Morgunblaðið - 08.02.2000, Blaðsíða 60
*■ 30 ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRÚAR 2000
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Gleði og ánægja skein bæði úr andlitum heimilismanna og Kiwanis-
manna. Að gleðja aðra er eitt af markmiðum Setbergsmanna og tókst
það prýðilega með þessari heimsókn.
Gáfu sambýli
samstæðu
KIWANISMENN í Garðabæ
heimsóttu sambýlið Krókamýri 54
í Garðabæ og komu færandi hendi
með hljómtækjasamstæðu sem
þeir gáfu sambýlinu. Einnig gáfu
þeir heimilismönnum geisladiska.
Forstöðumaður heimilisins,
Hildur Harðardóttir, og heimilis-
menn tóku vel á móti Kiwanis-
mönnum og áttu þeir ánægjulega
stund saman.
Rætt var um hugsanlega kirkju-
ferð með heimilismönnum á sam-
býlinu í Garðabæ og ætla Kiwanis-
menn ásamt mökum að taka þátt í
henni og gæti hún orðið fljótlega.
Ur dagbók lögreglunnar
Foreldraröltið
mjög gagnlegt
-t
Helgin 4. til 7
HELGIN hjá lögreglunni var ró-
leg enda gekk skemmtanahald vel.
Þó komu fáein ofbeldis- og fíkni-
efnamál til kasta lögreglu, auk
auðgunarbrotamála og tilkynnt
var um 54 umferðaróhöpp.
Lögreglumenn fylgdust með því
að reglum um útivist barna og
unglinga væri framfylgt og virðist
svo vera að mestu leyti. Að þessu
sinni var athygli lögreglu einkum
beint að austurhluta umdæmisins
þ.e.a.s. Mosfellsbæ, Grafarvogi,
Árbæ og Breiðholti. Foreldrarölt
er stundað á öllum þessum stöðum
sem veitir lögreglu mikla aðstoð
við verkefnið.
Lagðist í klifur um hánótt
Aðfaranótt sunnudags var til-
kynnt til lögreglu að maður væri
að klifra utan á skemmtistað við
Laugaveg. Tókst með aðstoð lög-
reglu að ná manninum óslösuðum
niður aftur. Ekki liggur ljóst fyrir
hvað manninum gekk til með
þessu athæfí sínu.
Umferðin gekk að mestu vel
fyrir sig þessa helgi. Þó eru það 8
ökumenn sem sæta kæru vegna
gruns um ölvun við akstur og 19
vegna hraðaksturs.
Höfð voru afskipti af ökumönn-
um tveggja flutningabifreiða þar
sem ákvæði um hættulegan farm
höfðu ekki verið uppfyllt.
febrúar 2000
A sunnudagskvöld missti maður
stjórn á bifreið sinni á Holtavegi
og endaði bifreiðin á umferðar-
vita.
Fjármunum og þvotti stolið
Nokkrum fjármunum var stolið
úr peningaskáp í verslun í austur-
borginni. Unnið er að rannsókn
málsins.
íbúi í miðborginni varð þess
áskynja að búið var að stela þvotti
hans sem hékk úti á snúru. Grun-
ur féll á þekkt ógæfupar og fannst
hluti af þýfinu hjá því ásamt
áhöldum til neyslu fíkniefna.
Ráðist var inn á heimili karl-
manns í vesturbænum í tvígang
um helgina og honum veittir
nokkrir áverkar. Manninum var
ekið á slysadeild.
Tveir karlmenn á tvítugsaldri
voru handteknir á veitingahúsi í
miðbænum að morgni laugardags
eftir að á þeim fundust ætluð
fíkniefni. Báðir voru fluttir á lög-
reglustöð.
Aðfaranótt sunnudags barst til-
kynning um sölu fíkniefna frá hót-
elherbergi í austurborginni. Á
vettvangi fundu lögreglumenn
talsvert magn ætlaðra fíkniefna
og fjármuni. Tvennt var handtekið
á staðnum. Þá fundust ætluð fíkni-
efni á einum gesta í afmælisveislu
í Breiðholti að kvöldi laugardags.
Lýst eftir stolnum
bifreiðum
,» AÐFARANÓTT 'þriðjudagsins 18.
janúar sl. var bifreiðinni ID-422
stolið frá Hólagötu 13, Njarðvík.
Bifreiðin er fólksbifreið af gerðinni
Mazda 323, árgerð 1987, ljósgræn
að lit. Ekkert hefur spurst til bif-
reiðarinnar.
Aðfaranótt laugardagsins 22.
janúar sl. var bifreiðinni OR-594
"J stolið af bifreiðastæði við bílasöl-
una Toyotasalinn á Fitjum í
Njarðvík. Bifreiðin er fólksbifreið
af gerðinni Mercedes Benz 400SE,
dökkgrá að lit. Verðmæti bifreið-
arinnar mun vera rúmlega 6 mil-
ljónir króna. Ekkert hefur spurst
til bifreiðarinnar.
Þeir sem kynnu að hafa ein-
hverjar upplýsingar um ofan-
greindar bifreiðar eru beðnir að
hafa samband við lögregluna í
Keflavík í síma 421-5500.
VELVAKAIVDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Reykingabann
ÉG er kona um sjötugt.
Fyrir 50 árum var ungt fólk
naumast „menn með mönn-
um“ ef það reykti ekki. Fyr-
ir unga stúlku var þá jafn
„ómögulegt" að reykja ekki
ef hún vildi „fylgjast með“
og að ganga í ullarsokkum
upp í klof og prjónaklukku.
Það var einfaldlega „púkó“
og hvaða ung stúlka vildi
ekki leggja það á sig þá að
læra að reykja, til þess að
geta verið í hópi með öðru
ungu fólki? Og ég vandist á
að reykja.
Svo komst á kreik sú
frétt, löngu síðar, að fólk
eyðilegði heilsuna með þvi
að reykja, fengi lungna-
krabba, hjartabilun og æða-
þrengsli. Og auk þess að
spilla heilsu sinni, spillti það
líka heilsu þeirra sem það
umgengist.
Þá var hinsvegar of seint
að hætta fyrir marga, ef
þeir höfðu ekki járnvilja.
Það fór heldur ekki fram
hjá mér að fólk dó eins og
fyrr, jafnvel úr lungna-
krabba, þótt það hefði
aldrei reykt, og sumir kom-
ust á tíræðisaldur þótt þeir
hefðu fast að því keðjureykt
síðan á unga aldri.
Nú hófst hinn magnað-
asti áróður gegn reyking-
um. Allir áttu að hætta,
hvort sem þeir vildu það eða
ekki, og þeim stöðum fjölg-
aði óðum þar sem bannað
var að reyl^ja.
Nú er ég hætt að vinna,
komin á eftirlaun og hef sótt
eina af félagsmiðstöðvum
borgarinnar um nokkurt
skeið, lagt stund á föndur
og notið góðs félagsskapar
annars aldraðs fólks. Þar
hefur mátt reykja í hliðarsal
og þangað höfum við sótt
sem ekki höfum getað hætt.
En nú er þvi lokið. Ef við
viljum reykja verðum við að
fara út á götu, hvernig sem
viðrar. Ætli það endi ekki á
því að við verðum að fara út
fyrir borgarmörk Reykja-
vikur? Þar með get ég ekki
sótt félagsmiðstöðina leng-
ur. Ég sakna hennar þó og
þess ágæta fólks sem þar
var að finna og aldrei amað-
ist við því að ég reykti í hlið-
arsalnum.
Ég veit að reykingar eru
óhollar. Mér finnst líka að
engin ung manneskja ætti
að ánetjast reykingum. Ég
get hinsvegar ekki hætt
eða kannske hef ég ekki
nógu sterkan vilja. Ég vil
líka gjarnan mega láta und-
an þessum veikleika mín-
um endrum og eins, þau ár
sem ég á ólifuð, enda hef ég
heilbrigð lungu. Aðrir hafa
sína veikleika og eiga erfitt
með að losa sig við óholla
ávana. En ég vil helst ekki
sætta mig við að vera hrak-
in þaðan sem ég vildi gjarn-
an vera vegna þessa ávana
míns.
Hver ber kostnaðinn?
KONA hafði samband við
Velvakanda og vildi lýsa
sérkennilegum samskiptum
sínum við gjaldkera hjá
Landsbanka Islands í
Reykjavík. Hún bað gjald-
kerann að gefa sér stöðuna
á bankabókinni sinni, þvi
hún ætlaði að greiða reikn-
inga. Gjaldkerinn gaf henni
upp stöðuna og fannst henni
sú staða vera of há og bað
hana að athuga þetta betur.
Aftur kom sama svarið.
Konan fór stuttu síðar að
greiða sína reikninga og þá
kom í ljós að hún hafði feng-
ið rangar upplýsingar hjá
gjaldkeranum. Hún var að
velta þvi fyrir sér, hver bæri
kostnaðinn þegar fólk fengi
rangar upplýsingar um
stöðu á bankareikningum
sínum og færi yfir heimild.
Ranglátur
eignaskattur
„ÞAÐ vekur undrun mína
hversu lítið hefur verið rætt
í fjölmiðlum um fasteigna-
skattinn. Skattur af íbúðar-
húsnæði er örugglega fár-
ánlegasti skattur sem
finnst. „Ég tel að allir elli-
lífeyrisþegar sem ekki njóta
tekna utan lögboðinna
trygginga og greiðslu úr
eigin lífeyrissjóðum,“ segir
Ingólfur Aðalsteinsson i
Morgunblaðinu fimmtudag-
inn 3. febrúar sl., „eigi að
vera lausir við þessa fráleitu
eignaupptöku." 8. apríl 1999
skrifar Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson um þennan rang-
láta eignaskatt. Greinin
heitir ,Afnemum eigna-
skatt“. „Eignaskattur sem
einstaklingur greiðir af eig-
in íbúðarhúsnæði er bæði
ranglátur skattur og í fullu
ósamræmi við eðlilegar og
sanngjamar forsendur sem
lagðar eru til grundvallar
skattlagningu á einstakl-
ing.“ Ég er þakklát þessum
mönnum íyrir skrif sín og
svo innilega sammála þeim.
Mig langar til að vekja at-
hygh á þessum greinum.
Ellen Svava
Stefánsdóttir.
Reglugerð
um kattahald
RÓSA hafði samband við
Velvakanda og vildi láta
fólk vita af því, að hjá Heil-
brigðiseftírúti Reykjavíkur
er til reglugerð um katta-
hald. Það gætí verið gott
fyrir fólk að lesa hana og
afla sér upplýsinga.
Dýrahald
Fallegir kettlingar
fást gefíns
ÞRÍR fallegir kassavanir
sjö vikna ketthngar fást
gefins á góð heimili. Upp-
lýsingar í síma 588-0262 eða
695-1066.
Víkverji skrifar...
AÐ er margt sem breytist á
fjörutíu árum. Varðskipið Óðinn
kom nýr til landsins fyrir fjörutíu ár-
um og var ítarleg frásögn af komu
skipsins í Morgunblaðinu. Sem dæmi
um breytt viðhorf, reglur og svo
framvegis er athyglivert að grípa nið-
ur í frásögn blaðsins:
„Óðinn var allur fánum skreyttur
stafna á milli, þar sem hann lá úti á
ytri höfninni er blaðamenn Reykja-
víkurblaðanna fóru út í skipið með
einum hafnsögubátanna. Við „tána“ á
Ingólfsgarði lágu fánum skreytt
varðskipin Þór og Albert. Lítils hátt-
ar kul var, Esjan snævi þakin, böðuð
hækkandi sól, en hríð var á yfir fjöll-
unum eystra.
Þegar hafnsögubáturinn lagði að
Óðni, tóku nokkrir sjóliðar á móti
bátnum. Blaðamönnum var vísað upp
í brú, þar sem Pétur Sigurðsson og
Eiríkur Kristóferssosn, skipherra,
sátu í skipstjóraklefa ásamt tollþjón-
um sem kneifuðu Tuborgöl."
XXX
ESSI írásögn lýsir að mati Vík-
verja nokkuð öðru andrúmslofti
en nú ríkir við skipakomur til lands-
ins. Hann leyfir sér að efast um að nú
sitji tollverðir og kneifi öl með skip-
stjórnarmönnum uppi í brú, þegar
skipin koma til tollskoðunar. Hann
grunar að andrúmsloftið sé ekki svo
vinalegt nú auk þess sem það er tæp-
ast viðeigandi að menn standi í öl-
drykkju við skyldustörf.
Annars er margt framandi í frá-
sögn blaðsins af Oðni og komu hans
til landsins. Pétur Sigurðsson, for-
stjóri Landhelgisgæzlunnar, bauð
meðal annars blaðamönnum að ganga
inn í mjög vistlegt herbergi, „en yfir
dyrum þess stóð „setustofa". Er teppi
á gólfum, húsgögn smekkleg en fá-
brotin. - Inn af því er svefnklefinn.
Hér er gert ráð fyrir því að forsetinn
búi á ferðum sínum með skipinu.“
Síðan kemur greinargóð lýsing á
skipinu og búnaði þess og meðal ann-
ars er rætt um kaup á þyrilvængju.
xxx
AUGLÝSINGAR hafa tekið mikl-
um breytingum í tímans rás.
Víkveiji er ekki viss um að það sé til
hins betra. Mikil samkeppni ríkir nú
milli innflytjenda á bílum sem vilja
ólmir selja fieiri og fleiri nýja bíla.
Þeir auglýsa því mikið í sjónvarpinu,
en Víkverji á einhverra hluta vegna
erfitt með að ná því hvert verið er að
fara. I einu tilfelli er ungt fólk að mála
á vegg, öðru aldraðir karlmenn í
sundlaug. í báðum atvikunum er ver-
ið að auglýsa bfla, en það kemur ekk-
ert fram um bílana, nema tegundar-
nafn. Ekkert er sagt um búnað þeirra
eða kosti. Maður er sem sagt engu
nær eftir auglýsinguna um þá vöru,
sem auglýst er.
Önnur tegund auglýsinga er mjög í
tízku um þessar mundir. Það eru eins
konar söguleg ágrip af ýmiss konar
starfsemi á íslandi. Þetta eru fróðleg-
ar auglýsingar, en sumar hveijar að
mati Víkverja meingallaðar eigi að
síður. Sjálfsagt er allt rétt, sem þar er
sagt, en á hinn bóginn virðist lítið hirt
um að nefna staðreyndir sem eru
auglýsandanum lítt að skapi. Vík-
verja finnst það einkennilegt, þegar
Eimskipafélag Islands getur flutt
sjónvarpsáhorfendum ágrip af sögu
kaupskipaútgerðar frá íslandi án
þess að minnast einu orði á Hafskip,
sem braut blað í sögu þessarar út-
gerðar með því að komast upp á milli
einokunarrisanna Eimskipa og
Skipadeildar Sambandsins. Þó Haf-
skip hafi orðið undir í þeirri sam-
keppni með eftirminnilegum hætti, er
ekki minnst á það í hinu sögulega
ágripi.
xxx
ARANGUR Grindvíkinga í körfu-
boltanum um þessar mundir er
athygliverður. Liðið tryggði sér bik-
armeistaratitilinn i meistaraflokki
karla um helgina í þriðja sinn og eftir
því sem Víkveiji kemst næst hefur
það aldrei tapað bikarúrslitaleik.
Grindvíkmgar eru einnig efstir í
deildinni. Víkverji horfði á bikarúr-
slitaleikinn í sjónvarpinu og viðkennir
fúslega að hann hafi ekki verið vel
leikinn, en spennandi var hann og
þáttur hins fertuga Ermolinskis í
leiknum var eftirminnilegar, en segja
má að hann hafi tryggt liðinu sigur-
inn. Allt er fertugum fært.
Annað afrek og ekki síðra vann
kvennalið Keflavíkur í meistaraflokki
í körfuknattleik. Súlkumar unnu sinn
tíunda bikariírslitaleik á 12 árum og
vann Anna María Sveinsdóttir það
einstæða afrek að verða bikarmeist-
ari í tíunda sinn. Líklega verður það
met ekki slegið, nema þá af henni
sjálfri. Víkverji óskar þessu frábæra
íþróttafólki til hamingju með sigrana.