Morgunblaðið - 08.03.2000, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2000 5 7
FOLKI FRETTUM
Brettadagur Vitans í Bláfjölium
Bretti
og boll-
ur í Blá-
fjöllum
ÞAÐ var líf og fjör í Bláfjöllum á
mánudaginn eins og kannski oft áð-
ur þegar geislar sólar ylja kapp-
klæddum skíðagörpum um líkama
og sál. En dagurinn í gær var all-
sérstakur því þá fylklu liði í fjöllin
unglingar úr nokkrum félags-
miðstöðum í Reykjavík vegna svo-
kallaðs brettadags sem félags-
miðstöðin Vitinn í Hafnarfirði stóð
fyrir.
Meðal þess sem var til gamans
gert var stökkkeppni sem allir gátu
tekið þátt í. En þeir sem eru ekki
höfðu áhuga á brettum gátu mætt
með skíðin, snjóþotuna eða jafnvel
plastpoka og þeyst niður brekkurn-
ar!
Það var síðan bflskúrshljómsveit-
in Egosmile sem spilaði á staðnum
svo undirtók í fjöllunuin og naut
fulltingis plötusnúða til verksins.
Sá sem sigraði í stökkkeppninni
var Markús Óskarsson og í öðru
sæti hafnaði Þorleifur Thorlacius.
Kappinn Orri Karlsson var íþriðja
sæti en þeir þrír þóttu sýna ótrú-
lega góða takta í brekkunni.
En það er öllum ungmennum
hollt að neyta heilsusamlegrar
fæðu og þótt hitaeiningarnar í boll-
unum hans Jóns Árelíussonar köku-
meistara séu eflaust ófáar fannst
unglingunum þær einkar girnileg-
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Það voru sýndir frábærir taktar í Bláfjöllum.
Markús Óskarsson varð í fyrsta sæti, Þorleifur Thorlacius í öðru sæti og
Orri Karlsson í þriðja sæti, í snjóbretta-stökkkeppninni.
I Ioftköstum.
Gunnar Bergmann Gunnai’sson, Bergur Ingi Pétursson, fvar Örn Haralds-
son, Margeir Ásgeirsson og Bjöm Viðar Björnsson gæddu sér á bollum.
w
fí>~
'
Allt um Formúlu-1 á mbl.is
o Nýjustu úrslitin
o Úrslit fyrri móta
□ Staðan í stigakeppni
o Keppni bílsmiða
□ Upplýsingar um hvert lið
□ Upplýsingar um ökuþóra
□ Myndir af ökuþórum,
bílum og hjálmum.