Morgunblaðið - 29.04.2000, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson
Nýtt iðnaðar- og athafnahverfí
í Grundarfirði
Átján lóðir eru
til úthlutunar
Grundarfirði - í Grundarfirði er
hafin úthlutun lóða á nýju iðnaðar-
og athafnasvæði sem staðsett er
við Snæfellsnesveg rétt austan við
þéttbýli Grundarfjarðar.
Alls eru átján lóðir til úthlutun-
ar á nýja svæðinu, þremur lóðum
hefur þegar verið úthlutað og fleiri
umsóknir hafa borist skipulags- og
byggingarnefnd.
Töluvert hefur verið byggt af
iðnaðarhúsnæði í Grundarfirði á
síðustu árum og var því þörf fyrir
að taka nýtt svæði undir slíkar
lóðir.
Það var Erla Bryndís Kristjáns-
dóttir, landslagsarkitekt á Teikni-
stofunni Eik ehf. í Grundarfirði,
sem vann deiliskipulag svæðisins.
Skipulagsskilmálar gera m.a. ráð
fyrir því að svæðið, sem er rétt við
aðkomuna í byggðarlagið, verði vel
afmarkað með landslagsmönnum,
þannig að ásýnd svæðisins verði
sem snyrtilegust.
Framkvæmdir við gatnagerð á
svæðinu fara af stað með vorinu og
munu því vinnast samhliða fram-
kvæmdum við fyrstu byggingarnar
á svæðinu.
Píslarganga
umhverfis Mývatn
Mývatnssveit - Það má kalla orðin
föst hefð hér að genginn er hringveg-
urinn umhverfis vatnið á fostudaginn
langa og er sú vegalengd um 36 km.
Driffjöður þessa er Snæbjörn Pét-
ursson í Reynihlíð sem lætur engan
bilbug á sér finna og 72ja ára stjóm-
ar hann ferðinni í 7. sinn en fyrst var
gengið 1994.
Þeir sem skráðu sig í gestabók
göngumanna nú voru 127 og er það
nokkur fjölgun frá síðasta ári. Ekki
ganga allir heila hringinn heldur er
það undir hverjum og einum komið
hversu mikið hann treystist til að
ganga, rúta fylgir göngumönnum og
geta þeir sem þurfa hvílst í bílnum og
geymt þar föggur sínar.
Að þessu sinni var veður óvenju
kuldalegt frost með norðanstreitu og
nokkru fjúki og jafnvel hundslappa-
drífuéljum gaf því enga fjallasýn sem
venjulega gleður göngumenn, en vel
búnir garpar létu ekkert aftra sinni
för og gengu sem röskiegast af stað
norður frá Hótel Reynihlíð kl. 09:00
rangsælis um vatnið og höfðu auðan
veg alla leiðina.
Hresst upp á andlegu hliðina
Að var á Skútustöðum, fyrst í Sel-
inu þar sem hugað var að þörfum
magans en síðan er gengið til kirkju
þar sem sóknarpresturinn sr. Ömólf-
ur hressti upp á andlegu hliðina með
ritningarlestri einnig voru sungnir
tveir sálmar við undirleik Sólveigar
Jónsdóttur frá Akureyri. Að kirkju-
athöfn lokinni um kl 14.30 héldu
göngumenn ótrauðir og endurnærðir
áfram sinni för, hinir síðustu luku
göngu kl 17:46. Ekki er hér um kapp-
göngu að ræða nema það sem hver og
einn setur sér, en allir koma ánægðir
og þó þreyttir úr sinni píslargöngu.
Morgunblaðið/BFH
Presturinn og organistinn bera saman bækur sínar.
Snæbjörn fararstjóri og fleiri á ferð.
Islands-
mót í
dorgveiði
ÍSLANDSMÓT í dorgveiði var hald-
ið á Ólafsfjarðarvatni nýlega í góðu
veðri, en svolítilli golu. Þátttakendur
í mótinu vom rúmlega tuttugu, en
veiði var ekki mikil.
Halldór Gunnarsson varð íslands-
meistari í eldri flokki og Darri Hólm-
arsson í yngri flokki og þá hlaut Ja-
kob Óðinsson verðlaun fyrir flesta
veidda fiska en hann veiddi líka
minnsta fiskinn á þessu móti.
Bjöm Sigurðsson hélt mótið að
vanda.
Dornier-flugvél íslandsflugs á Gjögri.
Ljósmynd/Helgi Jónsson
Islandsmeistarar í dorgveiði,
Halldór Gunnarsson og Darri
Hólmarsson. Mótið var haldið í
Ólafsfjarðarvatni á laugardag.
Morgunblaðið/Jón G. Guðjónsson
Síðasta flug
Islandsflugs
til Gjögurs
Ámeshreppi - Fimmtudaginn 27.
aprfl var síðasta áætlunarflug fs-
landsflugs á Gjögur en félagið hef-
ur flogið hingað í tíu ár. Hefur
fólki fundist félagið hafa þjónað
Árneshreppi vel öll þessi ár.
Nýtt flugfélag tekur við 1. maí
og er það leiguflug ísleifs Ottesen
sem verður með minni flugvél í
ferðum.
Hreppsbúar vonast til að ekki
dragi úr þjónustu við þetta en ótt-
ast engu að síður að þjónustan
verði minni en verið hefur til
þessa. Aðallega á það við um vetr-
artfmann þegar allir flutningar
fara fram með flugi.
Nýr leikskóli
í Reykjanesbæ
FRAMKVÆMDIR við nýjan leik-
skóla í Reykjanesbæ hófust á þriðju-
dag og er stefnt að því að hann
verði tekinn í notkun 1. desember
næstkomandi. Nýi leikskólinn, sem
verður sá sjöundi í Reylyanesbæ,
rúmar 120 til 130 börn og með opn-
un hans verður pláss fyrir samtals
um 680 börn í leikskólum bæjarins.
Fjórar deildir verða á leikskólan-
um og er gert ráð fyrir um 20
starfsmönnum. Húsið verður um
660 fermetrar en lóðin er tæplega
4.500 fermetrar. Áætlaður kostnað-
ur við framkvæmdirnar er 92 millj-
ónir króna.
Morgunblaðið/Sverrir
Hafist var handa við byggingu nýs leikskóla í Reykjanesbæ á þriðjudag
og er stefnt að því að taka hann í notkun 1. desember næstkomandi.
Opið hús Samvinnu-
háskólans á Bifröst
OPIÐ hús verður í Samvinnuháskól-
anum á Bifröst laugardaginn 29. apr-
íl. Opna húsið hefst kl. 13 og stendur
til kl. 17.
Gestum verða sýndar byggingar
og aðstaða. Kennarar og nemendur
taka á móti gestum, leiða þá um
húsakynnin og kynna starfsemina.
Námsframboð og upplýsingakerfi
háskólans verða kynnt, leikskólinn
Hraunborg verður opinn almenningi
og íbúðarhúsnæði í Nemendagörð-
um til sýnis.
Allir eru velkomnir á opið hús,
gamlir nemendur á Bifröst, umsækj-
endur um skólavist í haust og aðrir
velunnurar skólans eru sérstaklega
hvattir til að láta sjá sig. Væntanleg-
um umsækjendum gefst kostur á
viðtali við rektor eða aðstoðarrektor.
Útskriftarfélag nemenda sér um
veitingar á Kaffi Bifröst.