Morgunblaðið - 29.04.2000, Blaðsíða 72
72 LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2000
..
MORGLTNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Julia Roberts leikur Erin Brockovich
NÝJASTA kvikmynd Juliu Roberts,
jírin Brockovich, hefur gert hana að
‘ l'yrstu konunni sem kemst í 20 milij-
ón dollara launaflokkinn í Holly-
wood, en fyrir í þeim flokki eru m.a.
leikararnir Mel Gibson, Jim Carrey
og Tom Cruise. Jafnframt segir leik-
stjóri myndarinnar, Steven Soder-
bergh, að Julia hafi átt hvern einasta
eyri skilið.
Julia og Erin líkar
Það eru orð að sönnu að segja að
persóna Juliu í myndinni endur-
spegli að vissu marki líf hinnar 32
ára gömlu leikkonu. Foreldrar henn-
^ar skildu þegar hún var 4 ára að aldri
' og faðir hennar, sem hún var mjög
náin, lést úr krabbameini þegar hún
var aðeins 9 ára. Þrátt fyrir að leik-
listarblóðið rynni Juliu í æðum
dreymdi hana um að verða dýra-
læknir. Það breyttist aftur á móti
þegar hún útskrifaðist úr mennta-
skóla 17 ára og fór með systkinum
sínum, Lisu og Eric, sem bæði voru
leikarar, til New York í leit að frama
innan leiklistarinnar. Þar vann hún
fyrir sér með fyrirsætustörfum og
örsmáum hlutverkum þar til stóra
tækifærið kom árið 1988 með gam-
anmyndinni „Mystic Pizza“. Myndin
varð til þess að orðrómur um Juliu
barst til Hollywood og opnaði allar
dyr þar og hefur velgengni hennar á
ifvíta tjaldinu aukist með hverju
hlutverkinu en tuttugu og fjögurra
ára að aldri hafði hún fengið tvær
Óskarsverðlaunatilnefningar og
leikið £ meira en tuttugu myndum. A
síðasta ári heillaði hún áhorfendur
með leik sínum í „Runaway Bride“
og „Notting Hill“ á meðan nýja
myndin hennar, „Erin Brockovich",
er sögð líkleg til margi-a Óskars-
verðlaunatilnefninga á næsta ári.
Myndin er ólík hinum öruggu, róm-
antísku gamanmyndum sem Julia er
þekktust fyrir en hún fjallar um rit-
ara á lögfræðiskrifstofu sem með
eljusemi fór með sigur af hólmi í 330
milljón dollara málaferlum, sem eru
hæstu skaðabætur sem borgaðar
hafa verið í Bandaríkjunum. Brocko-
vich komst að því að stórfyrirtæki í
Bandaríkjunum hafði eitrað vatns-
forðabúr smábæjar með því að dæla
krómúrgangi í það og urðu margir
bæjarbúar fárveikir af að drekka
vatnið.
Góðmennska
skiptir máli
Hvað varð til þess að þú heillaðist
fyrst af unnustaþínum, Benjamin?
Hann er yndislegur maðtu-. Já,
hann er laglégur, en útlit hans fölnar
Við hliðiná á góðmennsku hans. Og
góðmennska skiptir mig miklu máli.
En þú vissir það varla ífyrstu.
Maður hefur það að vissu leyti á
tilfinningunni.
Svo það var eðlishvötin?
Já. Eg fylgi henni öllum stundum,
jafnvel þegar hún reynist röng því
meira að segja þá, þegar ég legg vit-
Dreymdi um að
verða dýralæknir
Julia Roberts er hæstlaunaða leikkona
í heiminum í dag og einnig ein af þeim fal-
legustu að margra mati. Mel Spencer
ræddi við leikkonuna um nýjustu mynd
hennar, Erin Brockovich, sem frumsýnd
var hér á landi á föstudaginn.
Reuters
Roberts: „Ég held að tvær manneskjur, sem eru
ástfangnar, geti yfirstigið allt, hvað sem þær gera
eða hvar sem þær búa. Það getur ekkert hindrað
fólk sem er ætlað að eyða ævinni saman."
lausa dóma á eitt-
hvað eða hef ekki
nægilega víðsýni,
verður hin listræna
sköpun svo mikil að
ég sé aldrei eftir
neinu.
Hver heldur þú
að sé lykillinn að
velgengni sambands
þíns ogBratts?
Að góðmennsku
hans undanskilinni?
Við þekkjum hvort
annað mjög vel og
vitum hvers er kraf-
ist af okkur í starfi.
Við vitum einnig að í
samböndum þarf
fólk að mætast á
miðri leið. Eg hef
alltaf verið meðvit-
uð um að sambönd
ganga ekki upp
nema báðir aðilarnir
leggþ sitt af mörk-
um. Ég sé ekki karl-
manninn fyrir mér
sem höfuð heimilisins og konuna ein-
hvers staðar í bakgrunninum.
Pú hefur unnið með Ben að þátt-
unum sem hann leikur í, „Law and
Order“. Hvernigvarsú upplifun?
Þetta var dálítið taugatrekkjandi,
því ég var að reyna að leika þennan
glæsilega, morðóða kvendjöful fyrir
framan kærastann minn. En við
skemmtum okkur konunglega og ég
væri til í að vinna með honum aftur £
framt£ðinni.
Erin er mjög
sterk persóna
Hin raunverulega Erin Brocko-
vich er mjög sterk persóna. Heillaði
sá þáttur í fari hennar þig?
Jú, hún er mjög sterk persóna, en
það er ekki nóg að segja það. Hún er
svo áhugaverð á mörgum sviðum. Til
dæmis getur hún verið mjög slóttug
og það eykur ánægjuna af að leika
hana. Hún hefði getað orðið mjög
hæglát manneskja en hún kaus að
gera allt með látum og berjast fyrir
rétti fólksins. Lifsorka hennar heill-
ar mig mjög mikið sem leikkonu.
Hvað með orðbragðið sem pers-
óna þín notar?
Það er ætlun hennar. Orðbragð
hennar veldur þvi að maður byrjar
að hlusta á hana og hættir að láta
aðra þætti £ fari hennar draga at-
hyglina frá þvi. Maður hlustar á
hvað hún hefur að segja. Orðbragðið
þjónar mjög stórum tilgangi.
Hefur Erin veitt þér innblástur
um að gera eitthvað meira við líf
þitt?
Ég vinn mikið að góðgerðarmál-
um en reyni ekki að láta mikið bera á
þvi. Erin ætti að veita fólki innblást-
ur, og það sem myndin segir áhorf-
endum er að ein manneskja getur
skipt sköpum. Oft veltir lítil þúfa
þungu hlassi.
Þú hittir hina raunverulegu Erin
Brockovich. Urðuðþið vinkonur?
Þvi miður ekki. Hún hefur margt
betra við tíma sinn að gera en að
hanga með mér - hún er að bjarga
heiminum. En það var frábært að fá
hana við tökurnar á myndinni þótt
það hefði ekki verið meira en einn
dagur.
Góður sporðdreki
Þú fæddist 28. október. Það gerir
þig að sporðdreka, en ertu dæmi-
gerður sporðdi-eki?
Mín reynsla segir mér að það eru
tveir ílokkar af sporðdrekum og ég
held að ég passi nákvæmlega inn í
annan flokkinn, þann sem ekki er ill-
ur. Ég held að það sé til illur sporð-
dreki og stundum þegar fólk spyr
mig i hvaða merki ég sé og ég segi að
ég sé sporðdreki hopar það aðeins.
Ég skil það vel, því ég hef hitt hina
hlið merkisins, en ég held að ég til-
heyri henni ekki.
Hvað fínnst þér um að vakna ein
þegar þú ert við tökur á kvikmynd-
um?
Mér er sama um það. Ég ferðast
mikið og ef ég nyti þess ekki væri ég
alltaf í hræðilegu skapi. Svo ég held
að ég njóti ferðalaganna mjög mikið
og þar að auki hafa öll þessi ferðalög
orðið að stórum hluta af sjálfri mér.
En ég hef oft verið mjög einmana á
tökustað þegar ég er lengi í burtu frá
fólki sem mér er annt um.
Hvað myndir þú gera ef þú yrðir
alltíeinu ósýnilegíklukkustund?
Ég myndi líklega íylgjast með
Benjamin að störfum, því ég held að
það yrði mjög lærdómsríkt fyrir
mig. Rétt eins og þegar hann fylgist
með mér vinna breytist nálgun mín
að starfinu. Ég komst að ýmsu um
hann þegar við unnum að sjónvarps-
þáttunum. Eitt var það að hann legg-
ur meira á sig við gerð þáttanna en
ég hef nokkurn tíma á ævi minni
gert.
Getur gyðja úr kvikmyndaheimin-
um nokkurn tíma fundið hamingjuna
með venjulegum manni?
Já, ég held að tvær manneskjur
sem eru ástfangnar geti yfirstigið
allt, hvað sem þær gera eða hvar
sem þær búa. Það getur ekkert
hindrað fólk sem er ætlað að eyða
ævinni saman.
Hefur þú cinhvern tíma lent í því
að fólk þekki þig ekki?
Já, oft og mörgum sinnum. Einu
sinni spurði kona mig í kvöldverðar-
boði hvað ég starfaði við. Einhver
sagði við hana: „Þekkirðu hana
ekki?“ og nefndi nafnið mitt. Konan
kannaðist samt ekkert við mig. I
sannleika sagt fannst mér líf hennar
mun áhugaverðara en allra annarra
sem voru í boðinu, því hún vissi ekki
hver ég var.
Ergott að vera þú?
Já, tvímælalaust. Ég hef verið ég í
32 ár og hef ekki yfir neinu að
kvarta! Eg elska líf mitt. Það er frá-
bært. Ég á yndislega fjölskyldu og
bestu vini sem nokkur getur hugsað
sér. Það er gott að njóta svona mikils
öryggis í lífinu. Og sama hversu mik-
ið ég ferðast og þau ferðast líka, þá
kemur sá tími að við hittumst öll og
það gerir allar góðu stundirnar mun
dýrmætari, því ég get deilt þeim með
þeim öllum. Og þegar ég á í erfiðleik-
um veit ég að ég á alltaf góða að.
Fjölmiðlar og sleggjudómar
Óskarðu þess stundum að þú hefð-
ir sloppið við ágengni fjölmiðla?
Þetta er starf mitt og ég elska það.
Það eru margar hliðar á því, en góðu
stundirnar eru mun fleiri en þær
slæmu. Sleggjudómar koma frá
þeim sem þora ekki að segja hvað
þeim finnst um þig í nærveru þinni
og þeir hafa lítil áhrif á mig. Ég hefði
getað starfað sem tannlæknir og
enginn hefði sagt eða skrifað neitt
illt um mig, en það er ekki starfssvið-
ið sem ég valdi. Ég vissi að ef ég yrði
fræg myndu fjölmiðlarnir setja mig
undir smásjá.
Hvað fínnst þér um að vera hæst-
launaða leikkona í heiminum í dag?
Ekkert breytist, sama hversu
mikið þér er borgað, nema ávísunin
þín og sú staðreynd að allir vilja tala
um launin þín. Ég lít á launin mín
sem verðlaun, rétt eins og ég væri að
taka þátt í einhverjum sjónvarps-
þætti þar sem miklir peningar væru
í húfi. Launin breyta ekki því sem ég
er að gera eða hvernig ég nálgast
starf mitt og þau gera mig alls ekki
að betri leikkonu. Þau eru bara verð-
laun og ekkert annað. Ég er jafn
stundvís í vinnuna og þegar ég var
að byrja í starfi. Kvikmyndaiðnaður-
inn sjálfur er samsettur úr eintóm-
um viðskiptasamböndum og ég hef
lítinn áhuga á því. En ég er ánægð
með að launamunur kynjanna er að
minnka og reyni að leggja mitt af
mörkum þar. Launaupphæðir okkar
eru vitanlega algjört rugl og við vit-
um þetta öll, en það er erfitt að
breyta þessu.
Þú virðist veraþrýstnari íErin?
Því miður er sú ekki raunin. Það
var sett fylling í brjóstahaldarana
mína. Það verður að viðurkennast að
ég er ekki mjög barmmikil. Ég er
34B og því í algjöru meðallagi. En
með aðstoð nokkurra púða breyttist
útlit mitt algjörlega og þetta leit al-
veg frábærlega út, svo raunverulegt.
Horfirðu einhvern tíma um öxl og
hugsar til ungu stúlkunnar sem var í
„Mystic Pizza“?
Já, en hún hefur breyst. Hún var
10 kílóum þyngri og vissi miklu,
miklu minna. Ég er orðin fullorðin
núna.
Höfundur er blaðamaður hjá um-
boðsskrifstofunni Bang f Bretlandi.
Funkmaster 2000 snúa aftur endurfönkaðir í Kaffileikhúsinu í kvöld.
FUNKMASTER 2000 komu sér upp
laglegu stuðboltaorðspori í fyrra
með reglulegu sunnudagsspilirii á
Glaumbar. I vetur hurfu þeir síðan
svo að segja sporlaust og læddist sá
_#grunur að sumum að þeir hefðu
hreinlega fönkað yfír sig. Því fer
hinsvegar fjarri. Þeir eru mættir
aftur endurnærðir og fönkaðri en
nokkru sinni fyrr. „Við tókum okk-
ur smápásu til þess að hlaða raf-
hlöðurnar og safna kröftum,“ segir
Helgi Svavar Helgason þúsund-
þjalasmiður sveitarinnar. „Við vor-
um að spila svo mikið að það gafst
allt oflítill tímitil æfinga. Það varð
til þess að við vorum allt of mikið
að spila sama efnið sem varð auð-
vitað þreytandi til lengdar. Því
kváðum við í vetur að tími væri til
kominn að draga okkur í hlé og
demba okkur í það sem við höfðum
gengið með í maganum svo lengi,
að semja sjálfir.“ Afraksturinn er
sneisafull tónleikadagskrá af frum-
sömdu, funheitu og dansvænu fónki
sem frumflutt verður í Kaffileik-
húsinu í kvöld. Helgi Svavar segir
áherslur hafi ennfremur breyst
Frumsamda
fönkið í fyrirrúmi
nokkuð, meðal annars með
breyttri hljóðfæraskipan.
Þannig er Hannes hljóm-
borðsleikari búinn að verða
sér út um Hammond orgel og
Helgi Svavar sjálfur farinn
að spila á „sampler“ og grípa
annað slagið í trommusett til
viðbótar við hinn fyrri slag-
verksstörf: „Við þetta hefur
tónlistin breyst nokkuð,
„samplerinn" færir hana nær
nútímanum og auka trommu-
sett gefur henni annan og all
sérstakan blæ.“ Aðspurður
hvort Funkmaster 2000 hafi
ekkert látið reyna á raddböndin
fyrst þeir á annað borð voru að
taka í ný hljóðfæri þá viðurkennii
Helgu Svavar að hann sjálfur hafi
með nýja efnið og afar spennta
fyrir því að flytja það á tón-
leikum. Hann er hvergi bang-
inn þótt þeir hafi alfarið sagt
skilið við tökulögin (,,cover“)
og segist fullviss um frum-
samda fönkið muni falla i fin-
an farveg: „Við erum enn
sömu fönkaramir og áður og
gamla góða harkan á sinum
stað. Fönkið okkar stendur
tökufönkinu fyllilega á sporði
og er alveg jafndansvænt og
stuðandi. Þeir sem hlerað
hafa æfingarnar eru í það
minnsta alveg að frika út yfir
þessu.“
Helgi Svavar er fljótur að neita
því að rígur sé á milli Funkmaster
2000 og annarrar fönksveitar sem
Auglýsingaspjald sveitarinnar.
opnað munninn, þó ekki svo
mikið að frásögu sé færandi
Helgi Svavar segir þá félaga í
Funkmaster 2000 rosalega ánægða
hefur átt velgengni að fagna und-
anfarið Jagúar: „Það er alls enginn
rígur milli okkar og við erum
reyndar allir mjög góðir vinir. Það
er alveg reynandi að koma á ein-
hverju Blur-Oasis stríði milli okkar
en ég held að það muni ekkert
ganga.“
Tónleikarnir í Kaffíleikhúsinu,
sem teknir verða upp jafnvel með
útgáfu í huga, eru einungis upp-
hafið að rífandi keyrslu hjá
Funkmaster-mönnum á sumarmán-
uðum. Helgi Svavar segir þó sveit-
armenn áhugasama um að skella
sér loksins í hljóðver með hið nýja
efni en það hafa þeir enn ekki
reynt: „Fönkið okkar kemst lang-
best til skila á tónleikum, lifandi,
þétt og hrátt. Okkur er því mikið í
mun að ná að fanga þann eigin-
leika.“
Það verður því augljóslega raf-
mögnuð fönkstemmning í Kaffi-
leikhúsinu í kvöld og óhætt að full-
yrða að Funkmaster 2000 verði í
„effinu" sínu, sem aldrei fyrr. Fjör-
ið fer í fluggírinn klukkan níu og
aðgangseyrir er aumar 700 krónur.