Morgunblaðið - 26.04.2000, Síða 50

Morgunblaðið - 26.04.2000, Síða 50
50 MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2000 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ HARALDUR SIGURGEIRSSON n ■ + Haraldur Sigur- geirsson fæddist á Akureyri 6. októ- ber 1915. Hann lést á Dvalarheimilinu Hlíð 15. apríl sfðastliðinn. Foreldrar hans voru Júlíana Friðrika Tómasdóttir frá Litluvöllum í Bárðar- dal, f. 21.7. 1872, d. 14. 6. 1953, og Sigur- geir Jónsson frá , Stóruvöllum í sömu sveit, f. 25.11. 1866, d. 4.11. 1954, en þau voru frá árinu 1904 búsett á Akureyri, þar sem Sigur- geir var kirkjuorganisti árin 1911-1941. Systkini Haraldar voru: Páll, kaupmaður, f. 16.2. 1896, d. 21.2. 1982; Vigfús, ljós- myndari, f. 6.1.1900, d. 16.6.1984; Gunnar, organisti og pianókenn- ari, f. 17.10. 1901, d. 9.7. 1970; Hermína, píanókennari, f. 16.3. 1904, d. 26.12. 1999; Eðvarð, ljós- myndari, f. 22.10. 1907, d. 12.8. 1999; Jón Aðalgeir, skólastjóri, f. 24.5. 1909; Agnes, f. 23.10. 1912, d. 19.9. 1928, og Hörður, Ijós- myndari, f. 6.5.1914, d. 2.6.1978. Haraldur kvæntist 24.10. 1936 Sigríði Pálinu Jónsdóttur frá Húsavík, f. 24.3. 1913, d. 20.1. 1993. Foreldrar hennar voru Guð- ný Helgadóttir frá Haganesi í Mývatnssveit og Jón Flóventsson, starfsmaður Kaupfélags Þingey- inga. Haraldur og Sigríður Pálína eignuðust þrjú börn. Þau eru: 1) Agnes Guðný, f. 19.11. 1936, maki Ólafur Bjarki Ragnarsson, f. 28.7. 1934. Böm þeirra eru: Sigríður, Ragnar, Kristinn Ólafur, Har- aldur og Helgi. 2) Helga, f. 19.3. 1943, maki Alfreð Almars- son, f. 18.2. 1951. Sonur þeirra er Al- mar Alfreðsson. Dætur Helgu og fyrra manns hennar, Skúla Ágústssonar, eru Agnes Heiða og Auður Helga. 3) Sig- urgeir, f. 15.5. 1954, maki Lára Ólafsdótt- ir, f. 3.2. 1955. Börn þeirra eru Ólafur og Ingibjörg. Barna- bamabörnin eru 17. Sambýliskona Haralds síðustu þijú árin var Arnfríður Róberts- dóttir, f. 17.10. 1921, dóttir Her- borgar Sigurðardóttur og Ró- berts Bárðdal, bónda, síðast á Sigríðarstöðum í Ljósavatns- skarði. Haraldur varð gagnfræðingur frá Menntaskólanum á Akureyri vorið 1932, en gerðist síðan starfsmaður Braunsverslunar á Akureyri hjá Páli bróður sínum og siðar verslunarstjóri þar, þangað til verslunin var Iögð nið- ur árið 1956. Þá hóf hann störf sem fulltrúi bæjargjaldkera á skrifstofu Akureyrarbæjar og vann þar til 72 ára aldurs. Hann var mjög virkur í félagsmálum og var m. a. kjörinn heiðursfélagi Áhugaljósmyndaraklúbbs Akur- eyrar, Knattspyrnufélags Akur- eyrar og Tónlistarfélags Akur- eyrar. Haraldur verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Dæm svo mildan dauða, drottinn, þínu bami, - eins og léttu laufi lyfti blær frá hjami, - kvað séra Matthías í lokaerindi mikils átakakvæðis. Þessar Ijóðlín- ur komu mér í hug, þegar ég spurði andlát Haralds föðurbróður míns. Lífskraftar hans höfðu farið þverrandi í vetur, og undir Iokin fannst honum sjálfum nóg lifað. Hann kvaddi fólkið sitt með þakk- læti, kærleika og fyrirbæn og lagð- ist til hvfldar með fullkominni ró- semi hugarins, styrk trúarvissunnar og trausti á guðlega ^forsjá, sáttur við guð og menn. Þetta heitir að verða vel og drengi- lega við dauða sínum. Haraldur var yngstur níu barna Friðriku Tómasdóttur og Sigur- geirs Jónssonar, en af þeim fríða hóp lifir nú Jón Aðalgeir einn, ní- ræður að aldri. Haraldur fæddist og ólst upp á miklu tónlistarheimili að Spítalavegi 15 á Akureyri og vandist þar við iðkun tónlistar og ást á henni, sem entist honum ævi- langt. En lífsbaráttan var hörð og marga munna þurfti að metta. Drýgstar matarholur og matar- lindir heimilisins voru kartöflu- garðarnir og blessaðar kýrnar í fjósinu, en kröfðust mikillar vinnu og natni. Allir urðu að hjálpa til við heimilis- og bústörfin, hver eftir sinni getu, ef vel átti að fara. Og allt fór vel. Heimilisfaðirinn hafði úti mörg spjót, húsmóðirin var iðin, hagsýn og nýtin og börnin hjálpfús. Jafnlyndi og samlyndi einkenndi heimilislífið og heimilisandann, og það varð bömunum haldgott veg- anesti. Þeir voru mjög samrýmdir yngstu bræðurnir, Hörður og Sími 564 4566 SÓLSTEINAK Legsteinar í Lundi við Nýbýlaveg, Kópavogi Þegar andlát ber að höndum Önnumst alla þætti útfararinnar. Við Útfararstofu kirkjugarð- anna starfa nú 14 manns með áratuga reynslu við útfaraþjónustu. Stærsta útfararþjónusta landsins með þjónustu allan sólarhringinn. Prestur Kistulagning Kirkja Legstaður Kistur og krossar Sálmaskrá Val á tónlistafólki Kistuskreytingar Dánarvottorð Erfidrykkja UTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA EHF. Haraldur, en helstu félagar þeirra á bernsku- og æskuárum voru Júl- íus frændi þeirra Jónsson, Þórir og Kjartan Ólafssynir, Jón og Þor- valdur Steingrímssynir og Haukur bróðir minn. Mörg ár var Haraldur sumardrengur í Hólshúsum í Hrafnagilshreppi hjá þeim góðu hjónum Sigurbjörgu Jónasdóttur og Júlíusi Ölafssyni, bróður Ólafs Tryggva, sem ótti efri hæðina í Spítalavegi 15. Þau hjónin brugðu búi 1930 og áttu heima þar á loft- inu hjá Ólafi síðustu æviárin. Haraldur varð gagnfræðingur frá MA árið 1932. Hann var vaskur íþróttamaður í æsku og mikilvirkur félagi í KA og síðar heiðursfélagi. Þá var hann dugmikill fjallgöngu- maður, og ótaldar ferðirnar fór hann upp á Súlur allt fram á efri ár. Þeir Haukur bróðir minn fóru á reiðhjólum landsfjórðunga milli á sokkabandsárum sínum sér til óblandinnar ánægju og hressingar. Fljótlega eftir gagnfræðapróf gerðist Haraldur starfsmaður í Braunsverslun á Akureyri, sem faðir minn hafði þá keypt af hinum þýska stofnanda verslunarinnar. Þarna starfaði hann sem hægri hönd bróður síns, hin síðustu árin sem verslunarstjóri, allt þar til verslunin var lögð niður. Þá hóf hann störf á skrifstofum Akureyr- arbæjar, fyrst sem féhirðir og síðar sem fulltrúi, þar til hann náði há- marksaldri opinberra starfsmanna. Meðal annars hafði hann lengi á hendi skráningu, umsjón og vörslu Ijósmynda, málverka og annarra myndverka í eigu bæjarins. Hann var einnig mikill áhugamaður um sögu Akureyrar, ekki síst einstakra hverfa og húsa svo og persónu- sögu. Meðal annars af fyrrgreind- um ástæðum var hann kosinn í nefnd til þess að undirbúa og ann- ast framkvæmd á sögusýningu á 100 ára afmæli Akureyrarbæjar ár- ið 1962, ekki síst útvegun og upp- setningu myndefnis, og fórst hon- um það prýðisvel úr hendi. Einnig átti hann síðar af hálfu Akureyrar- bæjar sæti í nefnd, sem setti upp sýningu á ljósmyndum Hallgríms Einarssonar í Amtsbókasafninu og annaðist gerð myndatexta í bók, sem kom út árið 1982 með ljós- myndum Hallgríms frá Akureyri 1895-1930. Enn má bæta því við, að Haraldur vann að kalla sumarlangt að vali mynda og gerð skýringar- texta við myndir í bók Steindórs Steindórssonar frá Hlöðum, „Akur- eyri, höfuðborg hins bjarta norð- urs“, sem kom út hjá Bókaútgáfu Arnar og Örlygs hf. árið 1993. Sjálfur var Haraldur stórvirkur og vandvirkur áhugaljósmyndari (heiðursfélagi í Áhugaljósmyndara- klúbbi Akureyrar) og eftir hann liggur sægur fagurra og sérkenni- legra litmynda, sem hann hirti mjög vel um, eins og hans var hátt- ur. Einnig safnaði hann sjaldgæf- um og gömlum myndum og varð- veitti þær eða afhenti viðeigandi safnastofnun til vörslu. Þá vann hann einnig mikið við að nafn- greina fólk á gömlum myndum, einkum í Minjasafninu á Akureyri, því hann mundi langt aftur og hafði trútt minni. Þegar á leið ævina og sérstak- lega eftir að hann komst á eftir- launaaldur, vann hann mikið að viðgerðum á gömlum heimilisorgel- um, ekki síst af Norður- og Austur- landi. Hann kom sér upp verkfæra- og varahlutasafni í suðurkjallaran- um heima hjá sér og undi þar löng- um stundum við hljóðfæraviðgerð- irnar. Og þar var ekki kastáð til höndunum. Undravert var og unun að sjá, hvernig honum tókst að reisa þessa gleðigjafa úr öskustó, gera gömul og illa farin skrifli að góðum gripum, sem gegndu hlut- verki sínu sem ungir væru í annað sinn, hvort sem þeir höfðuðu til augans eða eyrans. Margar kirkjur heimsótti hann til þess að fara höndum um hljóð- færi þeirra og koma þeim í samt lag, minnugur kirkjuorganistans, föður síns. Fyrir þetta starf sitt hlaut Haraldur í senn aðdáun og þakklæti ótal manna og kvenna víða um land. Þjónusta hans við tónlistina birt- ist í mörgu öðru, meðal annars því, að hann var einn af stofnendum Tónlistarfélags Akureyrar og var lengi gjaldkeri félagsins, enda síðar kjörinn heiðursfélagi þess. Snyrtimennska hans kom fram í öllu fari hans og fasi, klæðaburði og umgengni við lifandi verur og dauða hluti. Þó að hann ynni við kartöfluupptöku daglangt, sá aldrei á honum mold eða kusk. Engu var líkara en slíkt hrykki af honum og hrini ekki við hann. Allt var í röð og reglu, hverju nafni sem nefnd- ist. Annað var honum sóðaháttur og andstyggð. Eins var um orðaval hans, hófsamlegt og markvisst. Aldrei heyrðist hann taka sér í munn grófyrði eða ljótan munn- söfnuð, enda ekki haft fyrir honum ungum. Einhverju sinni bárust í tal okk- ar í milli einhverjir örðugleikar, og ég sagði rétt svona: „Það dugir lík- lega ekkert annað en bíta á jaxlinn, - en ætli við sleppum ekki fram- haldinu?" „Jú, ætli það ekki,“ svar- aði hann, „ég hef heldur aldrei þurft á því að halda.“ Liðlega tvít- ug gengu þau í hjónaband, Harald- ur og Sigríður Pálína Jónsdóttir frá Húsavík, búin fagurri söngrödd og mikilli leiklistargáfu. Þau eignuðust tvær dætur og einn son, en auk þess var á heimili þeirra lengi vel fósturbróðir hús- freyju. Það var eins og aldursmun- ur okkar Ellenar annars vegar og Siggu Pöllu og Haralds hins vegar dofnaði og eyddist með árunum, enda varð hann hlutfallslega æ minni. Samgangur var mikill milli heimilanna, góðsemi, glaðværð og vinátta með frændsemi. Síðast stóð heimili þeirra í íbúð foreldra Har- alds, afa míns og ömmu. Sigga Palla andaðist í janúarmánuði 1993. Fyrir fáum árum tóku þau upp sambúð, Haraldur og Arnfríður Róbertsdóttir frá Sigríðarstöðum, sem þá var orðin ekkja, mesta myndar- og ljúflyndiskona. Þau urðu hvort öðru mikil stoð, þegar árin færðust yfir, sem er mikið gleði- og þakkarefni. Eg á Haraldi frænda margt gott að þakka, allt frá því er hann sagði mér stirðnæmum til í nótnalestri og orgelleik af mikilli þolinmæði snemma á dögum. Ég kalla í lokin fram í hugann tvær skyndimyndir, aðra frá því er hann bar íslenska fánann hnarreistur og vörpulegur í fararbroddi Kantötukórs Akureyr- ar inn á Stadion í Stokkhólmi frammi íyrir Svíakonungi og í við- urvist þúsunda á stóru norrænu söngkóramóti árið 1951, hina af honum sitjandi við píanóið sitt árið 1999 að leika blaðalaust af fingrum fram Tunglskinssónötuna eftir Beethoven með álíka glæsibrag. Slíkar minningamyndir er gott að eiga, þegar ævi góðs drengs er hnigin að ósi. Eins og lítíll lækur pki sínu hjali, þar sem lygn í leyni liggur marinn svali. Sverrir Pálsson. + Jón Haraldur Haraldsson fæddist á Akureyri 3. nóvember 1926. Hann lést á Akureyri 3. aprfl síðastliðinn. Foreldrar hans voru Jóhanna Jónsdóttir og Haraldur Guð- mundsson, fyrrum sfldarútvegsmaður Siglufirði. Systkini Jóns: Guðmundur Haraldsson, bóndi í Halllandi í Eyjafirði, tvíburabróðir, maki: Hólmfríður Ásgeirs- dóttir; Kjartan Haraldsson, látinn, fyrrum maki Anna Árnadóttir, Þverá; Kristín Haraldsdóttir, Borgamesi, maki Bjami Arason; Guðrún Haraldsdóttir, Noregi, maki Niels Gesvald. Fyrrum maki Erna Margrét Jón Haraldsson, faðir Berthu, konu minnar, var ljúf sál og hrein, þótt glettinn væri. Mér var strax ljóst að hann var íbygginn maður, glöggur og hógvær. Hann elskaði söng- og leiklist og var um tíma í Karlakómum Geysi og Leikfélagi Akureyrar. Eitt mest aðlaðandi í fari konu minnar, er ég kynntist henni fyrst, var hvað hún var bæði söng- og ljóðelsk manneskja og mér varð strax ljóst hvert hún sótti þann dýrmæta arf. Ljúft fas var aðalsmerki Jóns. Hann vissi að með ljúfmennskunni Ilaraldsson, Mela- síðu, Akureyri. Börn þeirra: 1) Haraldur Jónsson, sölumaður í Reykjavík, maki : Aðalheiður Björns- dóttir. 2) Bertha Kristín Jónsdóttir, þroskaþjálfi í Reykjavík, maki : Geir Jón Grettisson 3) Jóhanna Jónsdótt- ir, bóndi í Kálfborg- ará, Bárðardal, maki Helgi Hallsson. 4) Helga Ragnheiður Jónsdóttir, inn- kaupastjóri, Skógarbæ, maki Steindór Bjömsson. 5) Jón Eiður Jónsson, bifreiðasljóri, maki Guð- rún Sigrún Baldursdóttir. Útför Jóns fór fram frá Akur- eyrarkirkju þriðjudaginn 11. aprfl. mátti stilla lífsins ólgusjó. Jón var ekki mikið fyrir að flækja málin heldur tók á móti lífinu jákvæður og baktalaði aldrei nokkurn mann - en sagði þó oft „uss“. Hann naut sérstaklega fegurðar náttúrunnar og þess sem hún hafði fram að færa, hvort heldur var í sumarbú- staðnum eða bara í bakgarðinum heima þar sem sólin bakaði blóm, tré og fagran kropp. Þegar við hringdum að sunnan að spyrja til veðurs var oftar en ekki viðkvæðið: „alveg lúxus“. Ég man aldrei eftir Jóni öðruvísi en sólbrúnum og hraustlegum útlits. Jón var iðinn við að rækta garðinn og var vanur að segja: „bara byrja“ og hafði hvetjandi áhrif á þá sem stóðu hon- um næstir. Löngum mátti sjá stór- an hóp barna, barnabarna og barnabarnabarna koma saman í landinu hans „Silfurtunglinu" sem er ofan við landið Hallland í Eyja- firði, sem tvíburabróðir hans, Guð- mundur, býr á. Trúlega hafa þær stundir verið honum dýrmætastar. Jón var ekki vanur að nota sterk orð og eitt sinn er hann var að kynna mig fyrir bróður sínum Kjartani lýsti hann mér þannig: „þessi er ágætur", dró síðan upp tóbaksdósina og bauð í nefið. Það leyndi sér ekki á svip Kjartans að ég var einhvers metinn hjá Jóni og það hafði ekki litla þýðingu fyrir ungan tengdason sem sóttist eftir viðurkenningu hjá fjölskyldunni. Það er búið að vera lærdómsríkt að kynnast þér, Jón. Dóttir þín, ég og börnin okkar munum sakna þín sárt. Megirðu hafa það ljúft hjá Drottni. Við uppskerum sem við sá- um og þú sáðir vel. Sumir kölluðu þig „Lilla“ en í mínum huga varstu stór maður. Sárt þykir mér að hafa ekki verið viðstaddur jarðarförina þína og ég veit að þú fyrirgefur mér fyrir það, en við áttum góða stund saman, þótt ég hafi verið fjarri á kveðjustundinni. Megi Guðs náðarsól skína nú á anda þinn og verma uns við um síð- ir sjáumst öll á ný. Og áin iíður lygn og tær 9g lindin sefur perluskær. í dvala hníga djúpin hpð og dreymir öll sín týndu ljóð. (Davíð Stef.) Geir Jón Grettisson. JON HARALDUR HARALDSSON

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.