Morgunblaðið - 08.02.2000, Blaðsíða 72
^ Texas
iNSTRUMENTS
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMIS69U00, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA S691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRÚAR 2000
VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
Vetur
konungur
> ríkir á
Hellisheiði
VETUR konungur heidur ennþá
náttúru landsins í heljargreipum
og mega landsmenn búa við duttl-
ungafulla vindsveipi hirðar hans
næstu vikurnar.
En ísköld auðn vetrarins getur
jafnframt verið heillandi. Þótt
margir ökuþórarnir hafi eflaust
formælt snjófjúki Kára á Hellis-
heiðinni er vart annað hægt en að
dást að því vetrarríki sem fyrir
augu ber á myndinni.
Enn er þorri og má búast við
>því enn um sinn að þungfært
verði á heiðinni. Veturinn hefur
verið snjóléttur og menn vona að
svo verði áfram. Það má svo
minna á að sólin hækkar á Iofti
og brátt mun vorið banka á dyrn-
ar með leysingum.
íSMSiSÍ
Morgunblaðið/Ómar
VJf|£Épg||
V atneyrarmálið
í Hæstarétti
Líkur á
að dómur
falli fyrir
páska
SÍMON Sigvaldason, skrif-
stofustjóri við Hæstarétt Is-
lands, telur líklegt að mál-
flutningur í Vatneyrarmálinu
hefjist í Hæstarétti seinni
hluta marsmánaðar. Gangi
það eftir eru góðar líkur á að
dómur í málinu falli fyrir
páska, en páskadagur í ár er
23. apríl.
Lögmenn málsaðila eru nú
að vinna að greinargerðum í
málinu sem lagðar verða fyrir
Hæstarétt. Frestur til að
skila þeim til réttarins rennur
út eftir hálfan mánuð.
Símon sagði að ekki væri
búið að taka afstöðu til þess
hve margir dómarar dæmdu í
málinu. Ákvörðun um fjölda
dómara væri venjulega tekin
við upphaf málflutnings.
í Valdimarsmálinu svokall-
aða, sem einnig varðaði
stjórnkerfi fiskveiða, dæmdu
fimm dómarar og var það
nokkuð gagnrýnt eftir á að
dómarar skyldu ekki vera sjö,
þar sem málið hefði verið
prófmál og varðaði mikils-
verða hagsmuni.
Markaðshlutdeild kindakjöts hefur lækkað úr 49% í 37% á átta árum
Framleiðsla á kindakjöti
jókst um 5,7% í fyrra
FRAMLEIÐSLA á kindakjöti
jókst um 5,7% á síðasta ári en sala
á innanlandsmarkaði dróst hins
vegar saman um 1,6%. Miklar
breytingar hafa orðið á neyslu
landsmanna á kjöti á síðustu árum.
Fyrir átta árum var kindakjöt
tæplega helmingur af öllu kjöti
sem við borðuðum, en nú er hlut-
deild kindakjöts komin niður í
37,4%.
í fyrra framleiddu sauðfjár-
bændur 8.640 tonn af kindakjöti,
en salan innanlands nam 6.913
tonnum. Munurinn er 1.727 tonn,
en það kjöt er flutt úr landi á
ábyrgð framleiðenda.
Sala á svínakjöti í fyrra nam
4.446 tonnum og jókst salan um
14,4% á milli ára. A síðasta ári var
svínakjöt 24,1% af öllu kjöti sem
landsmenn borðuðu, en árið 1992
var þetta hlutfall 16%.
Sala á kjúklingum
er enn í lægð
Sala á nautakjöti nam 3.663
tonnum í fyrra og jókst salan um
4,3%. Sala á hrossakjöti nam að-
eins 34 tonnum og dróst hún sam-
an um 1,2%. Framleiðsla á hrossa-
kjöti jókst hins vegar verulega á
árinu og nam 107 tonnum.
Þrátt fyrir að alifuglaframleiðsl-
an hafi orðið fyrir miklu áfalli á
síðari hluta ársins jókst sala á
kjúklingum um 11,7% í fyrra.
Þetta er hins vegar miklu minni
aukning en verið hefur, en neyslan
hefur aukist um 30% að jafnaði á
síðustu þremur árum. í desember
sl. seldust 208 tonn af kjúklingum,
sem er 23,2% minni sala en var í
sama mánuði árið 1998.
Umræðan um kampýlóbakt-
ersýkingar í kjúklingum kom upp í
ágúst í fyrrasumar, en í júlímánuði
það ár seldust 287 tonn af kjúkl-
ingum.
Framleiðsla á kjúklingum hefur
frá því þessi umræða kom upp ver-
ið talsvert meiri en salan. Munur-
inn í desembermánuði á neyslu og
framleiðslu var 50 tonn samkvæmt
nýjustu tölum.
Samtals seldust á innanlands-
markaði 18.470 tonn af kjöti í
fyrra, en það er 5,1% aukning frá
fyrra ári. Framleiðsla á kjöti jókst
hins vegar um 9,2% milli ára.
Óbreytt
sala á rnjólk
í fyrra voru framleiddir 107,2
milljónir lítra af mjólk, sem er
1,4% meira en árið áður. Salan á
fitugrunni nam 98,9 milljónum
lítra, sem er örlítill samdráttur
milli ára. Ef salan er reiknuð á
próteingrunni nam salan 103,6
milljónum lítra, sem er 0,6% aukn-
ing milli ára.
iBook-alvöm
fartölvafraApple
149.900 kr. stgr.
Skípliolti 21
Simi 530 1800
Fax 530 1801
www.apple.is/ibook
3CO
Ný brú
yfir Miklu-
braut
GANGANDI vegfarendur verða
að komast leiðar sinnar eins og
þeir sem ferðast með bifreiðum.
Byrjað er að leggja undirstöður
fyrir nýja göngubraut yfir Miklu-
braut austan Grensásvegar. Ráð-
gert er að brúin verði tilbúin í
rnaí.