Morgunblaðið - 26.04.2000, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 26.04.2000, Qupperneq 4
4 MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Vinnutíminn lengist I APRIL 2000 voru um 6.200 fleiri starfandi á íslenskum vinnumarkaði en í apríl í fyrra. Fór fólki fjölgandi í aldurshópnum 16-54 ára en stóð í stað í elsta hópnum. Þá voru vinn- ustundir fleiri eða 44,2 í viku í ár en voru 43,4 í apríl í fyrra. Atvinnu- þátttakan jókst um 1,3% milli ára og var 83,9% í apríl í ár. Þessar upplýsingar koma fram í vinnumarkaðskönnun Hagstofunn- ar. Þar kemur einnig fram að 1,9% vinnuaflsins var án atvinnu um miðjan apríl sem jafngildir því að um 3.100 einstaklingar hafí verið at- vinnulausir. 3.400 á atvinnuleysisskrá í fyrra I apríl í fyrra var atvinnuleysið 2,2% sem jafngildir því að 3.400 manns hafi verið án vinnu. Mest at- vinnuleysi var í yngsta hópnum, þ.e. 16-24 ára eða 4,1%, og hefur það áð- ur verið raunin í könnunum Hag- stofunnar. Þátttakendur yngri en 70 ára voru spurðir hvort þeir væru skráð- ir atvinnulausir hjá opinberri vinnu- miðlun. Voru samkvæmt því 2.900 á atvinnuleysisskrá um miðjan apríl og var helmingur þess fólks tilbúinn að taka vinnu strax væri hún í boði. Könnunin fór fram dagana 10.-18. apríl og tók til stöðunnar á vinnum- arkaði fyrstu 14 daga mánaðarins. Heildarúrtakið var 4.470 manns sem valið var af handahófi úr þjóð- skrá. Þjóðmenningarhúsið opnað á skírdag s Málverk Asgríms af Jóni forseta afhent húsinu að gjöf Morgunblaðið/Sigurgeir Sjaldséður gestur í Eyjum Helsingi var í heimsókn í Vest- mannaeyjum um páskana. Helsingj- ar eru afar sjaldséðir gestir í Eyj- um og segir Kristján Egilsson, forstöðumaður Náttúrugripasafns Vestmannaeyja, langt siðan það gerðist síðast. Helsinginn er einn á ferð og telur Kristján að hann hljóti að hafa orðið viðskila við gæsahóp- inn á Ieið frá Bretlandseyjum til varpstöðvanna á Grænlandi. Hels- inginn undi hag sínum vel á Dal- tjörninni og þáði brauð og annað góðgæti og var óvenju gæfur. SJÓVÁ-Almennar tryggingar hf. færðu Þjóðmenningarhúsinu mál- verk Ásgríms Jónssonar Iistmál- ara af Jóni Sigurðssyni forseta að gjöf er húsið var opnað á skír- dag. Málverkið hefur aldrei fyrr komið fyrir almenningssjónir en um er að ræða mynd af Jóni sem Ásgrímur Jónsson málaði árið 1911 í tilefni af hundrað ára af- mæli forsetans. Myndin var upphaflega í eigu Ólafs Thors forsætisráðherra og Ingibjargar konu hans og hékk á vegg í skrifstofu Ólafs í Garða- stræti. Þegar Ólafur lést eignuð- ust Pétur Benediktsson og Marta kona hans, dóttir Ólafs, myndina. Var hún alla tíð á skrifstofu Péturs á heimili hans og Mörtu. Sjóvá-AImennar tryggingar hf. hafa keypt myndina og gefíð hana Þjóðmenningarhúsinu, eins og áður sagði. Fjölmenni var við opnun Þjóð- menningarhússins á síu'rdag en Davíð Oddsson forsætisráðherra sagði við það tækifæri húsið fyrst og síðast vera helgað þjóðinni allri, menningu landsins og sögu þess. ■ Hús með sál/32 Morgunblaðið/Jim Smart Stúdentaráð kærir í fyrsta skipti til áfrýjunarnefndar STÚDENTARÁÐ Háskóla íslands hefur í fyrsta skipti kært til áfrýjun- arnefndar í kærumálum háskóla- nema. Kært er vegna þess að prófi í hjúkrunarfræði var breytt eftir að það var lagt fyrir en það varð til þess að nemandi komst ekki áfram. Þess er krafist að nemandanum verði heimilað að hefja nám á 2. misseri. Málið snýst um nemanda sem tók þátt í samkeppnisprófum í hjúkrun- arfræði á haustönn. Kennarar og prófdómarar breyttu innra vægi eins prófsins eftir að það var lagt fyrir, með því að taka út einstakar spurn- ingar. Fyrir breytingamar var við- komandi nemandi meðal þeirra 69 sem komist hefðu áfram. Breyting- arnar gerðu það hinsvegar að verk- um að hann komst ekki áfram. Málið hefur verið tekið íyrir í Námsbraut í hjúkrunarfræði og þar var kröfúm nemandans hafnað. Há- skólaráð úrskurðaði á sama veg. Stúdentaráð krefst þess í kæru til áfrýjunamefndar að viðkomandi nemanda verði heimilað að hefja nám á 2. misseri eins og hinum 69 sem hleypt var í gegn. „Hér var al- gjörlega vikið frá þeirri mikilvægu meginreglu að nemendur viti vægi spuminga í prófi, enda vora nem- endur að svara spurningum sem í raun giltu ekki neitt. Það er grand- vallarkrafa að nemendur geti treyst því að þau próf sem lögð era fram ráði úrslitum um einkunnir og þar með niðurstöður samkeppnisprófa. Engar heimildir era í reglum Náms- brautar í hjúkranarfræði né Háskól- ans til að beita aðferðum sem þess- um. Jafnræðis var ekki gætt,“ segir í frétt frá Stúdentaráði Háskóla ís- lands. Andlát STEIN GRÍMUR ST. TH. SIGURÐSSON STEINGRÍMUR Stef- án Thomas Sigurðsson, hstmálari og rithöf- undur, varð bráð- kvaddur í Bolungarvík föstudaginn 21. apríl sl. á 75. aldursári. Stein- grímur fæddist á Ak- ureyri 29. aprfl 1925. Foreldrar hans vora Halldóra Ólafsdóttir húsmóðir og Sigurður Guðmundsson skóla- meistari á Akureyri. Steingrímur ólst upp á Akureyri og varð stúdent frá Mennta- skólanum á Akureyri árið 1943, þá átján ára. Eftir stríð lá leið hans til Englands þar sem hann stundaði enskunám í University College í Nottingham á áranum 1946-1947 og nám í enskum bókmenntum í Leeds University á ái-unum 1947-1948. Hann lauk cand. phil.-prófi frá Há- skóla Islands ái'ið 1949 og stundaði nám í St. Peters’ Hall í Oxford árið 1956 og í Edinborg árið 1959. Steingrímur kenndi við Mennta- skólann á Akureyri strax að loknu stúdentsprófi eða á áranum 1944- 1946 og síðar á áranum 1954-1960. Hann var einnig blaðamaður á Tím- anum árið 1948 og ritstýrði og gaf út tímaritið Líf og list á áranum 1950- 1952. Hann hélt áfram að stunda blaðamennsku, m.a. á Vísi, og rit- störf á áranum 1961 til 1966 en eftir það helg- aði hann líf sitt nær ein- göngu myndlistinni. Fyrstu málverkasýn- inguna hélt hann árið 1966 og hélt yfir hundr- að einkasýningar bæði hér á landi og erlendis. Síðustu sýninguna hélt hann í Bolungarvík á þessu ári og var sú sýn- ing 108. einkasýning hans. Eftir Steingrím liggja sex rit; Skamm- degi í Keflavík, frá ár- inu 1954, Fórar, ritsafn, frá sama ári, Sjö sögur, smásagnasafn, frá ár- inu 1958, Spegill samtíðar, frá árinu 1967, Ellefu líf, saga um lífshlaup Brynhildar G. Bjömsson, frá árinu 1983, og Lausnarsteinn, ævisaga, frá árinu 1998. Þá þýddi hann fjölda greina, m.a. í blöð og tímarit. Steingrímur kvæntist Guðrúnu Bjarnadóttur meinatækni árið 1956. Þau skildu. Hann var í sambúð með Margréti Ásgeirsdóttur, loftskeyta- manni og símritara, í sjö ár. Þau eignuðust þrjú börn: Steingrím Lár- ents Thomas, f. 1962, Jón Jón Thom- as, f. 1964, og Halldóra Maríu Mar- gréti, f. 1966. Útför Steingríms fer fram frá Landakotskirkju laugardaginn 29. apríl kl. 14.00. BÆNDASAMTÖKIN hafa nú til skoðunar hvort og þá með hvaða hætti hægt er að gera breytingar á tryggingum bænda í kjölfar dóms Héraðsdóms Reykjavíkur í desem- ber á síðasta ári, sem Hæstiréttur staðfesti í síðustu viku, um að Sjó- vá-Almennar tryggingar hf. teldist ekki skaðabótaskylt vegna alvarlegs vinnuslyss sem bóndi úr Norður- árdal varð fyrir árið 1997. Bændasamtökin gerðu á síðasta ári samning um tryggingar bænda við Vátryggingarfélag íslands (VÍS) en að sögn Jóhanns Ólafssonar, starfsmanns Bændasamtakanna, hefðu þær tryggingar sem tilheyra samkomulaginu að öllum líkindum ekki tekið til vinnuslyss eins og þess sem umræddur bóndi varð fyrir. Því hefðu farið fram lauslegar viðræður við fulltrúa VIS um breytingar á tryggingarskilmálum samningsins. Umræddur bóndi, sem er rúm- lega fertugur, var í heyskap á drátt- arvél með heybindivél driftengda aftan í þegar slysið varð. Tildrögin vora þau að hann fór út úr dráttar- vélinni til að huga að búnaði hey- bindivélarinnar en hrasaði við vél- ina með þeim afleiðingum að hann festi annan handlegg í vélinni svo af tók um öxl. Höfðaði hann skaðabótamál á hendur tryggingafélagi sínu, Sjóvá- Almennum, og fór fram á bætur á grandvelli þeirrar vátryggingar sem ökumaður naut samkvæmt 92. gr. umferðarlaga. Hæstiréttur komst hins vegar að þeirri niður- stöðu að sá þáttur í starfi mannsins að stíga niður af dráttarvélinni hafi ekki lotið að stjórn dráttarvélarinn- ar sem vélknúins ökutækis í merk- ingu 92. gr. umferðarlaga. Þá væri einnig til þess að líta að meiðsl hans hefðu orðið af völdum sérstaks vinnutækis en ekki dráttarvélarinn- ar sem ökutækis. Margir bændur spara sér slysatrygginguna Jóhann sagði afar ólíklegt að um- ræddur bóndi gæti rekið nýtt og sérstakt mál á grundvelli heimilis- tryggingar. Það væri helst að frek- ari málarekstur væri hugsanlegur ef bóndinn hefði verið með slysa- tryggingu en því væri væntanlega ekki að skipta fyrst ekki hefði reynt á það í málinu. Að sögn Jóhanns eru ekki allir bændur aðilar að samningnum við VIS, sem gerður var að loknu út- boði, en þeim stendur hins vegar til boða að ganga inn í þetta samkomu- lag og sagði Jóhann reynsluna þá að iðgjald bænda hefði lækkað í kjöl- farið. Hann sagði ennfremur að bænd- um hefði lengið staðið til boða að kaupa sérstaka slysatryggingu fyrir sig og sína nánustu, og m.a. væri slík trygging hluti af samkomulag- inu við VIS. Hins vegar tækju margir bændur þann kost að spara sér þennan kostnað enda væri ið- gjaldið vegna slysatryggingarinnar hátt. * A ofsahraða í Álftafirði ÖKUMAÐUR var stöðvaður á 156 km hraða í Álftafirði í gær. Að sögn lögreglu er einbreitt bundið slitlag á veginum og 90 km hámarkshraði. Viðurlög við þessum hraða er svipting öku- leyfis og 20 þúsund krónur í sekt. Af þessu tilefni vill lögreglan minna á að aukin áhersla verð- ur lögð á þjóðvegaeftirlit í um- dæminu í sumar. Bændasamtökin bregðast við dómi Hæstaréttar Skilmálar trygginga samnings í skoðun
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.