Morgunblaðið - 08.02.2000, Blaðsíða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
h
NORÐURPÓLSLEIÐANGURINN
Ljósmynd/Sigursteinn Baldursson
Landmannalaugar kvaddar. Gengið meðfram Jökulsgilskvísl áleiðis að Frostastaðavatni, frá vinstri: Ingþdr, Norðmaðurinn og Haraldur.
Pólfarinn heimskunni Borge Ousland á ferðalagi með íslensku pólförunum
„Heimsókn Borges færði
okkur nær Norðurpólnum“
Heimsókn hins heims-
kunna norska pólfara
Bprges Ousland hingað
til lands lauk á sunnu-
dag. Hann miðlaði
íslensku pólförunum
tveimur af reynslu
sinni og Örlygur Steinn
Sigurjdnsson fylgdist
með þegar þeir skruppu
inn í Landmannalaugar
um helgina þar sem
Borge baðaði sig bæði
kvölds og morgna.
Ljósmynd/Sigursteinn Baldursson
Pólfaramir þrír í vetrarbaði í Landmannalaugnm. F.v. Bnrge, Ingþór Bjarnason og Haraldur Öm Ólafsson.
RÉTTAR þrjár vikur eru nú uns
Norðurpólsleiðangur þeirra Har-
aldar Arnar Ólafssonar og Ingþórs
Bjamasonar hefst og er undirbún-
ingur kominn á lokastig. Enginn vafi
leikur á því að líkamlegt ástand
þeirra hefur leyft stórátök um nokk-
urt skeið og segja má að nýafstaðin
heimsókn Borges Ousland hafi bund-
ið endahnútinn á andlegan undirbún-
ing þeirra félaga enda segir Har-
aldur að heimsókn hans hafi fært þá
félaga nær Norðurpólnum.
Bprge Ousland er sannkallaður
hvalreki á fjörur þeirra sem hyggjast
gera út heimskautaleiðangur, enda
hefúr hann gengið tvisvar á Norður-
pólinn án stuðnings, í seinna skiptið
einsamall fyrstur manna í heiminum
og eru þá ótalin önnur afrek hans,
svo sem ganga yfir Suðurskautsland-
ið fyrir fáeinum árum er hann lagði
að baki um 2.800 km á skíðum, Suð-
urpólsleiðangur og fleira.
Til að gefa nánari mynd af hinum
38 ára gamla Norðmanni má nefna
að hann á tíu ára feril að baki sem
kafari á norsku olíuborpöllunum auk
þess sem hann hefur unnið fyrir
NATO í Bosníu. Hann hefur gefið út
tvær veglegar bækur um leiðangra
sína og er hetja í heimalandi sínu,
enda hefur hann ítrekað brotið blað í
sögu pólferða á síðasta áratug.
Gefur lítið fyrir fyrstu
Islandsheimsóknina
Bprge heimsótti ísland fyrst fyrir
tveimur árum, þá með fjölskyldu
sinni, en hann gefur lítið fyrir þá
heimsókn enda gafst honum lítið
tækifæri til að kynnast landinu, sem
þátttakandi í skipulagðri ferð upp að
Gullfossi og Geysi og í Bláa lónið.
„Skipulagðar túristaferðir eru
mér ekki mjög að skapi,“ segir hann
á leiðinni heim í aftursætinu á sérút-
búnum Land Rover eftir Land-
mannalaugaferðina. „Það sem við
gerðum nú um helgina er mér hins
vegar mjög að skapi, þ.e. að fara inn í
óbyggðir á jeppa og skíðum og baða
sig úti. í slíkum ferðum felast ævin-
týri og það höfðar til lífsmáta míns
þar sem ég hef ánægju af því að ögra
sjálfum mér og halda út í óvissuna
þar sem afleiðingarnar eru ekki allt-
af fyrirsjáanlegar."
Jeppaferðinni inn í Landmanna-
laugar lauk við Frostastaðavatn á
fostudagskvöld og þaðan var gengið
Ljósmynd/Haraldur Öm Ólafsson
Ousland: „íslenskur uppruni á
eftir að gagnast þeim mikið.“
á skíðum við ljós síðustu kílómetrana
inn að skála Ferðafélagsins. Þegar
þangað kom leið ekki á löngu uns
gengið var til laugar um miðnætti að
loknum síðbúnum kvöldverði. Engu
skipti þótt frostið biti i kinn og élja-
gangur stríddi berlæruðum mönnun-
um á leið til laugar en öll él birtir upp
um síðir eins og sannaðist rækilega
að þessu sinni. „Það var mjög sér-
stakt að baða sig í heitri uppsprett-
unni og horfa upp í stjömubjartan
næturhimininn sem skartaði norður-
ljósum að auki, enda á þessi ferð
Tölvuþjálfun
Windows • Word
Internet • Excel
Það er aldrei of seint að byrja!
60 stunda námskeið þar sem þátttakendur
kynnast grundvallarþáttum tölvuvinnslu
og fá hagnýta þjálfun.
Vönduð kennslubók innifalin í verði.
Innritun stendur yfir.
k.k Fjárfestu í framtíðinni!
Íll&jÍðÍ s
Tölvuskóli Islands
BÍLDSHÖFÐI 18, SÍMI 5671466
lengi eftir að verða mér hugstæð.“
Svo mikla aðdáun fékk Bprge á
heitri lauginni að hann gekk til henn-
ar strax morguninn eftir, dvaldi lengi
í henni og fékkst ekki upp úr fyrr en
löngu eftir að samferðamenn hans
höfðu stigið upp úr og þerrað kroppa
sína.
Ljst vel á áætlun
Islendinganna
Hvað skyldi Borge annars hafa að
segja um leiðangur þeirra Haraldar
og Ingþórs?
„Mér finnst áætlun þeirra mjög
góð og vona að þeim takist að komast
óstuddir á Norðurpólinn vegna þess
að með því móti munu þeir uppskera
mun ríkulegar en ella og verða
ánægðari með sjálfa sig. Það er hins
vegar miklu erfiðara að fara á Norð-
urpólinn án stuðnings. Ég held að
þeir séu mjög vel undirbúnir og ís-
lenskur uppruni þeirra á eftir að
gagnast þeim mikið. Ég hef nefni-
lega greint mikinn mun annars vegar
á norrænum pólforum og hins vegar
pólförum frá t.d. Ítalíu, Spáni og
Bretlandi því þeir í síðarnefnda
hópnum eru fáfróðir um samspil
manns og náttúru. Haraldur og Ing-
þór hafa hins vegar gott vit á hlutun-
um og nota í stórum dráttum sama
útbúnað og ég myndi velja sjálfur."
Bprge segist vonast til þess að þeir
félagarnir fái sín tækifæri til að njóta
hinnar stórkostlegu náttúru á norð-
urheimskautinu í erfiðri ferð sinni og
leggur áherslu á mikilvægi þess að
fara sér hægt fyrstu 10 til 14 dagana
á hinni 60 daga löngu ferð. „Ferð á
Norðurpólinn er mjög erfið fyrstu
tvær vikurnar og auðvelt að gera
mistök í byrjun. Því er mikilvægt að
halda ró sinni í upphafi og auka hrað-
ann þegar lengra líður á ferðina. Þá
er óskaplega mikilvægt að vara sig á
þunnum ís því hann er mesta hættan
sem steðjar að pólförum á norður-
heimskautinu frá upphafi til enda
leiðangurs.“
Tvímælalaust reyndasti
pólfarinn í heiminum
Þeir Haraldur og Ingþór eru frá-
leitt sviknir eftir viðskipti sín við
Bprge enda hefur heimsókn hans
veitt þeim mikinn innblástur og auk-
ið sjálfstraust þeirra.
„Bprge er tvímælalaust reyndasti
pólfarinn í heiminum nú um stundir
og það var því gríðarlegur hvalreki
fyrir okkur að fá hann í heimsókn,“
segir Haraldur Örn Ólafsson.
Bprge hefur á undanfömum dög-
um frætt Harald og Ingþór um þær
sérstöku aðstæður sem ríkja á
norðuheimskautinu og hefur skýrt
þeim frá veðurlaginu, ísreki og hátta-
lagi ísbjama, svo fátt eitt sé nefnt.
„Við höfum einnig varið miklum
tíma í að ræða búnaðinn og honum
líst mjög vel á þann búnað sem hann
skoðaði hjá okkur og kom að auki
með ýmsar gagnlegar tillögur þar að
lútandi. Bprge leggur mikla áherslu
á að menn séu sjálfum sér nógir með
viðgerðir ef sleðar, skór, rennilásar
eða annað bregst fjarri manna-
byggðum. Brotni t.d. sleði hjá okkur
leggur hann til að við sögum í sundur
bensínbrúsa og notum þá sem við-
gerðarefni í sleðana. Ráðið er að bora
göt í gegnum plötu úr bensínbrúsa
og sleðann sjálfan og „sauma“ þann-
ig sleðann saman. Hann kom einnig
með mjög gagnlega ábendingu um
hvemig tryggast er að geyma elds-
neyti án þess að það fari að leka. Við
höfum slæma reynslu af lekum bens-
ínbrúsum þegar við gengum á Suður-
pólinn því þá lak einn brúsinn með
þeim afleiðingum að hluti af vistun-
um eyðilagðist.
Það sem við græðum hins vegar
mest á því að kynnast manni eins og
Borge felst í hinni feiknalegu hvatn-
ingu sem nærvera hans veitti okkur
og hvemig hann jók okkur innblást-
ur og sjálfstraust í alla staði. Þegar
upp er staðið má því segja að heim-
sókn Borges hafi fært okkur nær
Norðurpólnum og fyrir það emm við
afar þakklátir,“ segir Haraldur.
Af Borge er það að lokum að segja
að hann ætlar sér með tíu manna hóp
á Norðurpólinn í vor og mun að auki
verða dönsku konunni Bettinu Aller
innan handar áður en hún leggur af
stað einsömul á Norðurpólinn. Tak-
ist henni það verður hún fyrsta kon-
an í heiminum til að vinna það afrek.
i
i
l~