Morgunblaðið - 29.04.2000, Side 54

Morgunblaðið - 29.04.2000, Side 54
MORGUNBLAÐIÐ 54 LAUGARDAGUR 29. APRÍL 2000 f MINNINGAR KARL HAFSTEINN ^ HALLDÓRSSON + Karl var fæddur á Arnarhóli í Vestur-Landeyjum 4. febrúar 1925. Hann lést 24. apríl sfðast- liðinn. Foreldrar hans voru Halldór Jóhannsson og Guð- björg Guðmunds- dóttir. Karl kvæntist Guðfinnu Helgadótt- ur 20. ágúst 1949. Foreldrar hennar * voru Helgi Pálsson og Margrét Áma- dóttir frá Ey. Karl og Guðfínna eignuðust sex börn. Þau eru: 1) Stúlka, f. 24.10. 1949, lést sama ár. 2) Margrét, f. 21.10. 1955, gift Davíð Jóhannessyni, þau skildu. Böm: Karl Gústaf, f. 1977, sambýliskona Ingibjörg Bjamadóttir; María Guðfinna, f. 1979, sambýlismaður Kári Gunn- dórsson; Aldís Gyða, f. 1984. 3) Hallbjörg, f. 12.10.1956, gift Stef- áni Sveinbjömssyni. Böra: Ama Torfa- dóttir, f. 1978, sam- býlismaður Sigurður Long; Halldór, f. 1990; Sverrir Steinn, f. 1997. 4) Gunnar Helgi, f. 16.10. 1957, kvæntur Berglindi Bergmann Gunnars- dóttur. Börn Tinna Ösp Bergmann Jak- obsdóttir, f. 1986; Hafsteinn Berg- mann, f. 1989, Eydís Bergmann, f. 1997. 5) Kristinn Araar, f. 21.5. 1960, sambýliskona Irina Kamp. Böra hans: Sævar Karl, f. 1984, og Axel Ingi, f. 1994. 6) Sig- ríður, f. 5.1. 1965, gift Sölva Sölvasyni. Böm: Finnur Ingi, f. 1994, Þórhildur, f. 1995, Sölvi, f. 1998. Útför Karls fer fram frá Breiða- bólsstaðarkirkju í Fljótshlíð í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Elsku afi, nú ertu farinn frá okkur. Við þökkum þér allar þær stundir sem við höfum átt með þér. Ó, Jesús, bróðir besti ogbamavinurmesti æ breið þú blessun þína ábamæskunamína. Elsku amma, megi góður Guð styrkja þig í sorginni. Halldór, Sverrir Steinn og Arna. Elsku afi. Við áttum ekki von á að þú færir strax, því þú varst alltaf svo hress og góður, en í veikindum þínum „hþfum við fylgst vel með, þess vegna vitum við hvað þér líður vel núna. Hestaferðimar verða ekki fleiri eins og þær voru alltaf skemmtilegar. Okkur þótti líka gott að biðja þig um að skutla okkur heim, þá þurftir þú allt að sjá og keyrðir svo hægt. Við viljum þakka þér allar þær góðu stundir sem við áttum saman og allar ljúíú minningamar sem þú gafst okk- ur og munum við ávallt geyma þær í hjarta okkar. Elsku amma. Megi góð- ur guð gefa þér styrk í þessari miklu sorg. ÞegarmérlíðuriUa leita ég tíl baka tíl þess tíma þegarþúvarsthér ogminningamarum hláturinn, fallega brosið JÓN ÞÓRARINSSON + Jón Þórarinsson fæddist í Auðnum í Sæmundarhlíð í Skagafirði 17. októ- ber 1917. Hann lést á sjúkrahúsi Sauðár- króks 22. aprfl síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Þórarinn Sigur- jónsson og Halláfríð- ur Sigríður Jónsdótt- ir. Jón var fjórði í röð sexsystkina. Hann kvæntist Katrfnu Fjólu Jóels- dóttur frá Stóru-Ökr- um í Skagafirði 17. október 1950. Þau eignuðust sjö dætur: 1) Ingi- björg Bjarklund, f. 13. september 1947. Gift Einari D. Hálfdánarsyni og eiga þau þijú böm. 2) Hallfríð- ur Sigríður, f. 11. júm 1951. Gift Sigurði Karlssyni og eiga þau eitt barn. 3) Sigurlaug Helga, f. 28. ágúst 1952. Á hún tvö börn. 4) Mar- ía Hólm, f. 26. ágúst 1953, gift Hannesi Helgasyni og eiga þau eitt bara. 5) Jón- ína Katrín, f. 2. febr- úar 1955, í sambúð með Sveini Sigurðs- syni. Hún á tvö börn. 6) Þóra Björg, f. 13. febrúar 1957, gift Gunnlaugi Vigfús- syni og eiga þau tvö böra. 7) Jóhanna Elfn, f. 14 júní 1959, f sambúð með Halli Hilmars- syni og eiga þau eitt bara. Útför Jóns fer fram frá Sauðár- krókskirkju í dag og hefst athöfn- inkl. 13.00. Mig langar að minnast Jóns afa míns í nokkrum orðum. Mörg minningarbrot koma upp í hugann á stund eins og þessari og hugurinn hverfur aftur í tíman. Jón afi hefur alla tíð verið mér kær og höf- um við átt margar góðar stundir sam- *m. Þegar ég var yngri var ég dagleg- ur gestur hjá honum því hann gætti mín fyrir foreldra mína. Mér er mjög minnisstæð sú regla og festa en jafn- framt elskusemi sem einkenndi afa alltaf. Eitt af því sem við gerðum að reglu var að við fengum okkur stuttan lúr í stofusófanum eftir að við höfðum borðað hádegismat, ég hef oft hugsað um það, í amstri hversdagsins, hvað þetta voru rólegir og góðir tímar. Á Skógargötunni hjá afa og ömmu átti maður alltaf skjól, gott var að koma þangað eftir skóla og fá eitt- hvað í svanginn og komast í rólegheit. 7X unglingsárum mínum áttum við afi sameiginlegt áhugamál og það var eurovision-keppnin, það varð að venju að ég hringdi í afa þegar keppn- in var búin og við urðum alltaf jafn hissa þegar í Ijós kom að okkar fólk hafði ekki unnið, en svo hlógum við bara. Þegar ég eltist og flutti frá uðárkróki hafði ég minna af afa að segja en þegar ég kom á Krókinn fór ég ævinlega til hans og ömmu á Skóg- argötuna. Afi var mjög sterkur pers- ónuleiki, hafði skoðanir á hlutunum og þegar gott tóm myndaðist áttum við oft mjög fjörugar umræður þrátt fyrir mikil veikindi hans. Veikindi einkenndu líf afa og margar þrautir mátti hann þola en þrátt fyrir veik- indin var margt að gleðjast yfir, hon- um varð sjö bama auðið og átti 12 barnabörn og sex bamabamaböm þegar hann kvaddi og það er mikili auður. Margt af því sem afi kenndi mér mun fylgja mér um ókomin ár og minning hans lifir í huga mínum. Með virðingu kveð ég nú afa minn. Elsku amma, megi góður Guð styrkja þig og styðja í sorg þinni. Kær kveðja. Helga Jóna og fjölskylda. Kæri afi. Þú laus ert úr veikinda viðjum og Guð þér nú fylgir. Margs er að minnast og flýgur margt í gegnum hugann á þessari stundu. En það sem oftast kemur upp í hugann er hversu duglegur þú varst þrátt fyrir að vera með slæma gigt, ég sé þig fyrir mér í stóra garðinum á Skógargötunni oghlýjunaþína ýta öllum sársaukanum burt Þín afaböm, Tinna Ösp, Hafsteinn og Eydís. Kveðja frá Karlakór Rangæinga í dag kveðjum við félaga okkar, gleðigjafann Karl Halldórsson. Karl var einn af stofnendum Karlakórs Rangæinga sem stofnaður var fyrir tíu árum og starfaði með honum nær óslitið til dauðadags. Steig síðast á svið með kómum fjórða mars síastlið- inn. Það er hveijum félagsskap ómet- anlegt að hafa mann eins og Kalla í sínum röðum. Alltaf glettinn og kátan og hvar sem fólk var samankomið til í að taka lagið. Stjómaði þá gjaman fjöldasöng með hálfopnum lófa og þumalfingur vísaði upp. Kæri vinur, við söknum þín sárt félagamir, en þökkum heilshugar allar þær gleði- stundir sem við fengum notið saman. Guðfinna mín, þið hjónin voruð í huga okkar alltaf eitt og sendum við þér og öðrum aðstandendum hugheilar sam- úðarkveðjur. Oft var §ör í kring um Kalla’ í Ey og konu hans, Finnu ágætustu mey, ég hiklaust núna segi það með sann, að samrýndari, fann ei konu og mann. Ávallt er ég sá þau ástín skein, þau alltafvoru tíl, og aldrei sein, hvort sem var með kómum, út í Örk, erlendis, já eða inn á Mörk. Ég kveð þig núna Kalli minn frá Ey, er kallaður var burt í vorsins þey, og Finna mín, að guð svo gefi þér, góða heilsu, ósk er það frá mér. (Jón Ólafsson) Samúðarkveðja, Jón og Inga, Kirkjulæk. Vegir skiptast - Allt fer ýmsar leiðir innáfyrirheitsinslönd. Einum lífið arma breiðir, öðrum dauðinn réttír hönd. Einum flutt er árdagskveðja, skríða um með gamla góða vasahníf- inn og plokka upp fíflarætur og einnig hvað þú lagðir mikla vinnu í að halda stöllunum í garðinum beinum og vel slegnum. Ég skil núna þegar ég er sjálf komin á fullorðinsár hvað þér var illa við að við krakkamir renndum okkur niður þá. Ég man líka hversu góður kokkur þú varst, hvergi hef ég fengið eins góða soðna ýsu á gamla mátann og hjá þér svo við tölum nú ekki um grjónagrautinn sem við öll böm sem bamaböm munum eftir. Ég man líka eftir stundunum í smíða- skúmum, þá fékk ég oft að fylgjast með þér smíða ótrúlega fallegar kist- ur, ég átti mína langt fram á unglings- ár, og sakna þess að eiga hana ekki núna. Þú lést þig nú ekkert muna um að endurbæta húsið upp á eigin spýt- ur og fórst þér það bara vel úr hendi. Ég man þegar ég var lítil og bjó hjá ykkur, kvöldin þegar átti að fara að sofa þegar setið var upp í rúmi og við- spiiuðum löngu vitleysu og svarta pétur og einnig þegar þú kenndir mér að spila á greiðu. Það er svo margt sem ég man eftir sem kannski þótti ekki svo merkilegt þá en situr sem fastast í minningunni og gott er að varðveita og mun aldrei gleymast. Elsku afi, þakka þér fyrir allt í gegnum tíðina, Guð geymi þig. Megir þú hvíla í friði. Ég sendi þér kæra kveðju, núkominerlífsinsnótt. Þig umveQi biessun og bænir, égbiðaðþúsofirrótt Þótt svíði sorg mitt hjarta þásætteraðvitaafþví, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég áttí þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margt að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lífíð oglýsirumókomnatíð. Elsku amma og aðrir ástvinir, megi guð styrkja okkur í sorg okkar. Bára. öðrum sungið dánarlag, allt þó saman knýtt sem keðja, krossfór ein með sama brag. Veikt og sterkt í streng er undið, stórt og smátt er saman bundið. (EinarBen.) Þegar ég var barn og unglingur var ég svo heppin að fá að vera ölium stundum, þegar ekki var skóli, í Ey hjá Kalia og Finnu móðursystur minni. Þau voru mér sem aðrir for- eldrar. Þetta voru yndislegir dagar og fyrir þá langar mig að þakka núna. Ég fékk að snúast mikið með Kalla í ýmsum útiverkum. Mér fannst það skemmtilegra en inniverkin. Þá var sjálfsagt að ég fengi það. Mér fannst ég vera stór og dugleg og gera mikið gagn. Ég veit núna að það var Kalla að þakka. Hann fól mér ýmis verk og treysti mér. Hann kenndi mér á traktorinn og þegar ég fékk að snúa og raka saman með rakstrarvél fannst mér ég vera næstum jafn mik- ilvæg og hann. Kalli var mikill söngmaður og hafði ákaflega fallega rödd. Ógleymanleg eru björt sumarkvöld í Ey, Kalli að slá fram á rauða nótt og söngurinn hans ómaði í kvöldkyrrðinni. Stundum held ég að hann hafi lítáð mátt vera að því að sofa því þegar færi gafst frá bú- störfunum þá þurfti að ríða út og temja. Hestamennska var mikill og óijúfanlegur hluti af lífshlaupi Kalla og hann er víðfrægur meðal hesta- manna fyrir góða hesta. Á þeim vett- vangi var Kalli eins og kóngur í ríki sínu. Það var gaman að vera á hesta- mótum á Hellu, sjá Kalla og Goða tölta saman og vinna til verðlauna. Kalli og Finna voru um margt ólík hjón. Hún alltaf hæglát og róleg, en föst fyrir og kemur sínu að þó ekki séu hávaði og læti. Hann kraftmikill, alltaf fjörugur og kátur og hafði yndi af gleðskap og söng í góðra vina hópi. Þau voru samhent og kunnu að meta eiginleika hvors annars. Finna kunni þá list, að gefa Kalla sínum örlítið lausan tauminn, svo hann gæti fengið útrás fyrir alla gleðina og kraftinn sem í honum bjó. Elsku Finna, Magga, Halla, Gunn- ar, Kiddi, Sigga, tengdaböm og bamaböm. Ég veit að undanfamar vikur hafa verið erfiðar og sorgin er sár, en þið hafið staðið þétt saman og umlukið Kalla ykkar með ást og umhyggju. Það eina sem í raun er öruggt í líf- inu er að því muni ljúka. Hvenær og hvemig vitum við ekki fyrirfram. I amstri hversdagsins hættir okkur stundum til að gleyma að njóta þess lífs sem við eigum á hveijum tíma. Hann Kalli í Ey kunni þá list að njóta lífsins meðan færi gafst og það er gott að geta glaðst yfir því núna. Blessuð sé minning hans. Anna Þdra Einarsddttir. Karl Halldórsson, fyrrum bóndi í Ey í V-Landeyjum, lést á annan dag páska eftir baráttu við erfiðan sjúk- dóm. Ég átti þess kost sem bam og ung- lingur að fara í sveit á sumrin að Ey ásamt Þorvaldi bróður mínum og hjálpa til við bústörfin á stóra sveita- heimili þeirra hjóna, Karls og Guð- finnu Helgadóttur. Þar stjómaði Kari bóndi okkur liðléttingunum styrkri hendi og er óhætt að segja að dvöl okkar þar hafi reynst gott veganesti út í lífið síðar meir. Þetta var á þeim tíma sem íslenskur landbúnaður gekk út á það að hafa búin sem stærst og framleiða sem mest sem þýddi að sí- fellt þurfti að brjóta nýtt land til ræktunar með tilheyrandi skurð- greftri og jarðvinnslu. í minningunni era þessi sumur að Ey eintómir sælu- dagar þar sem skiptust á kúarekstur, fjósverk og heyvinna og síðan ærsl og leikir okkar krakkanna - og það var alltaf gott veður. Karl Halldórsson var vörpulegur maður. Röddin sterk og blæbrigða- rík, hann dökkur á hörund af mikilli útivera með tinnusvart hár, grann- vaxinn en sterklegur. Hann var góður húsbóndi; gat átt það til að brýna raustina ef honum líkaði ekki vinnu- brögðin en það var líka stutt í hlátur- inn og gamansemina. Ég minnist síðustu samverastunda með þeim hjónum, Karli og Guðfinnu, á ættarmóti í sumar er við sátum og röbbuðum saman um daginn og veg- inn. Þá var ljóst að hveiju stefndi en það var engan bilbug á þeim að finna. Elsku Finna, Magga, Halla, Gunn- ar, Kiddi, Sigga og fjölskyldur. Inni- legar samúðarkveðjur til ykkar allra. Blessuð sé minning Karls Halldórs- sonar. Helgi Þorvaldsson. SVAVA ÁGÚSTSDÓTTIR + Svava Ágústs- dóttir fæddist á Bjólu í Djúpárhreppi 6. mars 1933. Hún lést á Landspítalan- um 30. ágúst síðast- liðinn og fór útför hennar fram frá Há- teigskirkju 7. sept- ember. Kveðja frá beklyar- systrum. Vinkona okkar og bekkjarsystir Svava Ágústsdóttir var fædd 6. mars 1933 og lést 30. ágúst 1999 eftir snarpa baráttu við illkynja sjúk- dóm. Hún var jarðsungin frá Há- teigskirkju 7. september 1999. Við andlát góðrar vinkonu koma í hugann myndir og minningar um samverastundir liðinna ára. Leiðir okkar lágu fyrst saman í Kvennaskól- anum í Reykjavík fyrir rúmlega 50 áram. I bekknum okkar hittust 28 unglingsstúlkur hvaðanæva af land- inu, ólíkar á mörgum sviðum en náðu samt einstaklega vel saman. Allar götur síðan höfum við haldið sam- bandi, fyrstu árin hittumst við af og tíl, en síðustu áratugina höfum við komið saman árlega - alltaf á vorin. Þannig höfum við getað fylgst með hver annarri og átt góðar stundir saman. Gaman er að minnast ferða- laga okkar bæði innanlands og utan. Amsterdamferðin verður okkur alltaf ógleymanleg og einnig ferðin til Bol- ungarvíkur, þegar við heimsóttum bekkjarsystur okkar sem þar er bú- sett. Svava lét sig aldrei vanta og var hrókur alls fagnaðar. Það gladdi okk- ur mjög að hitta hana síðastliðið vor þegar hún mætti á vor- fagnaðinn enda þótt hún væri þá merkt af veikindum sínum. í dag höldum við okk- ar árlega vorfagnað og af því tilefni viljum við minnast Svövu bekkjar- systur okkar sérstak- lega. Svava var frá Bjólu í Djúpárhreppi á Rang- árvöllum. Hún kom frá mannmörgu heimili, átti góða foreldra og sjö bræður. Á Kvenna- skólaáranum bjó hún hjá Óskari Einarssyni lækni foður- bróður sínum og konu hans Jóhönnu Magnúsdóttur lyfsala í Lyfjabúðinni Iðunni að Laugavegi 40. Eftir útskrift frá Kvennaskólanum í Reykjavík vor- ið 1952 hóf Svava störf í Lyfjabúðinni Iðunni. Því fyrirtæki helgaði hún sína starfskrafta í meira en 40 ár. Svava var yndisleg persóna, glað- vær og hlý og vildi öllum vel. Fjöl- skylda hennar var henni allt. Hún átti góðan mann, Hrafnkel Ársælsson, skrifstofustjóra, og vora þau samhent hjón. Þau eignuðust tvo syni, Óskar og Ágúst sem báðir hafa stofnað sínar fjölskyldur. Svava minntist oft á það hvað hún væri lánsöm að eiga góða fjölskyldu. Hún var stolt af drengjun- um sínum og tengdadætumar vora sem hennar eigin dætur og bama- bömin gimsteinamir hennar. Nú þegar leiðir hefur skilið, í bili, þá biðjum við Guð að blessa minningu Svövu Ágústsdóttur og sendum fjöl- skyldu hennar samúðarkveðjur okk- ar allra. Hvíl i friði kæra vinkona. Bekkjarsystur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.