Morgunblaðið - 08.02.2000, Qupperneq 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Forsætisráðherra segir hafa komið
til tals að Björk Guðmundsdóttir fái
eyju á Breiðafírði til afnota
Fengi jafnvel
að búa þar
leigulaust
Björgtinarmenn unnu hörðum höndum við að ná fólki út úr lestarvögnunum.
f slensk kona lenti í mannskæðu lestarslysi í Köln
Marin en ekki brotin
DAVÍÐ Oddsson forsætisrúðherra
sagðist á Alþingi í gær vel geta
hugsað sér að Björk Guðmunds-
dóttir fengi að reisa sér hús á
Elliðaey á Breiðafírði og búa þar
leigulaust í þakklætisskyni fyrir
störf hennar í þágu lands og þjóð-
ar. Sagði hann hins vegar að söng-
konunni hefði verið gerð grein fyrir
því að ef til þess kæmi að eyjan
yrði seld myndi hún verða auglýst
þannig að aðrir gætu komið að
málinu.
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður Vinstrihreyfingarinnar -
græns framboðs, hafði spurst fyrir
um það hjá forsætisráðherra hver
væri stefna ríkisins varðandi sölu á
ríkisjörðum og hvort stjórnvöld litu
svo á að heimildarákvæði í fjárlög-
um skylduðu þau til að selja við-
komandi eignir. Hann velti því fyr-
ir sér hvort engin samræmd stefna
gilti um þessi mál í ríkisstjórninni
og spurði einnig hvort sú regla ætti
ekki að gilda í öllum tilvikum að
auglýsa eignir ríkisins ef hugmynd-
in væri sú að selja þær. Loks innti
Steingrímur Davíð eftir því hvað
honum þætti um sölu á náttúru-
perlum i eigu ríkisins til einstakl-
inga.
Forsætisráðherra kvaðst vera
Formaður
hermála-
nefndar
NATO í
heimsókn
tillslands
GUIDO Venturoni, formaður
hermálanefndar Atlantshafs-
bandalagsins, kom í opinbera
heimsókn til íslands í gær í
boði Halldórs Ásgrímssonar ut-
anríkisráðherra.
Hann tók við embættinu í
maí síðastliðnum og heimsókn
hans til íslands nú er hluti af
kynnisferðum hans til allra að-
ildarríkja Atlantshafsbanda-
lagsins.
Hann mun eiga fundi með
Davíð Oddssyni forsætisráð-
herra og Halldóri Ásgrímssyni
utanríkisráðherra og jafnframt
sitja fund utanríkismálanefnd-
ar Alþingis. Hann mun einnig
heimsækja varnarstöð Atlants-
hafsbandalagsins í Keflavík.
sammála Steingrími um það að
heimild en ekki skylda fælist í
heimildarákvæðum fjárlaga. Þá
sagði hann að meginreglan ætti að
vera sú að auglýsa sölu á ríkisjörð-
um þótt hann vildi ekki fullyrða að
það væri alltaf gert. Lýsti hann
þeirri skoðun sinni að menn ættu
að fara varlega í að selja náttúru-
perlur til einstaklinga en sagði þó
engu síður geta farið vel á því að
náttúruperlur væru í eigu einstakl-
inga, og tók hann dæmi af sölu
Kersins í Grímsnesi þar sem ríkið
ákvað að nýta ekki forkaupsrétt
sinn.
Davíð staðfesti að komið hefði til
tals að Björk Guðmundsdóttir fengi
eyju á Breiðafirði til afnota. „Eg
gæti mjög vel hugsað mér að hún
fengi þar aðstöðu til þess að reisa
sér hús,“ sagði Davíð og bætti við:
„Og ég get mjög vel hugsað mér að
hún gæti fengið slíka aðstöðu leigu-
laust í áraraðir, því að hún hefur
gert meira fyrir ísland heldur en
langflestir Islendingar sem við
þekkjum við að auka frægð og
frama Islands. En henni var jafn-
framt gert ljóst að ef til þess kæmi
að um sölu yrði að ræða, þá yrði
þessi eign auglýst þannig að aðrir
gætu komið að málinu.“
Langflestir
umferðar-
lagabrjótar
eru karlar
ALLS fengu 11.027 einstaklingar
umferðarpunkta á síðasta ári og
þar af 8.699 karlar, eða tæp 79%.
Flestir umferðarlagabijótar eru á
aldrinum 21-25 ára, 2.349, en litlu
færri á aldrinum 17-20 ára.
Samkvæmt upplýsingum frá rík-
islögreglustjóra fjölgaði gefnum
sektarboðum á landinu öllu í fyrra
um tæp 15%, úr 31.381 í 35.974. Þó
fækkaði þeim töluvert í Reykjavfk,
eða um rúm 17%. Sömuleiðis fækk-
aði þeim á Seyðisfirði, um svipaða
prósentutölu.
79,9% sektarboða voru greidd á
árinu, miðað við 83,1% árið 1998.
Minnkun á hlutfalli greiddra sekt-
arboða milli ára nam því 3,2 prós-
entustigum. Víðast hvar stóð hlut-
fallið í stað eða minnkaði; í Reykja-
vík minnkaði það um 3 prósentu-
stig, en í Bolungarvík hækkaði
hlutfall greiddra sektarboða um
5,7%, á Keflavíkurflugvelli um
ÍSLENSK kona var meðal þeirra
er slösuðust í þýsku farþegalestinni
sem fór út af sporinu við Bruhl,
skammt suður af Köln á laugar-
dagsnótt. Hún liggur nokkuð slösuð
á sjúkrahúsi í Köln. Ingimundur
Sigfússon, sendiherra í Bonn, segir
hana hafa sloppið ótrúlega vel en
níu manns fórust og tugir slösuð-
ust, líklega nærri 100.
Konan er búsett í Köln og kom
þar um borð í lestina sem var á leið
frá Amsterdam til Basel í Sviss.
17,6% og á Eskifirði um 5,1%.
Alls voru 47.787 umferðarlaga-
brot tilgreind í sektum á árinu.
Langalgengasta brotið laut að of
Lestin var einkum skipuð farþeg-
um sem voru á leið þangað í skíða-
frí.
Islenska konan, sem er 28 ára, er
mikið rnarin og skorin en ekki bein-
brotin. Þá hlaut hún einnig skurð á
höfði sem sauma varð. Sagði sendi-
herrann hana hafa verið ótrúlega
heppna að fara ekki verr út úr slys-
inu.
Talið er að lestarstjórinn hafi ek-
ið of hratt um skiptiteina þar sem
unnið var að viðhaldi á brautartein-
hröðum akstri, en alls var slíkt brot
tilgreint 17.684 sinnum í sektum.
Þar á eftir kom vanræksla á að
færa ökutæki til skoðunar.
um með þeim afleiðingum að eim-
reiðin og nokkrir fremstu vagnanna
hrukku af sporinu. Gert er ráð fyrir
að konan fái að fara heim fljótlega.
Bilun í
rafbúnaði
seinkaði
flugi frá
Ósló
BILUN varð í rafbúnaði
Boeing 757 flugvélar Flug-
leiða sem fljúga átti frá Ósló
til Keflavíkur á sunnudags-
kvöld.
Þegar vélin hafði flogið í um
stundarfjórðung kom bilunin í
ljós og sneri vélin því aftur til
Ösló. Þar var reynt að gera
við bilunina og lagði vélin af
stað aftur þegar menn töldu
að viðgerð hefði tekist. Þegar
vélin kom út úr flugskýlinu
kom bilunin fram aftur og var
þá hætt við flugið að sinni.
Flugfarþegarnir, sem voru
43 um borð í vélinni, gistu á
hóteli í fyrrinótt og kom hluti
þeirra heim með Stokkhólms-
fluginu í gærmorgun. í gær
hélt síðan út hópur af íslensk-
um flugvirkjum til Óslóar.
Eftir að þeir höfðu lagfært
rafbúnaðinn í Boeing-vélinni
lagði hún í loftið á nýjan leik
og lenti á Keflavíkurflugvelli
um kvöldmatarleytið í gær-
kvöldi.
Aldurs- og kynskipting þeirra sem fengu einn eða
fleiri umferðar-
punkta á árinu
1999
Konur:
Samtals
2.328
punktar
3
14
21
22
32
52 |
126
149
209
236
259
298
496
—
411
T
Karlar:
Samtals
8.699
punktar
Sérblöð í dag
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is
A ÞRIÐJUDOGUM
Heimili
SllM¥ikiiiiyLy.lEnm
Elsa og Tómas tvöfaldir Islands-
meistarar ■ badminton /B8
Keflavík og Grindavík fögnuðu sigri
I bikarkeppninni /B1,B4,B5,B6