Morgunblaðið - 26.04.2000, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 26.04.2000, Blaðsíða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2000 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ AP Lögreglukona hleypir börnum út úr dýragarðinum eftir að hann hafði verið girtur af vegna skotárásarinnar. Skotið á sjö börn í átökum unglinga- klíkna í Washington Tvísýnt um líf 11 ára drenff s Washingfton. Reuters, AFP. * Rannsókn spillingarmála á írlandi getur orðið Bertie Ahern forsætisráðherra skeinuhætt Neitar að hafa tekið við fjárframlögum TALSMAÐUR lögreglunnar í Washington sagði í gær, að leitað væri að einum manni eða unglingi, sem grunaður væri um að hafa skot- ið á og sært sjö börn og unglinga eft- ir að til átaka kom milli unglinga- hópa, sem sótt höfðu fjölskyldu- skemmtun í dýragarði borgarinnar. Tvísýnt var um líf eins barnanna, 11 ára gamals drengs. Gömul hefð er fyrir því í Washing- ton, að blökkumenn komi saman í dýragarði borgarinnar á annan dag páska en um miðjan daginn sló í brýnu með tveimur unglingagengj- um. Voru nokkrir liðsmenn þeirra handteknir en skömmu síðar laust þeim aftur saman utan garðsins. „Þeir grýttu hvorir aðra með fiösk- um en skyndilega dró einn upp byssu og tók að skjóta á hinn hópinn,“ sagði Charles Ramsey, lögreglu- stjóri í Washington. Sjö böm á aldr- inum 11 til 16 ára urðu fyrir skotum og eins og fyrr segir var óttast um h'f eins þeirra í gær. Eykur umræðuna um byssueign Þessi atburður er bara einn af mörgum í Bandaríkjunum þar sem byssur og börn koma við sögu og kyndir enn undir umræðunni um byssueign í samféiaginu. A1 Gore, varaforseti og væntanlegur forseta- frambjóðandi demókrata, sagði í fyrradag, að þessi atburður sýndi enn einu sinni hve mikil nauðsyn væri að herða eftirlit með byssueign. Raunar eru lög um hana óvíða harð- ari en í Washington. Þar er byssu- sala bönnuð og flestar tegundir skot- vopna bannaðar. írsk dagblöð hafa um fátt annað fjallað síðustu daga en rannsókn á pólitískri spillingu. Davíð Logi Sigurðsson rekur málið. HÁVÆRAR kröfur heyrast nú á ír- landi um að banna beri öll fjárfram- lög einkaaðila til stjórnmálaflokka og kjörinna fulltrúa almennings í kjölfar nýjustu uppljóstrana um pól- itísk spillingarmál. Verði hulunni svipt af frekari spillingu á næstu vik- um, eins og þykir líklegt, er ljóst að ríkisstjóm Berties Ahern gæti riðað til falls en jafnframt myndu frekari uppljóstranir án efa skekja stoðir írskra stjómmála, enda blandast báðir stærstu stjórnmálaflokkarnir, Fianna Fáil og Fine Gael, í málið. Atburðarás sem hófst á miðviku- dag fyrir páska með vitnisburði Franks Dunlops, sem gengið hefur erinda þrýstihópa, fyrir sérstökum spillingardómstóli í Dublin náði hámarki á annan í páskum. Þá neyddist forsætisráðherrann, Bertie Ahern, til að neita orðrómi um að hann hefði sjálfur tekið við 50 þús- und írskum pundum, um 4,9 milljón- um ísl. kr. á núvirði, úr hendi fulltrúa póhtískra þrýstihópa árið 1989. Ahem lét engan velkjast í vafa um að hann væri alsaklaus af slíkum óhróðri og að svo stöddu er staða hans tryggð. Hinu tóku menn eftir að Mary Harney, leiðtogi Fram- sækna demókrataflokksins (PD), sem situr í ríkisstjóm með Fianna Fáil, var varkár í orðavali sínu á mánudag og líklegt að hún muni slíta stjórnarsamstarfmu ef minnsti vott- ur af sönnunum finnst fyrir orð- rómnum um að Ahern sjálfur bland- ist í spillingarmál. Jafnframt em menn minnugir þess að Charlie Haughey, fyrrverandi forsætisráð- herra Fianna Fáil, og ráðherrarnir Michael Lowry (FG), Ray Burke (FF) og Pádraig Flynn (FF) neituðu því á sínum tíma að hafa gerst sekir um nokkuð misjafnt. Allir vom þeir þó staðnir að ósannindum er fram liðu stundir í þeirri atburðarás sem hófst 1995 þegar flett var ofan af Haughey, en í kjölfar þess vom settir á laggirnar sérstakir spillingardómstólar á ír- landi til að kanna greiðslur einkaað- ila til stjórnmálamanna. 15 borgarfulltrúum greitt vegna skipulagsbreytinga Frank Dunlop upplýsti á miðviku- dag að hann hefði árið 1991 greitt fimmtán borgarfulltrúum í Dublin samtals 112 þúsund írsk pund í tengslum við samþykkt skipulags- breytinga vegna verslunarmiðstöðv- ar í vesturhluta borgarinnar, en verslunarmiðstöðin í Quarryvale var formlega opnuð 1998. Fullyrti hann um leið að verktakinn sem stóð að byggingu verslunarmiðstöðvarinnar, Owen O’Callaghan, hefði staðið að baki greiðslunum. Þessar uppljóstranir vöktu gífur- lega athygli á Irlandi og írsku blöðin fjölluðu um fátt annað alla páska- helgina. Strax frá upphafi var á sveimi orðrómur um að auk borgar- fulltrúanna, sem allir myndu líklega teljast „minni háttar spámenn", væri „stærri fiskur“ á sveimi í tjörninni, þ.e. að einhver valdamikill stjóm- málamaður tengdist uppljóstranum Dunlops. Orðrómur komst á kreik og fékk fljótt byr undir báða vængi en lengi vel þorði enginn að nefna nafn Ahems opinberlega í þessu sam- bandi. Á endanum varð þó ljóst að honum var ekki stætt á öðru en tjá sig um málið, enda var orðið á allra vitorði að hann væri umræddur „stórfiskur". Ahern neitar öllu og er að sjálf- sögðu saklaus uns annað er sannað. Segist hann ekki hafa hitt Owen O’Callaghan, verktakann sem á að Stretchbuxur kr. 2.900 Konubuxur frá kr. 1.690 Dragtir, kjólar, blússur og pils. Ódýr náttfatnaður. Nýbýlavegi 12, sími 5544433 hafa reitt féð af hendi, fyrr en 1993 og sjálfur hefur O’Callaghan gefið frá sér yfirlýsingu þar sem hann neitar því alfarið að hafa greitt fé fyrir atkvæði stjórnmálamanna á þessum árum. Áhern varð þó að gangast við því að O’Callaghan hefði í gegnum árin verið einkar viljugur til að leggja fram fé í sjóði Fianna Fáil. Vitnisburður Dunlops er aftur á móti ekki dreginn í efa, enda ákvað hann einungis að leysa frá slgóðunni þegar honum var orðið ljóst að frek- ari mótbárur voru lagalega útilokað- ar. Það er að sögn blaðamanna The Irish Times reyndar talið hafa ein- kennt störf spillingardómstólanna hversu hatrammlega valdamiklir fjármálamenn hafa barist gegn því að þurfa að mæta fyrir rétti. Allir hafa gert sitt til að tefja störf dóm- stóianna, enda hafa margir þeirra miklu að tapa. Sumir stjórnmála- mannanna fylgjast síðan með í ang- ist, geta ekki annað en verið hlynntir því að flett sé ofan af spillingu en ótt- ast kannski mest að einmitt það tak- ist og á daginn komi að þeir hafi óhreint mjöl í pokahorninu. Ekki séð fyrir endann á upp- Ijóstrunum Ruarí Quinn, leiðtogi írska Verka- mannaflokksins, hefur þegar farið fram á að öll fjárframlög einkaaðila til stjórnmálaflokka og stjórnmála- manna verði bönnuð. Hafa þær óskir hlotið góðan hljómgrunn við þær að- stæður sem nú eru uppi í írskum stjórnmálum. Spillingardómstólarnir hafa reyndar alls ekki lokið starfi sínu og öruggt er talið að sitthvað eigi enn eftir að koma á daginn. Frank Dun- lop hefur t.d. ekki lokið vitnisburði sínum og von er á fleiri starfsmönn- um þrýstihópa fyrir rétt. Ennfremur bíður Charlie Haughey dóms, en að margra mati er hann sem holdgerv- ingur þeirrar spillingar og mútu- þægni sem einkenndi írsk stjórnmál á árum áður þótt reyndar hafi enn ekki verið sýnt fram á tengsl pen- ingagjafa til hans við tiltekin verk hans í forsætisráðuneytinu. Bertie Ahern og John Bruton, leiðtogar tveggja stærstu stjórn- málafiokkanna, Fianna Fáil og Fine Gael, hafa tilkynnt að flokkarnir muni sjálfir standa fyrir sérstakri rannsókn á framferði þeirra borgar- fulltrúa sem liggja undir grun um að hafa tryggt umdeildar skipulags- breytingar í Dublin eftir að hafa fengið afhenta peninga frá Dunlop. Mega viðkomandi borgarfulltrúar eiga von á brottrekstri úr flokkum sínum í það minnsta. Yfirlýsing Aherns á mánudag sýndi hins vegar hvað best að enginn er yfir grun haf- inn í þessum efnum og næsta víst að ekki eru enn öll kurl komin til grafar hvað varðar spillingarmál í írskum stjórnmálum. Námstefna Að skara fram úr Gæðastjómunarfélags íslands Föstudaginn 28. apríl 2000 á Radisson SAS Hótel Sögu kl. 12.00-15.00 Fyrirlesarar Giovanni Quaglia Símon Þorleifsson framkvæmdastjóri þróunarsviðs EFQM. þróunarstjóri Nýherja. Segir frá þróun EFQM líkansins og hvernig Segir frá reynslu af umsóknarferli fyrirtæki í Evrópu hafa notað það við sjálfsmat. fyrir Dönsku gæðaverðlaunin. Á námstefnunni verður farið yfir þróun og forsendur EFQM líkansins. Þar verður skýrt hvernig nota má líkanið og sjálfsmatsferlið til þess að baeta árangur. Hvernig stjórnendur geta nýtt EFQM líkanið til þess að komast að því hve langt fyrirtækin eru komin á leið sinni til þess að skara fram úr. EFQM líkanið er sveigjanlegt og það má laga að stórum og smáum fyrirtækjum, opinberum jafnt sem einkareknum. Verð: Innifalið: Nánari upplýsingar Eyrop.an 9.500 fyrir Hádegisverður, og skráning: p pjíw:; f" félagsmenn EFQM Lfkanið Netfang: gsfi@gsfi.is E Jr 12.500 fyrir aðra og námsgögn Sími: 533 5666 GAÐASTjÓINUNARFflAG ISUNDS Ma n a f anitnt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.