Morgunblaðið - 29.04.2000, Side 13

Morgunblaðið - 29.04.2000, Side 13
‘LAUGAUDAGUR 29. Al’kíL 2<)0Ó 1!} FRÉTTIR Samið til 27 ára um einkaframkvæmd við byggingu og rekstur hjúkrunarheimilis Ríkið greiðir Öldungi 11,8 milljarða kr. INGIBJÖRG Pálmadóttir, heil- brigðis- og tryggingamálaráðherra, undirritaði í gær ásamt Geir H. Haarde fjármálaráðherra samning við fyrirtækið Öldung hf. um að fyr- irtækið leggi til og reki hjúkrunar- heimili fyrir mikið veikt eldra fólk í Sóltúni í Reykjavík. Samningurinn hljóðar upp á 11,8 milljarða króna. Hér um að ræða þjónustu sem felst í því að leggja til og reka í a.m.k. 25 ár hjúkrunarheimili sem er ætlað 92 öldruðum einstaklingum með öllu því sem til þarf. Samning- urinn er gerður undir merkjum einkaframkvæmdar og er til 27 ára frá undirritun en hjúkrunarrýmum fyrir aldraða fjölgar um 92 í Reykja- vík þegar heimilið verður að fullu tekið í notkun. Fyrstu íbúarnir flytj- ast inn á heimilið í nóvember á næsta ári en nokkrum mánuðum síðar verður heimilið í fullum rekstri. Þetta er í fyrsta sinn sem fyrirkomu- lag einkaframkvæmdar er notað við uppbyggingu heilbrigðisstofnana hér á landi. Heilbrigðis- og tryggingamála- ráðuneyti og fjármálaráðuneyti ákváðu að bjóða út byggingu og rekstur á nýju hjúkrunarheimili í Reykjavík til að fjölga hjúkrunar- rýmum á höfuðborgarsvæðinu. Tvö tilboð bárust í útboði á útvegun og rekstri heimilis fyrir 60 einstaklinga en þeim var báðum hafnað þar sem þau voru hærri en áætlanir gerðu ráð fyrir. I framhaldi af því var gengið til samninga við Securitas hf. og Verkafl hf. á grundvelli þess að tilboð þeirra í áðumefndu útboði hlaut hærri einkunn hvað varðar húsnæði, þjónustu og verð og leiddu þær viðræður til undirritunar á samningi um byggingu og rekstur 92 rúma hjúkrunarheimilis. Verksalinn hefur stofnað sérstakt fyrirtæki um reksturinn sem heitir Öldungur hf. og er að 85% í eigu Securitas hf. og 15% í eigu ÍAV hf. (íslenskir aðal- verktakar). Húsið rís á homi Nóatúns og Sól- túns þar sem knattspyrnuvöllur Glímufélagsins Armanns er nú. Arkitekt er VA - Vinnustofa arki- tekta ehf. og hönnun burðarvirkis og lagna var í höndum Hönnunar ehf. Hönnun raflagna annaðist Rafteikn- ing ehf. Önnur og meiri þjónusta Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigð- is- og tryggingamálaráðherra, sagði við undirritunina að þarna yrði allt önnur þjónusta en áður hefði verið í boði. Heimilið verði næsta stig við sjúkrahús og ætlað veikustu, öldr- uðu sjúklingunum. Herbergi verða 25 fermetrar að stærð fyrir utan sal- ernisaðstöðu. Heilbrigðisráðherra sagði að borið hefði á gagnrýni í þá vera að ríkið greiddi of mikið fyrir þjónustuna. „Eg tel það ekki vera rétt heldur séum við að borga sann- gjarnt verð fyrir þjónustuna vegna þess að hér er um mun meiri þjón- ustu að ræða en áður. Við getum því með gleði skrifað undir þennan samning," sagði Ingibjörg. Geir H. Haarde fjármálaráðherra sagði að hér væri verið að ganga frá merkilegum samningi milli ríkis- valdsins og þess einkaaðila sem hefði tekið að sér að reisa og reka hið nýja hjúkranarheimili við Sóltún. „Einka- framkvæmdarhugmyndin gengur út á það að nýta sér kosti, hugkvæmni __________________ m mm* mLm ihls m Hjúkrunarheimili Sóltún 2 90 herbergi á þrem hæðum Samtals 7.000 fermetrar Byggingarkostnaður 1.200 milljónir kr. 1. Aðalaðkoma 2. Aðalinngangur 3. Aflokaðir garðar 4. Garðskáli Þversnið, horft til norðurs C?:j) Ílllllllli I JL Teikning: Vinnustofa arkitekta, Skólavörðustíg 12 Ljósmynd/Odd Stefán Wm, i m Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigðis- og tryggingaráðherra, og Stefán Friðfínnsson, forstjóri Islenskra aðalverktaka, handsala samning um byggingu og rekstur hjúkrunarheimilis í Reykjavík. Á milli þeirra situr Geir H. Haarde fjármálaráðherra. og hagsýni einkarekstursins til þess að vinna verk sem eðli málsins sam- kvæmt era unnin fyrir kostnað og á reikning hins opinbera. Hér er verið að fara út á brautir sem reyndar hafa þekkst í nokkram mæli í öðram löndum en era tiltölulega nýjar af nálinni hér á landi. Ég er sannfærð- ur um að enn meira verði um það að við reynum að koma opinberam verkefnum fyrir með þessum hætti til þess að nýta kosti einkareksturs- ins og þá hagkvæmni sem honum fylgir. Markmiðið er að sjálfsögðu að tryggja almenningi sem besta þjón- ustu og hinu opinbera sem besta nýt- ingu á því fjármagni sem varið er til tiltekinna málaflokka, í þessu tilfelli öldranarþjónustunnar," sagði Geir. Hannes Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Securitas, lýsti yfir mikilli ánægju aðstandenda Önd- ungs hf. með samninginn. Kvaðst hann vonast til að þessi samningur gæti orðið upphafíð að enn frekari verkefnum undir merkjum einka- framkvæmdar. Skýrsla nefndar á vegum dómsmálaráðherra um DNA-rannsóknir í opinberum málum Erfðaefni sakfelldra sem sýknaðra skráð Morgunblaðið/Kristinn Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráðherra kynnir skýrslu nefndarinnar ásamt nefndarmönnum á blaðamannafundi. NEFND á vegum dómsmálaráð- herra sem hefur undanfarið ár unn- ið að undirbúningi reglna um DNA- rannsóknir í þágu rannsókna alvar- legra sakamála, s.s nauðgunar- og morðmála, leggur til í skýrslu sinni, að hér á landi verði hafin kerfís- bundin skráning upplýsinga um erfðagerð manna, fengnar úr lífsýn- um þeirra, sem tekin hafa verið í þágu rannsóknar opinberra mála. Sólveig Pétursdóttir dómsmála- ráðherra segist munu leggja áherslu á að samið verði lagafrumvarp sem byggir á tillögum nefndarinnar, sem lagt verði fyrir Alþingi í haust. Formaður nefndarinnar var Ragnheiður Harðardóttir, saksókn- ari hjá ríkissaksóknara, en í nefnd- inni sátu auk hennar Arnar Þór Jónsson lögfræðingur í dómsmála- ráðuneytinu, Bjarni J. Bogason að- stoðaryfirlögregluþjónn, Gunnlaug- ur Geirsson prófessor í réttar- læknisfræði, Haraldur Briem yfir- læknir og Þórir Oddsson vara- ríkislögreglustjóri. Rannsóknarhagsmunir mestir í alvarlegum sakamálum I niðurstöðum skýrslu nefndar- innar er horft til þess að með að- gengilegum upplýsingum aukist möguleikar lögreglu til samanburð- arrannsókna, sem væri til þess fallið að auðvelda rannsókn tiltekinna al- varlegra afbrota. Rannsóknarhags- munir myndu samkvæmt niður- stöðum nefndarinnar vera mestir í alvarlegum kynferðisbrota-, líkams- árása- og manndrápsmálum, þar sem einna mestar líkur eru á að brotamaðurinn skilji eftir sig líf- fræðileg spor. Nefndin leggur áherslu á það að við reglusetningu DNA-skrár verði gætt grandvallarreglna um vernd persónuupplýsinga og upplýsingar skráðar og notaðar einvörðungu við rannsókn og meðferð opinberra mála. Fleiri en sakamenn skráðir í DNA-skrána Nefndin leggur m.a. til að ákveðið verði með lögum að lögreglu skuli heimilt að skrá upplýsingar um DNA-snið þeirra sem hlotið hafa refsidóma fyrir brot, sem hafa 1 för með sér almannahættu samkvæmt XVIII. kafla almennra hegningar- laga, kynferðisbrot samkvæmt XXII. kafla sömu laga og manndráp og líkamsmeiðingar samkvæmt XXIII. kafla laganna. Einnig leggur nefndin til að lögreglu verði heimilt að skrá DNA-snið þeirra sem hafa hlotið refsidóma fyrir stórfelldan þjófnað samkvæmt 244. gr. al- mennra hegningarlaga og líkamlegt ofbeldi eða hótanir um beitingu of- beldis samkvæmt 252. gr. sömu laga. Skráningin á samkvæmt tillög- um nefndarinnar einnig að ná yfir þá sem hafa gert tilraun til brota á 244. og 252. gr. hegningarlaga. Nefndin leggur til að heimilt verði að skrá upplýsingar um einstaklinga þótt viðkomandi hafi verið sýknaðir vegna sakhæfisskorts og þá sem ekki verður refsað samkvæmt 14. gr. hegningarlaga, en ríkissaksókn- ari telur upplýst að hafi framið kyn- ferðisbrot, manndráp eða líkams- árás. í tilefni þess að nefnt hefur verið að mörgum myndi reynast þung- bært og niðurlægjandi að vera á skránni, bendir nefndin á að réttar- vörslukerfið færi þegar kerfisbund- ið upplýsingar um afbrot einstak- linga. Nægi þar að nefna að upplýsingar um ákæramál eru færðar í málaskrár dómstóla og upplýsingar um refsidóma í saka- skrá ríkisins samkvæmt lögum um meðferð opinberra mála. Samkvæmt tillögum nefndarinn- ar á ríkislögreglustjóri að halda skrána en lagt er til að heimilt verði að veita lögreglustjórum, ríkissak- sóknara, dómsmálaráðuneytinu, er- lendum dómsmálayfirvöldum, um- boðsmanni Alþingis og rannsóknarstofu sem annast DNA- greiningu samkvæmt samningi við dómsmálaráðuneytið, upplýsingar úr henni. Að sögn Sólveigar Pétursdóttur dómsmálaráðherra verður lögð áhersla á að semja lagaframvarp á grundvelli tillagna nefndarinnar, sem lagt verði fyrir Alþingi í haust. „Ég tel að þetta sé mjög mikilvægt mál og að DNA-skráningin muni flýta fyrir rannsóknum sakamála," segir Sólveig. Hún segir að á grund- velli upplýsinga úr DNA-skránni verði unnt að koma upp um alvarleg afbrot mun fyrr en ella og skýrari hætti en áður. „DNA-skráningin felur ekki ein- vörðungu í sér að menn verði dæmd- ir sekir heldur getur notkun hennar fyrirbyggt það að saklausir menn verði sakfelldir fyrir brot sem þeir hafa ekki framið,“ segir Sólveig. Hún segist sjá fyrir sér að DNA- rannsóknir í íslenskum sakamálum sem hingað til hafa farið fram er- lendis, geti farið fram hérlendis í framtíðinni samhliða hinni kerfis- bundnu DNA-skráningu enda séu erfðarannsóknir á mjög háu stigi hérlendis. „Við höfum alla burði til að vinna þetta verkefni mjög vel. Við eigum mjög góða vísindamenn hér á landi og jafnvel er ekki úti- lokað að þeir gætu tekið að sér DNA-rannsóknir fyrir aðrar þjóðir, þar sem málafjöldinn er miklu rneiri en hérlendis og biðtíminn lengri."

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.