Morgunblaðið - 28.03.2000, Page 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 28. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Vegleg íþrdttamannvirki, skautahöll
og skíðaskáli tekin í notkun
Festir bæinn
í sessi sem
miðstöð vetrar-
íþrótta á Islandi
Morgunblaðið/fgígja
Liðtæk
lögga
ÞAÐ keraur fyrir bcstu menn að
læsa bíllyklana inni í bflum sínum
og þá er gott að geta leitað til Iög-
reglunnar sem jafnan bregst við
bðn borgaranna um að opna bif-
reiðamar. Þarna hefur laganna
þjðnn á Dalvík bmgðist vel við og
er í óða önn að opna bflinn svo eig-
andinn geti komist ferða sinna.
AKUREYRINGAR opnuðu form-
lega tvö íþróttamannvirki um helgina
og var mikið um dýrðir af því tilefni.
Annars vegar var opnaður nýr
skíðaskáli í Hlíðarfjalli, Strýta, og
hins vegar skautahöll á svæði Skauta-
félags Akureyrar við Krókeyri.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
opnaði skíðaskálann formlega við at-
höfn á laugardag. Húsið, sem er rúss-
neskt bjálkahús er á þremur hæðum,
alls um 340 fermetrar að stærð. A
efstu hæðinni hefur Skíðaráð Akur-
eyrar aðstöðu og þar fer tímataka í
skíðamótum einnig fram. Veitinga-
salur með eldhúsi er á hæðinni en í
kjallara eru salemi og geymslur.
Húsið leysir af hólmi eldra hús sem
stóð á sama stað og var rifið í fyrra.
Hafist var handa við byggingu skál-
ans síðasta sumar, en kostnaður við
bygginguna er um 30 milljónir króna.
Skautahöllin var einnig tekin í
notkun á laugardag við hátíðlega at-
höfn. Forseti íslands, hr. Olafur
Ragnar Grímsson opnaði skautahöll-
ina formlega. „Skautahöllin er ein-
stakt mannvirki sem festir enn frekar
í sessi stöðu Akureyrar sem mið-
stöðvar vetraríþrótta á Islandi. Hún
skapar heimafólki og góðum gestum
nýja aðstöðu til að efla skautaíþróttir
af öllu tagi og efna hér til sýninga og
viðburða sem vekja munu athygli og
aðdáun um landið allt. Heimur
íþrótta og menningar stækkar stór-
um með þeim góðu kostum sem hér
munu bjóðast um langa framtíð. Ég
óska Akureyringum og þjóðinni allri
til hamingju með glæsilegt mannvirki
og nýjan áfanga í íþróttasögu Islend-
inga,“ sagði forsetinn í ávarpi sínu.
Hann sagði skautahöllina veglega
viðbót við þau mannvirki sem gert
hefðu Akureyri að miðstöð vetrar-
íþrótta Islendinga og það væri sér því
bæði heiður og ánægja að opna hana
formlega.
Við athöfnina lék blásarasveit
Tónlistarskólans á Akureyri nokkui-
lög og Om Viðar Birgisson söng ís-
lenska þjóðsönginn. Ungt listdanspar
frá Bretlandi, Rebecca Corn og
Richard Rowlands sýndu listdans á
skautum og félagar úr Skautafélagi
Reykjavíkur sýndu dansatriði.
Yngstu krakkamir léku íshokkí og fé-
lagar úr hestamannafélaginu Létti
fóru í hópreið á ísnum.
Sr. Birgir Snæbjömsson fyrrver-
andi sóknarprestur flutti blessunar-
orð og þá fluttu ávörp þeir Ásgeir
Magnússon formaður framkvæmda-
nefndar, Þórarinn B. Jónsson for-
maður íþrótta- og tómstundaráðs,
Magnús E. Finnsson formaður
Skautafélags Akureyrar, Tómas Ingi
Olrich alþingismaður, Ellert B.
Schram forseti íþrótta- og Ólympíu-
sambands Islands og Kristján Þór
Júlíusson bæjarstjóri á Akureyri.
Ffkniefnamálið
Þremur
sleppt
ÞREMUR mönnum, sem setið
hafa í gæsluvarðhaldi vegna
rannsóknar á fíkniefnamáli sem
upp kom fyrir tæpum tveimur
vikum, var sleppt um helgina,
einum þeirra á laugardag og
tveir vora látnir lausir á sunnu-
dag. Einn situr enn í varðhaldi,
en fjórmenningarnir vora úr-
skurðaðir í tveggja vikna
gæsluvarðhald sem rennur út á
morgun, miðvikudag. Talsvert
af fíkniefnum hafa fundist í
tengslum við rannsókn málsins,
en þetta er eitt stærsta og viða-
mesta fíkniefnamál sem upp
hefur komið á Akureyri.
I sóknarhug
ÍMYND EYJAFJARÐARSVÆÐISINS
Hádegisverðarfundur með
Gísla Marteini Baldurssyni, fréttamanni á
Sjónvarpinu, og Guðmundi Oddi Magnússyni,
kennara í ímyndarfræðum við Listaháskóla
íslands, á Fiðlaranum, Skipagötu 14, miðviku-
daginn 29. mars frá kl. 12.00 til 13.00
• Hvaða augum lítur fréttamaðurinn á Eyjafjarðarsvæðið?
• Hefur viðhorf hans til landsbyggðarinnar breyst að undanförnu?
• Hvaða tilfinningu hefur hann fyrir afstöðu kollega sinna?
• Hefur sú kynslóð sem nú er að vaxa úr grasi á höfuðborgar-
svæðinu neikvæða mynd af landsbyggðinni?
•Hvaö segir kennarinn og listamaðurinn um ímynd landsbyggðar-
innar?
• Hversu mikils virði er ímynd svæða?
• Hvernig mótar maður ímynd svæða?
Þetta, og ýmislegt fleira, munu Gísii Marteinn og
Guðmundur Oddur fjalla um og svara spurningum fundarmanna.
Verð kr. 1,000 (léttur hádegisverður innifalinn)
Allir velkomnir
Skráning hjá Atvinnuþróunarfélagi Eyjafjarðar í síma 461 2740
eða á netfangi benedikt@afe.is.
Morgunblaðið/Kristján
Sr. Birgir Snæbjörnsson, fv. sóknarprestur, flutti blessunarorð. Við hlið
hans er Þórarinn B. Jónsson, formaður íþrótta- og tómstundaráðs.
Morgunblaðið/Kristján
Davíð Oddsson forsætisráðherra flutti ávarp og opnaði nýjan skíða-
skála, Strýtu í Hliöarfjalli, að viðstöddu fjölmenni.
Morgunblaðið/Kristján
Corn og Richard Rowlands frá Bretlandi sýndu listdans á skautum við
vígslu skautahallarinnar á Akureyri.
Morgunblaðið/Kristján
Forseti íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, brá sér á skíði í Hlíðarfjalli
á laugardag og sýndi snilldartakta. Hér er hann í góðum félagsskap
þeirra Hermanns Sigtryggssonar, framkvæmdasljóra Vetraríþróttahá-
tíðar ISS, og Krisljáns Þórs Júlíussonar, bæjarsljóra á Akureyri.
Bókaðu í síma $70 30)0 05 460 7000
Fax 570 3001 * websalescDairiceland.is *www.fluffelaf.is
...fljúfðufrekar
FLUGFELAG ISLANDS