Morgunblaðið - 29.04.2000, Page 24

Morgunblaðið - 29.04.2000, Page 24
24 LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ íþróttir á Netinu v^mbl.is 8ooTO®°; Eitt númer fyrir alla /# (M[ Áberidin(;.ir !'■ (jC|) t>jórnJ!ituupplýsingrtr / # Iýndir íarsírn.tr 3J(□[(□] Scrþjónust.j Q) All.irr sól.iriiringinn l 8oo 7000, færðu allar upplýsingar um þá þjónustu sem Síminn veitir. Þjónustuverið er opið allan sólarhringinri VIÐSKIPTI Finnur Sveinbjörnsson ráðinn fram- kvæmdastjóri Verðbréfaþings islands „Þróa þarf þingið áfram sem þjónustu- fyrirtæki“ FINNUR Sveinbjöms- son, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra viðskiptabanka hefur verið ráðinn fram- kvæmdastjóri Verð- bréfaþings íslands hf. Hann tekur til starfa 19. júní nk. Finnur er hagfræð- ingur að mennt. Hann lauk háskólaprófum í Englandi (B.Sc.Econ., University of Leicester) og Bandaríkjunum (M.A., University of Minnesota). Finnur starfaði í fjármálaráðu- neytinu, fjárlaga- og hagsýslustofnun 1984-1987, alþjóða- deild Seðlabanka íslands 1987-1990 og í viðskiptaráðuneytinu 1990-1995 þar sem hann gegndi starfí skrif- stofustjóra og fór með málefni fjár- magnsmarkaðarins, gjaldeyrismál og fjárfestingu erlendra aðila. Hann hef- ur verið framkvæmdastjóri Sam- bands íslenskra viðskiptabanka frá 1995 auk þess sem hann hefur annast skrifstofuhald fyrir Samtök verð- bréfafyrirtækja og kjarasamningan- efnd bankanna. Finnur er kvæntur Dagnýju Halldórsdóttur, fram- kvæmdastjóra Skímu ehf. Þau eiga tvö böm. Finnur sagði í samtali við Morgun- blaðið að það yrði mjög gaman að fara til starfa hjá Verðbréfa- þingi, en þingið stæði nú á ákveðnum tíma- mótum. Búið væri að þróa innviðina en nú þyrfti að halda áfram að þróa þingið sem fram- sækið þjónustufyrir- tæki og kanna hvað þingið geti gert til að stuðla að enn frekari uppbyggingu hluta- bréfamarkaðarins. „Þar er tengingin við NOREX kannski lyk- ilatriði og opnar glugga fyrir okkur út og einnig glugga fyrir útlendinga hingað inn á þennan markað. Þá hefur skuldabréfamark- aðurinn verið í ládeyðu um nokkurt skeið og það er spuming hvort þingið getur með einhverjum hætti lagt eitt- hvað af mörkum til að glæða hann á ný. Síðan er það mjög spennandi framtíðarverkefni að koma á skipu- lögðum markaði fyrir afleiðuvið- skipti. En það sem kannski stendur upp úr er að halda áfram að þróa þingið sem þjónustufyrirtæki þar sem lögð er áhersla á gæði og að þjóna hagsmunum þessara ólíku hópa sem era útgefendurnir annars vegar og fjárfestarnir hins vegar. Það þarf að gera með sanngjörnum en ákveðn- um hætti þannig að það sé á hvorugan aðilan hallað,“ sagði Finnur. Finnur Sveinbjömsson Sparisjóður Ólafsfjarðar Tap af rekstrinum 49,5 millj. kr. í fyrra TAP af rekstri Sparisjóðs Ólafsfjarð- ar nam 49,5 milljónum kr. á árinu 1999 og skýringuna á slæmri afkomu má rekja til þess að sjóðurinn varð að leggja 78 milljóna kr. framlag á af- skriftareikning útlána, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá spari- sjóðnum. Vaxtatekjur sjóðsins námu 185 milljónum kr. á árinu 1999 og vaxta- gjöld 74 milljónum. Þannig vom hreinar vaxtatekjur 74 milljónir kr. og minnkuðu um 16 milljónir kr. frá árinu áður. Aðrar tekjur námu sam- tals 21 milljón kr. á mótí 16,7 milljón- um árið áður. Rekstrargjöld námu samtals 66,7 milljónum kr. og jukust um 2 milljónir milli ára. Mesta breyt- ingin milli ára er sú að framlag í af- skriftareikning útlána nam samtals 78 milljónum kr. og hækkaði um 45 milljónir frá árinu áður. Tap af reglu- legri starfsemi nam því 49,5 milljón- um króna. I árslok nam niðurstaða efnahagsreiknings sparisjóðsins sam- tals 1.255 milljónum kr. og bókfært eigið fé 79,3 miUjónum. Eiginfjárhlut- fall skv. 54. grein laga um viðskipta- banka og sparisjóði nam í árslok 9,3%. I tilkynningu Sparisjóðs Ólafs- Qarðar segir að þessi útkoma sé mikil vonbrigði, en eins og kunnugt sé hafi sparisjóðurinn lent í miklum erfiðleik- um fyrir nokkmm ámm og orðið hafi að afskrifa verulegar fjái’hæðir vegna skuldbindinga viðskiptamanna. Þessi fortíðardraugur hafi enn verið að gera skráveifu í fyrra eins og sjá megi á framlagi á afskriftareikning. Ljósi punkturinn í þessu uppgjöri sé hins vegar sá að framlegð af rekstri er tæpar 29 milljónir kr. og CAD-hlut- falUð er 9,3%, en það má ekki vera lægra en 8%. Fimmtíu starfsmenn hjá 66°N í Lettlandi Ný verksmiðja við Molduhraun í Garðabæ tekin í notkun í haust Á FYRSTU þremur mánuðum ársins varð 40% aukning í útflutningi hjá ís- lenska fyrirtækinu 66°N, miðað við sama tíma í fyrra. Nú starfa á bilinu 40-50 manns hjá 66°N í Lettlandi en hluti af framleiðslu 66°N var fluttur til Lettlands á síðasta ári, m.a. til að mæta aukinni eftirspum erlendis frá og bæta samkeppnishæfni fyrirtæk- isins, að sögn Markúsar Þórarinsson- ar, framkvæmdastjóra markaðssviðs 66°N. í Lettlandi fer fram framleiðsla 66°N á almennum vinnufatnaði og sjóklæðum, að mestu fyrir erlendan markað. Hönnun, þjónusta og sölu- starfsemi er meðal þess sem áfram verður hér á landi, auk sérframleiðslu fyrir fyrirtæki, að sögn Markúsar. 66°N rekur verksmiðju í Reykjavík og saumastofur á Akureyri, Borgar- nesi og Selfossi, en að sögn Markúsar vom verksmiðjur á Akranesi og Hellu lagðar niður og starfsemi sem var innan þeirra flutt tíl Lettlands. I september nk. verða framleiðsla og skrifstofur 66°N í Reykjavík flutt til Garðabæjar. Við Molduhraun standa yfir byggingarframkvæmdir við nýtt 3.000 fm hús. Verslun 66°N verður áfram við Faxafen en starf- semi við Skúlagötu verður lögð niður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.