Morgunblaðið - 29.04.2000, Blaðsíða 39
LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2000 39
VIKU
LM
Frá Hrafntinnuskeri.
í Langadal á Þórsmörk. Eyjafjallajökull í baksýn.
Ljósmyndir/Leifur Porsteinsson
Útsýni til suðurs af Bláhnúk við Landmannalaugar.
eru Mýrdals-, Eyafjalla- og Tind-
fjallajökull mest áberandi.
Hekla og Laufafell blasa við í
vestri. Ekki má ætla minna en
tveggja og hálfs til þriggja klukku-
stunda auka til göngu á Háskerð-
ing sem vart getur talist þrekraun
hafi maður á annað borð þol til að
ganga Laugaveginn. Þó skal varað
við að jökulsprungur geta verið á
leiðinni sem auðvelt er krækja
framhjá. Gott er að láta fyrsta
mann pikka í ísinn og síðan komi
allir hinir í röð á eftir.
Þegar komið er fram á brún
Jökultungna tekur landslagið held-
ur betur breytingum. Að baki eru
gróðurvana líparítfjöll en framund-
an dökk móbergsfjöll og jöklar.
Gróður eykst einnig. Útsýnið svík-
ur engan. Neðst i Jökultungunum
er vinalegur gróðurblettur þar sem
sjálfsagt er að stansa og ekki spill-
ir Grashagakvíslin sem gefur okk-
ur ferskt og tært vatn.
Við Álftavatn eru tveir vistlegir
skálar í eigu Ferðafélags íslands.
Þar gista flestir óháð því hvort
þeir ganga leiðina á tveimur eða
fjórum dögum. Kvöldganga á
Brattháls svíkur engan. Hann er
austan við vatnið. Þetta er létt
ganga sem vart tekur lengri tíma
en eina til eina og hálfa klukku-
stund. Þaðan er geysivíðsýnt. Með-
al annars sést vel upp í Hrafn-
tinnusker. Báðar mögulegar
gönguleiðir frá Álftavatni og suður
í Botnaskála á Emstrum sjást
einnig vel.
Tveir möguleikar
Á þriðja degi hefðbundinnar
göngu má því velja um tvo mögu-
leika, annar er að ganga eftir bfla-
slóðinni austur í Hvanngii (Rang-
vellingar hafa komið þar upp
myndarlegri gistiaðstöðu fyrir
ferðamenn) og hinn að halda suður
með Álftavatni að austanverðu og
suður fyrir Bratthálsinn þar sem
hann rennur saman við umhverfið.
Hér er mjög erfitt að gera upp á
milli. Það er ákaflega fallegt að
horfa suðvestur yfir fjöllin af brún-
inni ofan Hvanngils með Stórusúlu
í forgrunni. Hún er einnig í for-
grunni af Bratthálsinum þegar litið
er niður Klámbrekku ofan í Stígs-
ver. Einn hængur er á seinni
möguleikanum og hann er sá að
þar verður að vaða Kaldaklofs-
kvíslina eftir að hún hefur runnið
saman við bæði Bratthálskvíslina
og Bláfjallakvíslina. Velji menn
þennan möguleika er fólki ráðlagt
leita upplýsinga hjá skálaverði við
Álftavatn. Leiðirnar koma síðan
saman á móts við Súluhryggi sunn-
an Stórusúlu. Að ganga suður
Emstrur er ef til vill tilbreytinga-
minnsti hluti Laugavegarins.
Ofan skálans í Botnum opnast
útsýni inn á Entujökul með Illhöf-
uð hæst fjalla sunnan jökuls. I
suðri blasa Almenningar við og
sunnan þeirra eru Þórsmörk og
Eyjafjallajökull. Þarna sjáum við
líka hvað vatn getur haft mikið að
segja fyrir gróður. Kristaltær læk-
ur spýtist undan fjallinu neðan við
skálann með gróskumiklum gróðri
beggja vegna, m.a. dafnar þar
hvönn eftir að land var friðað fyrir
suðfé.
Séu menn ekki með mikla byrði
er möguleiki að taka á sig krók frá
hinni hefðbundnu leið suður frá
Nyrðri-Emstruánni og ganga inn
að Entujökli, síðan fram með
Stóra-Mófelli og fram í Botnaskála
á Emstrum. Þannig gefst manni
kostur á sjá jökullinn móta landið.
Þetta er fyllilega þess virði en tek-
ur tveggja til þriggja klukkustunda
lengri tíma en hin hefðbundna leið.
Enginn sem á þessar slóðir kem-
ur má láta hjá líða að koma að
Markarfljótsgljúfrunum eða
Fljótsgili eins og gömlu mennirnir
voru vanir að kalla það. Talið er að
gljúfrið hafi myndast í hamfara-
hlaupi sem kom undan Entujökli
fyrir um 2500 árum.
Emstruárnar tvær, sú syðri og
nyrðri, koma báðar undan Mýr-
dalsjökli og verða að teljast ein
megin uppistaðan í Markarfljóti. Á
milli þeirra eru Emstrurnar en
sunnan við heita Almenningar.
Áður en hin eiginlega ganga
hefst suður Almenninga er rétt að
staldra við og ganga fram á brún
Markarfljótsgljúfurs þar sem gljúf-
ur Syðri-Emstruárinnar tengist
því. Þannig hafa menn skoðað
gljúfrin frá tveimur hliðum.
Eftir því sem sunnar dregur
verður landslagið hlýlegra og vina-
legra, meira ber á grasi og kjarr-
gróðri. Þó má hér einnig sjá sorg-
legar afleiðingar uppblásturs.
Síðasti farartálminn áður en komið
er suður á Þórsmörk er Þröngá.
Hana verður að umgangast með
virðingu eins og önnur straumþung
og grýtt jökulvötn. Alltaf á vaða
þar sem breiðast er, á broti og láta
straumin hjálpa sér yfir með því að
slá undan.
Efst í hlíðinni ofan Langadals á
Þórsmörk er sjálfsagt að staldra
við og virða fyrir sér útsýnið. Það
gerist vart fjölbreyttara. Gras og
trjágróður, eyðisandar með
straumþungum jökulvötnum ásamt
hrikalegum fjöllum og jöklum, allt
fyrir augum samtímis.
Höfundur er / stjórn Ferðafélags
íslands og hefur verið fararstjóri
í fj'ólda ferða, þ. á m. á Laugavegin-
um. Hann er annar tveggja höfunda
fræðslurits, sem FÍgaf út um
Laugaveginn.
öndverk og
erð^pjónus-b^
Sýning í
Laugardnlshellinni
28. april til 1. mai
Glæsilegt úrval
af handverksmunum
ailstaðar að af landinu.
Gestir fró Færeyjum og Grænlandi.
Farðu í fríið ó íslandi!
Ferðaþjónustan kynnir spennandi
möguleika ó ferðum innanlands
Það verður kátt
í Höllinni
28. april til 1. mai!
Opnunartímar:
28. april frá 14 til 18
29. april til 1 mai frá 10 til 18
j| 1
# -i i
S0LUSYNING