þurfi að nota tímann nú, horfast í augu við að Hæstiréttur geti staðfest niður- stöðu Héraðsdóms Vestfjarða. Menn verða að laga stjórn fiskveiða að þeim grundvallai'sjónarmiðum, sem vitnað er til úr stjórnarskránni; að kvótanum verði úthlutað á jafn- réttisgrundvelli. Menn sem eru í þessum atvinnurekstri búi ekki við þá mismunun, sem nú er í sjávar- útveginum," segir Jóhann Ársæls- son, þingmaður Samfylkingarinnar. Sóknarstýring eða leiga veiðiheimilda „Þetta er hægt að gera með tvennum hætti. Ónnur leiðin er að hverfa frá þessu fískveiðistjórnun- arkerfi og taka upp meiri sóknar- stýringar en við erum með núna, fara alfarið í þann farveg. Hin leiðin er sú að leigja út veiðiheimildirnar, en það var það sem þjóðhagsstofu- stjóri var að meina er hann var inntur álits á þessu máli. Með því að leigja út hluta veiðiheimilda á hverju ári til einhverra tiltekinna ára, er auðvelt að breyta kvótakerf- inu í leigukvóta í stað þess að hann sé bæði leigu- og sölukvóti eins og hann er nú í höndum útgerðar- manna. Þetta er hægt án þess að raska kerfinu sem slíku um nokkurn skapaðan hlut. Þá er aðeins eigna- grundvellinum breytt og myndað jafnræði útgerðarmanna til að nálg- ast veiðiheimildir á markaði. Þetta er vel hægt að gera án nokkurra sérstakra vandamála. Þetta mun viðhalda að minnsta kosti, ef ekki auka fiskveiðiarðinn. Það hafa ýms- ir hagfræðingar sagt mér, en með þessu er verið að færa meirihluta af arðinum, kannski meiri en sumir vilja, yfir til eigandans, samfélags- ins. Margir þurfa að éta mikið ofan í sig Þetta á að skoða þegar af fullri ábyrgð en ekki bíða eftir því að dómur Hæstaréttar falli. Staðfesti hann þessa niðurstöðu og ekki liggi fyrir ákvörðun um hvemig bregðast skuli við þessu, er býsna erfitt að ná tökum á ástandinu. Þann dag sem dómur Hæstaréttar fellur, ætli menn ekkert að gera, verða engar reglur í gildi. Þá geta allir róið eins og þeim sýnist. Sé forsætisráðherra svo ábyrgðarlaus að hann ætli að bíða þess dags og vera í fýlu út í allt og alla, er hann að bjóða heim slíku ástandi, en það þarf ekki að koma. Það liggur fyrir að margir þurfa að éta mikið ofan í sig, vegna þess að þeir hafa fylgt þessari veiði- stjómun eftir af mikilli hörku og troðið henni ofan í kokið á þjóðinni. Þessu mikla óréttlæti, sem stór hluti þjóðarinnar upplifir sem slíkt. Meirihluti Alþingis hefur gert þetta í gegnum árin. Þurfi menn svo að horfast í augu við að fiskveiðistjórn- unin sé brot á stjórnarskránni eins og margir hafa haldið fram, þá verður það býsna erfitt fyrir ýmsa að éta ofan í sig þessa stefnu. Þeir eru menn að meiru ef þeir gera það og setjast í alvöru niður við að gera fiskveiðistjórnunina réttláta. Spurningin nú er hvort innan þessa kvótaflokka á Alþingi, sem eru allir nema Frjálslyndi flokkur- inn og Samfylkingin, sé fólk sem treystir sér til að horfast í augu við það að stefnan gengur ekki upp. Þeir eru menn að meiru ef þeir gera það, en sprengja ekki allt í loft upp með dómi Hæstaréttar, komi hann án þess að tekið hafi verið á mál- inu,“ segir Jóhann Arsælsson. Kristinn H. Gunnarsson Endurskoð- unarnefnd kanni allar leiðir KRISTINN H. Gunnarsson, alþing- ismaður og formaður þingflokks Framsóknarflokksins, segir að gangi dómur Héraðsdóms Vest- fjarða eftir þýði það verulega breyt- ingu, því dómurinn hafi í raun dæmt úthlutun á aflahlutdeildinni ógilda en hún sé grundvöllur kerfisins. Þetta þýði samt ekki að afla- markskerfið sé fyrir bí heldur þurfi öðruvísi úthlutunarreglur. „Ég skil dóminn líka þannig að hann telji nauðsynlegt að vera með tíma- bundna úthlutun en ekki varanlega úthlutun, en mér sýnist þetta vera tvö meginatriði dómsins," segir Kristinn. Setja ný lög eða breyta gildandi lögum Spurður um áhrif dómsins, verði málinu áfrýjað eins og gert er ráð fyrir og hann staðfestur í Hæsta- rétti, segir Kristinn að þá verði Aþingi að setja ný lög eða breyta gildandi lögum. „Eg gef mér það að almenn samstaða sé um að frjálsar veiðar allra verði ekki um að ræða, að það þurfi að takmarka veiðarnar. Þar sem dómurinn dregur það fram að það megi vera aðlögunartími að breyttu kerfi, mun Aþingi þá þurfa að setja lög, í það minnsta til bráða- birgða, varðandi stýringu veiðanna eftir einhverju kerfi, trúlega aíla- markskerfi, og síðan yrðu sett ný lög eftir einhverja athugun." Bíða eftir úrskurði Hæstaréttar Kristinn, sem er varaformaður sjávarútvegsnefndar, telur ekki ástæðu til að breyta lögunum fyrr en úrskurður Hæstaréttar liggur fyrir. „Það er skynsamlegt að bíða eftir úrskurði Hæstaréttar en það er líka skynsamlegt að huga að því að skoða allar leiðir sem menn sjá til að mæta sjónarmiðum dómsins. Ég tel líklegt að Hæstiréttur muni stað- festa þennan úrskurð, miðað við hvernig hann er rökstuddur í hér- aðsdómi með tilvísun í fyrri dóm Hæstaréttar. Hins vegar er spurn- ing hvort það sé rétt túlkun hjá hér- aðsdómi að beita fimmtu greinar röksemdarfærslu yfir á þá sjöundu og Hæstiréttur verður að svara því en dómur Hæstaréttar í desember 1998 fjallaði mikið um þessa úthlut- un þó hann væri ekki með það við- fangsefni til úrskurðar." Uppboð ekki endilega lausn Að mati Kristins er ekki hundrað í hættunni þótt það þurfi að breyta kvótakerfinu og hann telur að breyt- ing geti jafnvel verið af hinu góða. „Við erum með endurskoðunar- nefnd í gangi og mér finnst sjálfsagt að hún líti á þessi mál, velti því fyrir sér hvaða leiðir eru til til að mæta þessum sjónarmiðum um jafnrétti en það er mjög flókið mál. Menn tala um að uppboð myndi mæta sjónar- miðum um jafnrétti af því þá hafi allir rétt til að bjóða í, en það þarf ekki að vera alveg rétt, því menn eru mjög misjafnlega búnir til að bjóða í. Menn búa við misjöfn efni og misjafna aðstöðu í bankakerfinu og svo framvegis. Eins og staðan er nú mega bara þeir sem eru með skip vera með kvóta. Ætla menn að breyta því? Uppboð þarf því ekki að þýða að allir standi jafnir að vígi en mér finnst allt í lagi að skoða það mál þótt ég sé ekki stuðningsmaður uppboðs." Skráning nýrra sjóðsdeilda Verðbréfasjóða VÍB á VÞÍ Útgefandi Verðbréfasjóðir VÍB hf., kt. 540489-1049, Kirkjusandi, 155 Reykjavík. Umsjón með skróningu Verðbréfamarkaður íslandsbanka hf., kt. 571186-1959, Kirkjusandi, 155 Reykjavik. Skróning Skráðar verða tvær sjóðsdeildir Verðbréfasjóða VÍB hf., Sjóður 10 - úrval innlendra hlutabréfa og Sjóður 11 - löng skuldabréf. Viðskiptavaki Verðbréfamarkaður Íslandsbanka hf. mun setja fram kaup- og sölutilboð á Verðbréfaþingi íslands á hverjum degi. Hlutdeildarskírteini Þeir sem feia Verðbréfasjáðum VÍB hf. fé til ávöxtunar fá í hendur kvittun fyrir kaupum. Gefin eru út verðbréf í formi hlutdeildarskírteina ef þess er óskað. Réttindi Allir sem eiga hlutdeild að sjóðsdeild eiga sama rétt til tekna og eigna sjóðsdeildarinnar í hlutfalli við eign sina. Frekari upplýsingar Samþykktir Verðbréfasjóða VÍB, ársfjárðungsskýrslur, upplýsingar um ávöxtun og útboðslýsingu skv. reglum um útboðslýsingu verðbréfasjóða má nálgast hjá Verðbréfamarkaði íslandsbanka hf. á Kirkjusandi. 'W TTTl VIB VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF. Kirkjusandi, 155 Reylgavík. Sími: 560 8900. Myndsendir: 560 8910. Veffang: www.vib.is. Netfang: vib@vib.is.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.