Morgunblaðið - 29.04.2000, Side 29

Morgunblaðið - 29.04.2000, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2000 29 ERLENT Nelson Mandela í stuttri heimsókn í Búrúndí Segir ógjörning að koma á friði án stuðnings hersins Bujumburi. Reuters. NELSON Mandela, fyrrverandi forseti Suður-Afríku, fór í stutta heimsókn til Búrúndí í gær og sagði að ógjörningur yrði að koma á friði í landinu nema með fullum stuðningi hersins. Mandela var skipaður sáttasemj- ari í friðarumleitunum í Búrúndí í febrúar og kveðst vera vongóður um að þær beri árangur og hægt verði að binda enda á borgarastyrj- öldina sem staðið hefur í sjö ár og kostað 200.000 manns lífið. „Ég tel engum vafa undirorpið að friðar- samningurinn verður undirritað- ur.“ „Enginn friðarsamningur kemur að gagni nema herinn styðji hann,“ bætti hann þó við. Friðarviðræðurnar hafa staðið í tæp tvö ár og fara fram í bænum Arusha í norðurhluta Tansaníu. Tvær helstu uppreisnarhreyfing- arnar hafa samþykkt í fyrsta sinn að taka þátt í viðræðunum í Ar- usha. Eitt af erfiðustu úrlausnarefnun- um er að knýja fram nauðsynlegar breytingar á her Búrúndí. Tútsar, sem eru í minnihluta í landinu, hafa haft bæði tögl og hagldir í hernum og stefnt er að því að uppreisnar- menn úr röðum Hútúa, stærsta þjóðflokks landsins, gangi í hann. Mandela baðst afsökunar á því hversu stutt heimsóknin var og kvaðst ætla að vera lengur í land- inu þegar hann kæmi þangað aftur. Mannréttindasamtök í Búrúndí höfðu skorað á Mandela að lengja heimsóknina til að hann gæti rætt friðarviðræðurnar við „unga fólkið, bændur, flóttamenn, Hútúa og Tútsa, þá sem eru andvígir friðar- viðræðunum og þá sem hann hefur aldrei hitt í Arusha eða Suður-Afr- íku“. Mandela ræddi við forseta, varn- armálaráðherra, yfirmenn hersins, stjórnarerindreka og þingmenn í nokkrar klukkustundir áður en hann hélt aftur til Suður-Afríku. Harka færist í stríðið Mikil harka færðist í bardagana í Búrúndí síðustu dagana fyrir heim- sókn Mandela. Talið er að a.m.k. 67 Reuters Pierre Buyoya, forseti Búrúndís (t.h.), tekur á móti Nelson Mandela á flugvellinum í Bujumbura þegar suður-afríski forsetinn fyrrverandi kom þangað til að ræða friðarviðræður stjórnarinnar og uppreisnar- manna í Búrúndí. óbreyttir borgarar og uppreisnar- menn hafi fallið á síðustu þrem dögum í bardögum við útjaðar höf- uðborgarinnar og í héraðinu Mak- amba í suðurhluta landsins. Talsmaður hersins sagði að upp- reisnarmennirnir hefðu notfært sér heimsókn Mandela til að vekja á sér athygli með því að herða árásir sínar. Félagar í kynlífsklúbbi í Þrándheimi skelfingu lostnir Klámmyndum af kunnu fólki stolið FÉLAGAR í kynlífsklúbbnum Club 4 í Þrándheimi eiga ekki sjö dag- ana sæla um þessar mundir. Er ástæðan sú, að það er meira en hugsanlegt, að 3.500 tölvumyndir af þeim við alls kyns kynlífsathafn- ir séu komnar citthvað á flakk. Hefur lögreglan komið höndum yf- ir eitthvað af myndum en hinar eru í tölvu, sem enginn veit hvar er niðurkomin. Sagt er, að meðal klúbbfélaganna séu ýmsir kunnir menn og konur í Þrándheimi. Að því er fram kemur á vefsfðu norska sjónvarpsins hefur Iög- reglan í sínum höndum um 100 myndir og verða þær notaðar sem gögn í máli gegn forstjóra klúbbs- ins, Tom Ketil Krogstad, en hann er m.a. sakaður um að hafa skipu- lagt vændi. Klúbbfélagamir vissu um þessar 100 myndir en þeir vissu ekki um myndirnar 3.500, sem Krogstad segir, að hafi verið á annarri tölvu, sem nú er horfin. Alvarlegar afleiðingar Lögfræðingur Krogstad segir, að allar myndirnar hafi verið tekn- ar innan veggja klúbbhússins og sýni í sjálfu sér ekkert ólöglegt. Komist þær í umferð eða verði not- aðar með einhveijum hætti, geti þær hins vegar haft mjög alvarleg- ar afleiðingar fyrir þá, sem á þeim eru. Hefúr hann krafist þess, að lögreglan skili myndunum, sem hún er með, og einnig listum með nöfnum klúbbfélaganna. Segist hann óttast, að upplýsingar uin þá geti borist út fyrir lögreglustöðina. Smiöjuvegi 9 • S. 564 1475 Notaðar búvélar á kostakjörum Vissir þú að við eigum mikið úrval notaðra búvéla? Mikil verðlækkun. Hafið samband við sölumenn okkar sem fyrst. Ingvar Helgason hf. Sœvarhöfða 2 - Stmi 525 8000 - Beintt sími 525 8070 Fax: 587 9577- www.ih.is- Véladeild -E-mail: veladeild@ih.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.