Morgunblaðið - 08.02.2000, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRÚAR 2000 1 3
FRÉTTIR
Framtíð opmbers rekstrar rædd hjá BSRB
Mikilvægl að árangurs-
tengja starfsemi stofnana
HALLDÓR Jónsson framkvæmda-
stjóri Fjórðungssjúkrahússins á
Akureyri segir brýnt að árang-
urstengja starfsemi opinberra
stofnana sem og starfsfólks þeirra.
„Þeir sem standa sig vel eiga að fá
umbun fyrir það og eins þýðir ekki
annað að en reka þá sem ekki
standa sig. Það á að gera sömu
kröfur til þeirra sem vinna í opin-
bera geiranum og þeirra sem
starfa hjá einkafyrirtækjum,"
sagði Halldór á trúnaðarmanna-
ráðstefnu Bandalags starfsmanna
ríkis og bæja, en hún var haldin á
Akureyri fyrir síðustu helgi. Þar
var sérstaklega fjallað um framtíð-
arsýn í opinberum rekstri.
Halldór sagði það afar pirrandi
að margir litu á þá sem störfuðu í
opinberum rekstri sem eyðslu-
klær, fólk sem gerði ekki annað en
að sóa peningum. „Það er sjaldan
rætt um það sem við erum að gera
eða árangur af okkar starfi. Það
vantar mælikvarða á störf okkar,
sagði hann. Hann benti á að opin-
berar stofnanir yrðu að vera sam-
keppnishæfar við einkafyrirtæki
um starfsfólk, það væri afar mikil-
vægt í framtíðinni." Opinberir aðil-
ar eiga ekki að gera minni kröfur
til að fá hæft fólk til starfa en
einkafyrirtæki, en mér hefur þótt
bera svolítið á að svo sé, sagði
Halldór.
Dagbjört Þyrí Þorvarðardóttir
hjúkrunarforstjóri á Húsavík var
sama sinnis og sagði mikilvægt að
hið opinbera hefði á að skipa hæfu
starfsfólki, en hún taldi að vinnu-
markaðurinn yrði að vera sveigj-
anlegri og fjölskylduvænni og
nefndi í því sambandi styttri
vinnutíma.
Mikil hætta
Ögmundur Jónasson formaður
BSRB sagði í umræðum um einka-
framkvæmd afar mikilvægt að
menn skildu af hvaða rótum slíkar
hugmyndir væru sprottnar. Menn
hefðu haft af því áhyggjur að út-
gjöld hins opinbera væru að þenj-
ast út og svör við því hefðu verið
að gera reksturinn sjálfstæðari,
bjóða hann út og gera þjónustu-
samninga. Nú væri það á valdi
fólksins, sem tæki verkin að sér,
að stjórna, niðurskurðarkrafan
kæmi innanfrá og í kjölfarið kæmu
fram hugmyndir um þjónustu-
gjöld, skólagjöld, sjúklingaskatta
og annað slíkt til að auka tekjur
viðkomandi stofnana „í þessu felst
mikil hætta, en helst sú að varð-
staða fyrir velferðarþjóðfélagið
brestur,“ sagði Ögmundur.
Einn frummælenda, Snorri
Björn Sigurðsson, sveitarstjóri í
Skagafírði taldi að innan tíu ára
yrðu starfsmannafélög sveitarfél-
aga úr sögunni, allt benti til þess
að það starfsfólk sem nú væri í
slíkum félögum flytti sig yfir í
starfsgreinafélög.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Jakob R. Möller lögmaður stefnanda og Gestur Jónsson lögmaður
stefnda í dómssal með Hervöru Þorvaldsdóttur dómara.
Stefndi unir
úrskurði dómara
SIGURÐUR G. Guðjónsson hæsta-
réttarlögmaður, sem stefnt hefur ver-
ið fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur af
Kjartani Gunnarssyni framkvæmda-
stjóra Sjálfstæðisflokksins fyrir
meiðyrði, unir úrskurði Hervarar
Þorvaldsdóttur dómara þess efnis að
dómari sé ekki vanhæfur til að fara
með málið vegna tengsla sinna við
Davíð Oddsson. Hervör og Davíð eru
systkinabörn og krafðist Sigurður að
hún viki sæti m.a. af þeim sökum.
Dómsúrskurðurinn var aldrei
kærður til Hæstaréttar og mun Her-
vör því dæma í málinu sem verður
tekið til aðalmeðferðar 28. mars.
Kjartan Gunnarsson stefndi Sig-
urði fyrir héraðsdóm á haustdögum
1999 og krafðist ógildingar á tiltekn-
um ummælum Sigurðar þar sem í
þeim fælust aðdróttun um að Kjartan
hefði brotið af sér í opinberu starfi,
þ.e. sem formaður bankaráðs Lands-
banka Islands.
Vélarstærð
1600 16v
1600 16v
1600 8v
Ilestöll
110
101
101
ABS
já
já
já
Loftpúðar
4
2
4
Ilnakkapúðar
5
5
5
CD
nei
nei
nei
Fjarstýrð hljómtæki
nei
nei
nei
Þokuljós
nei
nei
nei
Verð frá
1.680.000 kr.
1.660.000 kr.
1.690.000 kr.
Tegund
Hátalarar
Avensis
Vectra
Passat
Gijótháls 1
Sími 575 1200
Söludeild 575 1220
Renault Laguna kostar frá 1.678.000 kr.
Það er mikilvægt að gera vandlegan samanburð áður en ákvörðun er tckin um bílakaup.
Eins og taflan hér að ofan sýnir er Renault Laguna betur búinn en aðrir bílar í
sambærilegum verðflokki. Hafðu gæðin að leiðarljósi. Prófaðu Renault Laguna.
RENAULT