Morgunblaðið - 26.04.2000, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2000 45
UMRÆÐAN
Vilji landsfundar
Sjálfstæðisflokks-
ins hunsaður
Á SÍÐASTA lands-
fundi Sjálfstæðis-
flokksins var hvatt til
þess að lengja fæðing-
arorlof og jafna rétt
mæðra og feðra til töku
þess. Með hinu nýja
frumvarpi um fæðing-
ar- og foreldraorlof er
þessum markmiðum
Sj álfstæðisflokksins
náð. Hins vegar var því
hafnað að þessi réttur
foreldra væri bundinn,
þ.e. þrír mánuðir við
móður og þrír við föð-
ur. Það atriði frum-
varpsins er því á skjön
við vilja landsfundar,
sem hefur æðsta vald í málefnum
flokksins.
En af hverju samþykktu lands-
Fæðingarorlof
*
I frumvarpinu er kveðið
á um að orlof mæðra og
feðra sé ekki framselj-
anlegt, segír Björgvin
Guðmundsson. Þessu
hafnaði landsfundur
Sjálfstæðisflokksins.
fundarfulltrúar, með yfirgnæfandi
meirihluta atkvæða, að orðin „3 mán-
uðir bundnir móður, 3 mánuðir
bundnir föður“ yrðu felld út úr sam-
þykkt um jafnréttismál? í umræðun-
um kom fram að velferð barnsins
væri ekki tryggð með þessum hætti,
eins og markmið fæðingarorlofs er.
Ef annað foreldri hefur ekki kost á
því að nýta til fulls þá þrjá mánuði
sem það hefur rétt á skerðist sam-
verutími foreldris með barni sínu
sem því nemur. Því samþykktu
landsfundarfulltrúar að
óhæft væri að setja slík
skilyrði og að það bæri
að tryggja rétt barns-
ins til samveru með for-
eldrum allan fæðingar-
orlofstímann.
Það kom einnig fram
á landsfundinum að
sjálfstæðismenn
treysta einstaklingum
sjálfum til að velja
hvemig þeir skipta
með sér rétti til fæðing-
arorlofs eftir vilja og
aðstæðum hverju sinni.
Með afskiptum ríkis-
valdsins eru hagsmunir
barnsins ekki hafðir að
leiðarljósi auk þess sem það er ekki
hlutverk þess að segja foreldrum
hvernig þessum tíma sé skipt. Ein-
staklingar eru fullfærir um að taka
þá ákvörðun sjálfir.
I frumvarpi um fæðingar- og for-
eldraorlof, sem Geir H. Haarde hef-
ur kynnt fyrir hönd Sjálfstæðis-
flokksins, er kveðið á um að þriggja
mánaða orlof maeðra og feðra sé ekki
framseljanlegt. í þessu tilviki hefur
ekki verið unnið samkvæmt sam-
þykktum landsfundar og hlýtur það
að vera krafa allra sjálfstæðismanna
að varaformaður flokksins beiti sér
fyrir breytingum á þessu frumvarpi
til samræmis við vilja landsfundar.
Höfundur er varaformaður Heim-
dallar og ritstjóri Frelsi.is
gSm897 3634
I'rif á rimlagluggatjöldum.
Björgvin
Guðmundsson
LIFEYRISSJOÐUR VESTURLANDS
Meginniðurstöður
ársreiknings iífeyrissjóðsins
Yfirlit um breytingu á hreinni eign til greiðslu lífeyris 1999 í þús. kr. 1998 í þús. kr.
Fjárfestingartekjur, nettó 933.638 356.181
Iðgjöld 368.675 341.691
Lífeyrir (196.613) (181.760)
Fjárfestingargjöld (11.556) (7.817)
Rekstrarkostnaður (9.275) (11.383)
Matsbreytingar 332.707 63.572
Hækkun á hreinni eign á árinu 1.417.576 560.484
Hrein eign frá fyrra ári 5.482.531 4.922.047
Hrein eign í árslok til greiðslu lífeyrís 6.900.107 5.482.531
Efnahagsreikningur
Fjárfestingar:
Verðbréf með breytilegum tekjum 2.402.928 1.057.551
Verðbréf með föstum tekjum 4.070.931 4.008.713
Veðlán 57.820 80.597
Bundin innlán 22.039 28.770
Fjárfestingar 6.553.718 5.175.631
Annað:
Kröfur á viðskiptamenn 54.157 48.880
Aðrar eignir 293.980 259.523
Viðskiptaskuldir (1.748) (1.503)
Annað 346.389 306.900
Hrein eign til greiðslu lífeyris: 6.900.107 5.482.531
Ýmsar kennitölur
Raunávöxtun 16,06% 6,88%
Raunávöxtun að teknu tilliti til rekstrarkostnaðar 15,89% 6,65%
Raunávöxtun, meöaltal síðustu fimm ára 11,20% 9,00%
Lífeyrir sem hlutfall af iðgjöldum 53,33% 53,23%
Kostnaður sem hlutfall af iðgjöldum 2,71% 3,33%
Kostnaður sem hlutfall af eignum 0,16% 0,22%
Stöðugildi 2,7 2,7
Akranesi, 7. febrúar 2000
Stjórn Lífeyrissjóðs Vesturlands:
Sigrún Clausen Einar Karlsson Rakel Olsen
Kristján Jóhannsson Gylfi Þórðarson Þórir Páll Guðjónsson
Jónas Dalberg, framkvæmdastjóri
Alvöru ferðalangurí
KIA Sportage Wagon er alvöru jeppi með háu og lágu drifi og
LSD læsingu á afturdrifi. KIA Sportage er byggður á öflugri
grind og 2000cc 4 cyl. vélin tryggir 128 hestöfl. Nú fæst
hann á verði sem fáir leika eftir með jeppa íþessum
gæðaflokki. Fæst einnig 5 dyra Classic.
frákr. 1.750.000.
*