Morgunblaðið - 29.04.2000, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Kiaftiutnn og
_ ,W<'(
TGMÚMD
Þetta er að verða ansi mikið Iabb hjá þér til að koma okkur fyrirfólkinu framfyrir biðröðina, Ingibjörg mín.
Lísur
Blómstrandi
liljur
Sumarkrisur
Begoníur
Heimilis
blómvðndur
BHH
íSg§S8m
T/
JD
r\r
ALLT A EiNUM STAÐ
rT
IT
Bú 2000 í Laugardal
Landbúnað-
ur er lífs-
nauðsyn
Sigurrós Ragnarsdóttir
Bú 2000 - landbúnað-
ur er lífsnauðsyn,
er yfirskrift land-
búnaðarsýningar sem hald-
in verður í Laugardalnum í
Reykjavík 6. til 9. júlí nk.,
undirbúningur fyrir sýn-
inguna er í fullum gangi um
þessar mundir. Það eru
Sýningar efh., í samstarfi
við Upplýsingaþjónustu
landbúnaðarins, sem ann-
ast undirbúninginn, en sýn-
ingarstjóri er Sigurrós
Ragnarsdóttir. Hún var
spurð hver helstu áherslu-
atriðin væru á fyrirhugaðri
sýningu.
„Sýningin verður vöru-
og þjónustusýning sem
ætlað er að kynna íslensk-
an landbúnað við aldahvörf
og á að höfða jafnt til
bænda sem almennings og þess
fólks sem starfar á annan hátt við
landbúnað eða úrvinnslugreinar
honum tengdar. Bú 2000 er einnig
vettvangur fyrir alla þá sem vilja
kynna rannsóknir, menntun, ný-
sköpun og þróunarstörf í landbún-
aði. Laugardalshöllin er þegar
nánast uppbókuð og er þó sýning-
arsvæðið um 1.100 fermetrar, fyrir
utan Skautahöllina, sem er að svip-
aðri stærð.“
- Verður útisýning Iíku?
„Já, þar verður allt mögulegt til
sýnis, svo sem handverk tengt
landbúnaði, margir bændur eru
famir að vinna við handverk sam-
hliða búskapnum, einnig eitthvað
af vélum, heitur pottur og kannski
sumarhús verður til sýnis.“
- En hvað verður sýnt á 2.200
fermetrunum innanhúss?
„Þar verður sýnt allt frá gras-
rótinni í eiginlegri merkingu og
svo landbúnaðarafurðimar fram til
þess að þær fara upp í munn neyt-
andans. Það er nokkuð langt síðan
landbúnaðarsýning hefur verið
haldin hér á landi, síðasta sýning
var 1987 og hét sú sýning Bú ’87 -
máttur lífs og moldar. Mildð hefur
breyst í landbúnaði síðan þessi sið-
asta sýning var haldin, íslenskur
landbúnaður er nú nútímaleg og
tæknivædd atvinnugrein sem horf-
ir til framtíðar, mikil áhersla er nú
á hollustu og hreinleika og vélvæð-
ingin er komin á hátt stig, t.d. eru
komnar alsjálfvirkar mjaltavélar."
- Hefur þú séð slíkar vélar?
„Ég sá svona vélar á Agromek
2000 í Heming í Danmörku, sem
er ein stærsta landbúnaðarsýning-
in sem haldin er þar í landi árlega.
Mér skilst að alla vega einn af
stærstu kúabændum Islands sé
kominn með alsjálfvirka mjaltavél.
Mér þótti einkennilegt að sjá kúna
ganga inn í básinn og láta mjólka
sig þegar henni hentaði. Um háls-
inn hafði hún tölustýringu sem
hægt var að lesa á hvaða fóður
þyrfti að gefa viðkomandi kú. Ég
var í sveit sem bam og
fannst ótrúleg breyting
hafa átt sér þarna stað.“
- Eru fleiri nýjungar
í vélvæðingu í landbún-
aði til sýnis í Laugardal
ísumar?
„Ég veit ekki enn
hvort alsjálfvirka
mjaltavélin verður sýnd
þar, en ég vona að svo verði. Aðrar
vélanýjungar á sýningunni er ég
heldur ekki með að hreinu, þetta er
allt í deiglunni enn þá.“
-Hvað getur þú sagt okkur
meira um hvað sýnt verður?
„Búgreinafélögin ætla að hafa
► Sigurrós Ragnarsdótlir fædd-
ist 25. nóvember 1963. Hún lauk
prófi sem tækniteiknari frá Iðn-
skólanum í Reykjavík, sem
sjúkraliði frá Sjúkraliðaskóla Is-
lands og varð stúdent frá Fjöl-
brautaskólanum í Breiðholti
1997. Hún hefur starfað á sjúkra-
húsum sem sjúkraliði en frá ár-
inu 1999 hefur hún verið starfs-
maður og síðar sýningarstjóri hjá
Sýningum ehf. Hún er gift Stef-
áni Árna Einarssyni verkfræð-
ingi og eiga þau alls fjögur börn.
kynningu á sinni starfsemi, land-
búnaðarháskólinn á Hvanneyri
ætlar að kynna skólann, eins ætla
Garðyrkjuskóli ríkisins og Hóla-
skóli að kynna sína starfsemi. Þá
verður Rannsóknarstofnun land-
búnaðarins með kynningu á því
sem þar fer fram. Meira að segja
vítamín fyrir húsdýr og júgurs-
myrsl verða þama til sýnis. Þess
má geta að Samtök afurðastöðva
mjólkuriðnaðarins sýna þama sína
framleiðslu, SS, Goði, Ferskar
kjötvörur og Kjötvinnslan Höfn
sýna einnig það sem þeir eru með á
boðstólum. Kartöflubændur láta
ekki sitt eftir liggja og verða með
sýningarbása þar sem fróðleikur
um kartöflurækt og framleiðslan
verður kynnt.“
- Verða skemmtiatriði?
„Já, það verða ratleildr, hægt
verður að heimsækja Guttorm í
Húsdýragarðinn. Landsmót hesta-
manna verður í Víðidal á sama
tíma og verður samvinna þar á
milli og margt fleira verður þama
hægt gera og sjá.“
- Er þetta ekki óskaplega dýrt
fýrirtækf!
„Jú, vissulega. Það verður inn-
gangseyrir fyrir fullorðna en frítt
fyrir böm, aldraða og öryrkja."
-Erþetta fagsýning líka ?
„Já, hupiyndin er að vera með
stutta fyrirlestra fyrir bændur og
búalið, gefin verður út vönduð sýn-
ingarskrá sem menn
geta haft til hliðsjónar.
Kynning verðrn- á starf-
semi ýmissa búgreina-
félaga, svo sem Svína-
ræktarfélags íslands,
Landssambands kúa-
bænda, Landssam-
bands sauðfjárbænda
og Félags hrossabænda. Bænda-
samtökin verða líka með slíka
kynningu á sinni starfsemi. Þarna
verður sem sagt eitthvað fyrir alla
og sýningin er ætluð m.a. til þess
að auka samstöðu á milli dreifbýlis
og þéttbýlis og kynna hvað fram
fer í sveitum landsins."
íslenskur
landbúnaður
er nú nútima-
leg og tækni-
vædd atvinnu-
grein