Morgunblaðið - 29.04.2000, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 29.04.2000, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 98. TBL. 88. ÁRG. LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Reuters Afmæli Saddams fagnað MANNFJÖLDI fagnaði 63 ára af- mæli Saddams Husseins íraksfor- seta í gær og var mikið um dýrðir. Söngur og dans settu mark sitt á hátíðahöldin sem fóru fram um allt land en risu einna hæst í fæðingar- bæ Saddams, Tikrit. Forsetinn var ekki sjálfur við- staddur hátíðahöldin í bænum, en fulltrúi hans, Issat Ibrahim, ávarp- aði gesti. Á myndinni sést hann klappa saman höndum eftir að hafa skorið stdra sneið af risastdrri af- mælistertu sem bökuð var í tilefni dagsins. Hátiðahöld af þessu tagi hafa far- ið fram í landinu á hverju ári frá 1985 þrátt fyrir þá miklu neyð sem ríkt hefur þar síðan Persafldastríð- inu Iauk árið 1991. ----------- Verkfall í Noregi Flugsam- göngur leggjast niður Osló. Morgunblaðið. MEIRA en 80.000 norskir launþegar munu að öllum líkindum leggja niður vinnu 3. maí næstkomandi og mun áhrifanna gæta á flestum sviðum at- vinnulífs í landinu. Meðal annars er óttast að allt flug til landsins og frá muni leggjast niður og að útgáfu tuttugu stærstu dagblaða í Noregi verði hætt ef af verkfalli verður. Launþegar höfnuðu drögum að nýjum kjarasamningi í gær þrátt fyrir hvatningarorð forystumanna þeirra um að samþykkja þau. Sam- kvæmt drögunum stóð til að fimmtu vikunni yrði bætt við sumarfrí laun- þega í áföngum á næstu fjórum árum en talið er að launþegar hafi verið óánægðastir með launalið fyrirhug- aðs samnings. Alls greiddu um 65% atkvæði gegn samningnum og var það heldur hærra hlutfall en búist var við. Sam- kvæmt frétt Aftenposten eru Norð- menn þegar farnir að birgja sig upp af matvælum og áfengi af ótta við að hillur verslana muni senn tæmast. Stóð af sér atkvæða- greiðslu í ítalska þinginu Rómaborg. AP, AFP. NYMYNDUÐ ríkisstjóm á Ítalíu hlaut í gær stuðning meirihluta þing- manna í fulltrúadeild ítalska þingsins þegar greidd voiu atkvæði um traustsyfirlýsingu á stjómina. Em þar með taldar auknar líkur á því að rfldsstjóm Amatos Guiulianos sitji áfram en kosið verður um traustsyf- irlýsingu í öldungadeild þingsins í næstu viku._ Forseti Italíu, Carlo A. Ciampi, veitti á miðvikudag Amato umboð til stjórnarmyndunar eftir að rfldsstjóm Massimos D’Alemas sagði af sér vegna ósigurs vinstrimanna í sveitar- stjómarkosningum sem haldnar voru nýlega. Sjö miðju- og vinstriflokkar eiga aðild að nýju rfldsstjóm- inni sem verður sú 58. í röð- inni frá lokum seinni heims- styijaldar. Talið var tvísýnt hvort stjómin stæðist at- kvæðagreiðsluna í þinginu í gær og olli því óvissa um hvemig ýmsir smáflokkar á miðju stjómmálanna hygð- ust greiða atkvæði. Úrslitin urðu þau að 319 greiddu at- kvæði með stjórninni en 298 gegn henni, 5 sátu hjá. Ef rfldsstjóm Amatos heldur velli í atkvæðagreiðsl- unni í öldungadeildinni í næstu viku er talið fullvíst að efnt verði til þjóðar- atkvæðagreiðslu á Ítalíu í maí um Giuliano Amato nýtt kosningakerfi. Flokkar sem standa að ríkisstjórninni styðja breytingar á kosn- ingakerfinu og er stjómin öðrum þræði mynduð til að tryggja framgang breyting- anna. Margir hafa kennt kosningakerfi landsins, sem byggist á hlutfallskosningu, um óstöðugleikann sem ein- kennt hefur ítölsk stjómmál síðustu áratugi. Er einkum bent á að mikinn fjölda flokka á þingi megi rekja til kerfisins en þeir era nú 21 talsins. Breytingarnar munu m.a. fela í sér að komið verði á einmenn- ingskjördæmum í landinu. Sátu boð í Hvíta húsinu ÞJÓÐHÖFÐINGJAR Norðurland- anna sátu í gær hádegisverðarboð í Hvita húsinu til að minnast landa- funda norrænna manna í Vestur- heimi árið 1000. Á myndinni má sjá Hillary Clinton, forsetafrú Banda- rikjanna, ávarpa boðsgesti. Næst forsetafrúnni situr eiginmaður hennar, Bill Clinton Bandaríkja- forseti, þá Ólafur Ragnar Gríms- son, forseti íslands, og við hlið hans Dorrit Moussaieff, vinkona for- setans. I forgrunni eru Björn Bjarnason menntamálaráðherra og Sigríður Anna Þórðardóttir, forseti Norðurlandaráðs. ■ Hvíta húsið/40-41. Morgunblaðið/Ásdís Bandarísk stjórnvöld leggja fram tilmæli í málinu gegn Microsoft Verði skipt í tvær einingar Washington. AP, The Washington Post. DÓMSMÁLARÁÐUNEYTI Banda- ríkjanna og sautján ríki fóra í gær fram á að alríkisdómstóll fyrirskipaði að hugbúnaðarfyrirtækinu Microsoft yrði skipt upp í tvær sjálfstæðar rekstrareiningar. Farið er fram á að myndað verði sérstakt fyrirtæki um framleiðslu stýrikerfisins Windows en að allur annar hugbúnaður, þar á meðal netvafrinn Explorer, fari und- ir annan hatt. Óska stjómvöld eftir því að dómstóllinn meini fyrirtækj- unum tveimur að sameinast aftur íyrr en eftir tíu ár hið minnsta. Microsoft hefur þegar tilkynnt að væntanlegum dómi verði áfrýjað og er talið fullvíst að málið muni ganga alla leið til hæstaréttar Bandaríkj- anna. Getur liðið allt að nokkram ár- um þar til endanleg niðm’staða fæst. Talsmaður Microstoft, Jim Cullin- an, gagnrýndi í gær tilmæli stjóm- valda. „Þetta er eins og að segja við McDonald’s að fyrirtækið megi bara selja hamborgara og ekki franskar og að það verði að opinbera leyniupp- skriftina að sósunni. Við erum sann- færð um að áfrýjunardómstóll muni styðja málstað Microsoft,“ sagði Cullinan. Liður í langvinnum málaferlum Beiðni yfirvalda frá í gær er liður í langvinnum málaferlum sem stjóm- völd í Bandaríkjunum hafa rekið gegn Microsoft vegna meintra einok- unartilburða þess. Dómari við alrík- isdómstól kvað í byrjun þessa mán- aðar upp þann úrskurð að Microsoft hefði brotið bandarísk samkeppnis- lög, m.a. svokölluð Sherman-lög frá 1890. Fyrirtækið er sakað um að hafa beitt ólöglegum aðferðum til að við- halda einokunarstöðu sinni á mark- aði fyrir stýrikerfi einkatölva. Með því að beita þvingunum hafi Micro- soft komið í veg fyrir að aðrir fram- leiðendur netvafi-a næðu að koma vöram sínum á markað og einnig varðveitt ráðandi stöðu sína með því að gera Explorer-vafrann að órjúfan- legum hluta Windows-stýrikerfisins. MORGUNBLAÐK) 29. APRÍL 2000
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.