Morgunblaðið - 31.03.2000, Qupperneq 67
MORGUNBLAÐIÐ
________________________________FÖSTUDAGUR 31. MARS 2000 67
FRÉTTIR
Úrslit í spurn-
ingakeppni
átthagafélaga
HINNI árlegu spumingakeppni átt-
hagafélaga í Breiðfirðingabúð lýkur á
laugardaginn kl. 20. Þetta er í þriðja
sinn sem keppnin fer fram og eins og
í fyrri skiptin þá er Ragnheiður Erla
Bjamadóttir dómari og höfundur
spm-ninga.
Alls hafa 14 átthagafélög tekið þátt
í keppninni og slðastliðið sunnudags-
kvöld komust 4 félög áfram og keppa
í úrslitakeppninni á laugardagskvöld-
ið 1. apríl. Það em félög Svarfdæl-
inga, Skagfirðinga, Húnvetninga og
Breiðfirðinga. Svarfdælingar sigmðu
í keppninni á síðasta ári. Að keppni
lokinni verður lokahóf í Breiðfirð-
ingabúð þar sem öll átthagafélögin
sem að keppninni stóðu gera sé glað-
an dag og stiginn verður dans.
----------------------
Rætt um ástand
í Júgoslavíu
REYKJAVÍKURFÉLAG Vin-
strihreyfingarinnar - græns fram-
boðs boðar til fundar laugardaginn 1.
apríl kl. 11 árdegis þar sem rætt
verður ástand mála í Júgóslavíu eftir
loftárásir Nató og undir viðskipta-
banni sem enn stendur. Fundurinn
verður haldinn í húsnæði VG á Lækj-
artorgi, Hafnarstræti 20,3. hæð.
Framsögu hefur Ivan Rakic, dýra-
læknir frá Júgóslavíu, en hann heim-
sótti Belgrad um síðustu jól og ára-
mót. Ivan mun lýsa ástandinu og því
hvernig fólki gengur að lifa af. Að
loknu innleggi Ivans gefst færi á fyr-
irspurnum.
Túlkað verður á íslensku eftir því
sem þörf krefur.
Fundarstjóri: Guðbjörg Sveins-
dóttir hjúkranarfræðingur.
Hljómsveitin Mínus varð sigurvegari í Músíktilraunum 1999.
Úrslitakvöld
Músíktilrauna
ÚRSLITAKVÖLD Músíktilrauna
Tónabæjar og ÍTR fer fram í
Tónabæ í kvöld, föstudagskvöld
31. mars en Músíktilraunir eru ár-
legur viðburður í tónlistarlífi
landsmanna og er þetta í 18.
skiptið sem þær eru haldnar.
Þær átta hljómsveitir sem
komnar eru í úrslit eru: Manna-
múll frá Mosfellsbæ, Diktra frá
Garðabæ, Snafu frá Reykjavík,
Búdrýgindi frá Kópavogi, 110
Rotweiier hundur frá Reykjavík,
Elxír frá Garðabæ, Frír bjór frá
Reylqavík og Auxpan frá Kópa-
vogi. Að auki munu 2-3 hljóm-
sveitir frá tilraunakvöldi 4 sem
fram fór í gær leika á úrslita-
kvöldinu.
Gestasveit á úrslitakvöldinu er
Botnleðja sigurvegari Músíktil-
rauna 1995.
LEIÐRÉTT
Rangur myndatexti
í frétt í blaðinu í gær var sagt frá
viðurkenningu Staðardagskár 21 til
fjögurra sveitarfélaga. í myndatexta
var Hulda Steingrímsdóttir sögð vera
á myndinni en þetta var Steinunn
Guðnadóttir, bæjarfulltrúi í Hafnar-
firði og formaður stýrihóps um Stað-
ardagskrá. Beðist er velvirðingar á
mistökunum.
Vitleysaítöflu
í töflu sem birtist með frétt um
lækkanir á þjónustu Landssímans
birtist rangt upphafsgjald símtals.
Upphafsgjaldið lækkai- úr 3,32 kr. í
3,20 kr. Þá mátti skilja í megintextan-
um að tekjur Landssímans ykjust um
1.090 milljónir kr. á árinu ef öll hækk-
un á fastagjaldi kæmi strax fram en
hið rétta er að tekjuaukinn nemur
framantaldri upphæð á ársgrundvelli.
I hvaða flokki?
Bandaríski öldungadeildarþing-
maðurinn Robert Torricelli er ýmist
kallaður repúblikani eða demókrati í
Morgunblaðinu í gær. Hið rétta er að
hann er demókrati. Beðist er velvirð-
ingar á þessu.
Rætt um
velferð og
einkavæðingu"
FJÓRÐA laugardagskaffi Samfylk-
ingarinnar í Reykjavík frá áramót-
um verður haldið á Sólon íslandus
laugardaginn 1. apríl kl. 11. Þar
verður rætt um samspil velferðar og
einkavæðingar.
Málshefjendur í laugardagskaff-
inu verða þau Hörður Bergmann og
Bryndís Hlöðversdóttir. Síðan verða
almennar umræður. Fundarstjóri
verður Hólmfríður Garðarsdóttir.
Laugardagskaffið er öllum opið.
Enski boltinn á Netinu
ýj> mbl.is
-ALLTA/= EITTH\SAO NÝTT
Styrkja hirðingja í Mongólíu
RAUÐI kross íslands hefur sent
eina milljón króna til hjálparstarfs
meðal hirðingja í Mongólíu, en þar
ríkir nú neyðarástand vegna harð-
indaveturs sem fellt hefur 1.7 milljón
búfjár. Framlagið er til viðbótar
200.000 krónum sem veittar vora
strax eftir að neyðarbeiðni barst
fyrst í febrúar.
Að sögn Alþjóða Rauða krossins
eiga tæplega 400.000 manns í vök að
verjast. Hirðingjar á sléttum
Mongólíu era algjörlega háðir búfén-
aði sínum og þegar kindur, kýr og
hestar falla úr hor blasir hungur við
eigendum þeirra.
Starfsmenn og sjálfboðaliðar
Mongólska Rauða krossins hafa
ferðast hundrað kílómetra undan-
farna daga til að ná til fólks í af-
skekktum héraðum landsins. Vonast
er til að koma mat á næstu vikum til
35.000 manna sem verst eru staddir.
Að auki er ráðgert að koma til
þeirra kuldaskóm, sem mikil þörf er
á.
Falleg fermingargjöf
lífstíðareigní
SWAROVSKI
m
Mikið úrval
af hinum heimsþekktu
SWAROVSKI skartgripum
Silfurkristalskrossinn
Kr: 8.850.*
M
Kringlunnl - Faxafeni
OZ. Íslandssími ericsson $
h e i m s m ó t:
í s k á k Chess lceland
1.og 2. apríl í Salnum, tónlistarhúsi Kópavogs
Mótið hefst kl. 13.00 báða dagana
Bein útsending á (T) SKJÁ EINUM - Netútsendingar á strikfS og chess.is