Morgunblaðið - 28.03.2000, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ
TIL BLAÐSINS
ÞRIÐJUDAGUR 28. MARS 2000 59
Svar til
Páls Her-
steins-
sonar
Rjúpan og ungarnir hennar 13 í hlaðvarpanum á Skjaldfónn.
Frá Krístbjörgu Lóu Árnadóttur:
ÉG GERI mér ekki alveg grein fyrir
því hvað fer svona fyrir brjóstið á
þér í grein minni frá 24. febrúar sl.
Hvergi í greininni segi ég að þú hafir
haldið því fram að refir héldu sig á
sínum heimaslóðum. Hins vegar má
svo sem lesa það út úr ljóði Indriða
sem ég ætlaði nú eingöngu til að
gleðja lesendur, þar sem mér finnst
ekki of mikið af kveðskap á síðum
dagblaðanna. Því þykir mér þú taka
þessa frétt allt of nærri þér og varla
vert að svara ásökunum þínum í
minn garð.
Vissulega hefði ég getað gert
þessa grein stærri og ýtarlegri en ég
gerði og þá hefði ég sjálfsagt átt að
ræða við þig um málið, en í staðinn
valdi ég að halda mig á minni heima-
þúfu enda tel ég það vera hlutverk
mitt sem fréttaritara staðarins.
Vegna fullyrðingar þinnar um að ég
komi með of margar fréttir af Ind-
riða, vil ég aðeins taka það fram að
miðað við umfang míns umdæmis
sem fréttaritara, sem nær frá Snæ-
fjallaströnd að Steingrímsfjarðar-
heiði þ.e. Nauteyrarhreppur hinn
fomi, reyni ég að skrifa frétt um það
sem gerist, þó það sé af eigin heima-
fólki. Og þykir mér spakmælið „oft
veltir lítil þúfa þungu hlassi“ hafa
sannað sig hér. Hins vegar er þetta
fyrsta fréttin sem ég skrifa um Ind-
riða og tófuveiðar hans. Þykir mér
því undrun sæta hversu vel þú fylg-
ist með skrifum mínum héðan.
Hvað varðar útburð Indriða á æti
skal tekið fram að á þessum tíma
hafði ég aðeins hellt niður soði af
hangikjöti og saltkjöti á hlaðvarpann
ásamt kartöfluskræli og slíku sem til
féll handa smáfuglunum og varla
getur það talist til tófufæðu. En tóf-
an er það soltin að slíkur ilmur laðar
hana greinilega að. Hins vegar tel ég
að hvorki Indriði né aðrir bændur
hér í kring beri út æti fyrir tófu, sem
þeir jú gera, nema þær séu í kring-
um þá í einhverju mæli. Ekki datt
mér í hug að þú værir svo grænn að
halda að tófurnar finndu lykt af æt-
inu alla leið á Homstrandir.
Þó ég sé nýflutt hingað vestur of-
býður mér að heyra og sjá tófur hér
allt um kring jafnt að vetri sem
sumri og það innan um lambféð. Ég
skil vel að bændur vilji vernda búfé
sitt sem þeir hafa viðurværi af. En
það er ekki aðeins búféð sem er í
hættu. I vor sem leið var hér á hlað-
inu nær daglega rjúpa með 13 unga
og tel ég miklar líkur á að hún hafi
verið að leita skjóls undan tófunni.
Öllu vinalegra finnst mér nú að
heyra fuglasöng og rjúpnarop en
tófiigagg, spurningin er bara hvort
ég fæ að njóta þess öllu lengur.
KRISTBJÖRG LÓAÁRNA-
DÓTTIR,
fréttaritari Morgunblaðsins
á Skjaldfönn.
Til varnar öryrkjum og
Garðari Sverrissyni
Kennd ergerð og uppsetning auglýsinga
blaða ogbæklinga. Vinnuferlið er rakið. allí
fiá hugmynd að fullunnu verki.
Námiö er 104 klsteða 156 kennslustundir.
J
I
► Myndvinnsla í Photosliop
► Teikning og hönnun í I reelianti
► Umbrot í QuarkXpress
► Ueimasídvigerð í l’rontpage
► Samskipti við prentsmiðjur
og fjölmiðla
► Meðferð leturgerða
► Meðböncllun lita
► Lokaverkefni
Örfá sæti lauis á kvöld- og belgar
námskeiði sem byijar 8. april.
J
Upplýsingar og innritun
i simum 544 4500 og 555 4980
Nýi tölvu- &
viðskiptaskólinn
Hólshrauni 2 - 220 HafnarfirtH - Sfmi: 555 4980 - Fax: 555 4981
Hlíðasmára 9- 200 Kópavogi - Sími: 544 4500 - Fax: 544 4501
Töivupóstfang: skoli@ntv.is - Heimasfða: www.ntv.is
Frá Rúnarí Þór Hallssyni:
ÉG UNDIRRITAÐUR hef undanfar-
ið lesið greinaskrif nokkuira manna í
Morgunblaðinu um Garðar Sverrisson
og forsætisráðherra. Það eru aðstoð-
armaðm’ forsætisráðherra og fleiri
sem hafa skrifað þær. Aðstoðarmað-
urinn þarf greinilega að lesa sér betur
til um kjör öryrkjanna og fá 4 út úr
2x2 áður en að hann fer að veija yfir-
mann sinn. Hann myndi þá kannski
skilja hvers vegna við öryrkjamir teij-
um okkur fá hungurlús og þaðan af
minna frá Tryggingastoftiun.
Til upplýsingar þessum blessaða
manni skal ég segja honum og öðrum
sem áhuga hafa á frá mínum kjörum
í dag. Undirritaður hefur um 36.000.-
á mánuði auk 5.000,- fyrir bensíni
svo að hann geti farið um bæinn. Af
hverju ætli ég, undirritaður, fái ekki
meiri styrk frá Tryggingastofnun?
Jú, ég er nefnilega giftur. Ef ég væri
ógiftur fengi ég um 56.000 krónur á
mánuði auk fimm þúsund króna fyrir
bensíni.
Ég hef aldrei skilið hvers við hjón-
in eigum að gjalda fyrir að vera gift.
Það er engin furða að Garðari og
fleirum gremjist þegar forsætisráð-
herrann og ýmsir aðrir, meðal ann-
ars fólk innan Tryggingastofnunar,
halda því fram að við séum ágætlega
settir með það sem við fáum.
Til frekari upplýsingar fyrir að-
stoðarmanninn skal ég geta þess að
fjölmargir, þæði öryrkjar og aðrir,
njóta miklu verri kjara en ég. Og enn
vil ég segja honum að ég er einn af
þeim heppnu í þessum hópi, ég hef
ekki verið öryrki nema þrjú ár og
verð ekki nema til æviloka, en fullt er
af öryrkjum sem hafa verið það
meiri hluta ævinnar og haft lúsar-
kjör vegna lélegra forystumanna í
þeirra hópi og slakra þingmanna.
Núna fyrst kemur bardagajálkur
fram á sjónarsviðið sem þorir að tjá
sig og stinga á kýlunum, en þá á að
drepa hann niður með orðagjálfri.
Við þig Davíð vil ég segja þetta:
Þú, sem ert næstum því landsfaðir
þjóðarinnar, átt ekki að haga þér
svona við þá sem eru minnimáttar í
þjóðfélaginu. Það sæmir þér ekki. Þú
og Garðar eigið að taka höndum
saman og bæta kjör þeirra verst
settu og hætta þessu karpi og fýlu.
Mér dettur í hug Kai-vel Pálmason
sem reif kjaft á Aiþingi og Bjami
Guðnason sem kallaði þingmenn
einu nafni „rumpulýð". Þeir voru
báðir lamdir niður með harðri hendi
af samþingmönnum. Við aðra þing-
menn vil ég segja þetta: I fljótu
bragði man ég eftir þremur þing-
mönnum og einum ráðherra sem
ekki hafa staðið við yfirlýsingar sín-
ar vegna þeirra minnstmegandi.
Þið ættuð ekki að fara fram sem
þingmenn aftur, þið hafið ekkert
þarna að gera. Menn eiga nefnilega
að standa við það sem þeir segja.
RÚNAR ÞÓR HALLSSON,
Búðavegi 47A, Fáskrúðsfirði.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endui'birtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Það er fullt af skemmtilegum
tækifæru
*
Með því að nota TREND naglanæringuna
færðu þinar eigin neglur sterkar og heilbrigðar
svo þær hvorki klofna né brotna.
' teygjanlegri, þéttari húð.
Sérstaklega græðandi.
EINSTÖK GÆÐAVARA
lilEHD
Fást í apótekum og snyrti- k ” , * >
vöruverslunum um land allt. v J
Ath. naglalökk frá Trend fást í tveimur stærðum
Vor naglalökkin eru komin i 6 nýjum bláum litum
Þýskar förðunarvörur
Ekta augnahára- og augnabrúnalitur,
er samanstendur af litakremi og geli
sem blandast saman, allt (einum
pakka. Mjög auðveldur í notkun,
fæst í þremur litum og gefur frábær-
an árangur. Hver pakki dugir í 20
litanir.
Útsölustaðir: Apótek og
L . snyrtivöruverslanir
ATH. nú! Frá Tana Maskara Stone (Köku-maskaril. Þessi (svarti) gamli
góði með stóra burstanum. Uppl. í smáblaði sem fylgir augnbrúnalitnum.
Frábærar vörur á frábæru verði
Vatnsþynnanlegt vax- og
hitatæki til háreyðingar. Vaxið
má einnig hita í örbylgjuofni.
Einnig háreyðingarkrem,
„roil-on“ eða borið á með
spaða frá
byly
Laboratorios bylv: S.A.
Útsölustaðir: Snyrtivöruverslunin Nana, Rvík, Hringbrautar Apótek, Rima Apótek,
Grafarvogs Apótek, Lyf & heilsa, Alfabakka, Lyf & heilsa, Háteigsvegi 1,
Borgarapótek, Álftamýri, Fína Mosfellsbæ, Sauðárkróks Apólek, Stykkishólms
Apótek, Finar Línur, Vestmannaeyjum, Árnesapótek, Selfossi.
Dreifing: S. Gunnbjörnsson ehf. Sími 565 6317