Morgunblaðið - 08.02.2000, Síða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Kveður Saiiiherja með.
Þetta verð ég að segja mömmu, ég sá þetta ekki fyrir.
Vanin-
hyrndur
forystu-
sauður
LITIÐ var á gott forystufé sem
miklar gersemar hér áður fyrr. Það
hélt fénu til beitar að vetrinum og
fór fyrir þegar safn var rekið af
(jalli. Þótt ekki sé lengur þörf á for-
ystufé vegna þess hvað sauðfé er
lítið beitt yfir veturinn ala einstaka
bændur forystusauði sér til
skemmtunar. Það er meðal annars
gert á bænum Grafarbakka í
Hrunamannahreppi. Forystusauð-
urinn sem fer fyrir þessari hjörð er
fjögurra vetra og heitir Villingur.
Hann er mórauður, arnhöfðóttur,
blesóttur, sokkóttur og vanin-
hymdur og er í miklu uppáhaldi hjá
eigendum sínum, Aslaugu Eiríks-
dóttur og Eiríki Kristófcrssyni á
Grafarbakka.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Leitaðu nánari upplýsinga í síma
570 1200
Viðskiptavinir Verðbréfastofunnar uppskáru vel á árinu
sem leið en þá hækkaði Heimssjóður Carnegie í Luxemborg
um 56%. Morgan Stanley hlutabréfavísitalan hækkaði um
23,5% og Norðurlandasjóðurinn gaf 44,9% ávöxtun.
Carnegie er eitt stærsta og virtasta verðbréfafyrirtæki Norður-
landa og annast Verðbréfastofan um málefni sjóða Carnegie
á íslandi. ^
VERÐBREFASTOFAN
Suöurlandsbraut 20, Reykjavík Sími 570-1200
Nýtt upplýsingakerfi Þjóðminjasafns
Safnað í
Sarpinn
Þjóðminjasafnið er
að taka formlega í
notkun nýtt upp-
lýsingakerfi sem fengið
hefur nafnið Sarpur.
Kynning á kerfinu og af-
hending þess fer fram á
Hótel Loftleiðum, sal 1,
klukkan 16 í dag. Unnið
hefur verið á vegum
safnsins að þessu kerfi
síðastliðin fjögur ár, þar
af tvö ár með hugbúnað-
arfyrirtækinu Hugviti,
samkvæmt upplýsingum
Frosta Jóhannssonar
þjóðháttafræðings sem
haft hefur umsjón með
uppbyggingu
kerfísins. En hvaða
upplýsingar skyldi vera
hægt að fá í Sarpi?
„Þar er hægt að fá
upplýsingar um muni og
myndir safnsins og heim-
ildaefni þjóðháttadeildar.
I kerfinu eru einnig upp-
lýsingar um fornleifar,
jarðfundi, hús- og
kirkjuminjar. Auk þess verður
hægt að fá upplýsingar um ör-
nefni í Sarpi, en Órnefnastofnun
Islands er aðili að kerfinu líka.“
-Er tafsamt að úbúa svona
heimildabanka?
„Já, þetta er gríðarlegt þolin-
mæðisverk sem kostar mikinn
tíma og mikla peninga að koma
upp. Það sem við höfum núna
mestar áhyggjur af er að koma
gögnum hratt og örugglega inn í
kerfið þannig að upplýsingar
komi sem fyrst að sem bestum
notum.“
-Eru þetta upplýsingar sem
margir leita eftir?
„I fyrsta lagi hefur það mikla
þýðingu fyrir þá sem vinna á
þessu sviði að hafa greiðan að-
gang að þessum grunnupplýs-
ingum, m.a. í rannsóknarskyni
og við uppsetningu sýninga og
fleira. Síðan skiptir það miklu
máli í okkar huga að auðvelda
aðgang mismunandi markhópa
að þessum upplýsingum um
þjóðararfinn, má þar nefna
ferðamenn, nemendur og kenn-
ara á mismunandi skólastigum
svo og fjölmiðla og fræðimenn
sem fyrr sagði.“
- Hvert er markmiðið með
þessari upplýsingaöflun allri?
„Meginmarkmiðin eru í raun
þrjú. I fyrsta lagi að staðla og
samræma skráningu og leit að
menningarsögulegum upplýs-
ingum hjá þeim aðilum sem
varðveita slíkar heimildir. I
öðru lagi að bæta aðgengi að
menningarsögulegum heimild-
um m.a. gegnum Netið. í þriðja
lagi að tryggja sem besta og ör-
uggasta varðveislu menningar-
sögulegra gagna með nútíma
tækni.“
-Hvað eru margar færslur í
kerfinu?
„Þær eru um það bil hundrað
þúsund og það er líklega um
10% af öllu því sem ___________
áætlað er að eigi er-
indi inn í kerfið á veg-
um Þjóðminjasafns."
- Hverju breytir
þetta upplýsingar-
kerfi?
„í fyrsta lagi verður söfnun
og rannsóknarstarf markviss-
ara, þá verður mun auðveldara
að setja upp sýningar, aðgengi
almennings að þjóðararfinum
mun stóraukast og þá má nefna
að fólk getur skapað sér atvinnu
við kerfið með fjarvinnslu, þar
sem mögulegt verður að skrá
upplýsingar inn í það gegnum
Frosti Jóhannsson
► Frosti Jóhannsson fæddist 27.
apríl 1942. Hann lauk stúdents-
prófi frá Menntaskólanum við
Hamrahlið 1973. Hann er með fíl.
cand.-próf í þjóðháttafræði frá
Uppsalaháskóla. Þess utan iauk
hann fyrri hluta doktorsnáms frá
sama Stokkhólmsháskóla. Frosti
starfaði um skeið við þjóðhátta-
deild Þjóðminjasafns ásamt
stundakennslu við Háskóla Is-
lands. Hann var ritsljóri bóka-
flokksins íslensk þjóðmenning í
fimm ár en siðastliðin ár hefur
hann starfað á Þjóðminjasafni,
m.a. haft umsjón með upp-
byggingu upplýsingakerfissafns-
ins sem fengið hefur nafnið Sarp-
ur. Frosti er kvæntur Steinunni
Jónsdóttur heilsugæslulækni og
eiga þau þijú börn.
Netið. Einnig má geta þess að
það er hagrænn ávinningur af
því að hafa eitt heildarkerfi."
- Hverskonar færslur eru
flestar?
„Myndefni er lang viðamest í
kerfinu. Þetta verða bæði
mannamyndir og það sem við
köllum þjóðlífsmyndir. Allar til-
tækar upplýsingar fylgja mynd-
unum en þær eru hins vegar
mis ítarlegar. Næst myndunum
eru munirnir flestir. Núna er
þetta kerfi kynnt sem sérstakt
upplýsingakerfi Þjóðminjasafns-
ins en síðar er ætlunin að bjóða
söfnum og fyrirtækjum, sem
varðveita hliðstætt heimildar-
efni og Þjóðminjasafnið, aðgang
að kerfinu. Rétt er að geta þess
að nú þegar er hafin vinna við
að þróa fyrstu útgáfu kerfisins
enn frekar. Áætlaður kostnaður
við það verk er 27 milljónir
krónaog það verður unnið að því
á næstu þremur árum. Þjóð-
minjasafnið og Hugvit fengu 12
milljóna króna styrk
frá RANNÍS á miðju
síðasta ári til þessa
verks en það var
hæsti styrkurinn sem
veittur var innan upp-
“ lýsingasviðs RANN-
Sameiginlega munu því
Adgengi að
þjóðararfin-
um mun stór-
aukast
is.
Þjóðminjasafn og Hugvit leggja
fram þær fimmtán milljónir
króna sem á vantar. Það sem á
að þróa er m.a. tenging upp-
lýsinga við stafræn kort, þróun
samskiptakerfis til fjarvinnslu
og þróun margmiðlunar með því
að setja upp mismunandi viðmót
fyrir ólíka markhópa."