Morgunblaðið - 26.04.2000, Síða 2

Morgunblaðið - 26.04.2000, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Félagsmálaráðuneytið um fjárhags- áætlun Reykjavíkurborgar Ekki í samræmi við ákvæði sveit- ar stj ór narlaga FELAGSMALARAÐUNEYTIÐ hefur komist að þeirri niðurstöðu að fjárhagsáætlun Reykjavíkur- borgar sé ekki í samræmi við 5. mgr. 61. greinar' sveitarstjórnar- laga þar sem henni fylgi ekki áætl- un um efnahag í upphafi og lok árs. Þetta kemur fram í svari ráðuneyt- isins við erindi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar borgarfulltrúa sem óskaði eftir úrskurði ráðuneytisins um hvort fjárhagsáætlun borgar- innar bryti gegn sveitarstjórnar- lögum að þessu leyti. Vildu ekki sýna skuldaaukn- ingu borgarinnar? Guðlaugur Þór sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að félagsmála- ráðuneytið hefði nú staðfest það sem hann hefði haldið fram að borgarstjóri hafi ekki farið að lög- um við gerð fjárhagsáætlunar. „Eg tel að ástæðan fyrir því að borgar- stjóri gerði það ekki hafi verið sú að hún vildi ekki sýna fram á þá aukn- ingu sem orðið hefur á skuldum borgarinnar," segir Guðlaugur Þór. „Borgarstjóri hélt því fram fyrir síðustu kosningar að hún hefði náð tökum á fjármálum borgarinnar en það er ekki rétt. Ef við skoðum fer- ilinn kemur í Ijós að hún hefur auk- ið skuldir borgarinnar að meðaltali um sjö milljónir króna á hverjum degi. Það er sérkennilegt að þetta gerist á sama tíma og hún heldur því fram að hún hafi náð stórkost- legum árangri í fjármálastjórn," sagði hann. Guðlaugur sagði meginatriði málsins að réttar upplýsingar væru lagðar fram fyrir borgarbúa. „Ef skuldaaukning á sér stað eiga borg- aryfirvöld að gangast við því og út- skýra af hverju það er. Það er óþol- andi í lýðræðisríki að það liggi ekki fyrir staðreyndir um hvort skuldir eru að aukast eða minnka,“ sagði Guðlaugur Þór. Ráðuneytið ætlar að herða kröfurnar á næsta ári í niðurstöðu lögfræðings félags- málaráðuneytisins segir að ljóst sé af gögnum málsins að í fjárhags- áætlun Reykjavíkurborgar fyrir ár- ið 2000 sé ekki að finna áætlun um efnahag í upphafi og lok árs og það sé ekki í fullu samræmi við ákvæði sveitarstjórnarlaga. „Ljóst er einn- ig af fjárhagsáætlunum annarra sveitarfélaga sem borist hafa ráðu- neytinu að ekki eru þær allar í sam- ræmi við umrætt lagaákvæði. Hins vegar hefur ráðuneytið hingað til ekki talið ástæðu til að telja þessar fjárhagsáætlanir ógild- ar af þeirri ástæðu einni að ekki sé í áætlunum að finna áætlun um efna- hag í upphafi og lok árs. Ráðuneyt- ið hefur talið eðlilegt að veita sveit- arfélögum svigrúm til að aðlagast hinum nýju lagaákvæðum. Búast má þó við að ráðuneytið herði kröf- urnar strax á næsta ári, enda verða sveitarstjórnir þá að afgreiða þriðju fjárhagsáætlunina frá því að sveitarstjórnarlög nr. 45/1998 tóku gildi,“ segir í niðurstöðu ráðuneyt- isins. Fram kom í umsögn borgar- stjórnar til ráðuneytisins vegna málsins að unnið væri að endurbót- um á upplýsingakerfi borgarinnar og vinnulagi og framsetningu við fjárhagsáætlun. Stefnt væri að því að í frumvarpi að fjárhagsáætlun fyrir árið 2001 yrði áætlun um efna- hag í upphafi og lok árs bæði fyrir borgarsjóð og þau fyrirtæki sem Reykjavíkurborg á eignarhlut í. Ljósmynd/Ingþór Bjamason Óhætt er að fullyrða að Haraldur hafi brugðið sér á skíði um páskana eins og margir landsmenn auk þess sem hann iðkaði fleiri páskasiði eins og þann að borða páskaegg sem Ingþór færði honum. Einn í auðninni HARALDUR Örn Ólafsson pólfari hélt kyrru fyrir úti á ísnum á skírdag og beið komu Twin Otter- skíðaflugvélar First Air sem færði honum nýjar birgðir og búnað, en gamli búnaðurinn var úr sér genginn. Ingþór Bjarnason var með í fórinni og færði félaga sínum ýmislegt góðgæti og hlýjar kveðjur frá vinum og vandamönnum. Haraldur hef- ur nú Iagt að baki tæpa 500 km á leið sinni en fram- undan eru varasöm vakasvæði að sögn Svía sem komust á pólinn á föstudaginn langa. ■ Vakir hættulegar/20-21 Flugvirkjar hjá Flug- félaginu samþykktu FLUGVIRKJAR hjá Flugfélagi íslands hafa samþykkt nýgerðan kjarasamning með nítján atkvæð- um, einn seðill var ógildur en þrír félagsmenn vildu fella samninginn. Allir starfsmenn tóku þátt í at- kvæðagreiðslunni. Að sögn Emils Eyjólfssonar, formanns samninganefndar, er þar með fallið frá boðuðu verkfalli. í dag er boðað til sáttafundar í deilu 156 flugvirkja hjá Flugleið- um sem felldu sína samninga. Sagðist Emil ekki eiga von á að samningur flugvirkja hjá Flugfé- lagi íslands myndi hafa bein áhrif á þær viðræður. Tveir ólíkir samningar „Við reynum að vinna þá samn- inga alveg sjálfstætt," sagði hann. „Samningurinn við Flugfélagið er allt annars eðlis en sá sem felldur var við Flugleiðir. Flugvirkjar hjá Flugfélaginu vinna allir á vöktum þannig að vinnuumhverfið er allt annað í Reykjavík en í Keflavík og tekið á öðrum þáttum. Það er svo margþætt starfsemi sem fram fer hjá Flugleiðum og unnið á mis- munandi vöktum og meðal annars við viðhald fyrir erlend flugfélög. Það er mun auðveldara að semja fyrir einn vinnustað en vinnustað með fjölbreyttri starfsemi. Það er léttir fyrir samningamenn að geta einbeitt sér að öðrum viðræðum og við erum á réttri leið, því samning- arnir eru sambærilegir að öðru leyti.“ Samninganefnd farmanna var á fundi hjá ríkissáttasemjara í gær og stóð fundurinn fram á kvöld. Annar fundur er boðaður eftir há- degi í dag. Uppselt á tónleika Cesaria Evora MIÐAR á tónleika söngkonunnar Cesaria Evora frá Grænhöfðaeyj- um á skemmtistaðnum Broadway 29. maí seldust upp á tveimur og hálfri klukkustund í gær, en þá hófst miðasala á viðburði Listahá- tíðar í Reykjavík árið 2000. Alls voru um 600 miðar í boði. Sveinn Einarsson, formaður stjómar Listahátíðar, segir miða- söluna hafa farið óvenju vel af stað. Fólk hafi verið farið að bíða íyrir utan Upplýsingamiðstöð ferða- mála, þar sem miðasalan fer fram, strax klukkan átta um morguninn. Segir hann roksölu á hátíðartón- leika Sinfóníuhljómsveitar Islands, ásamt söngvurunum Kristjáni Jó- hannssyni, Kristni Sigmundssyni, Rannveigu Fríðu Bragadóttur og Sigrúnu Hjálmtýsdóttur, og góð hreyfing sé á miðum á viðburði á borð við leikbrúðusýninguna Don Giovanni og tónleika söngsveitar- innar Ladysmith Black Mambazo frá Suður-Afríku. „Salan er eiginlega framar okk- ar björtustu vonum. Þetta er svo jafnt yfir línuna, svo mörg atriði sem hreyfast. Þetta lofar mjög góðu,“ segir Sveinn. Þegar var orðið uppselt á sýn- ingar San Francisco-ballettsins á Svanavatninu. Sérblöð í dag www.mbl.is sstoub' Heimili SSStoURi SStoUR NETIÐ Windows Forrit Leikir Netslódir DAGSKRÁ Dawsons’s Creek Svona var það ’76 Becker mættur til leiks Tveggja vikna dagskrá 2 ► Teiknimyndasögur • ► Myndir ► Þrautir I ► Brandarar ; ► Sögur • ► Pennavinir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.