Morgunblaðið - 15.01.2000, Blaðsíða 64
' 64 LAUGARDAGUR 15. JANÚAR 2000
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
A
Nigel Short
sigrar í Pamp-
lona á Spáni
SKAK
Pamplona, Spáni
X. PAMPLONA-
SKÁKMÓTIÐ
27. des. 1999-5. jan. 2000
BRESKI stórmeistarinn Nigel
Short sigraði örugglega á alþjóð-
lega skákmótinu í Pamplona á
Spáni. f eftirfarandi skák kemur
upp Tartakover-afbrigðið í
drottningarvöm. Short kemur
með nýjung í 13. leik og eftir að
Lautier velur ranga áætlun fær
svartur hagstæða útgáfu af hang-
andi peðum. í framhaldinu reynist
erfitt fyrir hvítan að bæta stöð-
una.
Hvítt: Joel Lautier
Svart: Nigel Short
Drottningarbragð [D58]
l.d4 e6 2.Rf3 Rf6 3.c4 d5 4.Rc3
Be7 5.Bg5 h6 6.Bh4 0-0 7.e3 b6
8. Bd3
Annar möguleiki er 8.Be2 Bb7
9. Bxf6 Bxf6 lO.cxdð exd5 11.0-0
Rd712.b4, en það kom margsinnis
upp í maraþoneinvíginu Karpov-
Kasparov í Moskvu 1984-5.
8.. .Bb7 9.0-0 Rbd7
Upp er komið Tartakover-af-
brigðið, en það þykir mjög traust
afbrigði. Short hefur beitt því með
góðum árangri.
10.Bg3
Aðrir möguleikar eru 10.De2 og
10. Hcl.
10.. .c5 ll.De2 Re4 12.cxd5
exd5 13.Hadl
í skákinni Naumkins-Episin
Vilnius 1988 varð framhaldið
13.Hacl He8 14.Hfdl Rxc3
15. bxc3 c4 16.Bc2 b5 17.Re5 Rxe5
18.dxe5 Db6 19.f4 Bc5 20.Hel f6
21.Khl með óljósri stöðu.
13.. .Dc8!?
Nýr möguleiki í stöðunni. Með
textaleiknum víkur svartur
drottningunni úr skotlínu hróks-
ins. Aðrir möguleikar eru
13...Rxg3 14.hxg3 a6!? (kemur í
veg fyrir Ba6) lö.dxcð bxcð
16. Bbl Rb6 17.a4! með betri stöðu
á hvítt Kramnik-Jusupov, Dort-
mund 1998; 13...Rdf6 14.dxc5
Rxc3 15.bxc3 Bxc5 16.Rd4 Dc8
með aðeins betri stöðu á hvítt
Vyzmanavin-Gavrilon, Novgorod
1995 og Novikov-A.Petrosian.
14.Bbl Rdf6 15.Dc2 He8
16.Be5 De6
Short hefur þegar jafnað taflið.
Helsti galli hvítu stöðunnar er, að
erfitt er að finna haldgóða áætlun.
17.dxc5?!
Betra er 17.a3!? með hugmynd-
inni Ba2 og setja pressu á d5-peð-
ið.
17.. .bxc5 18.Da4 Rg5! 19.Rxg5
Dxe5 20.RÍ3 De6
Sjá stöðumynd efst ínæsta dálki.
Hvítur á erfitt með að bæta
stöðuna.
24.Hcl d4! 25.exd4 Hxel +
26.Hxel cxd4 27.Ra4 Dc6 28.Hcl
Rd5! 29.Dd2 Df6 30.Be4
Ekki 30.Dxd4? Dxd4 31.Rxd4
Rf4 og svartur vinnur.
30.. .Ba6 31.Hdl Rf4 32.g3
Re2+ 33.Kg2 He8 34.Dc2
Eftir 34.Bd3 kemur Rc3!
35. Bxa6 (ekki 35.Hel? vegna
35...Bb7; 35.Rxc3? dxc3 36.Df4
Dxf4 37.gxf4 Bxd3 38.Hxd3 Hc8
39.Hdl c2 og vinnur) 35...Rxdl
36. Bb5 Hb8 37.Rxd4 Hd8!
38.Dxdl Hxd4 og svartur hefur
góða vinningsmöguleika.
34.. .De6 35.Rd2
Ef 35.Bd3? kemur 35...Rf4+
36.gxf4 Dg4+ 37.Kfl Dxf3 og
vinnur.
35.. .d3 36.Dc6
36.Bxd3? Bxd3 37.Dxd3 Rf4+
38.gxf4 Dg4+ og svartur vinnur
skiptamun.
36.. .Bb4 37.Dxe6 Hxe6
Drottningauppskipti hjálpa
hvítum lítið. Riddarinn á e2 held-
ur hvítum í úlfakreppu!
38.Bd5 Ild6 39.Be4?
Afleikur. Eini vamarmöguleik-
inn var 39.Bc4! eftir Bb7+ 40.Í3
Rd4! 41.Bxd3! (eftir 41.Re4 Bxe4
42.fxe4 Rc2 á hvítur í erfileikum)
g6! (alls ekki 41...Bxd2 42.Hxd2
Rxf3 43.Bh7+! og hvítur vinnur!)
42. Re4 f5 43.Rxd6 Bxf3+ 44.KÍ3
Bxdl 45.Rc4 og hvítur hefur góða
jafnteflismöguleika.
39.. .Hd4 40.f3
Ef 40.KÍ3 Bb5 41.Ke3 Hd8! er
hvítur vamarlaus t.d 42.Rc4 Bxa4
43. bxa4 Rc3 44.Hxd3 He8 45.Í3 f5
ogsvarturvinnur.
40.. .Bb5 41.KÍ2 Bxa4 42.bxa4
Rc3 43.Hcl Rxe4+ 44.Rxe4 f5
45.Ke3 Hd5 0-1
Upp er komin staða með hang-
andi peðum. Oft em hangandi peð
veikleiki, en í þessu tilfelli em þau
ávinningur. Bæði hefur svartur
losað sig við svartreita biskup
hvíts og eins standa svörtu menn-
imir eins og best verður á kosið
21.Hfel Bf8 22.Df4 Db6 23.b3
Had8
Skákmót á næstunni
16.1 SA. Parakeppni.
20.1 SA. Öldungamót(45+).
23.1 SA. Skákþing Akureyrar.
28.1 SÍ. íslandsmótið í atskák,
úrslit.
Daði Örn Jónsson
Hannes Hlífar Stefánsson
Fjárfestar athugið!
Höfum kaupendur að hlutabréfum f
OZ.com, deCode og Flögu
AVerðbréfamiðlunin
jj AflTlÍlVhf- Verðhréf
Sr Löggilt óháð fyrirtæki í verðbréfaþjónustu
• Aðili að Verðbréfaþingi íslands •
Suðurlandsbraut 46 • Sími: 568 10 20
VELVAKAMW
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Islenskur
búningnr
SIGRÍÐUR hafði samband
við Velvakanda fyrir hönd
vinkonu sinnar sem býr í
Bandaríkjunum en þessi
vinkona hennar er að leita
eftir íslenskum búningi fyr-
ir 15 ára stúlku sem býr í
Bandaríkjunum. Stúlkan
þarf búninginn til að vera í
sem fulltrúi Islands á sýn-
ingu þar. Þeir sem gætu
liðsinnt Sigríði em vinsa-
mlega beðnir að hafa sam-
band í síma 557-7009.
Dýrðleg en
ekki dýrleg
í TÍMARITI einu birtist
nýlega mynd af Dóra Tak-
efusa og fyrirsögn með sem
sagði hana „dýrlega". Eg
vil meina að Dóra sé ekki
„dýrleg“ heldur „dýrðleg"
því þetta er yndisleg stúlka.
Hef ég áður séð í blöðum að
fólk sé kallað dýrlegt og
finnst mér það mjög slæmt
- það á ekki að kenna fólk
við dýr - en mér finnst í lagi
að nota orðið dýrðleg.
Agústa.
Óréttlæti
SVO er mál með vexti að ég
bý á stað sem matur er
seldur og þarf að borga
mánuðinn fyrirfram. I des-
ember var mér boðið út á
land í 5 daga, lét ég vita um
að ég yrði ekki í mat síðustu
5 dagana í desember. Þá
treysti ég því að ég þyrfti
ekki að borga þá en fékk
bara þrjá daga samþykkta
af þessum fimm. Nóg til
þess að ég átti bara að
borga krónur 8.740 ef þess-
ir dagar væra frádregnir
en þurfti að borga 10.200 í
staðinn. Ég átti erfitt með
að borga þetta og þurfti að
fá lán fyrir þessu. Er mjög
óhress út í borgarritara
fyrir að afgreiða þetta
svona en maturinn er borg-
aður þar.
Ellilífeyrisþegi.
Tapað/fundiö
Svart seðlaveski
týndist
SVART seðlaveski týndist
17. desember, líklega í
Sambíóinu í Mjódd. Skilvís
finnandi hafi samband í
síma 557-1135.
Ullarkápa tekin
f misgripum
ULLARKÁPA tvíhneppt,
svört og síð, var tekin í mis-
gripum á Glaumbar föstu:
dagskvöldið 7. janúar. I
kápuvasa var svartur trefill
og svartir leðurhanskar.
Skilvís finnandi vinsamlega
hafi samband í síma 698-
9045.
Nokia 3110 týndist
NOKIA 3110 týndist fostu-
dagskvöldið 7. janúar fyrir
framan Sportkaffi í Þing-
holtsstræti. Skilvís finnandi
hafi samband í síma 553-
3758 eða 525-3122.
Gleraugnahulstur
týndist
SVART heimasaumað
gleraugnahulstur með ísa-
umuðum rósum týndist lík-
lega á leiðinni Dalbraut -
Bústaðahverfi. Skilvís finn-
andi vinsanmlega hafi sam-
band við Hönnu í sima 553-
3094.
Skófla f óskilum
SKÓFLA fannst í skafli við
innkeyrsluna hjá Háteig-
skirkju. Upplýsingar í síma
553-1053.
Morgunblaðið/RAX
Ungir Hafnfirðingar í bæjarferð.
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI hefur að undanfömu
fylgst með heimsmeistara-
keppni félagsliða í knattspyrnu og
hefur það vakið hann til alvarlegrar
umhugsunar um stöðu evrópskrar
knattspymu gagnvart hinni suður-
amerísku. Það er vissulega sárt fyrir
einlægan aðdáanda enska liðsins
Manchester United að horfa upp á
sína menn niðurlægða á slíku móti, en
svona er þetta bara og það verður að
segja hverja sögu eins og hún er.
Sannleikurinn er sá að leikmenn Un-
ited hafa orðið sér og enskri knatt-
spymu til háborinnar skammar á
þessu móti, ekki bara með slælegri
frammistöðu inni á vellinum heldur
einnig óviðeigandi framkomu utan
vallar, með skapbráðan og hrokafull-
an knattspymustjóra í broddi fylk-
ingar. Framkoma aðalsmannsins
nýbakaða, í beinni útsendingu á
blaðamannafundi fyrir mót, sló Vík-
verja gjörsamlega út af laginu og
hann er enn ekki búinn að jafna sig á
þessum ósköpum. Svona gera menn
ekki!
A hinn bóginn hefur verið unun að
horfa á snilldartakta suður-amerísku
knattspymumannanna, einkum
hinna brasilísku, enda er knattspym-
an í meðfömm þeirra eins og allt önn-
ur íþrótt í samanburði við Evrópu-
boltann. Það era orð að sönnu, áletr-
unin á borðum stuðningsmanna
brasilíska liðsins Vasco Da Gama, í
leiknum gegn Manchester United,
þar sem skrifað var: „Þið kennduð
okkur knattspymu, við gerðum hana
að listgrein."
Það er engin tilviljun að þau tvö lið
sem léku til úrslita um heimsmeist-
aratitilinn í gærkvöldi era bæði frá
Brasilíu, og gildir þá einu þótt að-
stæður hafi verið þeim hliðhollar, en
keppnin var háð í Brasilíu. Og for-
svarsmenn evrópskrar knattspymu
geta heldur ekki skotið sér undan
ábyrgð með sleggjudómum og upp-
hrópunum um að ekkert sé „að
marka þetta mót“. Brasilíumennirnir
era einfaldlega miklu betri í fótbolta
en evrópskir knattspyrnumenn, það
er ekkert flóknara en það.
XXX
IFRAMHALDI af framangreind-
um staðreyndum fór Víkveiji að
velta því íyrir sér hvort ekki væri
kominn tími til að breyta um áherslur
í evrópskri knattspymu og þar með
talið hér á landi; hætta þessu dekri
við það sem Víkverji vill kalla
„krafta- og tréhestaknattspyrnu", en
leggja þess í stað meiri rækt við létt-
leika, lipurð og knatttækni. Það
þyrfti að taka harðar á fólskulegum
varnarbrotum og hætta að hampa
fautunum, sem beita líkamsburðum
til að keyra niður léttari og liprari
leikmenn, og komast upp með það.
En til að svo megi verða þarf vita-
skuld að koma til ákveðin hugarfars-
breyting hjá leikmönnum, þjálfuram,
dómuram og áhorfendum, og kannski
ekki síst hjá íþróttafréttamönnum,
sem oftar en ekki hafa verið ósparir á
stjömugjöf og háar einkunnir þegar
fautamir og tréhestarnir eiga í hlut.
Auðvitað er ekkert að því að knatt-
spyrnulið leiki agaðan varnarleik, en
áherslan má ekki öll vera þeim meg-
in. Fyrr má nú rota en dauðrota.
Víkverji er ef til vill kominn út á hálan
ís með þessum staðhæfingum, en það
sakar ekki að hugleiða þetta. Breytt-
ar áherslur og annað hugarfar er í
rauninni allt sem þarf og kannski
tæki það ekki nema tvö til þrjú
keppnistímabil að festa þessar
áherslubreytingar í sessi. Sagt er að
brasih'skir knattspymumenn hugsi
gjaman sem svo: „Það er ekkert að
því að fá á sig mörk, ef við bara skor-
um fleiri mörk sjálfir." Víst er að með
þessum hugsunarhætti verður leik-
minn skemmtilegri fyrir áhorfendur,
og sennilega fyrir leikmenn líka. Og
er þá ekki tilganginum náð?