Morgunblaðið - 08.02.2000, Side 65
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRUAR 2000
FOLKI FRETTUM
Alþjóðleg útvarpsþáttahátíð hefst í Háskólabíói í dag
Miðill ímynd-
unaraflsins
Næstu daga stendur mönnum til boða að
fara í bíó til að stara út í myrkrið og hlusta
á útvarpið. Þorsteinn Joð útvarpsáhuga-
maður sannfærir Skarphéðin Guðmunds-
son um að útvarpið eigi vel heima í bíói.
MEÐ útvarpsþáttahátíðinni
„Útvarp radio 2000“ er að
rætast gamall draumur
okkar aðstandendanna, sem ásamt
mér eru þeir Jón Karl Helgason og
Jón Hallur Stefánsson," segir Þor-
steinn Joð er hann skýrir tilurð þess-
arar hátíðar. „Okkur hefur alltaf
langað til að hefja þennan miðil, út-
varpið, til vegs og virðingar. Kynna
fyrir fólki það besta sem er að gerast
í útvarpi, bæði heima og heiman. Hér
ræðir aðallega um nokkurs konar
heimildarþáttagerð, þætti sem fjalla
um ákveðið efni og gegna jafnvel lög-
málum leikhússins hvað byggingu
varðar en innihalda í flestum tilfell-
um raunverulegar upptökur. Eru
leikhús raunveruleikans."
fslenskt útvarp
skortir Qölbreytni
- Hvemig fer hátíðin fram ?
„Við skipuleggjum þessa hátíð í
| raun eins og kvikmyndahátíð. Fólk
velur sér það efni á dagskránni sem
mestan áhuga vekur, mætir í bíóið og
kemur sér þægilega fyrir í salnum.
Þegar ljósin slokkna þá byijar hins
vegar í stað bíómyndarinnar útvarps-
þáttur sem menn hlusta á og geta les-
Námsaðstoð
í stærðfræði, eðlis- og efnafræði
fyrir grunnskóla, framhaldsskóla og háskóla
www.tolst.com
Tölvu- og stærðfræðiþjónustan ehf., Brautarholti 4, sími 551 5593
Endurheimtu núttúrulegan
Ijóma húðarinnar
Spennandi
Með hverju keyptu
kremi í Lancaster
færðu óvænta
Ath.: Tilboð þetta gildir
meðan birgðir endast
Útsölustaðir:
Nana Hólagarði,
Hogkaup Kringlunni,
Snyrtistofu Sigríðar
Guðjóns Eiðistorgi,
Snyrtistofan Ársól
Grímsbæ, Snyrlistofan
Rós Engihjalla 8,
Apótek Suðurnesja,
Akranes Apótek,
Apótek Vestmannaeyja,
Hugkaup Akureyri.
Skin Maximizer — ný kynslóð húðsnyrtivara. Inni-
heldur segulmagnaðar agnir sem örva frumeinda-
hringrós húðorinnar. Húðin heldur raka betur, er vel
varin og öðlast samstundis langvnrundi Ijóma.
SKIN MAXIMIZER
The Energy and Radiance Programme
Morgunblaðið/Ásdís
ið með skýrmgartexta, sem birtast
mun á sýningartjaldinu. Svona hátíð
á sér margar erlendar fyrirmyndir.“
- Eigum við íslendingar mikið
ólært í útvarpsþáttagerð?
„Mjög mikið. Það eru orðin ansi
mörg ár síðan Stefán Jónsson frétta-
maður fór um landið, tók fólk tali og
klippti síðan saman í magnaða þætti.
Síðan hefur vissulega verið gert
margt í útvarpi en ég sakna þess
hversu lítið er í raun unnið með þenn-
an miðil. Uppistaðan í útvarpi í dag er
tónlist og beinar útsendingar. Það er
reyndar að einhverju leyti unnið efni
og undirbúið á Rás 1 en okkur vantar
samt ennþá vissan fjölbreytileika.
Það er sú fjölbreytni sem fólk getur
upplifað á hátíðinni. Sýnishorn af því
sem við vonum að íslenskt útvarp á
nýrri öld eigi líka eftir að bjóða upp á.
íslenskir hlustendur eiga orðið skilið
að þessum margbrotna miðli ímynd-
unaraflsins sé sinnt sem skyldi.“
Margverðlaunaðir útvarpsmenn
- Hvað ber hæstá hátíðinni?
„Það ber í raun allt hæst á hátíð-
inni. Mér þykir viðeigandi að hún
hefjist á þætti eftir Stefán Jónsson
vegna þess að hann er frumkvöðull
íslands í þeirri útvarpsþáttagerð sem
við beinum að mestu spjótum okkar
að. Við viljum kannski líka minna á
upprunann hér á landi og að menn
hafi vissulega fengist við heimildar-
þáttagerð í líkingu við þá sem boðið
verður upp á.
Þarna verða virtir útvarpsmenn
sem hlotið hafa fjölda verðlauna fyrir
störf sín eins og Gyrid Listuen frá
Noregi og hinn gamalreyndi BBC
refur Piers Plowright. Allir eru þátt-
takendurnir mjög reyndir og hafa
mikið til málanna að leggja. Við skul-
um segja sem svo að ef þetta væri
kvikmyndahátíð þá væru þetta
heimsþekktir leikstjórar en útvarpið
er einfaldlega ekki eins stórbrotinn
miðill og kvikmyndimar.
Útvarpsþáttur er
eins og konfektkassi
Til viðbótar þessari heimildar-
þáttagerð munum við síðan á föstu-
deginum gefa innsýn í enn frekari
nýsköpun í útvarpinu og framsækn-
ari vinnubrögð
en almennt
tíðkast. Þá
verður fjallað
sérstaklega um
útvarpsþátta-
gerð TMhöfða
og mun Sigur-
jón Kjartans-
son standa íyr-
ir máli þeirra
Jóns Gnarr og
útskýra.“
- Skilar út-
varpsþáttur
séríbíó?
,jUveg full-
komlega. Ég
flutti fyrir
nokkrum árum
útvarpsþátt í
Regnboganum
sem ég kallaði
„Guð er góð-
ur“. Fólk hlust-
aði á þáttinn við
notaleg kertaljós og það var guðdóm-
legt, þótt ég segi sjálfur frá. í dag er
útvarpshlustun orðið svo einangi-uð
athöfn, í bílnum eða í bakgrunni vinn-
unnar. En þegar hlustað er í góðum
hópi þá skapast ákveðin stemmning,
líkt og þegar öll fjölskyldan sat sam-
an við viðtækin í gamla daga. Fólk
tekur þá þátt í upplifuninni, hlær og
skemmtir sér, nokkuð sem gerist
ekki lengur við daglega notkun út-
varpsins."
- Yfír hverju þarf góður útvarps-
þátturað búa?
„Góður útvarpsþáttur er eins og
góður konfektkassi. Maður tekur
hann upp og ef ekkert vekur áhugann
eftir að hann hefur verið opnaður þá
lokar maður honum aftur og leggur
frá sér. Ef útvarpsþáttur grípur ekki
hlustandann, hvert svo sem efnið er,
þá einfaldlega slekkur hann. Ef þátt-
urinn er hins vegar bragðgóður og
spennandi þá sleppir hlustandinn
ekki takinu af honum fyrr en hann er
búinn.“
TBPF
Vinsældalisti þar sem
þú hefur áhrifi
Vertu með í valinu!
©
mbl.is
listinn er valínn á mbl.is
Listinn er óformleg vinsældakönnun
og byggist á vali gesta mbl.is.
Fréttagetraun á Netinu
vj§> mbl.is