Morgunblaðið - 26.04.2000, Side 69

Morgunblaðið - 26.04.2000, Side 69
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 2000 69 ÍDAG BRIDS llmsjún GuOmundur Páll Arnarson Urslit íslandsmótsins í sveitakeppni nú um bæna- dagana sýna að þéttleikinn í úrvalsdeildinni eykst stöð- ugt, því mótið var óvenju jafnt allt til enda. Sveit Sub- aru stóð uppi sem sigurveg- ari í lokin með 160 stig út úr níu umferðum, sem gerir 17,87 stig að jafnaði úr leik. I fyrra vannst mótið á 168,5 stigum, sem var sögulega lág skor, en árin þar á undan var skor sigurvegaranna mun hærri, til dæmis 192 stig árið 1995. Næstu daga verður dálkurinn helgaður íslandsmótinu og fyrst skul- um við líta á vinnubrögð Magnúsar Magnússonar, en hann og Júlíus Sigurjónsson keyrðu í nokkuð harða slemmu í síðustu umferð- inni: Noj-ður * A862 ¥ K54 ♦ D94 + A53 Austur A G754 ¥ 108632 ♦ 7 * G62 Suður A K ¥ ÁG9 ♦ ÁKG853 * 1097 AV skiptu sér ekkert af sögnum og Magnús varð á endanum sagnhafi í sex tígl- um í suður. Vestur kom út með spaðatíu. Það er augljóst að slemm- an snýst um hjartalitinn og eðlilegasta íferðin er að svína gosanum, sem leiðir beint til taps, eins og sést. En Magnúsi lá ekkert á. Hann fór heim á tígul í öðr- um slag og spilaði lauftíu. Vestur lét drottninguna, fékk að eiga þann slag og spilaði sér út á trompi. Magnús spilaði trompi á móti nokkra hríð og vestur kaus að henda einum spaða. Þá fór Magnús inn í borð á laufás, tók spaðaásinn og stakk spaða. Magnús þóttist nú vita hvernig í spaðanum lægi, að austur væri með gosann eftir og sá þá mögu- leika á svonefndri upplýs- ingaþvingun. Hann tók tók öll trompin og skildi eftir í borði spaðaáttu og Kx í hjarta. Vestur varð að haldi í hæsta spaða og henti þvi tveimur hjörtum. Þegar Magnús spilaði loks hjarta kóng og hjarta til baka að ÁG taldi hann víst að vestur ætti drottninguna staka eft- ir fyrir aftan og stakk upp ásnum. Rétt reiknað og unn- ið spil. Slemman varð sögð á einu öðru borði og fór niður, en aðrir létu þrjú grönd duga. Vestur * D1093 ¥ D7 ♦ 1062 + KD84 morgunblaðið birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ætt- armót og fleira lesend- um sínum að kostnaðar- lausu. Tilkynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudagsblað. Sam- þykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælist- ilkynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569- 1100, sent í bréfsíma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1,103 Reylq'avík Þessar duglegu stúlkur söfnuðu með tombólu kr. 1.796 til styrktar Rauða krossi íslands. Þær heita Kolbrún Andradóttir, Hrund Andradóttir, Stefanía Lára Magn- úsdóttir og Katrín Sif Ingimundardóttir. Með morgunkaffinu Cosper Stelpurnar í kvennabúrinu ætla að þvo sér um hárið á morgun. LJOÐABROT LEIÐSLA Og andinn mig hreif upp á háfjallatind, og ég horfði sem örn yfir fold, og mín sál var lík ístærri svalandi lind, og ég sá ekki duft eða mold. Mér þótti sem hefði ég gengið upp gil fullt með grjótflug og hræfuglaljóð, fullt með þokur og töfrandi tröllheimaspil, unz á tindinum hæsta ég stóð. Mér þótti sem hefði ég þolað allt stríð, allt, sem þola má slqálfandi reyr, og mér fannst sem ég þekkti’ ekki háska né hríð og að hjarta mitt bifðist ei meir. Ég andaði himinsins helgasta blæ, og minn hugur svalg voðalegt þor, og öll hjarta míns dulin og deyjandi fræ urðu dýrðleg sem Ijómandi vor. En mín sál var þó kyrr, því að kraftanna flug eins og kyrrasta jafnvægi stóð, og mér söng einhver fylling í svellandi hug eins og samhljóða gullhörpuljóð. Eins og heilög guðs ritning lá hauður og sær, allt var himnesku gullletri skráð, meðan dagstjaman kvaddi svo dásemdarskær eins og deyjandi guðs sonar náð. Matthías Jochumsson. STJÖRNUSPA eftir Franees Hrakc NAUTIÐ Afmælisbarn dagsins: Pú ert sjálfstæður pers- ónuleiki, setur þér háleit markmið og ætlast ekki til neinna forréttinda. Hrútur (21. mars -19. apríl) Það skiptir öllu máli að þú getir haft stjórn á skapi þínu í samskiptum við samstarfs- menn þína. Mundu að telja upp að tíu áður en þú segir nokkuð. Naut (20. apríl - 20. maí) Skrifaðu hjá þér alla fundi sem þér eru ætlaðir því það getur haft alvarlegar afleið- ingar ef þú ert fjarverandi þegar mikið liggur við. Tvíburar (21. maí - 20. júní) AA Einhver valdabarátta er í gangi í kringum þig. Láttu ekki draga þig í neinar flokkadeilur heldur haltu þínu striki óáreittur. Krabbi (21. júní-22. júlí) Vertu viðbúinn að þurfa að verja deginum til annars en þú ætlaðir. Láttu það ekki fara 1 taugamar á þér þótt aðrir viti ekki alltaf hvað þeir vilja. Ljón (23. júh' - 22. ágúst) Spennandi verkefni bíður þín í dag og þú þarft að gefa þér tíma til þess að vinna linnulít- ið að því þar til það er komið í höfn. Meyja (23. ágúst - 22. sept.) SL Þú þarft að setja þér ákveðnar reglur varðandi einkalíf þitt og starf þannig að engir árekstrar verði þar í milli. Mundu að hver er sinn- ar gæfu smiður. 'jTVX (23. sept. - 22. október) & Rödd úr fortíðinni kveður sér hljóðs og þú þarft að bregðast við þeim tíðindum. Láttu ekki gömul mistök bitna á nútím- anum þvi þeim verður ekki breytt. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.) Nú er tækifærið til þess að kynna hugmynd sem þú hef- ur verið að velta fyrir þér í langan tíma. Sýndu sam- starfsmönnum þínum þá kurteisi að tala hreint út. jv. - 21. des.) að standast allar freist- um fjárútlát því staðan ðin nógu tæp fyrir. iu að verja tímanum til Steingeit (22. des. -19. janúar) Það liggur í loftinu að þú öðl- ist nú þá viðurkenningu sem þú svo lengi hefur átt skilið. Vertu lítillátur en leyfðu þér að njóta árangursins. Vatnsberi , , (20. jan. -18. febr.) Það er eins og allt standi á haus í dag. Reyndu umfram allt að halda ró þinni hvað sem á dynur þvi öll él birtir upp um síðir. Fiskar lMI( (19. feb. - 20. mars) Margir munu leita ráða hjá þér. Reyndu að gera öllum eitthvað til góða en láttu það ekki hafa áhrif á þig þótt þú getir ekki bjargað öllum. Stjömuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Vorvörurnar streyma inn Jakki kr. 7.900 Buxur kr. 3.400 Verðdæmi: Jakkar Pils Buxur Bolir frá kr. 4.900 frá kr. 2.900 frá kr. 1.690 frá kr. 1.500 Kvartbuxur kr. 2.500 Alltaf sama góða verðið! Nýbýlavegi 12, Kóp., s. 554 4433. Rýmum fyrir nýjum vörum Gerið góð kaup frá 26. til 29. apríl. Fyrstur kemur — fyrstur fær. Híá Svönu Garðatorgi 7, Garðabæ, sími 565 9996. FULL BÚD AF NÝJUM VÖRUM Sama lága verðið ANTIIC GALLERY Vegmúia 2, sími 588 8600 £s V,SA Euro og Visa raðgreiðslur Opið virka daga frá kl. 12-18, helgar frá kl. 12-16. Uppsetningabúðin Hverfisgötu 74, sími 552 5270 Uppsetningabúðin flytur 1. maí í Síðumúla 32 í Alnabæ Setjum áfram upp alla handavinnu og endurnýjum gömlu púða- uppsetningarnar og klukkustrengi. Póstsendum. Léttu hjartanu lífið! Hjartað púlar fyrir þig allan sólarhringinn, allt þitt líf. Þú getur styrkt hjartað og auðveldað því puðið: Taktu til fótarma. Rösk ganga í samtals 30 mínútur á dag dregur úr blóðfitumyndun, lækkar blóðþrýsting og styrkir hjartað og æðakerfið. HreyfSu þig reglulega og taktu fjölskylduna meS. Borðaðu góðan og hollan mat; litríka ávexti, ferskt grænmeti, fitulítið kjöt, ferskan fisk, léttar mjókurvörur og pasta. Njóttu matarinns í næði. Mundu að reykingar orsaka hjartasjúkdóma. Reykingamaður er í tvöfalt meiri hættu á að fá kransæðastíflu. Er blóðþrýstingur þinn í lagi? Eftir fimmtugt ætti að mæla hann annað hvert ár. Léttu hjartanu lífið og líf þitt verður betra. Landlæknisembættið Nánari upplýsingar á www.landlaeknir.is Fræðsluauglýsing frá Landlaekniscmbætbnu www.landlaeknir.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.