Morgunblaðið - 08.01.2000, Qupperneq 26
26 LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 2000
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Reuters
„Líkaminn" er eitt stærsta og mest áberandi sýningarsvæðið í Þúsaldarhvelfíngunni í London.
Óreiða sögð í þúsaldarhvelfingu
London. The Daily Telegraph.
ÞEIR sem veitt hafa fjárframlög til
Þúsaldarhvelfingarinnar í London
hafa látið í Ijósi mikil vonbrigði
með skipulag og gæði sýningar-
gripa í hvelfingunni, sem hefúr
verið opin í rúma viku.
Flestir styrkveitendurnir hafa
látið í ljósi þá von að um vaxtar-
verki só að ræða, en hafa þó í
einkasamtölum margir sagst
hneykslaðir á skipulagsóreiðu í
rekstri hvelfingarinnar. Fyrirtæki
hafa veitt 160 milljónum punda til
hvelfingarinnar, en kostnaður við
hana nemur alls um 758 milljónum
punda.
Enn hefur ekki verið skrifað
undir samninga við fimm fyrir-
tæki, sem hafa lofað að veita alls
33 milljónum punda til hvelfingar-
innar, og hafa þó mörg þeirra þeg-
ar afhent nokkrar milljónir í reiðu-
fé.
Blyt lávarður, framkvæmda-
sljóri lyfjaverslanakeðjunnar
Boots, sagði núverandi stöðu mála
óviðunandi og að fyrirtækið vildi
ná samstarfi við stjórnvöld og
rekstraraðila hvelfingarinnar,
New Millennium Experience
Company (NMEC), til að leysa mál-
ið.
Boots er einn af þremur styrk-
veitendum „Lfkamans“, sem er eitt
stærsta og mest áberandi sýning-
arsvæðið í hvelfingunni, en alls eru
svæðin fjórtán. Hinir styrkveitend-
ur þessa svæðis eru svissneska
lyQafyrirtækið Roche, og snyrti-
vöruframleiðandinn L’Oreal.
Framlag þessa þriggja fyrirtækja
nemur samtals 12 miHjónum
punda.
Boots hefúr enn ekki afhent
krónu, og segja forráðamenn fyrir-
tækisins margt af því sem er til
sýnis í henni ekki vera „við-
skiptavænt”. Þurfi NMEC og fram-
kvæmdasljóri þess, Jennie Page, á
hjálp að halda við reksturinn. Mikl-
ar biðraðir hafa myndast við
„Líkamann", og er fáum gestum
hleypt inn á svæðið í einu.
Eins og í Moskvu
Hvelfingin var opnuð með pomp
og prakt á gamlárskvöld, og þá
hófust vandræðin. Margir boðs-
gestir, þ. á m. áhrifamenn í fjölm-
iðlaheiminum, voru án aðgöngum-
iða og máttu bíða lengi í röðum.
Ráðamenn Tesco-fyrirtækisins,
sem gaf 12 þúsund kampavíns-
flöskur á hátíðina, máttu bíða lengi
eftir því að fá svo mikið sem eitt
glas af kampavíni. Tesco skrifaði
undir sex milljóna punda styrktar-
samning við hvelfinguna fyrir jól.
Ónefndur framkvæmdastjóri
fyrirtækis, sem veitti peningum til
hvelfingarinnar, sagði um opnun-
arkvöldið að það hefði verið mar-
tröð líkast að reyna að komast frá
einum stað til annars. „Maður gat
bara farið í norður og suður, ekki í
austur og vestur, sem var frátekið
fyrir „forseta fólksins" og ráðun-
eyti hans. Þetta var því líkast að
maður væri í Moskvu og KGB
stjórnaði sýningunni."
Talsmaður NMEC sagði að gest-
ir hefðu lent í svipuðum hremm-
ingum í Disneylandi, en reiður
framkvæmdastjórinn svaraði: „En
raðirnar við hvelfinguna eru lengri
og sýningarnar eru lélegar!"
Talsmaðurinn gerði lítið úr
hættunni á því að fyrst ekki hefði
verið skrifað undir samninga
myndu styrkveitendur ekki standa
við gefin loforð. Gera þyrfti „smá-
vægilegar, tæknilegar breyting-
ar“. Hefur NMEC Iýst því yfir að
umbætur verði gerðar til þess að
gera heimsókn í Þúsaldarhvelfing-
una að enn áhrifaríkari upplifun.
CDU reynir að beina athyglinni frá f]ármálahneykslismálum
Aróðurssókn gegn skatta-
stefnu stiórnar Schröders
Nnrdprsfpdt AP.
Rprlfn Nnrílprstpíll A Þ
KRISTILEGIR demókratar í Þýzkalandi (CDU)
hófu í gær áróðursherferð fyrir skattalækkun-
um, en með henni vonast þeir til að koma flokkn-
um út úr því neikvæða kastljósi sem hann hefur
verið í undanfarnar vikur vegna fjármála-
hneykslis, sem leitt hefur til sakarannsóknar
gegn Helmut Kohl, fyrrverandi kanzlara og
heiðurformanns flokksins.
Með því að leggja áherzlu á andstöðu við hinn
óvinsæla benzínskatt sem gekk í gildi um ára-
mótin vonast forystumenn CDU til að koma
óánægju meðal kjósenda í þann farveg, að nei-
kvæð stemmning myndist í garð ríkisstjórnar-
flokkanna, jafnaðarmanna og græningja, í þeirri
von að það nýtist CDU í kosningum til héraðs-
þings Slésvíkur-Holtsetalands, sem fara fram
seint í febrúar.
„Það er kominn tími til að við rötum aftur inn í
hina pólitísku samkeppni,“ sagði Angela Merkel,
framkvæmdastjóri CDU. Hún og Volker Ruhe,
fyrrverandi varnarmálaráðherra sem fer fyrir
kosningabaráttu CDU í Slésvík-Holstein, stóðu
saman í gær við að útbýta dreifimiðum til við-
skiptavina verzlunarmiðstöðvar í Norderstedt
skammt norðan við Hamborg, en þar kom
flokksstjórn CDU saman til árlegs stefnumót-
andi „nýársfundar" í gær.
Scháuble kveður fastar að orði
En flokkurinn á erfitt með að hrista af sér þá
byrði sem hann ber vegna vandræða heiðursfor-
mannsins. Ruhe lýsti því yfir við upphaf fundar-
ins í gær að hann og flokksfélagar hans í Slésvík-
Holtsetalandi sæktust ekki eftir því að fá Kohl í
lið með sér í kosningabaráttunni.
Wolfgang Scháuble, arftaki Kohls á flokksleið-
togastólnum, reyndi einnig að gefa tóninn með
því að kveða fastar að orði um fyrirrennara sinn
en hann hefur hingað til látið hafa eftir sér.
Hann hvatti Kohl eindregið til að upplýsa allt
um allt að tveggja milljóna marka (um 75 millj-
óna króna) nafnlaus fjárframlög í leynisjóði sem
Kohl réð yfir í nafni flokksins. „Hversu sárt sem
það kann að vera, það er engin önnur leið,“ sagði
Scháuble í viðtali sem birtist í gær í dagblaðinu
Die Welt. Lét hann ennfremur þá sneið fylgja,
að „Kohl-tímabilinu“ hafi lokið með ósigrinum í
þingkosningunum 27. september 1998.
Kohl sjálfur mætti ekki á flokksstjórnarfund-
inn í Norderstedt, sem er óvenjulegt af hans
hálfu, enda var hann flokksformaður í 25 ár og
lét sig sjaldan vanta á fundi sem einhverju máli
þóttu skipta. Engin ástæða var tilgreind opin-
berlega.
Ekki ógn
af kjarn-
orku-
úrgangi
HVORKI mönnum né lífinu í
hafinu stafar hætta svo nokkru
nemi af kjamorkuúrgangi, sem
Bretar losuðu í írlandshaf á
fimmta til áttunda áratugnum.
Þetta er niðurstaða skýrslu sem
unnin var á vegum írska hafmál-
aráðuneytisins og greint er frá í
netútgáfu The Irish Times í
gær.
Til skýrslugerðarinnar var
efnt af því tilefni, að hulunni var
svipt af brezkum stjómarskjöl-
um, sem sýndu að Bretar
sökktu geislavirkum úrgangi á
nokkmm stöðum í írlandshafi á
fimmta, sjötta, sjöunda og átt-
unda áratugnum.
Michael Wood, ráðherra sjáv-
ar- og náttúruauðlindamála í
írsku ríkisstjóminni, sagði þó
við kynningu skýrslunnar í gær
að afstaða frskra stjómvalda til
þeirrar losunar kjamorkuúr-
gangs sem enn er stunduð frá
endurvinnslustöðunni í Sella-
field væri óbreytt; þá losun bæri
að stöðva.
Lægðir beri
kvennöfn
VEÐURFRÉTTAMENN í
Þýzkalandi hafa nú látið sér
detta í hug lausn á deilu sem
þeir hafa staðið í um nafngiftir á
veðuriyrirbrigðum. Agreining-
ur hefur staðið um hvort karl-
kyns- eða kvenkynsnöfn skuli
notuð á sterkar lægðir og hæðir.
Er niðurstaðan sú að lægðir
beri kvennöfn en hæðir karl-
nöfn, en þessu var öfugt farið í
fyrra.
í fréttatilkynningu útskýrði
þýzka fréttastofan þetta með
því, að vísa til þess að á síðasta
ári hefði einkarekin veðurfrétta-
stofnun tekið upp á því að gefa
lægðum og hæðum nöfn eftir
eigin höfði, en þetta olli mglingi
og misskilningi.Til að koma til
móts við gagnrýni frá baráttu-
fólki íyrir jafnrétti kynjanna var
salómonsdómurinn sá, að kven-
og karlnöfn á lægðum og hæð-
um víxlist árlega.
Lettar æskja
aðstoðar
vegna Kalejs
LETTNESKIR saksóknarar
greindu' í gær frá því, að þeir
hefðu formlega farið fram á að-
stoð stjóm-
valda í Bret-
landi og Isr-
ael og frá
Simon Wies-
enthal-stoín-
uninni vegna
rannsóknar
þeirra á
meintum
stríðsglæp-
um Konrads Konrad
Kalejs. Kal- Kalejs
ejs, sem er
86 ára, er sakaður um að hafa
tekið þátt í fjöldamorðum á gyð-
ingum í Lettlandi er þýzkir
nazistar réðu ríkjum í landinu í
síðari heimsstyrjöld. Kalejs,
sem er ástralskur ríkisborgari,
hélt á fimmtudag frá Bretlandi
til Ástralíu, eftir að brezk
stjómvöld höfðu uppgötvað að
hann dveldi á elliheimili þar í
landi. Honum var vísað frá
Bretlandi.