Morgunblaðið - 29.04.2000, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2000 59
UMRÆÐAN
Sjóflutningar sem
varnarsamstarf
TIL ÞRIÐJU umræðu á Alþingi
liggur nú fyrir frumvarp til laga um
framkvæmd tiltekinna þátta varnar-
samstarfs íslands og Bandaríkjanna.
í lagatexta og greinargerð frum-
varpsins kemur margsinnis fram að
hér séu í húfi öryggishagsmunir ís-
lenska ríkisins af öryggis ástæðum
séu það íslensk fyrirtæki í skilningi
laganna sem hafi raunveruleg tengsl
við landið, séu virkir þátttakendur í
íslensku efnahagslífi og lúti íslenskri
lögsögu.
Af öryggissjónarmiðum tekur ut-
anríkisráðuneytið á móti öllum til-
kynningum varnarliðsins sem felst í
beiðni um tilnefningu íslenskra aðila.
Heimild íslenskra aðila til samninga
við varnarliðið er bundin því skilyrði
að þeir hljóti tilnefningu utanríkis-
ráðuneytisins.
Ágreiningair
í athugasemdum við lagafrum-
varpið segir m.a.:
Eins og kunnugt er hafa íslensk
stjórnvöld átt í ágreingi við banda-
rísk stjórnvöld um túlkun og fram-
kvæmd samnings um vamarsam-
starf ríkjanna frá 24. september 1986
(svonefndum sjóflutningasamning-
um) í kjölfar þess að bandarísk
stjórnvöld úthlutuðu við síðasta út-
boð öllum flutningum fyrir varnarlið-
ið til tveggja nátengdra fyrirtækja,
annars bandarísks og hins skráðs á
íslandi, sem voru að stærstum hluta í
eigu og undir stjóm sömu erlendu
aðilanna. Úthlutun af þessum toga
gerir að engu þá öryggispólitísku
þýðingu samninganna sem felst í að
öflugu framlagi íslenskra skipafé-
laga til flutninga yfir Atlantshafið.
Ef ekki verður spyrnt við fæti má
ætla að aukinn hluti viðskipta við
varnarliðið, sem af öryggisástæðum
er mikilvægt að sé í íslenskum hönd-
um, falli pappírsfyrirtækjum er-
lendra aðila í skaut. Því er í fmm-
varpinu leitast við að tryggja að
íslensk fyrirtæki í skilningi laganna,
séu virkir þátttakendur í íslensku
efnahagslífi og lúti íslenskri lögsögu.
Varnarliðsflutningar lykilatriði
innlendrar skipaútgerðar
Eimskip sendi frá sér hinn 8. mars
sl. greinargerð um forsögu ágrein-
ingsmáls um sjóflutninga fyrir varn-
arliðið þar segir m.a.
Allt frá því á sjöunda áratugnum
hafa íslensk skipafélög annast sjó-
flutninga fyrir banda-
ríska varnarliðið á Is-
landi. Breyting varð á
árið 1984 er bandaríska
skipafélaginu Rainbow
Navigation var úthlut-
að þessum flutningum
óskiptum í krafti
bandarískra laga frá
1904 sem kveða á um að
bandarísk skip skuli
hafa einokun á flutn-
ingum á vegum Banda-
ríkjastjómar. Lög
þessi em jafnan rétt-
lætt með skírskotun til
öryggis- og vamar-
hagsmuna Bandaríkj-
anna.
Islensk stjómvöld vildu ekki una
þessari einokun bandarísks skipafé-
lags á vamarliðsflutningunum og
kröfðust þess að íslensk skipafélög
hefðu jafnan rétt á að keppa um
flutningana, á gmndvelli efnahags-
og öryggishagsmuna íslensku þjóð-
arinnar.
í fyrmefndu fmmvarpi segir m.a.
svo í 1. gr. k-liðar:
k. íslensk fyrirtæki: Fyrirtæki,
óháð rekstrarfyrrirkomulagi, sem
uppfylla öll eftirfarandi skilyrði:
l. Eru skráð á íslandi og starf-
rækja höfuðstöðvar sínar hér á landi.
2. Em landfræðilega staðsett á fs-
landi og lúta íslenskri lögsögu.
3. Fyrirsvarsmenn og lykilstarfs-
fólk fyrirtækjanna em búsett á ís-
landi.
Undirritaður flutti
breytingartillögu við
aðra umræðu fmrnvar-
psins svohljóðandi:
Á eftir 3. tölulið k-lið-
ar 1. gr. komi nýr tölu-
liður, svohljóðandi:
Eiga eða leigja skip
sem sigla undir íslensk-
um fána, mönnuð ís-
lenskri áhöfn, ef fyrir-
tækið hefur sjóflutn-
inga með höndum.
Hvers vegna þessi
breytingartillaga?
milliríkjasamn-
ingi Islands og Banda-
ríkjanna frá 24. sept-
ember 1986 segir í 1. kafla að
framkvæmd sjóflutninga, þ.e. banda-
ríski hluti flutninganna fari fram
með bandarísku skipi undir banda-
rískum fána en íslenska hluta sjó-
flutninganna annist íslensk kaup-
skipaútgerð. íslenski hluti sjóflutn-
inga fyrir vamarliðið er nú í höndum
„íslenskra" kaupskipaútgerða (Atl-
antsskip) fluttur með skipi undir hol-
lenskum fána, áhöfn Hollendingar og
Pólveijar (andstætt öryggishags-
munum íslenska ríkisins).
2. Eg tek heilshugar undir grein-
argerð Eimskips hvar vitnað er til ís-
lenskra stjórnvalda þar sem segir:
Smæð íslensks markaðar gerði
það að verkum að flutningar fyrir
varnarliðið væm lykilatriði fyrir öfl-
uga innlenda skipaútgerð sem gæti
Guðmundur 1. í
Hallvarðsson
Varnarsamstarf
*
Islendingum væri lífs-
nauðsyn á að hafa til
taks öflugan skipakost,
segir Guðmundur
Halivarðsson, fá
ríki eru jafnháð
--------------7------
siglingum og Island.
þjónað efnahags- og öryggishags-
munum þjóðarinnar á hættu- og
neyðartímum. Við slíkar aðstæður
væri íslendingum lífsnauðsyn að
hafa öflugan skipakost, en fá ríki em
jafnháð siglingum og ísland.
Oflug innlend skipaútgerð?
Eimskip er með 9 skip í reglu-
bundnum siglingum, 6 skip milli ís-
lands og Evrópu, 2 skip milli íslands
og Bandaríkjanna og 1 skip í
strandsiglingum.
Eitt skip, Brúarfoss, siglir undir
íslenskum fána á milli íslands og
Evrópu. Auk Brúarfoss em 5 erlend-
ir „fossar" mannaðir íslenskri áhöfn.
Samskip er með 3 skip í reglu-
bundnum siglingum, 2 skip milli ís-
lands og Evrópu og eitt í strandsigl-
ingum.
Óll skip Samskipa era undir er-
lendum fána, erlendu „fellin“ þrjú
era mönnuð íslenskri áhöfn.
Ljóst er að Samskip og Eimskip
lúta íslenskri lögsögu, en hin erlendu
leiguskip þeirra gera það ekki; þar
ræður lögsaga þess ríkis hvar skipið
er skráð. Óryggishagsmunir íslenska
ríkisins era af þeim sökum fyrir borð«í>
bornir ef annað hvort þessara skipa-
félaga nær til sín íslenska hluta sjó-
flutninga varnarliðsins. Líklega
helst þá óbreytt ástand, flutningar
þá með erlendum skipum við óbreytt
framvarp, þ.e.a.s. verði breytingar-
tillaga mín felld.
Til hvers var þá af stað farið með
lagaframvarpið og aftui-virk ákvæði
þess? Með þeirri breytingartillögu
sem ég hef flutt að hluti sjóflutninga
fyrir varnarliðið sem í hlut íslend-
inga falla, verði með íslenskum skip-
um, mönnuðum íslenskri áhöfn,
verður jafnræði komið á milli íslands
og Bandaríkjanna, kröfurnar þær
sömu um þjóðfána skips og þjóðernis
áhafnar. Með greinargerð Eimskips
í huga má ætla að Eimskipafélags-
menn setji sig ekki upp á móti efl-
ingu innlendrar skipaútgerðar, enda
tók Eimskipafélagið kröftulega und-
ir með stéttarfélögum farmanna
1984 þegar þau mótmæltu harðlega
yfirtöku bandaríska skipafélagsins
Rainbow Navigation á öllum sjó-
flutningum varnarliðsins. Islensk
stjómvöld létu ekki sitt eftir liggja,
flutningar fyrir varnarliðið væra lyk-
ilatriði fyrir innlenda skipaútgerð.
Islendingum væri lífsnauðsyn á að
hafa til taks öflugan skipakost, fá ríki
era jafnháð siglingum og Island.
Höfundur er alþingismaður.
Sumartími hjá
Lánasýslu ríkisins
Skrifstofur Lánasýslu ríkisins verða opnar
frá kl. 08:00 til 16:00 á tímabilinu frá
2. maí til 15. september 2000.
LÁNASÝSLA RÍKISINS
Ríkisábyrgðasjóður - Ferðamálasjóður
Regnfatnaöur fyrir alia fjölskylduna á góðu veröi
POSTSENDUM SAMDÆGURS
Grandagarði 2, Rvík, sími 580 8500
0PIÐ í DAG, LAUGARDAG FRÁ 10-14