Morgunblaðið - 29.04.2000, Síða 36
iaStyft-wis-
36 LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2000
Meðganga
Eru fæðubotarefran
heppOeg?
MORGUNBLAÐIÐ
Krabbamein
Seglar tryggja áhrifa-
ríkari lyfjagjöf
Salfræði
Næring
Stuðla fáar hitaeiningar
að fitusöfnun?
Sagt frá námskeiði fyrir
almenning
Associated Press
Ný tækni ryður sér nú til rúms á sviði krabbameinslækninga.
Krabbameinslækningar
Segull vísar
veginn
New York. Reuters Health.
MEÐ því að nota segul til þess að
vísa öflugum lyfjum beina leið á „víg-
völl“ krabbameinsins hefur læknum
tekist að koma í veg fyrir að talsvert
magn lyfjanna breiðist út um líkama
sjúklingsins og hafi þar alvarlegar
aukaverkanir á boð við ógleði og hár-
los.
Dr. Scott Goodwin, við læknamið-
stöð Háskólans í Kalifomíu, greindi
frá þessu á þingi hjarta- og geisla-
lækningasambandsins í Bandaríkj-
unum nýverið. Sagði hann að aðferð-
in feli í sér að agnarsmáar
seguleindir séu festar við krabba-
meinslyf sem inniheldur virka efnið
doxórúbicín (sjá grein). Lyfinu er
síðan veitt inn í æð sem flytur blóð til
æxlisins. Læknar nota síðan segul á
stærð við súpuskál „til að draga lyfið
inn í æxlið“, útskýrði Goodwin.
AIls hafa 16 sjúklingar gengist
undir þessa meðferð. Rannsóknir á
12 þeirra leiddu í ljós að í tveim
minnkaði krabbameinið, var óbreytt
í sjö og stækkaði í þrem. Er þess
vænst að fjöldi tilfella þar sem
krabbamein minnkar muni aukast
eftir því sem læknar gefa stærri
skammta af lyfinu í frekari tilraun-
um.
Goodwin nefndi, að þótt tveir
sjúklinganna hefðu fundið fyrir
aukaverkunum sem eru algengar við
lyfjameðferð á krabbameini væru til-
felli aukaverkana umtalsvert færri
þegar segulaðferðin væri notuð en
eftir hefðbundna meðferð. Segir
hann segulaðferðina vera „framtíð-
ina“ í krabbameinslækningum.
Úr íslensku lyfjabókinni
Doxorubin
Innihaldsefni: Doxórúbicín.
Lyfjaform: Stungulyf (sprautulyf
sem gefið er í æð): 2 mg í hverjum
ml.
Notkun: Lyfið er notað við ýmiss
konar krabbameini, einkum í
brjóstum, lungum, bein-
um, eitlavef, skjald-
kirtli og þvagblöðru,
einnig við bráðu hvít-
blæði.
Skammtar: Læknir ákveður
skammta eftir eðli sjúkdóms og
ástandi sjúklings.
Aukaverkanir: Algengar: Lyfið
dregur úr frumufjölgun í merg og
getur valdið mergskemmdum ef
mjög stórir skammtar eru notað-
ir. Lyfið getur haft áhrif á hjarta-
vöðva og valdið hjartaskemmd-
um. Sjaldgæfar: Sár í munni og
meltingarvegi, ofnæmi, hárlos,
sótthiti.
Athugið: Þetta er mjög sterkt lyf
sem ætti eingöngu að
nota á sjúkrahúsum.
Nauðsynlegter að
fylgjast með blóðmynd
og ástandi beinmergs
meðan á meðferð stend-
ur. Þvag sjúklings get-
ur litast rautt eftir gjöf
lyfsins.
Meðganga og
brjóstagjöf: Eins og önnur
frumudrepandi lyf hefur Doxor-
ubin í sér fólgna verulega hættu á
fósturskemmdum ef það er tekið
á meðgöngutíma. Konur með
böm á brjósti ættu ekki að nota
lyfið.
Samheitalyf: Adriamycin.
Afgreiðsla: 10 hettuglös með 5
ml, 10 ml eða 25 ml. 5 hettuglös
með 100 ml.
Annað: Lyfið er eingöngu ætlað
til notkunar á sjúkrahúsum.
• Á Netinu:www.netdoktor.is
Rannsóknir á hitaeiningabrennslu íþróttafólks
Rífleg máltíð að kvöldi
talin vera fítandi
Washington. AP.
SAMKVÆMT niðurstöðum nýrrar
rannsóknar kann að vera að íþrótta-
menn sem æfa mikið allan daginn og
borða ekki mikið fyiT en að kvöldi
safni frekar á sig fitu. Talið er að
með því að neyta fárra hitaeininga
venji fólk líkamann á að nota minni
orku og geyma óbrenndar hitaein-
ingar sem fitu.
Dan Benardot, við Georgia State-
háskóla í Bandaríkjunum, og sam-
starfsmenn hans, rannsökuðu 42
frjálsíþróttakonur, sem voru að með-
altali 15 ára, og 20 hlaupara, sem
voru að meðaltali um 27 ára, einnig
allt konur. Niðurstöður rannsóknar-
innar birtust í tímaritinu Medicine
and Science in Sports and Exercise.
Iþróttakonurnar skráðu á klukku-
tímafresti hvað þær höfðu borðað og
hvaða æfingar þær höfðu gert.
Tölvuforrit reiknaði síðan út hvort
þær hefðu á hverjum klukkutíma
safnað fleiri hitaeiningum en þær
höfðu brennt, eða hvort þær hefðu
brennt fleiri hitaeiningum en þær
höfðu safnað. Þá var líkamsfita
þeirra einnig mæld.
Hægt á efnaskiptum?
I ljós kom sú tilhneiging að þær
íþróttakonur sem sífellt brenndu
fleiri hitaeiningum en þær neyttu
voru þær sem höfðu mesta líkams-
fitu. Þær sem voru nær jafnvægi í
neyslu og brennslu hitaeininga voru
yfirleitt grennri, að því er fram kom í
rannsókninni. Benardot sagði niður-
stöðurnar benda til þess að líkaminn
bregðist við viðvarandi hitaeininga-
skorti með því að hægja á hvíldar-
efnaskiptum, og nota þannig í raun-
inni minni orku. Þegar stórrar
máltíðar er neytt að kvöldi eru hita-
einingarnar geymdar sem fita.
Sagði Benardot að grönnu íþrótta-
konurnar kunni að vera öðru íþrótta-
fólki, og líka þeim sem ekki stundi
íþróttir, gott fordæmi um gildi þess
að borða smærri máltíðir en oftar.
„Eg tel að hugmyndin um þrjár stað-
góðar máltíðir á dag sé beinlínis á
misskilningi byggð,“ sagði Benardot.
Til dæmis mætti skipta hitaeininga-
fjöldanum í morgunverðinum í
tvennt, fyrri helmingsins væri neytt
með morgunverði en seinni helm-
ingsins um miðjan morgun. Með
sama hætti væri ráðlegt að helmingi
hitaeininganna, sem fengist með há-
degisverði, væri frestað fram á miðj-
an dag.
Jack Wilmore, við A&M-háskóla í
Texas, lét í ljósi efasemdir um rann-
sóknina. „Þetta er eitthvað málum
blandið,“ sagði hann. Einkum þótti
honum vafasamt að efnaskiptabreyt-
ing geti leitt til fitusöfnunar. „Eg ef-
ast um að orkunýting geti í rauninni
breyst svo mikið,“ sagði hann. Þá
taldi hann fyrirkomulag rannsóknar-
innar, eins dags yfirlit yfir neyslu-
venjur, orka tvímælis. Fylgjast
þyrfti með íþróttafólkinu í mun
lengri tíma til að komast að raun um
hvort hitaeiningaskortur valdi fitu-
söfnun.
REUTER
Rannsóknir á fitubrennslu íþróttamanna gefa til kynna að jöfn og reglu-
bundin inntaka næringar gefií besta raun.