Morgunblaðið - 10.02.2000, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2000 23
ÚR VERINU
Morgunblaðið/Arni Sæberg
Kaldi á Kópanesgrunni
VEÐRIÐ hefur verið umhleypinga-
samt upp á síðkastið, brælur á
djúpmiðunum fyrir vestan og norðan
landið tíðar eins og oft vill verða á
þessum árstíma. Pá verður oft vont í
sjóinn eins og sjá má á þessari mynd
sem tekin var af togaranum Stefni
ÍS á Kópanesgrunni fyrir skömmu.
Að sögn Skarphéðins Gíslasonar,
skipstjóra, hefur verið hin mesta ótíð
allt frá áramótum, langvarandi suð-
lægar áttir. I ofanálag hafa afla-
brögðin ekki verið til að hrópa húrra
fyrir, um 60 tonn eftir vikutúra. „Við
erum á hálfgerðu skrapfiskiríi, erum
aðallega að fiska eftir ýsu og steinbít
þessa dagana. Það hefur gengið illa
að ná í ýsuna en við höfum fengið
ágætan steinbitsafla að undanförnu.
Það hefur hinsvegar aðeins dregið úr
aflanum síðustu daga og líklega er
steinbíturinn þá að ganga upp á
grunnið," sagði Skarphéðinn að lok-
um.
Athugasemd vegna olíuflutninga erlends skips
Hótunarbréf á ensku
í BRÉFI sem Sjómannafélag
Reykjavíkur sendi forstjóra Skelj-
ungs hf. í síðustu viku er gerð athuga-
semd við olíuflutninga skipsins West
Stream á íslenskar hafnir vegna þess
að launakjör áhafnar skipsins uppfylli
ekki íslenska samninga. Slíkt brjóti í
bága við reglur Alþjóðasambands
flutningaverkamanna (ITF) og stefnu
Sjómannafélagsins. I bréfinu, sem rit-
að er á ensku, er sagt að Sjómannafél-
ag Reykjavíkur muni koma í veg fyrir
að unnið verði við skipið vegna þessa.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins var umrætt skip í verkefnum
hér við land í vikutíma en á vegum
Olíudreifingar ehf., dótturfélags Olíu-
félagsins hf. og Olís hf., en ekki Skelj-
ungs hf. Hjá Olíudreifingu fengust
þær upplýsingar að skipið hafi verið
leigt til að sinna ákveðnum verkefn-
um sem nú sé lokið. Gerðar hafi verið
kröfur um að skipið uppfyllti skilyrði
ITF og því komi viðbrögð Sjómanna-
félags Reykjavíkur á óvart og óskað
hafi verið eftir viðræðum vegna
þeirra.
Jónas Garðarsson, formaður Sjó-
mannafélags Reykjavíkur, segir að
samkvæmt slqolum skipstjóra skips-
ins hafi Skeljungur verið með það á
leigu. Hann segir það þó ekki skipta
höfuðmáli. „Við sættum okkur ekki
við það að hér séu skip í strandsigl-
ingum þar sem launakjör áhafna eru
langt fyrir neðan sem okkar félags-
menn hafa.“
Aðspurður um hvers vegna ís-
lensku fyrirtæki sé sent bréf á ensku
segir Jónas að afrit af bréfinu hafi
einnig verið sent aðalskrifstofu ITF í
London og stéttarfélagi í Noregi.
Bréfið hafi einfaldlega verið skrifað á
ensku þannig að allir aðilar fengju
sama textann í hendur og ekki kæmu
upp túlkunaratriði varðandi þýðingu.
Jónas segir að þar sem skipið sé nú
ekki lengur í siglingum við Island
verði málið látið niður falla að hálfu
Sjómannafélagsins og hafi engin eft-
irmál.
Nýtt litlit Ægis
TÍMARITIÐ Ægir, sem komið hef-
ur út í meira en 90 ár, er nú komið í
nýjan búning. Brot blaðsins hefur
verið stækkað og blaðið fengið nýtt
yfirbragð. Það er Fiskifélagsútgáf-
an sem gefm- Ægi út en Athygli ehf.
hefur umsjón með útgáfunni. Rit-
stjórar blaðsins eru þeir Pétur
Bjarnason, framkvæmdastjóri
Fiskifélags íslands og Jóhann Ólaf-
ur Halldórsson á Akureyri. Blaðið
kemur út 11 sinnum á ári. í leiðara
fyrsta tölublaðs Ægis á þessu ári
segir Pétur Bjarnason meðal ann-
ars:' „Við þessar breytingar eykst
efni Ægis um nálega þriðjung og
blaðið verður einnig aðgengilegra
fyrir auglýsendur en áður.“
í nýjasta tölublaði Ægis er m.a.
að finna ítarlegt viðtal við Björgólf
Jóhannsson, forstjóra Sfldarvinnsl-
unnar hf., rætt við stjórnendur SÍF
um stefnu þessa nýja fisksölurisa og
Guðjón A. Kristjánsson, alþingis-
maður, skrifar um sjávarútvegs- og
byggðamál. Þá er þar að finna
greinar um erlend málefni, fjármál,
tækni og fiskveiðar, auk þess sem
sagt er frá heimsóknum í nokkur
fyrirtæki í máli og myndum.
Nýjar
vorvörur
>4maretta.
Yfirhafnir
gardeur
dömubuxur
Drogtir
kl. 10-18
laugardaga
kl. 10-14
Oáuntv
tískuverslun
v/Nesveg, Seltjarnnrnesi
Sími 561 1680
Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson
Sigurður Bjarnason útgerðarmaður og Guðmundur Þorkelsson skip-
stjóri, í brúnni á Sæfara við komuna til Þorlákshafnar.
Nýr bátur til
Þorlákshafnar
HAFNARNES hf. í Þorlákshöfn
hefur keypt nýjan 103 tonna stálbát
frá Grundafirði. Báturinn sem áður
hét Grundfirðingur SH 24 er 103
tonna stálbátur smíðaður í Póllandi
1988. Hann er búinn 650 hestafla
Catepillar-vél. Báturinn hefur hlotið
nafnið Sæfari ÁR170 og kemur hann
í stað eldri báts með sama nafni.
„Ekki hefur verið ákveðið hvað
verður gert við gamla bátinn,“ sagði
Sigurður Bjarnason, framkvæmda-
stjóri Hafnarness og fyrrverandi
skipstjóri og aflakló til margra ára.
Sigurður sagði ennfremur að með
bátnum hefði fylgt bæði þorsk- og
humarkvóti.
Báturinn er búinn bæði til neta- og
togveiða og mun hann hefja neta-
veiðar einhverja næstu daga. Skip-
stjóri verður Guðmundur Þorkels-
son eins og á gamla Sæfaranum.
Vélstjóri verður Sævar Sigursteins-
son frá Stokkseyri.
* Útivistarfatnaður
* Jakkar - buxur
* Fleece peysur
* Nærfatnaður
* Salomon Goretex
gönguskór
Ármúla 40,
símar 553 5320
568 8860
Iferslunin
Ein stærsta sportvöruverslun landsms
UTSAIA
10-70% staðgreiðsluafsláttur af öllum vörum
pumn^
-
1X4rW
rlLA
* Barnaúlpur ffá kr. 1.900
❖ Úlpur fullorðins frá kr. 3.900
* Skíðahanskar, lúffiir og húfur
* Skíðaskór 10-60% afsláttur
* Sportfatnaður * Skíði frá kr. 3.000
* Aerobic fatnaður
* Sundfatnaður
* íþróttaskór
frá kr. 1.990
cSÐn
SPLIDO