Morgunblaðið - 29.04.2000, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2000 23
VIÐSKIPTI
Aðalfundur OZ.COM
nk. miðvikudag
Sóttum
heimild til
hluta-
fjáraukn-
ingar
FYRIR aðalfundi OZ.COM
sem haldinn verður nk. mið-
vikudag liggur tillaga um að
auka hlutafé fyrirtækisins úr
75 milljónum hluta í 275 millj-
ónir.
Einnig liggur fyrir tillaga
um að gefa út jöfnunarhluta-
bréf svo að hluthafar fái tvo
hluti fyrir hvern einn sem
þeir eiga nú. Þetta kemur
fram í tilkynningu um aðal-
fundinn sem send hefur verið
hluthöfum OZ.COM.
Starfsmenn fái rétt til
kaupa á 9 milljón hlutum
Aðrar tillögur sem liggja
fyrir eru að forgangshluta-
bréf breytist sjálfkrafa í al-
menn hlutabréf við skráningu
á almennum hlutabréfamark-
aði. Auk þess tillaga um
breytingar á samþykktum fé-
lagsins þess efnis að stjórnar-
menn verði fjórir til sjö í stað
þriggja til fímm.
Einnig liggur fyrir tillaga
þess efnis að starfsmenn
OZ.COM og dótturfyrirtækja
fái rétt til kaupa á alls 9 millj-
ón hlutum í stað 6,5 milljóna
áður.
Rétt á að sækja aðalfund-
inn eiga þeir hluthafar sem
skráðir voru fyrir hlutum í
OZ.COM 24. mars sl.
Columbia Ventures selur verksmiðjur í Bandaríkjunum
Söluverðið um 9 milljarðar
COLUMBIA Ventures Corporat-
ion, eigandi álverksmiðju Norðuráls
hf. á Grundartanga í Hvalfirði, og
Indalex Aluminum Solutions, næst-
stærsta álvinnslufyrirtæki Norður-
Ameríku, hafa undirritað viljayfir-
lýsingu um kaup Indalex Aluminum
Solutions á þremur álvinnslu-
verksmiðjum í Kaliforníu og ál-
steypuverksmiðju í Texas, sem eru í
eigu Columbia Pacific Aluminum
Corporation, dótturfélags Columbia
Ventures.
Samkvæmt frétt Reuters-frétta-
stofunnar er kaupverðið 120 millj-
ónir Bandaríkjadala, eða um níu
milljarðar íslenskra króna. Er áætl-
að að gengið verði frá kaupunum í
næsta mánuði.
I fréttatilkynningu um kaupin
kemur fram að allir starfsmenn Col-
umbia í verksmiðjunum verði starfs-
menn Indalex Aluminum Solutions,
en starfsmenn fyrirtækisins eru nú
um 4.600 talsins í 17 álvinnslu-
verksmiðjum og 6 álsteypuverk-
smiðjum víðsvegar í Norður-Amer-
íku. Indalex Aluminum Solutions er
í eigu Caradon plc í Englandi, en
það er alþjóðleg fyrirtækjasam-
steypa með fjölþætta starfsemi í
Evrópu og Bandaríkjunum.
Mikill vöxtur
Flögu hf.
MIKILL vöxtur var í starfsemi
Flögu hf. á árinu 1999. Sölutekjur
fyrirtækisins námu 307 milljónir
króna á árinu en þær voru 120
milljónir 1998. Stjórnendur fyrir-
tækisins áætla að sölutekjur muni
enn aukast á þessu ári og verða yfir
600 milljónir króna.
Verðmætið um
5,5 milljarðar króna
Gengi á hlutabréfum í Flögu á
hinum svokallaða gráa markaði
hefur hækkað stöðugt í viðskiptum
manna á meðal. Fyrir ári var geng-
ið um 17 en samkvæmt upplýsing-
um frá Landsbréfum hf. má ætla að
það sé nú á bilinu 130-135. Sé miðað
við lægra gengið má gera ráð fyrir
að verðmæti fyrirtækisins sé um
fimm og hálfur milljarður króna.
Fyrir einu ári keypti bandaríska
fyrirtækið ResMed 10% hlut í
Flögu hf. I lok síðasta árs var
hlutafé í Flögu aukið um 2 milljónir
króna að nafnverði og var það selt
Combi Camp
tjaldvagnar
fjárfestum. Við það lækkaði hlutur
ResMed í fyrirtækinu niður fyrir
10%, en síðan hefur ResMed hins
vegar aukið hlut sinn og er hann
aftur orðinn um 10%.
Sportbúð Títan - Seljavegi 2-101 Reykjavík
Netfang: titan@isa.is - Vefsíða: www.isa.is/titan
Sportbúð Títan - Seljavegi 2-101 Reykjavík
Netfang: titan@isa.ís - Vefsíða: www.isa.is/titan
TM - HÚSGÖGN
Síðumúla 30 - Sími 568 6822
- œvintýri líkust
Við erum flutt
www.islandsflug.is
en við erum enn með sama símann: 570 8090
Öll farþega- og fraktafgreiðsla okkar er flutt til Flugfélags íslands. Eftir sem áður notarðu
sama símann til að fá upplýsingar og bóka flug til Bíldudals og Sauðárkróks: 570 8090.
ISLANDSFLUG