Morgunblaðið - 26.04.2000, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 26.04.2000, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2000 51 MINNINGAR FRIMANN GUÐMUNDSSON + Frímann Guð- mundsson fædd- ist í Gunnólfsvík í Norður-Múlasýslu 24. ágúst 1917. Hann lést á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Ak- ureyri 15. apríl síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Guðmund- ur Jónasson, f. 1. september 1865 að Sporðshúsum í Víði- dal, d. 6. júní 1918 og kona hans Sigmunda Katrín Jónsdóttir, f. 4. júní 1880 á Akri í Öxarfírði, d. 24. maí 1950. Guð- mundi og Sigmundu varð átta barna auðið, en þau voru Siguijón, f. 1903; Sesselja, f. 1905; Eiríkur Vigfús, f. 1908; Víkingur, f. 1909; Þorleifur, f. 1911; Sigríður f. 1913; Snorri, f. 1914 og Frímann, f. 1917. Auk þess átti Guðmundur son fyrir hjónaband, Jónas Friðrik, f. 1894. Öll eru þessi systkini nú látin. Frímann kvæntist eftirlifandi eiginkonu sinni, Soffíu Guðmunds- dóttur, hinn 11. maí 1940 í Siglu- fjarðarkirkju, þannig að aðeins vantar tæpan mánuð upp á 60 ára brúðkaupsafmælið. Soffía er fædd að Syðsta-Mói í Fljótum 23. nóvem- ber 1918. Foreldrar hennar voru Guðmundur Jónsson, f. 17. júní 1877 á Vest- arahóli í Fljótum, d. 2. apríl 1959 og kona hans Guðrún Magnús- dóttir, f. 14. septem- ber 1880 á Krakavöll- um í Fljótum, d. 11. júní 1956. Frímann og Soffía eignuðust fímm börn; 1) Guðmundur, f. 10. júlí 1940 á Akureyri, stýrimaður. Kona Ingibjörg Eiríksdótt- ir, f. 1. aprfl 1942. Dætur Guðmundar a) Soffía, f. 9. ágúst 1959, dætur hennar eru Rakel, Aníta Lind og Helena, b) Guðbjörg, f. 1. janúar 1962, m. Sigurður K. Einarsson. Synir þeirra a) Ýmir, f. 22. febrúar 1991, d. 27. febrúar 1991, b) Óðinn. 2) Frímann, f. 9. júní 1944 á Ak- ureyri, prentari. Kona Sigríður G. Árnadóttir, f. 6. febrúar 1945. Börn þeirra: a) Ásdís Guðrún, f. 11. nóvember 1964, sambýlism. Marc. Barn hennar er Júlían Frímann. b) Frímann, f. 14. júní 1966, sambýl- isk. Hugrún Ester Sigurðardóttir. Barn þeirra er Elvar Frímann. c) Soffía, f. 27. júlí 1973, sambýlism. Elías Kristjánsson. d) Harpa, f. 13. janúar 1976. e) Hulda, f. 14. janúar 1983. 3) Gunnar, f. 25. janúar 1949 á Akureyri, rafvirki. Kona 1. Hanna Gerður Haraldsdóttir, f. 16. maí 1949, d. 8. nóvember 1980. Börn þeirra a) Valgerður María, f. 8. mars 1969, sambýlism. Guð- mundur Jónsson. Sonur hennar er Hannes Daði. b) Davíð Rúnar, f. 14. júní 1971, kona Berglind Jónas- dóttir. Sonur þeirra er Daði Hrannar. Kona 2. Áslaug Krist- jánsdóttir, f. 5. maí 1950. Dóttir þeirra er Dagný Björg, f. 2. janúar 1985. 4) Grettir Örn, f. 17. nóvem- ber 1952, kjötiðnaðarmaður. Kona Margrét Þórðardóttir, f. 9. maí 1952. Böm þeirra a) Haukur, f. 30. september 1971. b) Axel, f. 8. sept- ember 1976, sambýlisk. Ólöf Harpa Jósepsdóttir. c) Jenný, f. 19. desember 1988. 5) Guðrún, f. 7. maí 1956, félagsráðgjafi í Noregi. M. Jónas Sigurbjörnsson, f. 24. ágúst 1950, d. 7. júlf 1989. Böm þeirra a) Eva, f. 1. september 1974, sambýlism. Ómar Guðnason. Son- ur þeirra er Daði. b) Grettir, f. 9. október 1988. Sambýlism. Helge Monsen. Frímann naut venjulegrar skólagöngu í heimasveit sinni, Öx- arfirði, var einn vetur í Héraðs- skólanum á Laugarvatni og lauk verslunarprófi frá Samvinnuskól- anum eftir tvo vetur. Hinn 1. sept- ember 1939 hóf hann störf hjá Kaupfélagi Eyfirðinga og starfaði þar í næstum 50 ár. Útför Frímanns fór fram frá Ak- ureyrarkirkju þriðjudaginn 25. aprfl. Elsku pabbi og afi. Okkur langar til að minnast þín með nokkmm orðum. Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur hug þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín. (Ur Spámanninum.) Margar og góðar minningar koma fram í hugann nú þegar þú hefur kvatt okkur. Margt sem við höfum lært af þér hefur reynst okkur gott veganesti í lífinu. Þú hefur verið okkur góð fyrirmynd. Sjálfur þurftir þú vegna fjöl- skylduaðstæðna að vinna fyrir þér frá unga aldri, berjast fyrir því að fjármagna menntun þína og virki- lega hafa fyrir lífinu. Þú uppgötv- aðir snemma að heiðarleiki og dugnaður væru eiginleikar sem mikilvægt væri að temja sér. Það eru meðal annars þessir eig- inleikar í fari þínu, ásamt rausnar- skap, góðsemi og kærleika til okk- ar, sem hafa verið ómetanlegt veganesti fyrir okkur öll. Þú kenndir okkur að virða og elska sveitina þína - Öxarfjörð, en þangað fórum við oft bæði að vori og hausti. Það urðu margar og góðar stundir sem við áttum sam- an að Vestara-Landi, ýmist í sauð- burðinum eða í göngum. Á þennan hátt lærðum við að umgangast dýr og njóta þeirrar gleði sem því fylg- ir. Þú og mamma/amma hafið stað- ið eins og klettar í kringum okkar litlu fjölskyldu alla tíð. Þið hafið tekið þátt í bæði sorg og gleði með okkur og ævinlega látið okkur finna ekta kærleika og ást frá ykk- ar hálfu. Það eru forréttindi að fá að alast upp við slíkar aðstæður, og síðar að sjá sín eigin börn njóta þess sama frá ömmu og afa. Bæði Grettir og Eva hafa notið þess að vera barnabörnin ykkar. Nú eru barnabörnin orðin 15 og langafa/ömmubörnin orðin 10. Þú fylgdist með öllum börnunum og gladdist yfir að sjá hversu myndarlegur hópur þetta er. Yngsta langafabarnið þitt er Daði, sem nú er næstum átta mán- aða gamall. Það var mikil gleði hjá okkur mæðgum yfir að þú og mamma/amma skylduð leggja land undir fót og mæta í skírnarveislu hans. Þá fékk Eva líka uppfyllta ósk sína um að sjá þig halda á hennar nýfædda barni í örmum þínum. Bæði þú og mamma/amma hafið verið góðar fyrirmyndir sem for- eldrar og sem amma og afi fyrir stóran hóp barna. Vonandi tekst okkur systkinunum og okkar börn- um að bera áfram til komandi kynslóðar það sem þið hafið kennt okkur í gegnum lífið. Að lokum langar mig til að vitna í orð Dagnýjar Bjargar bróður- dóttur minnar, sem taldi ekki nauðsynlegt að nota mörg orð til að lýsa afa sínum: „Hann var góð- menni,“ sagði hún. Elsku pabbi/afí, takk fyrir að þú varst eins og þú varst, þannig elsk- um við þig og minnumst þín. Hvíl í friði. Þín dóttir Guðrún, barnabörnin Eva og Grettir og langaafabarnið þitt, Daði. Þau landsvæði sem liggja á norðlægum slóðum á landi okkar, hafa mörgum fjölskyldum, ekki síst barnmörgum, reynst erfið. Þannig hefur eflaust verið háttað hjá þeim Guðmundi og Sigmundu, er þau fluttu frá Ferjubakka í Öx- arfirði með barnahópinn sinn, að Gunnólfsvík á Langanesi vorið 1916. Þar var auðveldara fyrir heimilisföðurinn að stunda sjóinn og draga björg í bú. Þau hófu bú- skap að Hróarstöðum í Öxarfirði 1903 og að Ferjubakka frá 1913- 16. En þessi ár í Gunnólfsvík voru erfið vegna hafíss og erfiðleika í veðráttunni. Því var ákveðið að flytja aftur inn í Öxarfjörð og þangað var Sigmunda komin með börnin þeirra átta. Guðmundur húsbóndi var enn við ýmis störf fyrir austan. Hinn 6. júní 1918 var hann að flytja ofn milli kirkna í opnum báti, bátnum hvolfdi og þar drukknaði Guðmundur. í Öxarfirði gekk maður undir manns hönd og var nú börnunum komið fyrir á bæjum í sveitinni. Frímann var yngstur systkinanna, tæplega árs gamall er faðir hans fórst, og fylgdi hann því móður sinni. Hann fór snemma að vinna fyrir sér á bæjum, og var heppinn með hús- bændur. Er Frímann var fermdur hafði hann safnað það miklu að hann keypti sér reiðhjól og hjólaði á því frá Hafrafellstungu þar sem hann var sem léttadrengur að Skinnastaðarkirkju og síðan heim aftur að athöfn lokinni. Frímann var alltaf ákveðinn í því að mennta sig og vann fyrir sinni skólagöngu sjálfur. Hann fór einn vetur á Hér- aðsskólann á Laugarvatni en síðan lauk hann námi frá Samvinnuskól- anum. Hinn 1. september 1939 hóf hann síðan störf hjá Kaupfélagi Eyfirðinga, fyrst í matvörudeild, en síðan í Alaska-útibúinu, og var við það kenndur æ síðan. Næst lá leiðin í járn- og glervörudeild þar sem hann varð deildarstjóri og er Vöruhúsið var opnað varð hann deildarstjóri þar. Alls starfaði Frí- mann hjá Kaupfélagi Eyfirðinga í hart nær 50 ár. Þó að Frímann flytti burtu úr Öxarfirði og veldi sér starfsvettvang við verslun og viðskipti, slitnaði aldrei sú taug sem batt hann við æskustöðvarnar. Bæði vor og haust fór hann til frænda sinna, Baldurs og Her- manns á Vestaralandi, til að að- stoða við sauðburð, og á haustin fór hann í göngur, bæði í Búrfells- heiði, Hafursstaðaheiði og víðar. Náttúrufegurð í Öxarfirði og hrikaleiki við Jökulsá og Gljúfrin létu Frímann aldrei ósnortinn. Frí- mann var mikill dýravinur, og hafði af og til verið með hross und- ir höndum, þó var það ekki fyrr en hann varð sextugur að hann eign- aðist fyrsta hestinn. Það var jarp- ur gæðingur, verðlaunaður, sem hann nefndi Þyt, en nokkru seinna varð gráa hryssan, Lauga, hans eign. Þessi tvö hross veittu honum ómælda ánægju næstu ár. Einnig er vert að minnast á heimiliskisuna Píu sem var honum mjög kær. Það var verulega gaman og fróðlegt að ferðast um landið með Frímanni, því hann hafði kynnt sér sögu þess og staðhætti og kunni ógrynni af frásögnum af landi og þjóð. Einnig ferðaðist Frímann mikið erlendis og hafði af því mikla ánægju enda félagslyndur. Þau hjón, Soffía og Frímann, áttu heima að Eyrarvegi 27 á Akureyri í rúmlega 50 ár, og hefur þar ætíð verið gestkvæmt. Eitt var það sem Frímann lagði ætíð mikla áherslu á í lífinu, en það var heiðarleiki. Hann taldi að þeim sem hefði heiðarleika að leið- arljósi farnaðist vel. Nú að leiðar- lokum þökkum við, fjölskyldan, fyrir þá gæfu að hafa fengið að njóta samvista með Frímanni Guð- mundssyni. Far þú í friði. Frímann Frímannsson. Elsku afi minn. Ég vildi að ég hefði getað verið hjá þér og haldið í hendina á þér þegar þú kvaddir. En eins og þú manst þá kvaddi ég þig fyrr um kvöldið því að þú varst orðinn svo veikur þegar ég þurfti að fara, veistu það afi að ég sé það núna hversu mikil forréttindi það voru að geta alltaf leitað til þín og geng- ið að þér vísum fram á síðustu stund. Mig langar að setja niður á blað nokkrar minningar um okkar stundir. Þú manst eftir því fyrir 10 árum síðan þegar ég var fimm ára gömul og var að æfa mig á hesti í gerðinu hjá pabba og mömmu og eina takmarkið var að komast ein á Tind mínum í hesthúsið til þín. Þetta var ekki löng leið en samt var þetta nú stærsta keppni lífs míns og í henni vann ég gullið sem var að sjá hve stoltur þú varst af litlu stelpunni þinni. Og þegar ég stækkaði voru ómetanlegar stund- irnar sem við áttum saman á hest- baki þó þær væru ekki margar. Alltaf þótti mér vænt um það hversu vel þú fylgdist með mér í keppni og öðru sem á dagana dreif hjá mér. Einu get ég ekki gleymt, það var þegar þú sast á kolli fyrir utan eldhúsgluggann á eyrinni og varst að svíða lappir og mér fannst það vægast sagt ógeðaslegt og sagði bara hæ og hljóp inn, en þú stríddi mér alltaf á því þegar var súrmatur með grautnum á laugar- dögum, hvort ég vildi nú ekki fá mér súran fót, svona gastu verið stríðinn en alltaf í góðu. Núna seinni árin eftir að þú fórst að eld- ast var alltaf jafn gott að koma í heimsókn til ykkar ömmu og jafn- vel gista. Stundum þegar ég sat hjá þér á þriðjudagskvöldum er amma fór að spila hjálpaðir þú mér mikið í að læra dönsku, íslensku og landafræði. Og í landafræðinni þurftir þú ekki bók en samt var nú hægt að fletta upp í þér eins og landafræði-atlas. Veistu það afi minn að mér fannst alltaf svo gam- an þegar ég kom á eyrina og þú sagðir: „Eigum við ekki að hlusta á hana Siggu mína Beinteins". Ég man að í einhverjum stóratburði í fjölskyldunni sagðir þú við mig að þú ætlaðir að leiða mig upp að alt- arinu við brúðkaup mitt og veistu það, að þegar þar að kemur að pabbi leiðir mig mun ég hugsa til þín afi minn. Ég hef oft hugsað, og ekki síst núna eftir að þú ert far- inn, hve góður maður þú varst sem lýsir sér best í því hve okkur barna- og barnabarnabörnum þín- um þótti gott að vera í návist þinni. Og ekki síður hve þú hugs- aðir vel um hestana þína tvo Þyt og Laugu sem alltaf voru svo hrein og fín og þau ertu núna búinn að hitta aftur. Og einnig hvað þú varst bara góður við allt og alla. Jæja afi minn nú ert þú kominn á leiðarenda og efast ég ekkert um að vel hefur verið tekið á móti þér því þú varst svo góður maður. Ég veit það afi minn að við eigum eftir að hittast aftur og fara á bak sam- an en vonandi er langt þangað til, en ég veit að þú gleymir mér ekki. Elsku amma ég vona að Guð gefi þér styrk í sorg þinni og ég veit að við munum öll hjálpast að við að komast í gegnum þetta tímabil í lífi okkar og í gegnum alla framtíð. Ástar- og saknaðarkveðjur. Þín Dagný Björg. Á kveðjustundu sem þessari hrannast upp minningarnar ein af annarri. Þær renna ljúft í gegnum hugann, við afi í hesthúsunum eða á hestbaki, þá afi á Þyt á demants- tölti eða á hryssunni Laugu. Ferð- inni er heitið fram á Kaupvangs- bakka þar sem sest er niður, tekið upp nesti og spjallað um heima og geima. Afi bendir á bæina þar sem hann var í kaupavinnu þegar hann var ungur maður og segir frá ýmsu sem þar gerðist. Einnig eru ofar- lega í huga mér hestaferðirnar í Sörlastaði, það voru sannkallaðar fjölskylduferðir. Frá því að ég var lítil stúlka hef ég ávallt verið mikið hjá afa og ömmu á Eyrinni og eftir að ég flutti til Reykjavíkur hefi ég varð- veitt sambandið vel. Minningarnar eru margar og sumar geymi ég aðeins í hjartanu. Mér hefur alltaf þótt vænt um afa minn og verið honum góð og ég veit að það var gagnkvæmt. Ég græt því ég er sorgmædd og á margar góðar minningar um afa. Ég græt því mér líður vel yfir því að eiga þessar minningar og mun varðveita þær meðan ég lifi. Ég bið algóðan Guð að styrkja ömmu mína. Soffía Frímannsdóttir. Gróðrarstöðin “ mwLfo ♦ Hiis blómanna Blómaskreytingar við öll tækifæri. Dalveg 32 Kópavogi sími: S64 2480 Sérfræðingar í blómaskreytingum vid öli tækifæri Skólavörðustig 12, á horni Bergstaðastrætis, sínti 551 9090. LEGSTEINAR Graníí’ HELLUHRAUN 14 220 HAFNARFJÖRÐUR SÍMI: 565 2707 FAX: 565 2629 HEIMASÍÐA: www.granit.is %rossar á (eiði ‘Ryðfrítt stáí - varaníegt efni ‘Kjossamir eruframíeiddir úr ítvítFiúðuðu, ryðfríu stáíi. íMinnisvarði sem endist um ókomna tíð. Sóíkross m/gcisíum. Víœð 100 smfrájörðu. ‘Tvöfaídur kjoss. Jíceð 110 smfrijörðu. rírityið í síma 431-1075 og fáið [ita6œ.ffing.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.