Morgunblaðið - 29.04.2000, Blaðsíða 44
MORGUNBLAÐIÐ
44 1LÁÚGARDAGÚR 29. AÚRÍL 2000
«--------------------------
Tímabær
bylting
„Sumirhafa tekið svo djúpt í árinni að
segja að á sama hátt og kalla megi Auð-
legð þjóðanna, ritskoska hagfræðings-
insAdams Smiths, sem kom út árið
1776, biblíu iðnbyltingarinnar miklu,
megi búast við að Natural Capitalism
vísi veginn að næstu iðnbyltingu sem
brýnt sé orðið að skelli á fyrr en síðar. “
Eftir Hönnu
Katrínu Frið-
riksen
Það er ekki ofsögum
sagt að vanvirðing
mannkynsins gagn-
vart náttúruauðlind-
um heimsins er eitt
helsta áhyggjuefnið varðandi
framtíð þessa sama mannkyns.
Getu jarðarinnar til þess að við-
halda lífí hinna 6 milljarða manna
sem hana byggja, að ótöldum
öðrum lífverum, er alvarlega ógn-
að með óhóflegri nýtingu auð-
linda hennar, fyrst og fremst
vegna þeirra framleiðsluhátta
sem við höfum tamið okkur. Iðn-
VinunDE ríkin horfa til
VlVnUlfr auðlindanna
út frá hættu-
lega þröngu
sjónarhorni
þar sem verð-
mæti þeirra virðist eingöngu
metið af því hversu mikið þær
gefa af sér miðað við skammtíma
viðskiptahagsmuni.
Snemma vetrar kom út í
Bandaríkjunum bókin Natural
Capitalism sem hefur hlotið tölu-
verða athygli og lof gagnrýnenda.
Sumir hafa tekið svo djúpt í ár-
inni að segja að á sama hátt og
kalla megi Auðlegð þjóðanna, rit
skoska hagfræðingsins Adams
Smiths, sem kom út árið 1776,
biblíu iðnbyltingarinnar miklu,
megi búast við að Natural Cap-
italism vísi veginn að næstu iðn-
byltingu sem brýnt sé orðið að
skelli á fyrr en síðar.
Iðnbyltingin mikla hófst í Eng-
landi upp úr miðri 18. öld í kjölfar
nýrra framleiðsluhátta. Á þeim
tíma töldu menn auðlindir náttúr-
unnar óþrjótandi og vandinn lá
frekar í skorti á vinnuafli. Þegar
sá vandi leystist var grunnurinn
lagður að iðnbyltingunni. Núna
horfir málið öðruvísi við. Nú er
ekki hægt að kvarta undan skorti
á hæfu vinnuafli og það ætti flest-
um að vera orðið Ijóst að náttúru-
auðlindir jarðar eru langt frá því
að vera óþrjótandi. Það er því
kominn tími til þess að reikna
dæmið upp á nýtt og færa áhersl-
una af framleiðni vinnuafls yfir á
framleiðni náttúruauðlinda.
Höfundar Natural Capitalism
eru þrír; hjónin Amory B. Lovins
og L. Hunter Lovins ásamt Paul
Hawken, allt vel metnir
viðskiptaráðgjafar. í bókinni
reyna þau að renna stoðum undir
þá kenningu að fyrirtæki hafi af
því beinan efnahagslegan ávinn-
ing að umgangast náttúruauðl-
indir með gætni og innleiða tækni
og vinnuaðferðir sem dragi úr of-
notkun þeirra. Það sé langt því
frá að málið snúist um að nota
fjárfrekari og flóknari vinnuað-
ferðir eða dýrara hráefni tii þess
að vernda náttúruna, fyrirtæki
geti auðveldlega slegið þarna
tvær flugur í einu höggi. Það sem
til þurfi sé breytt hugarfar, öflug-
ur stuðningur helstu við-
skiptajöfra og aðstoð frá stjórn-
völdum til þess að fá boltann til
að rúlla, því allar breytingar kalli
á einhver fjárútlát í upphafi.
Það er hins vegar hægara sagt
en gert að breyta því hugarfari
sem hefur verið ríkjandi meðal
iðnríkja heims undanfarnar aldir.
Ein helsta ástæðan liggur að
mati bókarhöfunda í því hvernig
hagkerfi iðnríkjanna hafa verið
skilgreind. Það er ekki ætlunin
hér að fara út í skilgreiningu á
helstu hagfræðijöfnum, heldur
nefna lauslega að bókarhöfundar
telja náttúrulegan kapítalisma
felast í fjórum meginbreytingum
á almennum viðskiptaháttum. í
fyrsta lagi þurfi að auka til muna
framlegð náttúruauðlinda með
tækniþróun og breyttri hönnun
framleiðslutækja. I öðru lagi
þurfi að breyta framleiðsluhátt-
um þannig að úrgangur hráefna
geti nýst við aðra framleiðslu, eða
verði að minnsta kosti skaðlaus
náttúrunni. í þriðja lagi kalli
náttúrulegur kapítalismi á aukna
áherslu á þjónustu á kostnað
framleiðslu þar sem framleiðend-
ur verði ábyrgir fyrir heildstæð-
um lausnum, en sjái sér ekki ein-
göngu hag í því að framieiða sem
mest og selja. í fjórða lagi þurfi
fyrirtæki að endurfjárfesta í
náttúrunni, það er, snúa á hinn
gamla málshátt: Það eyðist sem
af er tekið.
Það er ljóst að breyttir fram-
leiðsluhættir kalla á veruleg fjár-
útlát í upphafi, en ef búast má við
því að aukinn hagnaður náist í
náinni framtíð ætti hér að vera
um að ræða tækifæri sem útsjón-
arsamir viðskiptajöfrar létu ekki
fara fram hjá sér. Bókin um-
rædda nefnir til sögunnar fjölda
fyrirtækja sem hafa haft beinan
efnahagslegan ávinning af því að
innleiða aðferðir kenndar við
hinn náttúrulega kapítalisma. En
betur má ef duga skal.
Þó margt gott megi segja um
frjálsa og óhefta samkeppni á
hlutabréfamarkaði, er hún líklega
að hluta til ástæða þess hve hægt
gengur að breiða út boðorðið.
Þegar Karl Rabago, stjómandi
hjá Rocky Mountain Institute og
öflugur talsmaður náttúrulegs
kapítalisma, var spurður að því
hvort hann teldi líidegt að Banda-
ríkin myndu leiða hina nýju,
grænu iðnbyltingu, svaraði hann
því til að hann óttaðist að svo yrði
ekki. Fylgifiskur hinnar blóðugu
samkeppni sem ríkti á banda-
ríska hlutabréfamarkaðinum
væri óeðlileg áhersla á skamm-
tíma árangur fyrirtækjanna. Að
öllu óbreyttu yrði það því ekki
látið óátalið ef fyrirtæki legðu út í
umtalsverðan kostnað vegna
breytinga á framleiðsluháttum,
jafnvel þó sýna mætti fram á
langtíma efnahagslegan ávinning
þessara sömu fyrirtækja - að
ekki sé talað um myndina alla.
Bandarísk stjórnvöld væru ekki
líkleg til afskipta. „Mér þykir
þetta miður, því ég kann virki-
lega vel við kapítalismann að
öðru leyti,“ sagði Rabago, sem
taldi öllu sennilegra að upphaf
grænu iðnbyltingarinnar yrði í
Evrópu þar sem stjórnvöld væru
síður líkleg til þess að láta ótta
við ógnarvald hlutabréfamarkað-
arins glepja sér framtíðarsýn.
MENNTUN
Kennslugögn - Nýjar námskrár og reynsla af fjölþættum út-
gáfuháttum breyta kröfum til námsefnis og námsefnishöfunda.
Þetta var meðal þess sem fram kom á ráðstefnu Hagþenkis.
Verður námsefnið á
nýrri öld áhugavert?
A-files er margmiðlunardiskur
sem hlotið hefur verðlaun.
Ritbjörgu er ætiað að vera
rammi utan um ritsmíðar.
Á disknum Leikskólinn er tekið
mið af fjölgreind.
# Hvað gerist þegar námsefni birtist
á vefsíðum en ekki blaðsíðum?
MARGMIÐLUN og net-
útgáfa á námsefni opn-
ar ný tækifæri fyrir út-
gefendur og námsefn-
ishöfunda ef þeir kynna sér mögu-
leika tækninnar og hafa aðstöðu og
fjármagn til að nýta hana. Þetta
kom meðal annars fram á ráðstefnu,
sem Hagþenkir, félag höfunda
fræðirita og kennslugagna, efndi
nýlega til um þróun námsefnis og
námsefnisútgáfu. Þar kom ennfrem-
ur fram, að hjá Námsgagnastofnun
er áhugi á að stytta framleiðsluferli
námsefnis og kennslugagna, fá fram
nýja höfunda og auka verulega
framboð á efni á rafrænu formi.
Ráðstefnan bar yfirskriftina:
„Námsefni á nýrri öld. Hvert stefn-
ir? Forsjá eða frelsi. Frá blaðsíðum
að vefsíðum“, og snerust framsögur
og umræður á ráðstefnunni einkum
um þrennt: Kröfur sem nýjar nám-
skrár fyrir grunn- og framhalds-
skóla gera um endurnýjað og nýtt
námsefni, hvernig standa skuli að
námsefnisútgáfu og áhrif tölvu- og
fjarskiptatækninnar á námsefni,
nám og höfundarvinnu. Framsögu-
menn voru: Aðalsteinn Eiríksson
deildarstjóri framhaldsskóla- og
fullorðinsfræðsludeildar mennta-
málaráðuneytisins, Ingibjörg Ás-
geirsdóttir forstjóri Námsgagna-
stofnunar, Sigurður Svavarsson for-
maður Félags íslenskra bókaútgef-
enda, Védís Skarphéðinsdóttir rit-
stjóri kennslubóka hjá Máli og
menningu, Tryggvi Jakobsson út-
gáfustjóri hjá Námsgagnastofnun,
Guðmundur Sæmundsson fjar-
námskennari og námsefnishöfundur
og Torfi Hjartarson lektor í
kennslufræði og upplýsingatækni.
Auknu fé veitt til
námsefnisgerðar
Á ráðstefnunni kom meðal annars
fram að nýju námskrárnar lýsa
námsmarkmiðum af nákvæmni og
menntamálaráðuneytið gerir kröfu
um að námsefni falli að þeim. Deild-
arstjórar og kennarar ráða hins
vegar hvaða efni er notað innan
námskrárrammans. Verið er að
semja nýtt námsefni og kennsluleið-
beiningar fyrir nýjar greinar eins
og lífsleikni og upplýsinga- og
tæknimennt og í greinum þar sem
áherslum er breytt eins og í tungu-
málum á grunnskólastigi og sögu á
framhaldsskólastigi. Auknu fé hefur
verið veitt úr ríkissjóði til námsefn-
isgerðar í fyrra og í ár, en 26 millj-
ónum króna var í ár úthlutað til 80
verkefna á framhaldsskólastigi en
103 umsóknir bárust um samtals 63
milljónir.
Hjá Námsgagnastofnun er áhugi
á að stytta framleiðsluferlið, fá fram
nýja höfunda og auka verulega
framboð á efni á rafrænu formi.
Stofnunin ver um 80 milljónum
króna til kennsluhugbúnaðar í ár og
í fyrra og eru nú 90 kennsluforrit í
boði, þar af nokkur fyrir framhalds-
skóla. I haust var byrjað að bjóða út
námsefnisgerð allt frá samningu til
prentunar. Undirtektir hafa verið
frekar dræmar og ekki skilað tilboð-
um sem eru undir kostnaðaráætlun
stofnunarinnar.
Helstu útgáfufyrirtækin, sem
gefa út námsefni fyrir framhalds-
skóla, sem selt er á markaði, hafa
byggt á nánu samstarfi við starfandi
kennara og fagfélög. Útgáfan hefur
til þessa tekið mið af rúmum áfan-
galýsingum fyrir helstu námsgrein-
ar. Forlögin geta staðið fyrir útgáfu
grunnefnis í greinum sem margir
stunda, en útgáfan er kostnaðar-
söm, markaðurinn lítill og endur-
nýting bóka mjög mikil, sennilega
um 50% strax á öðru ári frá frumút-
gáfu. Styrkir menntamálaráðuneyt-
isins renna einkum til þeirra sem
semja efni fyrir námsáfanga sem fá-
ir ljúka. Ekki er deilt um réttmæti
þess að styrkjum frá því opinbera sé
þannig varið. Öðru máli gegnir um
styrki til námsefnisgerðar sem get-
ur staðið undir sér.
Reynsla af notkun námsefnis í
rafrænu formi hefur vakið vonir um
ýmiss konar ávinning af notkun
þess. Bent var á að með margmiðlun
og gagnvirkni opnast tækifæri til að
virkja fleiri og annars konar hæfi-
leika hjá nemendum en unnt er með
námsbók eingöngu. Vænta má auk-
ins áhuga nemenda, geti þeir ráðið
hversu hratt er farið, valið stað og
stund til að sinna náminu auk við-
fangsefna að vissu marki. Á vefslóð-
um er margar áhugakveikjur að
finna. Einnig telst kostur að netút-
gáfa og kennsluhugbúnaður getur
gert auðveldara að svara eftirspurn
eftir námsefni í greinum sem fáir
stunda. Þetta nýja útgáfuform þykir
henta vel þegar efnið krefst sífelldr-
ar endurskoðunar og kennsluleið-
beiningar á vefsíðum má endurbæta
sífellt í ljósi nýrrar reynslu. Marg-
miðlun og netútgáfa á námsefni
opnar ný tækifæri fyrir útgefendur
og námsefnishöfunda ef þefr kynna
sér möguleika tækninnar og hafa
aðstöðu og fjármagn til að nýta
hana.
Farvegir námsefnisútgáfu
öþarflega þröngir
Á ráðstefnunni kom meðal annars
fram sú gagnrýni að farvegir náms-
efnisútgáfu hér á landi væru óþarf-
lega þröngir og dæmi um ríkisaf-
skipti sem spilla eðlilegri sam-
keppni og grafa jafnvel undan út-
gáfufyrirtækjum sem selja náms-
bækur fyrir framhaldsskóla. End-
urtekin úttekt á starfi Námsgagna-
stofnunar og æskilegu fýrirkomu-
lagi námsefnisútgáfu fyrir grunn-
skóla hefur að áliti gagnrýnenda
utan Námsgagnastofnunar jafnan
verið gerð á hæpnum forsendum,
þar sem gengið er út frá því að
reyna að finna leiðir til að spara, í
stað þess að leita leiða til að auka
fjölbreytni og gæði, sem kosta jafn-
an sitt. Núgildandi lög um útgáfu
grunnskólanámsefnis á vegum
Námsgagnastofnunar gera næstum
útilokað íyrir önnur útgáfufyrirtæki
að hasla sér völl á þeim vettvangi.
Gildistaka nýrrar námskrár á
framhaldsskólastigi veldur útgáfu-
fyrirtækjum í sumum tilvikum fjár-
hagslegu tjóni og erfiðleikum,
vegna þess að bækur, sem mikið
fjármagn hefur verið lagt í, hverfa
úr notkun án fyrirvara. Þá héfur
menntamálaráðuneytið nýlega veitt
styrki til útgáfufyrirtækja, sem
ætla að gefa út grunnefni, sem ekki
á að þurfa opinbert fé til, svo sem til
sögukennslubóka og sýnisbókar ís-
lenskra bókmennta. Styrkveitingin
var það illa kynnt að hún fór fram-
hjá útgáfufyrirtækjunum sem
mesta reynslu höfðu af útgáfu
námsefnis í þessum greinum.
Þekkingu og virðingu fyrir
höfundarrétti ábótavant
Á námsefnisráðstefnu Hagþenkis
var vikið að fleira sem krefst úrbóta.
Nefnt var að víða væri takmarkaður
og úreltur tækjabúnaður í skólum
og framboð á vönduðu margmiðlun-
arefni á íslensku væri enn af skorn-
um skammti. Óskað var eftir
skipulagsbreytingum í skólum og
almennari áhuga kennara á að auka
þau not, sem nemendur hafa af
kennsluhugbúnaði og ódýrum, auð-
veldum fjarskiptum. Nefnt var að
ýmsar námsbækur fyrir framhalds-
skóla mættu lækka í verði.
Enn er reglan sú að höfundar
vinna að verkum sínum í tómstund-
um og fá ekki tækifæri til að helga
sig starfinu. Margs konar ávinnings
má vænta, verði breytingar á því,
bæði hvað varðar gæði og verð. Þörf
er á annars konar viðmiðun fyrir
verk- og útgáfusamninga þegar
námsefni er gefið út í rafrænu formi
en gildir um útgáfu í prentuðu
formi. Lengd texta skiptir þar
minna máli en hvernig til tekst með
samspil texta við myndir og hljóð-
setningu og samsetningu verksins
yfirleitt. Þá þykir bæði höfundum
og útgefendum mikið skorta á að
næg þekking sé fyrir hendi á höf-
undarrétti og virðingu fyrir gildandi
lögum og samningum. Enn er alltof
algengt að seilst sé til útgefinna rita
og þau ljósrituð umfram það sem
samningar heimila eða efni tekið og
birt á vefsíðum án þess að leitað hafi
verið leyfis hjá rétthöfum.