Morgunblaðið - 26.04.2000, Side 13

Morgunblaðið - 26.04.2000, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2000 13 FRÉTTIR Félag íslenskra sjúkraþjálfara sextíu ára í dag Starfssvið nær til andlegra og líkam- legra þátta í DAG eru nákvæmlega sextíu ár síðan Félag íslenskra sjúkraþjálf- ara var sett á laggirnar en frum- kvæði að því var í höndum átta ís- lenskra kvenna sem höfðu lært sjúkraþjálfun og nudd. Síðan þá hefur félagsmönnum fjölgað um íúmlega 400 og eru flestir þeirra starfandi sem sjúkraþjálfarar eða um 370. Starfa þeir á rúmlega 100 vinnustöðum víða um land. Um það bil 52% þeirra eru sjálfstætt starf- andi, um 45% starfa á sjúkrahúsum og öðrum heilbrigðisstofnunum og um 3% við sjúkraþjálfun á öðrum vettvangi. Sjúkraþjálfarar fást m.a. við greiningu og meðferð fólks með ým- is einkenni sem tengjast truflun á hreyfigetu og stafa af sjúkdómum, slysum eða röngu álagi til dæmis á vinnustað en starfssvið þeirra er sí- fellt að víkka og tekur nú til and- legra þátta sem og líkamlegra. Um það vitnar Valgerður Gunnarsdóttir menntaskólanemi sem lenti í alvar- legu skíðaslysi í Bad Hofgastein i Austurríki um miðjan janúar sl. Valgerður hryggbrotnaði og hlaut önnur slæm meiðsl er hún hafnaði á skúr í skíðabrekku að lokinni æf- ingu með Skíðaliði Reykjavíkur en hún hefur verið í endurhæfingu á Grensásdeild Sjúkrahúss Reykja- víkur síðustu þrjá mánuðina. Endurhæfingin hefur m.a. gengið út á styrktaræfingar fyrir vöðva í neðri hluta líkamans en sömuleiðis sagði hún, í samtali við Morgun- Morgunblaðið/Jim Smart Valgerður Gunnarsdóttir með sjúkraþjálfara sínum Friðriki E. Jónssyni. blaðið í gær, að sjúkraþjálfunin að takast á við einn dag í einu. Áður hefði veitt henni mikinn andlegan hefði henni legið mikið á að láta sér styrk. Þar hefði hún fengið andlega batna og stundum orðið svolítið uppörvun en um leið styrk til þess óþolinmóð. „Ég er ánægð með Morgunblaðið/Kristinn Sjúkraþjálfararnir Valgeir Sigurðsson (t.h.) og Trausti Hrafnsson. hvernig þetta hefur allt gengið,“ segir hún í samtali við Morgunblað- ið en að sögn sjúkraþjálfara hennar, Friðriks E. Jónssonar, tekur hún stöðugt framförum. Starfsheitið lögverndað I afmælisriti Félags íslenskra sjúkraþjálfara kemur m.a. fram að félagið hafi frá upphafi reynt að koma hugmyndafræði sjúkraþjálf- unar inn í heilbrigðisþjónustuna og jafnframt barist fyrir hagsmunum sjúkraþjálfara og bættum kjörum þeirra. „Á undanförnum árum hef- ur verið lögð mikil áhersla á rann- sóknir í sjúkraþjálfun og að sjúkra- þjálfarar geti sannað gildi þeirrar þjónustu sem þeir veita.“ Félagið beitti sér m.a. fyrir þvi að lög væru sett um sjúkraþjálfun, í fyrsta sinn árið 1962, og er nú starfið og starfs- heitið lögverndað og þeim einum heimilt að stunda sjúkraþjálfun á íslandi sem fengið hafa til þess leyfi frá heilbrigðisráðherra. Eins og komið hefur fram starfa sjúkraþjálfarar m.a. við greiningu og meðferð á fólki með stoðkerfis- vandamál en forvörn er einnig mik- ilvægur þáttur í starfi þeirra. Val- geir Sigurðsson og Trausti Hrafnsson eru sjúkraþjálfarar hjá Gáska - sjúkraþjálfun og hafa frá áramótum boðið fyrirtækjum upp á fræðslu og ráðgjöf fyrir starfsmenn með það í huga að draga úr líkam- legum óþægindum. „Við fjöllum m.a. um það í okkar fræðslu hvernig fólk beitir sér í vinnunni og stillir sinni starfsaðstöðu upp,“ segir Val- geir en einnig hafa þeir félagar tek- ið að sér að skoða vinnuaðstöðu fólks, bæði skrifstofufólks og fólks í framleiðslugeiranum, í þeim til- gangi að bæta vinnuaðstöðuna og vinnuumhverfið almennt. Aðspurð- ur segir hann aðstöðuna almennt góða á þeim vinnustöðum sem þeir hafi komið til en bendir þó á að víða vanti upp á að fólk nýti sér þá að- stöðu sem fyrir er, til að mynda möguleikana á því að stilla stóla rétt og hafa tölvuskjá í viðeigandi hæð (efri brún tölvuskjásins á að vera í augnhæð þannig að horft sé aðeins niður á sjálfan skjáinn). „Oft eru þetta smáatriði sem einfalt er að laga,“ segir hann en bætir því við að dæmi séu þó um að það þurfi að taka til hendinni til að gera starfs- aðstöðu viðunandi. Morgunblaðið/Ómar Hugað að trollinu ÞÓ að sólin hafi látið Ijós sitt skína að og hann komst að sjómaðurinn sem undanförnu hefur verið svalt í veðri var að dytta að trollinu í norðan- um mest allt land. Það hefur því ekki nepjunni niðri á Granda í Reykjavík viðrað vel til útiverka ýmiskonar, eins fyrir skömmu. Frumvarp um ábyrgðarmenn lagt fram á Alþingi Fjöldi ábyrgðar- manna óviðunandi LÖGFESTAR verða almennar reglur um stofnun, form og efni ábyrgðarsamninga, samskipti ábyrgðarmanna og kröfuhafa, upp- lýsingaskyldu kröfuhafa og ógild- ingarástæður, auk samskiptareglna milli ábyrgðarmanna og lánveit- anda nái frumvarp, sem Lúðvík Bergvinsson, fyrsti flutningsmað- ur, og 11 aðrir þingmenn Samfylk- ingar hafa lagt fram á Alþingi, fram að ganga. Segja flutnings- menn rökin að lögfestingu slíkra reglna m.a. þau að sú þróun sem átt hafi sér stað hér á landi hvað varðar fjölda ábyrgðarmanna sé óviðunandi. I greinargerð frumvarpsins, sem var flutt í svipaðri mynd á 122. og 123. löggjafarþingi en hlaut þá ekki afgreiðslu, kemur fram að skýrsla sem samin var að frumkvæði viðskiptaráðherra árið 1996 hafi leitt í ljós að um 90 þúsund ein- staklingar yfír 18 ára aldri væru í ábyrgð fyrir fjárskuldbindingum þriðja aðila, en það eru um 47% allra íslendinga á þessum aldri. Talið er hins vegar að einungis á 10% heimila á Norðurlöndum megi finna einstaklinga sem eru í ábyrgð fyrir fjárskuldbindingum annarra. „Ef aðeins er tekið mið af upp- lýsingum sem fram koma í skýrsl- unni er ekki óvarlegt að ætla að á 60-80% heimila hér á landi megi finna einstaklinga yfir 18 ára aldri sem eru í persónulegri ábyrgð fyr- ir fjárskuldbindingum annarra. Því má fullyrða að þróun ábyrgðar- skuldbindinga hér á landi hefur orðið með öðrum hætti en annars staðar á Norðurlöndum," segir í greinargerðinni. Segja flutningsmenn að mark- miðið með framlagningu frum- varpsins sé að lögfesta almennar reglur um stofnun, form og efni ábyrgðarsamninga, samskipti ábyrgðarmanna og kröfuhafa, upp- lýsingaskyldu kröfuhafa og ógild- ingarástæður, auk samskiptareglna milli ábyrgðarmanna og lánveit- anda. Er lagt til að reglumar nái til allra samninga og viðskiptabréfa sem nema að fjárhæð 150.000 kr. að nafnvirði eða hærri þar sem ein- staklingar skuldbinda sig persónu- lega til að tryggja efndir peninga- kröfu á hendur aðalskuldara. Lítil áhersla lögð á faglegt mat á greiðslugetu lántakenda í greinargerð frumvarpsins segir að hér á landi hafi verið lögð ríkari áhersla á að þriðji maður ábyrgist efndir aðalskuldara en þekkist í nágrannalöndunum. Minni áhersla hafi verið lögð á að lánveitandi láti fara fram faglegt mat á greiðslu- getu lántakenda. „Lánastofnanir virðast því hafa lagt mun meiri áherslu á að reyna þess í stað að tryggja sér ábyrgð þriðja manns í því skyni að tak- marka áhættu sína. Markmiðið með framlagningu frumvarpsins er því öðrum þræði að reyna að breyta vinnubrögðum lánastofnana frá því sem nú tíðkast í allt of rík- um mæli,“ segir í greinargerð. Ennfremur er eitt af markmið- um frumvarpsins að tryggja að upplýsingar um áhættu ábyrgðar- manns liggi fyrir þegar ábyrgðar- samningur er undirritaður. Mý- mörg dæmi séu um tilvik þar sem samningsaðilum sjálfum hafi verið ljóst að aðalskuldari gæti aldrei efnt samning, en hann komist á þrátt fyrir það, án þess að ábyrgð- armanni væri þessi vitneskja til- tæk. Slíkt hafi oft á tíðum orðið til þess að ábyrgðarmenn misstu heimili sín og þannig verið kippt stoðum undan fjárhagslegu og fé- lagslegu öryggi heilu fjölskyldn- anna, án þess að ábyrgðarmenn hefðu nokkurn tíma haft hagsmuni af því að samningi væri komið á. Er það mat flutningsmanna að með framlagningu frumvarpsins sé á engan hátt vegið að eðlilegu samningsfrelsi í landinu. Einungis sé hér um að ræða skýrar reglur um hvemig standa skuli að samn- ingsgerð þegar þriðji maður gengst í ábyrgð á efndum aðalskuldara vegna fjárskuldbindinga, án þess að lagt sé bann við nokkru sem nú er sérstaklega heimilað.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.