Morgunblaðið - 29.04.2000, Side 28

Morgunblaðið - 29.04.2000, Side 28
28 LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Kaupin á Rover gengin til baka Ný samsteypa, Phoenix, er nú komin mn í myndina London, Frankfurt. AP, AFP. Mikill fögnuður varð meðal starfsmanna Rover-verksmiðjanna í Long- bridge er fréttist, að Alchemy Partners hefði fallið frá kaupunum. Hér skála nokkrir þeirra fyrir tfðindunum en ekki er ólíklegt, að BMW taki nú upp viðræður við Phoenix-samsteypuna, sem nýtur stuðnings bresku stjórnarinnar og verkalýðsfélaganna. ALCHEMY Partners, fyrirtækið, sem ætlaði að taka við bresku Rov- er-verksmiðjunum af BMW, til- kynnti í gær, að það hefði fallið frá tilboðinu. Lækkaði gengi hluta- bréfa í BMW óðara um rúm 9% í kauphöllinni í Frankfurt. í tilkynningu Alchemy Partners, sem fæst einkum við ýmiss konar áhættufjárfestingu, sagði, að upp hefði komið verulegur ágreiningur um kaupin á fimmtudag og því hefði fyrirtækið séð sig tilneytt til að falla frá þeim. Uwe Mahla, tals- maður BMW, vildi í fyrstu ekkert um þetta segja að svo stöddu en í yfirlýsingu frá fyrirtækinu nokkru síðar sagði, að það myndi nú leita annarra leiða til að losa sig við Rover. Kom þar fram, að fyrirtæk- ið ætlaði sér mánuð til að ráða fram úr þessu. Studd af stjórnvöldum og verkalýðsfélögum Verð á hlutabréfum í BMW lækkaði strax í gærmorgun um rúm 9% vegna þessara tíðinda en í fyrradag hafnaði BMW að því er virðist öðru tilboði í Rover frá Phoenix-samsteypunni. Var ástæð- an sögð sú, að hún hefði ekki þær fjármálalegu tryggingar, sem til þyrfti. Staðan, sem nú er komin upp, gefur Phoenix-samsteypunni, sem breska stjórnin og verkalýðs- félögin styðja, nýtt tækifæri en tal- ið var, að hún hefði verið orðin of sein til að koma saman viðunandi tilboði. Mahla, talsmaður BMW, staðfesti enda í gær, að Phoenix væri nú aftur inni í myndinni. Fyr- ir þessari samsteypu fer John Towers, fyrrverandi aðalfram- kvæmdastjóri Rovers. Alchemy var búið að gefa í skyn, að mörgum starfsmönnum Rover-verksmiðj- anna yrði sagt upp en Phoenix- samsteypan telur ekki vera þörf á miklum uppsögnum. Noti ekki BMW í Bond-myndum Mahla sagði, að uppákoman með Alchemy hefði engin áhrif á fyrir- huguð kaup Ford-verksmiðjanna á Land Rover en sú framleiðsla hef- ur skilað hagnaði. Er kaupverðið um 212 milljarðar ísl. króna. Tíðindunum um, að ekkert yrði af kaupum Alchemys á Rover, var fagnað mjög af starfsmönnum verksmiðjanna. Sögðu þeir, að ekki hefði annað vakað fyrir Alchemy en að sundra Rover og selja síðan bestu bitana án nokkurs tillits til starfsfólksins. Hafa bresku verka- lýðsfélögin hvatt fólk til að kaupa ekki BMW-bíla og þau leggja hart að framleiðendum James Bond- myndanna að nota þá ekki í mynd- unum en það var gert í þeirri síð- ustu. Talsmenn BMW segja aftur á móti, að meginástæðan fyrir geng- isleysi Rover-verksmiðjanna sé hátt gengi breska pundsins. Síðan BMW keypti Rover 1994 hafi það hækkað um 30%. Það hafi valdið því í fyrsta lagi, að útflutningur á Rover-bílunum sé næstum ómögu- legur og í öðru lagi hafi samkeppn- isstaða þeirra innanlands stór- versnað vegna þess, að innfluttir bílar hafi lækkað í verði í takt við gengisþróunina. Aætlað er, að BMW hafi tapað rúmlega 300 millj- örðum ísl. króna á Rover frá 1994. Ný fjölda- gröf fínnst í Úganda Kampala. AP, AFP. FIMMTÍU og fimm lík af körlum, konum og börnum fundust í gær í einni gröf undir bflskúr í Kampala, höfuðborg Úganda. Hafði leiðtogi sértrúarsafnaðarins, sem er sakað- ur um að hafa myrt um 1.000 manns, haft bflskúrinn og sam- byggt hús á leigu. Talsmaður lögreglunnar í Kampala sagði, að Dominic Kat- aribaabo, einn helsti leiðtogi hreyfingar, sem kenndi sig við boðorðin tíu, hefði haft húsið á leigu og raunar nokkur önnur hús í borginni. Hefur ekki verið leitað undir þeim enn. I gröfinni voru lík tuttugu og tveggja kvenna, fimm- tán karlmanna, tíu stúlkna og átta drengja. Voru öll líkin nakin. „Ég fæ ekki skilið hvernig þetta gat átt sér stað. Hvernig gat allt þetta fólk dáið þegjandi og hljóða- laust? Kannski var það allt dáið er það var flutt hingað,“ sagði Irene Mirembe, ung kona, en húsið hennar er aðeins í tíu metra fjar- lægð frá bflskúrnum. Aður hafa fundist hundruð líka í fjöldagröfum víðs vegar um Úg- anda og er talan nú alls rétt innan við 1.000. Báru þau mörg merki þess, að fólkið hefði verið kyrkt, en svo var ekki með líkin, sem fundust í gær. Mestu morðin áttu sér líklega stað er kirkju safnaðar- ins í Kanungu-héraði var lokað og í henni kveikt. Fórust mörg hundruð manns í brunanum. Konungasög- urnar efldu sjálfstraustið Sveitarfélög í Vestur-Noregi hafa styrkt uppbyggingu Snorrastofu í Reykholti með fé og ætlunin er að styðja einnig væntan- lega Auðunarstofu að Hólum. Morgunblaðið/RAX Norsku gestirnir, f.v. Arne Holm, Ragnhild Randa) og Hákan Randal ásamt Ólafí G. Einarssyni, formanni stjómar Seðlabankans, en Ólafur var þeim innan handar hér á landi. NORÐMENN gáfu í fyrra sem svar- ar nær 19 milljónum króna til upp- byggingar Snorrastofu í Reykholti og nú í vikunni bættust við um 4,3 milljónir í sjóðinn. Hér á landi eru nú staddir þrír fulltrúar hópsins sem stóð fyrir söfnuninni í fyrra, þau Ame Holm, ræðismaður íslands í Björgvin, Hákon Randal, fyrrver- andi fylkisstjóri á Hörðalandi og eig- inkona hans, Ragnhild Randal tfl að afhenda forráðamönnum Snorra- stofu viðbótarféð. Átakið er eins konar hátíðargjöf fólks í Vestur-Noregi í tilefniaf þús- und ára afmæli kristnitöku á Islandi. Ætlunin er að styrkja einnig upp- byggingu Auðunarstofu að Hólum í Hjaltadal. Fyrr á öldum var á staðn- um mikið hús með þessu nafni úr norskum stórviði og munu norskir iðnaðarmenn aðstoða við að reisa nýja húsið hér. Gdðar undirtektir á Hörðalandi Gefendur fjárins eru fjölmörg sveitarfélög í Vestur-Noregi, þar af öll 75 sveitarfélög á Hörðalandi, einnig háskólar og fleiri aðilar. í íyrra komu hingað til lands nær fimmtíu norskir sveitarstjómar- menn í tilefni söfnunarinnar og segir Holm að þeir hafi allir orðið miklir íslandsvinir. Gert er ráð fyrir að opna Snorrastofu með viðhöfn 29. júlí nk. og að sögn Norðmannanna þriggja verða þar margir gestir frá grannþjóð okkar. Þremenningamir hafa meðal ann- ars hitt að máli Davíð Oddsson for- sætisráðherra og biskup íslands, herra Karl Sigurbjömsson. Holm stjórnar átakinu í Noregi og segir að mikill áhugi sé á málinu á Hörða- landi og víðar í Vestur-Noregi, und- irtektirnar hafi verið góðar og öll sveitarfélög á Hörðalandi sem leitað hafi verið til hafi ákveðið að láta fé af hendi rakna. Framlag er í samræmi við íbúafjölda á hveijum stað. „Búið er að panta um 200 sæta flugvél fyrir ferðina hingað í júlí,“ segir Holm sem er fyrrverandi bankastjóri. Hann segist hafa talið það eðlilegt að taka að sér stjómun söfnunarinnar. Hann er ræðismaður íslands og segir að það sé ekki erfitt starf því að íslendingar í Noregi séu að jafnaði sómafólk. Fólki á svæðinu sé afskaplega hlýtt til íslendinga, deilur um Smuguveiðar og Leif Eiríksson skipti þar engu. „Landnámsmennirnir komu flest- ir frá Vestur-Noregi og tengslin við ísland eru afar sterk á svæðinu. Við vildum þess vegna færa íslendingum gjöf í tilefni kristnihátíðarinnar og buðum sveitarfélögum í Vestur-Nor- egi að taka þátt í sérstakri, vestur- norskri þjóðargjöf. Okkur fannst líka að þetta gæti orðið gott fordæmi í norsk-íslensku samstarfi sem að sjálfsögðu hefur verið ástundað lengi á mörgum sviðum. Miklu máli skiptir að með starfi af þessu tagi, afmörk- uðum verkefnum en ekki eintómu rabbi, sköpum við persónuleg tengsl og vináttu. Séra Bolli Gústavsson fitjaði upp á hugmyndinni um að reisa Auðunarstofu á Hólum með okkur fyrir fimm eða sex árum. Síð- an hafa skógarbændur í Vestur-Nor- egi gefið timbrið sem notað verður í húsið, gæðavið sem er 250 ára gam- all. Rflcisstofnun sem sér um að halda við gömlum handverkshefðum hefur boðist til að annast verkið í samstarfi við íslenska iðnaðarmenn. Auðunarstofa verður því norrænt samstarfsverkefni og hún verður reist með sams konar aðferðum og notaðar voru á 14. öld. Hér er því um að ræða í senn handverk og sögulegt menningarstarf og við vonum að stofan verði að veruleika í ágúst á næsta ári. Auðunarstofa hin nýja verður stærri en gamla húsið og þar á bisk- upinn meðal annars að vera með skrifstofu sína og fundarherher- bergi. Einnig á að að vera þar bóka- safn.“ Randal segir hlæjandi að Holm sé alit of hógvær og geri ekki nóg úr eigin dugnaði, hann sé „framsækn- asti ræðismaðurinn í Björgvin". Sjálfur segist Randal hafa verið meira í aukahlutverki en honum finnst mikilvægt að með átaksverk- efnum eins og söfnuninni sé frum- kvæði að samvinnu skapað utan venjulegs farvegar stjórnmálanna. „Ég var áður virkur í stjómmálum og á Stórþinginu í Ósló, var um hríð stjómarformaður Norræna hússins hér í Reykjavík og þekki fjölmarga íslendinga sem vom í stjórnmálum á sama tíma, Ólaf G. Einarsson, Matt- hías Mathiesen, Eið Guðnason og fleiri. Auk þess að hafa unnið að verk- efnunum sem minnst hefur verið á hefur okkur tekist að koma á sam- starfi við Björgvinjarháskóla. Ákveðið hefur verið að samstarf verði um rannsóknir milli skólans og Háskóla íslands um fomleifarann- sóknimar í Reykholti. Sama verður upp á teningnum varðandi Auðunar- stofu á Hólum. Þegar átakinu okkar lýkur verður því framhald á sam- starfinu og þá milli vísinda- og fræði- manna í löndunum. Þetta skiptir að minni hyggju miklu máli.“ Þremenningarnir hafi átt ágæta fundi með forsætisráðherra og bisk- upi er hafi lýst fyrirætlunum í tengslum við kristnihátíðina. Báðir hafi verið mjög áhugasamir um norska framtakið. Söguleg leiksýning Randal segir að þau hlakki til að kanna aðstæður í Reykholti um helgina með tilliti til leiksýningar sem þar verður sett upp er Snorra- stofa verður tekin í notkun. Mun Júl- íus Hafstein, framkvæmdastjóri kristnihátíðarnefndar, verða með í för. En hver er þáttur Ragnhildar Randal í átakinu? „í Vestur-Noregi höfum við sett upp mikla leiksýningu með 120 leik- urum, Kristkonungana, í tengslum við Mostraspelet," svarar hún. „Sýn- ingin er eftir Johannes Heggland og fjallar um kristnitökuna í Noregi, Ól- af Tryggvason sem kom kom til landsins árið 995 ásamt fylgdar- mönnum sínum til að kristna þjóðina og á Mostri var sungin messa í fyrsta sinn í Noregi. Þangbrandur prestur, sem Ólafur sendi síðar til íslands til að boða þar hinn nýja sið, er veiga- mikil persóna í sýningunni, hann kvelur m.a. bænduma með skatt- heimtu," segir Ragnhild Randal. Hún er leikstjóri sýningarinnar sem verður færð upp í Reykholti í júlí, dá- lítið stytt. Með í fór verður 30 manna sinfóníuhljómsveit frá Færeyjum. „Einnig setjum við upp minni sýn- ingu af sögulegum toga er verður flutt í Vestmannaeyjum þegar þar verður afhent þjóðargjöf Norð- manna, stafkirkjan.“ Holm segir aðspurður að áhuginn á fornu bókmenntunum og verkum Snorra sé mikill meðal Norðmanna. Konungasögur Snorra sem íslend- ingar hafi varðveitt hafi átt sinn þátt í að efla trú Norðmanna á sjálfum sér á umliðnum öldum er þeir voru undir erlendum kóngum. „Þar gát- um við séð hvers virði við vorum og þau verðmæti eru eilíf.“ Ef til vill sé unga fólkið þó ekki jafn áhugasamt. En Ragnhild bendir á að með sögu- legum leiksýningum sé hægt að ná til allra kynslóðanna vegna þess að í þeim taki þátt jafnt börn sem full- orðnir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.