Morgunblaðið - 08.01.2000, Síða 68
68 LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Gabb ársins (aldarinnar) ? The Blair Wich Project.
Vondur leikur í verri mynd; Sandra Bullock í Forces Of
Nature.
Ungfrúin góða og húsið bar hæst af innlendum atburðum
ársins.
Kvikmynda-
annáll 1999
Ein best leikna mynd ársins var hin fáséða Taktu lagið Lóa - Little
Voice. Þær fóru á kostum, Jane Horrocks og Brenda Blethyn, en engin
var betri en gamli, góði Michael Caine, sem sannaði sig rétt einu sinni
sem stórleikari.
Stjörnustríð 1. Hluti: Ógnvaldurinn, önnur myndanna sem beðið var
með mestri eftirvæntingu, olli mestum vonbrigðum árið 1999.
MARGT og merkilegt gerðist í kvik-
myndaheiminum á yflrstandandi ári,
hér heima og erlendis. Nýju Stjömu-
stríðsmyndarinnar, Stjömustríð, 1.
hluti: Ognvaldurinn, var beðið með
mestri eftirvæntingu. Myndin og við-
brögðin við henni, ný íslensk verðlaun
til hvatningar kvikmyndagerðarfólki,
er það sem ber hæst að mati
Sæbjöms Valdimarssonar. Þá vom
vonbrigði dæmigerð fyrir margar
stórmyndir ársins 1999.
Sem betur fer var þó meiri ástæða
tii að gleðjast. Að-
sóknarlega var ár-
ið sterkt, eitt það
besta á áratugn-
um og metár frá
upphafl hjá SAM-
íóunum, risanum
markaðnum.
Þar á bæ er einnig
greint frá gríðar-
legri aðsóknar-
aukningu hjá
Nýja bíói í Kefla-
vík, þar sem
SAMævintýrið
hófst, sem hefur
nú verið endur-
ný'jað þannig að
það jafnast á við
það besta í
Reykjavík. Þá er
sá orðrómur í
gangi að SAMbíó-
in hyggist bæta
Nýja bíói á Akur-
-*eyri í keðjuna, en
keppinautamir á
höfuðborgar-
svæðinu eignuðust nýverið Borgar-
bíó, hitt bíóið þar nyrðra. Skífan hefur
ákveðið að reisa nýtt, fjölsala kvik-
myndahús í nýja verslanaklasanum
Smáralind í Kópavogi - ef af bygg-
ingu hans verður, sem flest bendir til.
Þessar virðast vera helstu breyt-
ingarnar í kvikmyndageiranum, auk
þess sem Stjömubíó er í fullum gangi
að stækka og breyta húsnæði sínu við
Laugaveginn, opnar nýjan, glæsileg-
an 50 sæta sal í febrúar nk. Þann
fyrsta á landinu sem getur kallast í
hágæðaflokki, með hallandi hægind-
astólum, stóm tjaldi, góðu bili á milli
•^sætanna, nægum gólfhalla og nýjustu
hljómflutningstækni frá SDDS. Bíóið
lætur ekki þar við sitja á nýju ári,
heldur hyggst það brydda upp á ann-
arri nýjung í húsakynnum sínum,
léttum veitingarekstri, líkt og tíðkast
víða erlendis. Þá er aðeins eftir að
óska því til hamingju með hálfrar ald-
ar afmælið sem það hélt upp á á árinu,
og óska því alls hins besta í framtíð-
inni.
Laugarásbíó átti einnig afbragðs-
gott ár, það besta eftir að nýir eigend-
ur yfirtóku reksturinn, og að þeirra
mati það stærsta,
aðsóknarlega, í
ein 15 ár. Regn-
bogamenn era
einnig ánægðir
með sinn hlut,
einkum Stjömu-
stríð, 1. hluta:
Ógnvaldinn,
enda varð hún
mest sótta mynd
ársins.
Þá hlaut Lítifl
er dásamlegt -
La Vita é bella,
meiri aðsókn en
áður hefur
þekkst á mynd
frá landi utan
hins allsráðandi,
enskumælandi
heims.
Æ algengara
verður að gefa út
bíómyndir, sem
spjara sig ekki
vestan hafs, beint
á myndband.
Þannig að fjölmargai', fomtnilegar
myndir fara fyrir ofan garð og neðan.
Þá er ástæða til að geta síaukinna vin-
sælda DVD-tækninnar, nokkrir titlar
seldust í þúsundum eintaka á árinu og
bendir allt til þess að diskamir út-
rými böndunum fyrr en varir.
Enn sem fyrr skara Háskólabíó og
Stjömubíó framúr hvað snertir ís-
lenskun bíóheita. Bati er greinilegur
hjá öðram og vonandi hætta þau með
öllu að sniðganga móðurmálið.
Islenski kvikmyndagerðarmenn
komu á fót Eddu-verðlaununum á ár-
inu, sem vonandi festa sig í sessi og
verða listgreininni til framdráttar.
Fyrsta afhendingin. tókst að mörgu
leyti vel til, verið er að sækja á ný mið,
listafólkið að kjósa sjálft sig með smá-
vægilegri þátttöku almennings.
Sjónvarpsefni er með í verðlaunaaf-
hendingunni, sem er algjör nauðsyn.
Þau byggjast einnig á því að við ger-
um a.m.k. eina, frambærilega mynd á
ári, sem er því miður ekki einhlítt.
Við fengum þó að njóta í það
minnsta einnar slíkrar á árinu. Ung-
frúin góða og húsið er í flesta staði
vænsta mynd og býr yfir þeim töfram
að skilja við mann ánægðan. Myndin
var ekki gallalaus, frekar en önnur
mannanna verk, enda ekkert
áhlaupsverk að flytja smásögu Nó-
belskáldsins yfir á fllmu. Það tókst
Guðnýju Halldórsdóttur að mörgu
leyti, hún leikstýrh' af röggsemi, um-
búðirnar óaðfinnanlegar og leikhóp-
urinn bestur af öllu. Hrafn Gunn-
laugsson sótti á gömul mið fyrri alda í
Myrkrahöfðingjanum: Höktir nokkuð
í troðnum kynlífsþönkum, sem hefðu
að ósekju mátt vera færri, og áhersl-
an á sóðaskapinn minni. Þó er það
leikur viðvaninganna sem er mynd-
inni mest til vansa. Engu að síður
kraftmikil á köflum, bæði sýnir
Hrafns og kvikmyndataka Ara Krist-
inssonar og Hilmir Snær er næstum
því of góður í aðalhlutverkinu. Hrafn
er á uppleið, þó nýjasta afkvæmið
standi ekki jafnfætis hans bestu verk-
um (Hrafninn flýgur, Oðalfeðranna).
Sjónvarpsstöðvamar buðu upp á
nokkrar, eftirminnilegai' íslenskar
myndfr, eins og Litla bróðh• í norðri,
lundalífsmynd Páls Steingi'ímssonar
og Frá Islandi, þar sem Guðjón Arn-
grímsson fór á kostum í sannsögu-
legri, hádramatískri heilmildarmynd-
argerð um bönd Islendinga í
Vesturheimi við land feðra sinna.
Bækur á íslensku um kvikmyndir,
hvorki kvikmyndasaga né -fræði,
hafa hreinlega ekki verið til staðar hjá
bóka- og kvikmyndaþjóðinni (!), að
ekki sé talað um verk rituð af Islend-
ingum. Úr þessu hefur verið bætt
með Heimi kvikmyndanna, þúsund
síðna verki, sem Guðni Elísson rit-
stýrir af röggsemi. F ékk til liðs við sig
rúmlega sjö tugi penna og úr varð
mikið rit, sem við fyrstu sýn virðist
hið fróðlegasta og fjölþættasta, eilítið
bókmenntalegt, en ætti að bæta þann
mikla skort sem verið hefur á slíku
efni.
Þær næst bestu
Annars staðar í blaðinu er að flnna
lista yfír þær 10 myndir sem ég valdi
bestar á ái'inu 1999. Aldrei þessu vant
var úr þokkalega breiðum hópi að
velja, svo flokkur þeirra næst bestu
er í stærra lagi. Þær myndir sem
náðu ekki alla leið inn í hóp útvaldra
vora Hilary og Jackie, eftfr Anand
Tucker, hin hádramatíska Ice Storm,
eftir tævanska leikstjórann Ang Lee,
sem að þessu sinni setur sig jafn vel
inn í bandarískt þjóðfélag á áttunda
áratugnum og líf yfirstéttanna á Eng-
landi á 19. öld Jane Austen í Vonum
og væntingum (95). Stórleikarinn
Edward Norton bar uppi American
History X, dökka og ofbeldisfulla
þjóðlífsmynd að vestan, sem einnig
naut fleiri góðleikara.
Úr austri, nánar tiltekið frá Irlandi,
kom hin undur skemmtilega og hlýja
Afl vekja Ned - Waking Ned, sem
segir af rosknum heiðursmönnum
(dásamlega túlkuðum af Ian Bannen
og David Kelly), sem falla um síðir
fyrir freistingum heimsins. Allt aust-
an frá Nýja-Sjálandi kom þrælmögn-
uð framhaldsmynd, Eitt sinn stríðs-
menn 2 - What Become Of the
Broken Hearted!, prýdd ógnvekjandi
KRIPALU-YOCA JAI CHI
POWER-YOCA [——l
IfWi
&yrjendur og framhald
Eyes Wide Shut, önnur mynd
sem beðið var með óþreyju.
Enda lokakafli Stanleys Kubrick
(1928-99), eins mesta kvik-
myndasnillings sögunnar, en
var slakari en flest það sem á
undan var gengið á löngum ferli
fárra úrvalsverka.
nálægð Temuera Morrison.
Ef ég hefði ekki valið hana eina af
bestu myndum ársins, hefði Limbo,
nýjasta verk Johns Sayles, eins
snjallasta kvikmyndagerðaimanns
samtímans, öragglega lent í þessum
hópi. Mér tókst því miður ekki að sjá
hana á árinu en naut hinsvegar
Manna með byssur, bestu myndar
fyrri kvikmyndahátíðar, og við það að
stjaka Ungfrúnnigóðu útaf listanum.
Astfanginn Shakespeare - Shake-
speare In Love, hlaut slangur af Ósk-
uram, enda ein þeirra bresku bún-
ingamynda sem Akademían virðist
svo veik fyrir. Að mörgu leyti vönduð
og vel gerð en fleira er matur en feitt
ket.
Frá Evrópu komu flefri gæða-
myndir, eins og Augasteinninn þinn
eftir Traeba, annar Spánveiji, Carlos
Saura, átti hina heillandi Tango á
kvikmyndahátíðinni. Fucldn Amál,
frá Svíum, Karakter frá Hollandi og
okkar eigin Myrkrahöfðingi eiga
einnig heima í þessum félagsskap.
Arlington Road var ein besta
spennumynd ársins, með óvenju
raunsæjum endi af Hollywoodmynd
að vera, vel skrifuð, gerð og leikin.
Ekki síst af hinni hæfileikaríku Joan
Cusack, sem alltof sjaldan sleppur úr
gamanmyndahelsinu. Hágrátandi
Robert De Niro gerði Analyze This
að nokkurri skemmtun, leikhópurinn
var fínn í Bowfinger, og handritið
líka. Þotuliðið - Celebrity átti sín
augnablik, þó Allen geri oftast betur.
Frá Disney kom Pöddulíf og góðlát-
legt fjölskyldugrín að apamanninum
Tai-zan. Annað ofuimenni, Sean
Connery, lyfti Entrapment upp á
æðra plan, ásamt kynbombunni Zetu-
Jones. October Sky var óvenju vönd-
uð og vel gerð mynd um drauma smá-
bæjarstráka um betra líf en í bræðsl-
unni hans Bubba. Rushmore og
EdTV vora vægast sagt óvenjulegar
og langt yfir meðallagi. Mel Gibson
var kröftugur prímus mótor í
Payback, stóðst þó ekki samanburð
við sinn fæga forvera, Point Blank,
með sjálfum Lee Marvin í sínu mann-
skæðasta djöflamergsformi.
Mikið til vonbrigði
Sem fyrr segir settu vonbrigði
mark sitt á árið 99. Hver mistökin
ráku önnur í öllum stærðar- og verð-
flokkum. Þau verstu vora Stjörnu-
stríðsmyndin, sem var í sjálfu sér
ekki vond skemmtun en ekkert í lík-
ingu við það stórvirki sem hundrað
milljóna vongóðra aðdáenda höfðu
beðið eftir síðan 1983. Sagan sjálf
brást og persónusköpunin. Langur
kafli fór í dapran eltingaleik, sem
minnti óþægilega á venjulegan tölvu-
leik. Enn átakanlegri var lokakaflinn
hans Kubricks. Það grillti aðeins á
stöku stað í handbragð gamla meista-
rans í Eyes Wide Shut, líkt og í mögn-
uðu atriði í kynsvallsathöfn, þar sem
kallari keyrir staf sinn taktfast í gólfið
undir undai-legu tuldri. Lýsingin var
eitthvað broguð, samtöl engan veginn
í takt við tímann (einkum Kidmans og
ílagarans), og hjónakomin, Craise og
Kidman, réðu tæpast við hlutverk sín.
Mikið veður út af litlu var sett í
gang í sambandi við kynningu á The
Blair Witch Project, lítilfjörlegri B-
hrollvekju sem sérfræðingar kalla
auglýsingaafrek aldarinnar. Blankir
framleiðendurnir gerðu hana fyrir
smámynt, auglýstu lymskulega á net-
inu og þessi 200 þúsund dala smá-
mynd kemur til með að taka inn þá
upphæð þúsundfalda. Unglingamir
vestra keyptu áróðurinn hráan, héldu
að saga um þrjú ungmenni, sem halda
upp í óbyggðir til að rannsaka gamlar
sagnir og nýjar af nornadjöfli á Nýja-
Englandi, væri sönn. Myndin var í