Morgunblaðið - 29.04.2000, Blaðsíða 68
'68 'l!augXrDa‘gu11 y.'Á^kíL 2000
FRÉTTIR
I DAG
MbRGtlN:BLÁ6'rD
Bænaganga á Þingvöllum
vegna Kristnihátíðar
■ FYRSTA bænaganga sumarsins á
Þingvöllum verður sunnudaginn
30. apríl strax að lokinni guðsþjón-
ustu í Þingvallakirkju sem hefst kl.
14. Gengið verður í kyrrð til þeirra
staða á Þingvöllum þar sem helgi-
hald mun fara fram í Almannagjá,
Hestagjá, á Völlunum, á Lögbergi
og síðan aftur til Þingvallakirkju.
Stutt viðvera verður á hverjum
stað, valdir staðir úr Biblíunni sem
tengjast þeim verða lesnir og beðið
verður fyrir þeim þáttum Kristni-
hátíðar sem þar fara fram sem og
hátíðarhöldunum öllum, að þau
megi verða til blessunar og upp-
byggingar íslenskri þjóð og kirkju,
segir í fréttatilkynningu. Gengið
verður að þessu sinni í rúman hálf-
tíma og lýkur göngunni í kirkjunni
þar sem veitt verður fararblessun.
Það er hópur kvenna í kirkjunni
sem á frumkvæðið að bænagöng-
unni sem verður í sumar í sam-
vinnu við Þingvallasókn og Bisk-
upsstofu. Allir eru að sjálfsögðu
velkomnir til messunnar og göng-
unnar.
Fræðslustígur
vígður í
Heiðmörk
NÝR fræðslustígur verður vígður
sunnudaginn 30. apríl kl. 13.30 í
Heiðmörk. Athöfnin verður við án-
ingarstaðinn við Helluvatn.
Sparisjóður vélstjóra hefur kostað
gerð 45 fræðsluskilta sem komið hef-
ur verið upp við göngustíg sem er
um 9 km. langur. A þeim er að finna
ýmsan fróðleik um náttúru og sögu
svæðisins. Myndir á skiltunum eru
eftir listamennina Brian Pilkington
■“Vig Eggert Pétursson og textann
gerðu Asgeir Svanbergsson og Vign-
ir Sigurðsson.
Að lokinni vígslunni verður farið í
gönguferð og verður lögð áhersla á
fuglaskoðun. Auk umsjónarmanna
verða fuglafræðingar með í ferð.
Boðið verður upp á ferð frá Mjódd
í Breiðholti endurgjaldslaust og
verður farið þaðan kl. 13 með bfl frá
Guðmundi Jónassyni merktum
Heiðmörk.
Samstarfsaðilar Skógræktarfé-
lags Reykjavíkur eru: Sparisjóður
vélstjóra, Fuglaverndarfélag Is-
lands og Reykjavík menningarborg
Evrópu árið 2000.
------*-++-------
Vorsýning og
handverks-
markaður
HIN árlega vorsýning verður haldin
í Gjábakka dagana 30. apríl og 1. maí
á handmunum eldra fólks í Kópa-
vogi. Sýningin er afrakstur huga og
handar þess fólks sem heimsótt hef-
ur Gjábakka á liðnum vetri.
Sýningin verður opin báða dagana
frá kl. 14 til 18. Vöfflukaffi verður
selt báða dagana frá kl. 15 til 17. Að-
gangur að sýningunni er öllum heim-
ill án endurgjalds.
Handverksmarkaður verður einn-
ig þessa daga í Gjábakka. Þar býður
eldra fólk til sölu handunna nytja- og
skrautmuni auk þess sem eitthvert
lostæti verður til sölu. Handverks-
markaðurinn er opinn á sama tíma
og sýningin.
Hjóladagar á
vegum Hvells
VERSLUNIN Hvellur stendur fyrir
hjóladegi 1. maí nk. Safnast verður
saman við Hvell að Smiðjuvegi 8 um
kl. 10.
Haldið verður af stað frá Smiðju-
vegi um kl. 11 og hjólað norður
Smiðjuveg að Traðarlandi, um hjóla-
stíg og hjólað neðan Láglands í átt að
Kringlumýrarbraut og áfram haldið
til norðurs að Markarvegi og yfir
nýju göngubrúna yfir Kringlumýrar-
braut. Þaðan verður hjólað að Nesti í
Fossvogi. Frá Nesti verður hjólað
lun Sæbólsbraut og upp á Kársnes-
braut, neðan Asbrautar. Haldið verð-
ur til austurs sem leið liggur að
Toyota að Nýbýlavegi. Þar verður áð
og boðið upp á einhverjar veitingar.
Frá Toyota verður haldið áfram aust-
ur Nýbýlaveg í átt að Smiðjuvegi 8.
15-20 hjól verða seld á uppboði og
er lægsta boð 500 kr. Uppboðið verð-
ur tvískipt: Notuð og ný hjól verða
seld áður en hjólað verður af stað frá
Smiðjuvegi og síðari helmingur upp-
boðsins hefst þegar þorri fólks er
kominn aftur að Hvelli. Vífilfell og
Freyja styrkja daginn.
----------------
Rytmisk tón-
listarkennsla
ÞRIGJGA tíma námskeið um rytm-
iska tónlistarkennslu á vegum Sí-
menntunarstofnunar Kennarahá-
skóla íslands verður haldið
fimmtudaginn 4. maí kl. 14:30 í
Kennaraháskóla Islands við Stakka-
hh'ð í stofú M-201.
Námskeiðið er einkum ætlað
kennurum á yngri skólastigum en
allir sem áhuga hafa eru velkomnir.
Kennari á námskeiðinu er Thorunn
Bakken Hauge, lektor við kennara-
háskólann í Bergen. Thorunn mun
fjalla um hugmyndir og áherslur í
rytmiskri tónhstarkennslu og sýna
myndband og kennsluefni sem ætlað
er nemendum í 1.-4. bekk í Noregi.
Thorunn gerir ráð fyrir virkri þátt-
töku námskeiðsgesta í söng, dansi og
notkun skólahljóðfæra. Hámarks-
fjöldi er 15-20 þátttakendur. Að-
gangseyrir er 1.000 kr.
GRILLMARKAÐUR
- Eitt mesta úrval landsins af
gasgrillum á góöu veröi
Komdu og skoðaðu
árgerð 2000.
EIGUM
- VARAHLUTI
r 0G FYLGIHLUTI
^^nQ\V.l r FYRIR GASGRILL.
i Char-Brofl.
Tegund 463-2012
o fíflrrMIWí
LLiwysasuj
Grandagarði 2, Rvík, sími 580-8500. 0PIÐ I DAG 10-14
VELVAKAJMDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til fóstudags
Slæm þjdnusta
ÉG las í Velvakanda laug-
ardaginn 15. apríl sl. um
samkipti konu við barna-
vöruverslunina Olavíu og
Óliver í Glæsibæ. Ég og
dóttir mín keyptum barna-
kerru fyrir rúmu ári hjá
þessari sömu verslun og
héldum við að okkar tilfelli
væri einstakt, en svo er
greinilega ekki. Við fengum
vægast sagt afar slæma
þjónustu. Dóttir min valdi
sér kerru fyrir nýja barnið
sitt og þar sem þetta var
síðasta kerran af þessari
gerð og ískraði mjög í hjól-
unum var ákveðið að hún
fengi ný hjól þegar næsta
sending kæmi. Svo leið og
beið og alltaf voru hjólin að
koma og hún marg búin að
fara og láta smyrja hjólin
án árangurs. Þegar liðið
var hálft ár án þess að
nokkuð hefði verið gert
annað en að smyrja hjólin
ákvað hún að hringja í eig-
andann. Hann sagði okkur
að koma og fá ný hjól. Þeg-
ar við komum í verslunina
eru þetta hjól af annarri
gerð af kerru og eru öðru-
vísi á litinn, svo hún segir
við eigandann að þetta finn-
ist henni léleg þjónusta;
eftir hálft ár geti hann látið
okkur hafa hjól af annarri
gerð? Af hverju hann hafi
ekki bara gert þetta strax?
Þá bregst hann hinn versti
við og segir að það ískri
alltaf þegar járn og plast
fari saman og talar hann
um að við komum bara til
að rífast og vera með leið-
indi og þetta segir hann
þótt það sé fullt af fólki í
versluninni. Eftir þessa
reynslu höfðum við sam-
band við Neytendasamtök-
in og við verslunina. Þegar
Neytendasamtökin voru
komin í málið hafði eigand-
inn samband við okkur og
sagði að það væri þeim
kappsmál að hafa við-
skiptavini sína ánægða. Nú
vildi hann allt fyrir okkur
gera, gott og vel, og bauð
dóttur minni að koma og fá
nýja kerru sem hún og
gerði, en sama ískrið er enn
til staðar og allir búnir að fá
nóg_ af versluninni Ólaviu
og Óliver.
Svava Eyland
Þakkir og fleira
KONA hafði samband við
Velvakanda og langaði að
koma eftirfarandi á fram-
færi. Ég þurfti að snúa mér
til verslunarinnar Oasis í
Kringlunni vegna vöru-
kaupa sem þar voru gerð
fyrir nokkru. Allt viðmót,
þjónusta og sú aðstoð sem
ég fékk hjá Oasis var til fyr-
irmyndar á allan hátt.
Gaman væri ef allar versl-
anir væru þessari líkar.
Fyrir stuttu keypti ég
sunnudagsblað Berlingske
Tidende sem verðmerkt er
á 12 krónur danskar. Fyrir
blaðið þurfti ég að borga
680 íslenskar krónur eða
sem svarar ca. 65 dönskum
krónum eða fimmfalt verð-
gildi. Hvað ræður og veldur
þessum gífurlega verð-
mun? Innkaupsverð inn-
flytjanda er varla DKK 12,
þannig að íslenska verðið
er jafnvel hærra.
Miðvikudaginn 19. apríl
sl. ók ég niður Laugaveg og
horfði á fólk úr bifreið fyrir
framan mig henda út fjöl-
breyttu úrvali af rusli, þ.e.
plastumbúðum af gos-
drykkjum, bréfarusli, lítilli
kókómjólkurfernu og
fleiru, en slóðina mátti
rekja frá Barónsstíg að
Bankastræti.
Páskadagsmorjrun
í Áskirkju
ÉG vil_ þakka bæði starfs-
fólki Askirkju og kirkju-
gestum sem hjálpuðu mér,
er ég í miðripáskamessu
féll niður og truflaði með
því hátíðarstund í kirkj-
unni.
Þau studdu mig og hlúðu
að mér þar til sjúkrabíllinn
kom til að flytja mig á
sjúkrahús.
Ég vil einnig þakka séra
Árna Bergi fyrir einstakan
stuðning og hlýju.
Halldóra
Aðalsteinsdóttir
Tillaga að nafni
MÉR finnst ótækt að fólk
bögglist við að nota orðið
erfðagreining, ég legg til að
þetta þjóðþurftarfyrirtæki
verði nefnt Kárína.
Björn
Tapad/fundid
Falleg dúkka fannst
við Ljósheima
ROSALEGA fafleg dúkka
með heklaða húfu fannst á
leikvellinum við Ljósheima.
Upplýsingar í síma 588-
6664 eða í símboða 845-
9902.
Fjallahjól týndist
í Seljahverfí
MONGOOSE DX 6,7 fjalla-
hjól var tekið úr hjólag-
eymslu í Engjaseli 29, að-
faranótt 19. apríl sl. Hjólið
er mosagrænt að lit með
dempara og brettum. Hjól-
ið var á breiðari dekkjum
en gengur og gerist. Hjólið
var læst. Ef einhver hefur
orðið var við hjólið eða veit
hvar það er niðurkomið
vinsamlega hafið samband í
síma 893-4663.
Grá myndavélartaska
tapaðist
GRÁ myndavélartaska
með tveimur myndavélum
tapaðist í mars sl., gæti ver-
ið úti á Gróttu á Seltjarnar-
nesi, en er þó ekki víst. Ef
einhver veit hvar taskan er
niðurkomin, er sá hinn
sami vinsamlegast beðinn
að hafa samband í síma
567-1898. Fundarlaun.
Med morgunkaffinu
VA _ — — -TftRNOWSKI
Það besta við
þennan stað
finnst mér
að það má
ekkidrekka
vatnúr
krananum.
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI er talsmaður þess að
menn sýni umburðarlyndi í
trúmálum. Það má þó ekki ganga svo
langt að auðmýktin og mannkærleik-
urinn fari að koma niður á þeim sem
standa okkur næst. Menn verða að
gæta þess að beygja sig ekki svo
djúpt í duft umburðarlyndisins að
minnihlutahópar fari að njóta forrétt-
inda á kostnað þeirra sem fram til
þessa hafa borið uppi íslenskt samfé-
lag og framþróun íslenskrar menn-
ingar.
Víkveiji nefnir þetta hér vegna
orðróms sem honum hefur borist til
eyma um sérþarfir sængurkvenna af
ákveðnum trúarbrögðum, en sam-
kvæmt trúnni mega þær ekki liggja á
sjúkrastofu með öðrum sængurkon-
um heldur verða að hafa stofu út af
fyrir sig. Sagan, sem Víkveiji hefúr
eftir heimildum sem hann telur áreið-
anlegar, er í stuttu máli á þá leið að
rýma hafi þurft sjúkrastofur á fæð-
ingardeildum hér á landi vegna þess-
ara sérþarfa, á sama tíma og íslensk-
ar sængurkonur hafi orðið að liggja á
göngunum vegna plássleysis á við-
komandi deildum. Víkveiji selur
þessa sögu ekki dýrar en hann keypti
hana en sé einhver fótur fyrir henni,
þó ekki væri nema flugufótur, telur
Vfkverji ástæðu til að grípa í taum-
ana.
Hér er vitaskuld úr vöndu að ráða
því trúmál eru afskaplega viðkvæm í
eðli sínu og siðir og venjur sem þeim
tengjast oft heilög lögmál í hugum
hinna rétttrúuðu. En hvar á að draga
mörkin og hveijir eiga að víkja þegar
siðir og venjur ólflcra trúarbragða
rekast á? Er það sjálfgefið að vegna
kristilegs umburðarlyndis skuli ís-
lenskar sængurkonur vera homkerl-
ingar á sjúkrahúsum í eigin landi? Nú
er auðvitað viðbúið að einhveijir
ijúki upp til handa og fóta og saki
Víkveija um ofstæki og fordóma
gagnvart trúarbrögðum sem eru
honum framandi. Svo er þó alls ekki.
Víkveiji vill sýna fólki, sem játar önn-
ur trúarbrögð en hann, umburðar-
lyndi. En hann vill gera það með
reisn og án þess að þurfa að beygja
sig í duftið.
XXX
VÍKVERJI horfði á þáttinn „Mað-
ur er nefndur" í sjónvarpinu
síðastliðið miðvikudagskvöld, þar
sem rætt var við Ingólf Guðbrands-
son tónlistar- og ferðamálafrömuð.
Það var ánægjulegt að hlusta á Ingólf
segja frá, enda er hann afar vel máli
farinn og hefur frá mörgu áhuga-
verðu að segja, þótt þátturinn væri
vissulega of stuttur til að gera því öllu
viðhlítandi skil. Ingólfur hefur lengi
staðið í straumróti íslensks þjóðlífs
og verið bæði umtalaður og umdeild-
ur. Hitt verður þó aldrei frá honum
tekið að áhrifa hans gætir viða á sviði
tónlistar- og menningarmála og ekki
síst á sviði ferðamála, þar sem hann
er óumdeildur brautryðjandi.
Það var athyglisvert að heyra Ing-
ólf segja frá því í þættinum hvemig
hann mátti þreyta hindrunarhlaup
gagnvart skilningsleysi yfirvalda í
menntamálum í starfi sínu sem nám-
stjóri í tónlist og einnig síðar, eftir að
hann stofnaði Pólýfónkórinn, en
kostnaðinn af rekstri hans varð Ing-
ólfur að mestu að greiða úr eigin
vasa. Það út af fyrir sig gerir starf
Ingólfs fyrir íslenska sönglist enn
merkilegra en ella.
Velgengni ferðaskrifstofunnar Út-
sýnar gerði Ingólfi kleift að standa
straum af rekstri Pólýfónkórsins. Og
sú velgengni var fyllilega verðskuld-
uð því starfsemi Útsýnar opnaði al-
menningi á Islandi leið út í heim, til
sólríkra, suðlægra landa, en slíkar
ferðir urðu upp frá því fastur þáttur í
lífsstfl margra íslendinga. Og Ingólf-
ur lætur ekki deigan síga, því á seinni
árum hefur hann með starfsemi
Heimsklúbbs Ingólfs og ferðaskrif-
stofunnar Prima vikkað sjóndeildar-
hringinn og skipulagt ferðir til fjar-
lægra heimsálfa, og meira að segja
umhverfis jörðina sunnan miðbaugs.
I þættinum „Maður er nefndur" lýsti
Ingólfur þeirri skoðun sinni að fátt
auðgaði mannsandann meira en að fá
að njóta alls hins fegursta er heimur-
inn hefur upp á að bjóða og sá væri
tilgangurinn með þessum ferðum.
Undir þetta sjónarmið er vissulega
hægt að taka.